Liverpool og Warrior Sports í eina sæng.

Þrátt fyrir að við höfum vitað af því um töluverðan tíma var það fyrst í gær sem að tilkynnt var formlega um að Warrior Sports myndi taka við búningamálum félagsins af Adidas frá og með næsta tímabili.

Samningurinn er til 6 ára og skilar Liverpool 25 milljón pundum á ári þann tíma.

Þetta er næst stærsti búningasamningur í heimi, einungis Barcelona fær meira frá íþróttavöruframleiðendum, Nike borgar 26.5 milljónir fyrir að klæða þá í föt.

Warrior Sports virðast ætla sér stóra hluti miðað við þessa yfirlýsingu. Þeir eru orðnir ráðandi í gríðarlega stórum markaði í lacrosse og hafnabolta í Ameríku og ætla sér að nýta þennan samning til að verða leiðandi afl á knattspyrnusviðinu. Vonandi að það takist!

Ég ber heilmiklar væntingar fyrir þessum samningi, verð að viðurkenna að ég hef ekki verið rífandi glaður með það sem Adidas hefur komið með fram á síðustu árum og það hefur verið augljóst að í stórum íþróttabúðum hafa Real Madrid, AC Milan og Chelsea verið að fá stærra og meira pláss en okkar búningar. Þó ekki á Íslandi. Það er líka klókt hjá aðilunum að koma strax fram með fréttir af þessum risasamningi í kjölfar skrýtinnar yfirlýsingar Adidas um samstarfslokin. Öllu bulli um lítið markaðsvirði því komið til föðurhúsanna!

Völlur í Stanley Park + Nýir búningar (ekki Adidas)

Við flokkum þetta sem slúður, þar sem það er ekkert af þessu staðfest, en bæði atriðin virðast vera nokkuð líkleg á þessum tímapunkti. Byrjum á leikvanginum:

Chris Bascombe skrifar í Telegraph að klúbburinn hafi ákveðið að byggja nýjan völl í Stanley Park eftir allt saman, þar sem of erfitt hafi reynst að endurnýja Anfield. Ókei, okkur grunaði það svo sem. En það sem er athyglisverðast í þessu er að hann segir að nú sé stefnan tekin á að uppfæra upprunalegu teikningarnar – sem eru núna 10 ára gamlar – og byggja 60 þúsund sæta völl í Stanley Park.

Fyrir þá sem ekki muna litu upphaflegu teikningarnar svona út, skál svipuð Emirates Stadium hjá Arsenal:

Svo eignuðust Hicks & Gillett klúbbinn fyrir fimm árum, sögðu að þessar teikningar væru úreltar og pöntuðu nýjar teikningar. Þá átti völlurinn að líta svona út:

Svo eignast FSG klúbbinn fyrir rúmu ári, hafa eytt öllu árinu 2011 í að kanna hvort hægt væri að endurnýja Anfield í staðinn en það virðist ekki vera hægt og samkvæmt frétt Telegraph á núna að taka aftur upp upprunalegu teikningarnar og uppfæra þær, og henda teikningum Hicks & Gillett sem og áformum um endurnýjun Anfield.

Komin með hausverk? Ég líka. Sjáum hvað verður staðfest en FSG-liðar verða að fara að kynna eitthvað fljótlega. Eftir að hafa verið teymd á asnaeyrunum af kúrekunum tveimur mun fólk ekki bíða endalaust áður en það fer að gagnrýna FSG fyrir aðgerðarleysi.


Og þá að hinu málinu: forsvarsmenn ADIDAS hafa staðfest að samningurinn við Liverpool verður ekki endurnýjaður eftir þetta tímabil.

Slúðrið hefur hingað til bent til þess að Liverpool hafi sjálfir kosið að framlengja ekki við Adidas þar sem Warrior hafi boðið betur en Adidas-menn neita þessu í fréttinni hér að ofan og segja að þeir hafi bakkað út því kröfur Liverpool hafi verið „óraunhæfar“. Það er augljóst að mínu mati að Adidas-menn eru að reyna að forðast álitshnekki með því að skjóta fyrsta skotinu og staðfesta þetta á undan klúbbnum en hvað sem því líður þá er það hér með orðið 99,9% staðfest að okkar menn leika í Warrior-treyjum næstu árin.

