Gonzalez í beinni á SÝN!

Fyrir þá sem hafa áhuga þá er **Mark ‘Speedy’ Gonzalez** í byrjunarliði Real Sociedad, sem mæta Barcelona í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni **Sýn** núna kl. 19:00. Ég hvet alla áhuga sama um kappann til að horfa á þennan leik, mun kannski bæta aðeins við þessa færslu með umsögn um það hvernig hann stóð sig að leik loknum.

Já, og Mikel Alonso bróðir Xabi er einnig í liði Sociedad, þannig að við Púllararnir höfum nægar ástæður til að horfa á þennan leik. Ekki það að knattspyrnuunnendur þurfi ástæður til að horfa á Barca þessa dagana … 🙂

**Uppfært:** Jæja, þessi leikur er að klárast og Barca eru að vinna 0-2 útisigur. Larsson og Eto’o skoruðu mörk þeirra, en Mark Gonzalez átti hættulegasta færi Sociedad í fyrri hálfleik, þegar hann lék á tvo menn glæsilega úti á kanti og skaut svo af 30-35 metrunum ótrúlega föstu skoti sem small í stönginni og svo í bakinu á Victor Valdez markverði, sem greip hann síðan. Börsungar voru heppnir að Speedy skoraði ekki þar.

Annars fór Speedy hægt af stað í þessum leik en vann sig fljótt inn í hann og var pottþétt mest ógnandi leikmaður Sociedad í fyrri hálfleiknum, ásamt kannski Nihat í framlínunni. Oleguer réði ekkert við hann úti á hægri vængnum og hann hefði hæglega getað skorað með langskoti sínu, auk þess sem hann átti nokkrar hættulegar fyrirgjafir.

Í síðari hálfleik týndist hann svo aðeins og var loks tekinn útaf á 68. mínútu, en þulurinn hafði orð á því að hann væri nú enn að spila sig í leikform eftir að hafa misst úr einhverja 8-9 mánuði á síðasta ári vegna meiðslanna sem hann hlaut hjá Albacete, auk þess sem hann gat ekkert spilað fyrir Liverpool.

Ég hlakka til að sjá þennan strák á Anfield, fá skásendingu frá Alonso og vera með boltann í nógu svæði við vítateigshornið, einn gegn bakverði andstæðinganna, eins og við sjáum Kewell svo oft gera. Þar ætti Gonzalez að vera stórhættulegur, maður gegn manni og líka þar sem hann er greinilega algjör sleggja.

Góður leikmaður hér á ferð og ef hann nær að aðlagast enskri knattspyrnu geri ég mér miklar vonir.

6 Comments

  1. Ég hef aldrei náð því almennilega, hvort er hann hægri eða vinstri kantur?

  2. Ég var að pæla. Ef ég segi orðið chelsea ætli Nonni komi þá og fari að rífast við mig?

  3. ég verð að segja að okkar maður sýndi ekki rassgat í kvöld, við megum ekki vera of blindaðir á hann. hann sást lítið í þessum leik og það en kannski líitið við hann að sakast enda voru barcamenn miklu betri.

  4. Ég hefði hatað hann til æviloka ef hann hefði eyðilagt lengjuna mína! 😡

  5. Takk Kristján Atli. Einmitt það sem ég hélt. Einhverjir vinir mínir voru bara alveg á því að hann væri hægri kantur og að þessvegna þyrfti ekki að kaupa nýjan hægri kant í sumar. En ég sá hann alltaf sem mann til að berjast um sætið við Kewell.

Staðan í deildinni

Liðið gegn Newcastle!