Liverpool bloggið hefur starfað í tæp 8 ár. Á þessum árum hafa verið skrifaðar yfir 3.900 færslur, eða nærri því tvær færslur að meðaltali á dag. Umræðurnar á síðunni hafa líka verið gríðarlega lifandi. Frá stofnun hafa yfir 108.000 ummæli verið skrifuð hér eða um 35-40 á hverjum einasta degi. Á síðustu tveimur árum er þó líklegt að meðaltalið sé mun hærra, enda hafa vinsældirnar aukist mikið. Síðan er klárlega ein af allra vinsælustu bloggsíðum landsins.
Að meðaltali fær Liverpool bloggið um 5.000 heimsóknir á dag, um 11.300 flettingar og meðalnotandi eyðir tæpum 5 mínútum að meðaltali í hverri heimsókn. Alls heimsækja um 25.000 einstakir notendur síðuna í hverjum mánuði, af þeim eru um 90% fastagestir.
Auglýsingin er 170px x 170px. Auglýsingin má vera Flash, en hún má ekki vera á endalausri loop-u. Það má semsagt vera 5-10 sekúndur af Flash efni, sem verður svo að stöðvast eftir fyrsta hring. Auglýsingin birtist á besta stað hægra megin á síðunni, fyrir ofan efni sem er mikið notað.
Verð á auglýsingu er krónur 20.000 á mánuði. Ef teknir eru fleiri en einn mánuður þá er hægt að semja um afslátt. Upplýsingar um verð og annað gefur Kristján Atli: kristjanatli@gmail.com