Janúar/febrúar er yfirleitt sá tími sem líklegar hannanir af treyjum næsta tímabils byrja að leka og þessi mynd hér hefur verið að breiðast víða síðustu 1-2 daga. Hvort þetta er endanlegt útlit eða plat skal ekki ábyrgst hér en mér líst vel á þessa hönnun ef hún er rétt:

Svei mér þá ef meira að segja græna treyjan er ekki bara flott líka.

Hvað finnst fólki? Erum við sátt við að fara í Warrior-treyjum á „gamla“ Nýja-Anfield – sem verður nota bene nær örugglega ekki kallaður Anfield heldur nefndur eftir styrktaraðila – á næstu árum?

BLÁTT! Nýi Liverpool-búningurinn:

Uppfært Babu: Könnun um nýja varabúninginn

Myndir þú kaupa Fernando Torres aftur til Liverpool?

Skoða niðurstöður.

Loading ... Loading ...

Svona lítur þriðji búningur komandi tímabils út:

Þetta var mikið rætt á Twitter í dag og voru flestir heimildar- og blaðamenn á því að þegar félagið samdi við Standard Chartered í fyrrasumar hafi ein af þeim kröfum sem látin var eftir þeim verið sú að þeir fengju a.m.k. einn búning í sínum litum, þ.e. hvítt og blátt. Þannig að ef þið viljið skamma einhvern fyrir þessa Manchester City-treyju þá getið þið skammað Ian Ayres og Standard Chartered.

Búningurinn er ekki ljótur, en hann er BLÁR! Ég stórefa að þeir eigi eftir að selja mörg eintök af þessari skyrtu.

Hvað finnst ykkur? Hversu ömurlegt verður að horfa á deildarleik á Old Trafford næsta vetur og sjá Liverpool spila í bláu?

Fjárhagsfréttir

Liverpool Echo-ið komst í ársuppgjör LFC fyrir síðasta fjárhagsár sem nær frá ágúst 2009 til júlí 2010.

Þeir sem vilja geta kíkt á það hér.

Í stuttu máli eru þar bæði jákvæðar og neikvæðar fréttir. Innkoma jókst um 7 milljónir punda milli ára og er þá samningurinn við Standard Chartered ekki kominn inní myndina, sá hljóðar upp á 20 milljónir punda pr. tímabil í stað u.þ.b. 6 milljóna. Vinir okkar í Carlsberg fóru af treyjunum en gerðu samt stóran samning og síðan erum við að fá stærsta samning við íþróttavöruframleiðanda sem gerður hefur verið svo að útlitið tekjulega er fínt.

Neikvætt er auðvitað arfleifð vitleysinganna sem ég nefni ekki aftur á nafn. Heildarútkoman er taprekstur upp á 20 milljónir punda og það þó við hefðum grætt á leikmannamarkaðnum! Vaxtagreiðslur hækkuðu um 5 milljónir punda á ári upp í tæpar 18 og launaseðillinn um 20 milljónir punda. Þar kemur líka í ljós að það kostaði okkur 8 milljónir punda að reka Rafael Benitez og hans starfslið. Mér skilst að við höfum svo keypt Hodgson á 4 milljónir punda og síðan greitt honum um 3 milljónir punda við starfslok hans.

Glaður er ég að kóngurinn stjórnar núna en í sögunni hljóta þessar 15 milljónir að jafnast á við alla mestu vitleysu sem gerð hefur verið í peningamálum þessa félags frá stofnun, jafnast nærri á við söluna til umræddra vitleysinga!

Ian Ayre segir reksturinn í allt öðru fari eftir eigendaskiptin og reiknar með verulegri breytingu fram að næsta uppgjöri. Það gefur auga leið að launaseðillinn verður lækkaður í sumar, hann er einfaldlega alltof hár miðað við gæði. Það mun þýða að við þurfum að selja dýr nöfn sem lítið fá að spila. Jova, Cole, Konchesky, Poulsen, Kyrgiakos og jafnvel Maxi klárlega kandidatar þar, auk þess sem varla verður farið í að semja við Insua og hugsanlega selja menn fleiri sem gætu gefið pening, t.d. N’Gog og Brad Jones. Áðurnefndir auglýsingasamningar munu klárlega skila miklu, nýir eigendur ætla að gera alvöru úr ameríska markaðnum með Warrior samningnum og Asíuferð mun gefa af sér.

