Staðan í deildinni

Jæja, úrslit helgarinnar virðast ætla að vera öll slæm fyrir Liverpool. Öll hin toppliðin virðast vera að vinna sína leiki.

Man U vann, Arsenal vann, Blackburn vann, Bolton vann og Tottenham er að vinna. Staðan er því svona fyrir leik Liverpool og Newcastle (að því gefnu að Tottenham klári sinn leik):

Chelsea 29 – 75 stig
Man U 29 – 63 stig
Liverpool 30 – 58 stig
Tottenham – 30 52 stig
Arsenal 30 – 50 stig
Blackburn 30 – 49 stig
Bolton 28 – 49 stig.

Segjum sem svo að við myndum tapa, þá gæti Bolton *jafnað* okkur að stigum með því að vinna þá leiki, sem þeir eiga inni, Tottenham gætu komist þrem stigum á eftir okkur og Arsenal 5 stigum.

Þannig að krafan er sú að við töpum alls ekki á morgun. Jafntefli er lágmark og vonandi tekst okkur að vinna Newcastle. Við eigum að geta það, sérstaklega þar sem að Michael Owen er ekki með þeim.

Ein athugasemd

  1. Já þetta Bolton-lið virðist ætla að læða sér inn í Meistaradeildina, ef þeir halda áfram að vinna leiki eins og þeir hafa verið að gera. Ég er eiginlega hræddari við þá en Tottenham og Arsenal í dag, í sannleika sagt.

Newcastle á morgun!

Gonzalez í beinni á SÝN!