Líka er rætt um Anfield. Þar hefur verið gerð greining sem segir völlinn vera efnahagslega hagstæðan næstu fimm árin. Það þýðir í raun að menn ætla sér að vera þá tilbúnir með nýjan völl ef sá kosturinn verður valinn haustið 2016. Ef hins vegar endurbygging Anfield verður valinn munu menn væntanlega fórna efnahagslegu gæðunum fyrr og vera tilbúnir með endurgerðan völl á svipaðri dagsetningu, hugsanlega ári seinna.

Í samantekt held ég að við vitnum í lagið okkar góða og áttum okkur á því að í fjármálunum erum við búin að labba gegn vindbörðu regninu og erum að greina fuglasöng í fjarska, vitandi það að við erum aldrei ein!

Nýir búningar? (uppfært)

Þá er komið að uppáhalds tíma sumra Púllara á hverju ári, eða vormánuðunum þar sem myndir af væntanlegum Liverpool-búningum leka á netið.

Fyrsti lekinn varð í síðustu viku þegar Empire of the Kop birti myndir af þremur treyjum sem þykja líklegar sem búningar næsta tímabils:

Vandamálið við þennan leka er að í gær láku svo myndir af búning sem virðist vera enn meira ekta (er með ClimaCool-merki Adidas sem hinir hafa ekki) og gæti þá verið nýja varatreyjan:

Spurningin er, hvað af þessu er rétt? Ef fyrri þrjár myndirnar eru réttar er ég ekki alveg sannfærður um ágæti rauðu treyjunnar, græn/hvíta treyjan er algjör hryllingur, en ég mun versla gylltu treyjuna daginn sem hún kemur út. Hvíta treyjan sem lak í gær er svo bara nokkuð flott.

Hvað segir sérlegur tískuráðgjafi Kop.is? Einar Örn?


**Uppfært (EÖE)** Empire of the Kop birta nú nýja útgáfu af búningnum, sem mér finnst svona sirka 1800 sinnum flottari:


Ég ætla innilega að vona að þetta sé nær lagi en sá hroðbjóður sem birtist hér að ofan.

Liverpool semja við Standard Chartered

Samkvæmt einkafrétt Tony Barrett í The Times í gær munu Liverpool ekki leika í búningum með auglýsingum Carlsberg eftir þetta tímabil. George Gillett, annar eigenda klúbbsins, sagði víst í viðtali í Kanada fyrir helgina að klúbburinn myndi fljótlega kynna nýjan aðalstuðningsaðila sem yrði eitt af stærstu fyrirtækjum heims.

Ég veit ekki hversu frægt vörumerki þetta er endilega, en skv. Barrett (sem er mjög áreiðanleg heimild) mun Liverpool á næstunni kynna samning sinn við fjárfestingarbankann Standard Chartered frá London. Samningurinn á að hljóða upp á 20m punda á ári í fjögur ár, eða 80m punda, fyrir að vera aðalstyrktaraðili klúbbsins og hafa auglýsingu sína framan á treyju liðsins. Það ku vera jafnmikið og Manchester United munu fá frá Aon, sínum nýja styrktaraðila, sem var stærsti samningur síns eðlis þegar hann var kynntur í vor.

Það eru vissulega góðar fréttir að klúbburinn sé loks að byrja að ná svipuðum árangri fjárhagslega og erkifjendurnir, en rauðu djöflarnir hafa sparkað í rassgatið á okkar mönnum í mörg ár á þeim velli og hefur það spilað stórt hlutverk í yfirburðum þeirra á leikmannamarkaði. Þannig að þetta er bara jákvætt, hvað svo sem segja má um önnur verk eigendanna. Þó verðum við að bíða þangað til smáatriði samningsins verða kynnt áður en við getum metið þennan díl að fullu.

Á einu spjallborðinu tók einhver aðdáandinn með PhotoShop-hæfileika sig til og henti upp mögulegu útliti á rauðri treyju með auglýsingu Standard Chartered í aðalhlutverki:

standard-chartered-liverpool

Eins og margir vita verður ný aðaltreyja kynnt næsta vor og verður hún þá sú fyrsta sem ber nýju auglýsinguna. Ég keypti ekki Liverpool-treyjuna sem liðið leikur í núna (þá rauðu, aðal) af því að ég hef aldrei fílað að hafa of mikið hvítt á henni. Mér finnst treyjurnar bestar þegar þær eru bara rauðar, þannig að ég get ekki sagt að ég haldi í sömu von um hönnun og sá sem gerir myndina hér að ofan. Engu að síður finnst mér auglýsingin bara koma vel út – ef hún fær að vera hvít á rauðu gæti þetta alveg fallið ágætlega inn í ‘lúkkið’ án þess að skemma heildina.

Fjármálafréttir og spjall við Rafa

Liverpool er víst þrátt fyrir allt fyrirtæki.

Þess vegna hendi ég hér inn tveimur fréttum sem snúa að rekstri þess fyrirtækis og menn geta kommentað á. Annars vegar er það er frétt frá gærdeginum á opinberu síðunni þar sem tilkynnt er um ráðningu “Allsherjarframkvæmdastjóra” félagsins. Sá sem varð fyrir valinu heitir Christian Purslow (þó miðað við lookið á honum ætti hann að heita Newman, er viss um að hann er launsonur poppkornskóngsins heitins), maður sem hefur verið áskrifandi að ársmiða á Anfield um nokkurt skeið, með meistarapróf í hagfræði frá Harvard, altalandi á spænsku og á að baki árangursríkan feril hjá nokkrum öflugum breskum einkafyrirtækjum.

Hann verður yfirmaður allra deilda félagsins varðandi fjárhag og mun m.a. ráða eftirmann Parry. Þegar það gerist mun hann svo setjast í stjórn félagsins. Vonum að hann standi sig vel, allavega betur en fyrirrennarinn!

Í dag berast svo fréttir af því að amerísku eigendurnir séu búnir að endurfjármagna stóra lánið hjá Royal Bank of Scotland. Eigi bara eftir að fá samþykki Wachoviabankans bandaríska fyrir greiðsluáætlun þess. Wachovia er hinn stóri lánveitandinn í dæminu og þar er greiðsluáætlun í gangi.

Samkvæmt þessari frétt eru því fjármálin að verða komin í varanlegan farveg og því ættum við að losna við dómsdagsfréttir gulu pressunnar og óvandaðra Londonblaða þegar kemur að yfirvofandi gjaldþrotum víðsvegar í umgjörð LFC.

Ef fólk vill leikmannapunkta í bland má benda á að enn er beðið eftir endanlegri staðfestingu Glen Johnson, sem væntanlega kemur eftir læknisskoðun sem enn er ótímasett og enn er verið að velta Mascherano fyrir sér hjá gulu pressunni. Ekki þó hægt að finna áræðanlega heimild varðandi Javier í dag.

Uppfært

Rakst á þetta viðtal við Rafa í Liverpool Echo nú áðan.

Þarna lýsir hann því að hann hafi greitt meira fyrir Johnson en hann vildi þar sem markaðurinn einfaldlega sé á þann veg nú og hann talar líka um að hann geti keypt annan leikmann án þess að selja nokkurn. Í lok viðtalsins sýnist mér hann þó vera að búa okkur undir það að selja Arbeloa, þar sem hann á lítið eftir af samningi við félagið

Enski boltinn í útlöndum og 7 varamenn.

Ég var að rekast á ansi magnaða frétt á netinu sem fjallar um það að nú hafa öll 20 liðin í ensku úrvalsdeildinni samþykkt að skoða það að leika einn úrvalsdeildarleik í erlendri borg, þ.e.a.s utan Englands í janúar árið 2011. Þessir leikir verða þá leiknir í borgum á borð við Hong Kong, New York, LA, Sydney, Jóhannesarborg o.fl. og hugmyndin er að hnattvæða enska boltann enn meira. Þar sem enska deildin er alltaf að verða vinsælli og vinsælli út um allan heim þá tel ég þetta stórt og mikilvægt skref hvað markaðssetningu deildarinnar sem heild varðar. Út í hinum stóra heimi er enski boltinn sem heild lítt þekktur, stórliðin Manchester United, Arsenal, Chelsea og Liverpool fá alla athyglina og hin liðin því ekki eins vinsæl. Reyndar er markaðssetning Liverpool FC sér kapítuli sem ég ætla ekki að fara að ræða eitthvað frekar.

Ég tel þetta mun auka sjónvarpstekjur sem eiga að skiptast jafnt á milli allra 20 liðanna og þessi “erlenda umferð” gæti einnig opnað augu erlendra fjárfesta í leiðinni. Við höfum séð lið vera fara til Kína og Bandaríkjanna á undirbúningstímabilum og stór þáttur af því er markaðssetning og tekjuaukning fyrir klúbbana og það var því aldrei spurning hvort þetta myndi gerast heldur hvenær.
Enn á eftir að vinna í smáatriðum og frekari úrvinnslu fyrirkomulagsins en grunnhugmyndin er að liðin muni leika 39 leiki í stað 38 á tímabilinu. Það yrði þá dregið hvaða lið myndu mætast og í hvaða borg og úrslit myndu telja, alveg eins og um venjulegan úrvalsdeildarleik á Englandi væri um að ræða.

” Premier League chief executive Richard Scudamore said: ‘The ‘international round’ is an exciting and innovative proposal that needs careful consideration before being introduced. “

Og gamli gaukur hélt áfram:

“‘We believe that an ‘international round’ of matches will enhance the strength of the Premier League as a competition; create extra interest in all 20 Premier League Clubs at home and abroad; and allow increased investment in talent development and acquisition, facilities as well as our football development and community programmes.’”

Ég býð spenntur eftir að sjá Liverpool – Manchester United í Sydney eða New York með troðfulla risavelli sem taka 120.000 manns í sæti, þá fengjum við einn leik á tímabili með öðruvísi og skemmtilegri umgjörð. Ég tel þetta ku vera góðar fréttir og allt kvart og kvein um að leikmenn þreytist á svona ferðalögum og þess háttar væl ætla ég ekki að hlusta á. Auðvitað dregur þetta smá vind úr mönnum en ég veit ekki betur en að Manchester United sé nýkomið úr peninga- og markaðsferð þar sem þeir létu helstu stjörnur sínar spila og ekki virtist sú ferðin sitja í þeim. En gaman að því að allir klúbbarnir vinni saman að því markmiði að hnattvæða sterkustu knattspyrnudeild heims sem er á hraðri uppleið út í heimi.

Fyrir þá sem vilja kíkja á fréttina þá las ég greinina á Soccernet en hún ætti að vera komin á alla helstu fréttavefi.

Svo greip önnur frétt athygli mína í kvöld. Ég hef lengi beðið eftir þessu en hún fjallar um að á næstu leiktíð þá fjölgar varamönnum úr 5 í 7. Þetta tel ég vera gleðiefni einnig, þar sem við gætum farið að sjá gutta úr unglingastarfinu koma og verma varamannabekkinn öðru hvoru og líka meiri möguleika fyrir þjálfara að hafa úr fleiri mönnum á bekknum að velja.

Enski boltinn virðist vera að opnast svolítið og nýjar hefðir að koma fram á sjónarsviðið von bráðar.

Er launaþak lausnin?

Menn hafa mismiklar áhyggjur af því hvort það sé fákeppni enska boltanum. Að það sé ómögulegt að brjótast í gegnum múrinn sem hinir “fjóru stóru” eru, það er að segja Liverpool, Chelsea, Manchester United og Arsenal. Önnur lið séu einungis að berjast um UEFA sæti og að falla ekki.Oft er horft til Bandaríkjanna og sagt að þar sé kerfið til fyrirmyndar þar sem um launaþak sé að ræða og nýliðaval sem skilar því að bestu leikmennirnir dreifast á liðin í stað þess að hrúgast allir í örfá lið.

Menn vilja líka meina að tilkoma Úrvalsdeildarinnar hafi líka haft slæm áhrif í þessa átt. Að nú sé ómögulegt fyrir lið eins og Nottingham Forest, Aston Villa og Derby að vinna deildina. En hvað segja tölurnar.

Continue reading

Með rúmlega milljón á dag

Afabróðir minn, Bjarni Guðnason fékk ungur að árum tilboð um að spila fyrir Chelsea. Hann afþakkaði pent þar sem launin sem hann var að ljúka kennaranámi og launin sem kennari á Íslandi væru líklegri til að framfleyta fjölskyldu hans heldur en það sem Chelsea gat boðið.

Í dag eru sex leikmenn Chelsea sem þéna yfir 10 milljón króna á viku. Þeir eru vandfundnir kennararnir á Íslandi sem eru með slík árslaun hvað þá á viku.

Árið 1961 voru hámarkslaun afnumin í enska boltanum en fram að því höfðu þau verið £20 á viku. Johnny Haynes varð hæstlaunaði leikmaðurinn með £100 á viku. Næstu áratugina jukust laun leikmanna jafnt og þétt en samt sem áður var farsæll knattspyrnuferill ekki ávísun á öryggi út lífið eins og í dag. T.d. voru margir leikmenn úr gullaldarliði Liverpool sem vann fjóra Evrópubikara á árunum 1977-1984 sem urðu að fá sér “alvöru” vinnu eftir að skórnir voru komnir á hilluna.

Continue reading

Er góður bissness að kaupa fótboltalið?

Nú berast fregnir af því að Pálmi Haraldsson og Jón Ásgeir Jóhannesson fari fyrir hóp sem vilji kaupa Newcastle. Þá væru allt í einu tvö þekkt úrvalsdeildarlið komin í hendur íslenskra auðjöfra. Maður sér strax fyrir sér fyrirsagnirnar þegar kexkökubarónninn mætir grænmetisgreifanum.

En er það góður bissness að kaupa fótboltalið?

Fyrstu viðbrögð virðast vera neikvæð enda margir brenndir eftir Stoke ævintýrið. En eins og ég hef rætt um undanfarið eru mikil tækifæri og miklir peningar í enska boltanum um þessar mundir. Og ef menn fara rétt að hlutunum þá getur fjárfestum hlotist ríkulegur ávöxtur…eða grænmeti eftir því hvaðan menn koma.

Continue reading

Áhrif sjónvarps á enska boltann

Vorið 1989 biðu knattspyrnuáhugamenn á Íslandi spenntir eftir því á hverjum laugardegi hvaða leik RÚV myndi sína beint í ensku knattspyrnunni. Stundum datt maður í lukkupottinn og fékk að berja Peter Beardsley og John Barnes augum. Og stundum þurfti maður að horfa á Ricky Hill og Steve Foster renna eftir gervigrasinu í Luton. Undir hljómaði Bjarni Fel. sem deildi einstakri innsýn sinni með áhorfendum.

“Það þýðir ekki að deila við dómarann”, var uppáhaldssetning Bjarna Fel. Stundum var Samúel Örn í settinu, önnur skipti Arnar Björnsson og svo slökkti maður á sjónvarpinu þegar Ingólfur Hannesson átti vakt. Mörk vikunnar voru sýnd þegar og ef RÚV hentaði. 

Í Englandi var sjaldgæft að sýnt væri beint út um allt land úr deildarkeppninni, sérstaklega á laugardögum kl. 15. Þess vegna mátti oft sjá auglýsingar frá norskum og sænskum fyrirtækjum á völlunum. Svo var það einn laugardaginn að við fengum nákvæmlega leikinn sem við vorum að bíða eftir, Liverpool – Nottingham Forest í undanúrslitum bikarsins á Hillsborough í Sheffield.

Eftir þann leik breyttist allt saman. Continue reading

Vörumerkið Liverpool FC

Áður en lengra er haldið vil ég taka fram þá skoðun mína að markaðsmenn sem eru ekki söludrifnir eru ekki markaðsmenn heldur… grafískir hönnuðir.  :-)

Carlsberg hlýtur að vilja selja einhvern bjór í kjölfar þessarar  “framúrstefnulegu” auglýsingar með Gerrard að skjóta flöskutöppum í Jose Reina. Þeir geta svo gætt þess að þeir séu að selja góðan bjór frekar en vondan bjór, alveg eins og Liverpool getur væntanlega selt sína ímynd vel ef gæðin bak við merkið eru góð.

Til hvers ætti Adidas t.d. að eyða öllum þessum pening í flottar auglýsingar ef fólk getur svo ekki keypt langerma Liverpool-boli í Liverpool-borg? Ég held að í Ian Ayre sé Liverpool komið með alvöru markaðsmann sem framkvæmir í staðinn fyrir að skella sér í hvítvín í hádeginu á fimmtudögum.

En hverfum aðeins aftur til ársins 2004.

“Carlsberg’s view is that they paid for a worldwide media property, but that Liverpool failed to exploit an international brand built on a rich history that is particularly strong in important Asian markets.”
22.12.2004

Þegar þarna var komið var Carlsberg að íhuga að hætta styrktarsamning sínum við Liverpool vegna þess að þeir vildu meina að þeir væru ekki að fá nógu mikið út úr honum. Salan á Michael Owen og yfirvofandi brottför Steve Gerrard urðu til þess að markaðsmenn Carlsberg töldu vörumerkið Liverpool ekki vera nógu gott til að samsvara sér við “Possibly the best beer in the world”. Stjórnendur Liverpool voru ekki að viðhalda almennilegum gæðum innan né utan vallar og því erfiðara að sannfæra styrktaraðila um að tengjast liðinu. Liðið sem tuttugu árum áður var best í heimi var að breytast í Tottenham, Newcastle…Aston Villa.
Continue reading

Nýjar áherslur í markaðsmálum Liverpool

Í kjölfar þeirrar athygli sem nýlegur pistill okkar um verðlagningu Sýnar vakti tókum við á Liverpool Blogginu þá ákvörðun að bjóða Daða Rafnssyni markaðsfræðingi gestahlutverk hér á síðunni. Hann mun því í framtíðinni koma með pistla um allt sem snýr að markaðs- og fjármálasviði Liverpool FC. Þetta er hans fyrsti pistill, bjóðum hann velkominn. -Kristján Atli


Nýlega var Ian Ayre ráðinn sem markaðsstjóri (Commercial Director) Liverpool eftir mikla leit. Ayre var áður stjórnarformaður og forstjóri Huddersfield Town og hefur mikla reynslu af sölu sjónvarpsréttinda. Hann hefur einnig umtalsverð sambönd í Asíu eftir að hafa rekið fyrirtæki sem var brautryðjandi í framleiðslu myndlykla fyrir gervihnattastöðvar á borð við SKY. Ayre hefur verið Liverpool aðdáandi frá blautu barnsbeini og er söludrifinn með afbrigðum.

Ayre gæti orðið mikilvægasti “nýji leikmaðurinn” á Anfield í vetur því sú umhyggja sem stjórnendur Liverpool hafa sýnt vörumerki sínu í gegnum tíðina hefur verið skelfileg.

Í dag eru vinir okkar í Manchester United langt á undan okkur í öllu sem viðkemur markaðsmálum og vörumerkjastjórnun. Þetta kemur meðal annars fram í því að ef þú ættir nokkra milljarði punda aflögu til að kaupa fótboltalið í dag yrðir þú væntanlega að greiða helmingi meira fyrir United heldur en fyrir Liverpool.

Ef líkja mætti vörumerkjastjórnun við það að keyra bíl er United í botni á nýbónuðum Bugatti Veyron á meðan við erum ennþá að keyra Lexusinn hans pabba. Á 90 kílómetra hraða.

Stundum hefur maður klórað sér í hausnum og spurt sjálfan sig hvað þessir menn eru að hugsa. Á meðan batteríið í kringum United gerði Beckham að stjörnu í Gillette auglýsingum útum allan heim var markaðsdeild Liverpool að senda Jason McAteer og Steve McManaman til að opna nýja McDonald´s staði til að komast í staðarblöðin.

“Liverpool´s two Big Macs”. Guð hjálpi okkur!

United er með stærri völl, betra aðgengi að vellinum, flottari búð, meira vöruúrval, fleiri veitingastaði, fleiri fyrirtækja-stúkur og mun markvissari vörumerkjastjórnun. Á meðan við höfum hangið í Reebok-bolum og auglýst danskan bjór hafa hinir gert tímamótasamninga við Vodafone og Nike.

Og þetta lekur yfir í PR-hliðina, þar sem Liverpool hefur líka dregið lappirnar. Steven Gerrard væri fyrirliði enska landsliðsins í dag ef Liverpool hefði staðið betur að markaðsmálum sínum. Jamie Carragher væri fyrstur í vörnina með John Terry. Þið trúið því kannski ekki að þetta hafi svo mikil áhrif en þannig er það nú bara. Fjölmiðlar í London hafa mikil áhrif á ímynd leikmanna og þar af leiðandi val í landsliðið. Sjáið bara Rio Ferdinand og Ledley King…meira að segja Zat Knight og Michael Duberry hafa verið hafnir til skýjanna af London-pressunni.

Ég hef reynt að selja bæði Liverpool og Manchester Utd. vöru fyrir hönd bandarísks fyrirtækis. Þessi vara hafði slegið í gegn hjá öllum helstu íþróttaliðum í Bandaríkjunum og átti eftir að slá í gegn á Englandi nokkru seinna. United-menn tóku á móti mér á flottri skrifstofu með útsýni yfir Old Trafford þar sem 40 manns voru að vinna í markaðsmálum. Allt pottþétt. Að eiga við Liverpool var eins og að eiga við ítalskt ríkisfyrirtæki og það var ekki einu sinni hægt að komast á fund. Hversu mörgum tækifærum hefur klúbburinn misst af vegna svona vinnubragða?

En höfum þá eitt enn alveg á tandurhreinu, möguleikar vörumerkisins hjá Liverpool eru gífurlegir, jafnvel betri heldur en hjá Manchester United. Og þetta skildu Hicks og Gillett þegar þeir voru að kaupa liðið. Þeir geta mögulega tvöfaldað fjárfestingu sína í Liverpool á stuttum tíma ef þessi tækifæri eru nýtt.

Hicks segir að hann hafi hrifist af frumkvöðlakrafti Ayres. Hann hafi brotist til efna af sjálfdáðum og skilji manna best möguleikana sem felist í heimamarkaði, Asíumarkaðinum og nýjum fjölmiðlum eins og internetinu. “Verkefni hans felst í að gera vörumerki Liverpool jafn sigursælt á heimsvísu og liðið hefur verið inni á vellinum”, segir Hicks.

Ég held að helstu verkefni og forgangsröð Ayres verði eftirfarandi. Ég mun svo skrifa sérpistla um þessi efni nánar á næstunni:

  • Vörumerkið og styrktarmál

Skilgreining og útfærsla. Barcelona vildi ekki “óhreinka” búninginn sinn með hvaða auglýsenda sem var. Hvernig vill Liverpool staðsetja sig í hugum knattspyrnuáhugamanna? Það skiptir máli hvaða nafn völlurinn fær, hverjir auglýsa framan á búningnum og hvernig gæði merkisins er framsett. Ekki búast við því að sjá Fernando Torres opna McDonalds í Toxteth.

  • Sjónvarp og internetið

Sjónvarpstöð klúbbsins verður keyrð upp og það má búast við því að stóru liðin fari að heimta æ stærri skerf í sinn hlut af beinum útsendingum. Það sem skiptir enn meira máli er að netsíðan verður gerð aðgengilegri og markvissari. Í dag er hún dæmi um allt sem er vont í vefhönnun. Ruglingsleg, flókin og of mikið af efni og ómarkvissum auglýsingum.

  • Nýji völlurinn, miðasala og vörudreifing

Allir sem hafa komið á Anfield vita að hann stenst engan veginn kröfur dagsins í dag. Aðkoman fyrir rútur og bíla er ómöguleg, búðin er alltaf troðfull, þröng og illa skipulögð, veitingastaðir eru fáir og gæðin á matnum eru ekki til fyrirmyndar. Þetta mun allt breytast með nýjum velli. Vissuð þið að fyrsta árið sem Red Café opnaði á Old Trafford var sá veitingastaður með hærri ársveltu heldur en Wimbledon Football Club sem þá var að keppa við Manchester United. í Úrvalsdeildinni? Einnig skipta fyrirtækjastúkurnar mjög miklu máli, þrátt fyrir að menn haldi að þar eigi sér bara stað rækjusamlokuát.

Með stærri velli verður líka hægt að selja fleiri miða og á fjölbreyttari verðum sem þýðir að hægt er að þjónusta breiðari hóp aðdáenda.


Hvað vörudreifingu varðar má búast við fleiri Liverpool Megastore á helstu markaðssvæðum í Asíu, Bandaríkjunum og Evrópu ásamt aukinni sölu í gegnum netið. Búðin á nýja vellinum verður gjörólík þeirri sem við þekkjum svo vel.Kapphlaupið um áhangendur skiptir máli fyrir framtíðarvöxt liða. Í dag er Liverpool í 6. sæti yfir verðmætustu vörumerkin í knattspyrnu þrátt fyrir að vera tíunda verðmætasta liðið. Ian Ayre og markaðsdeild Liverpool er sett það verkefni að koma liðinu á toppinn á báðum vígstöðvum. Næst ætla ég að ræða um það af hverju það er ekki bara mögulegt fyrir Liverpool heldur líka mjög líklegt að svo verði.