Byrjunarliðið gegn Tottenham komið

Jæja, byrjunarliðið er komið og það er ekki margt sem kemur á óvart.

Rafa stillir þessu upp svona:

Reina

Arbeloa – Carragher – Agger – Dossena

Mascherano – Alonso
Kuyt – Gerrard – Riera
Keane

**Bekkur:** Cavalieri, Hyypiä, Aurelio, Lucas, Benayoun, Babel, El Zhar.

Líst vel á þetta. Okkar sterkasta lið í dag, að undanskildum Torres sem er greinilega ekki alveg leikfær enn fyrst hann er ekki á bekknum.

Sjáum hvað setur. Áfram Liverpool!

13 Comments

  1. Jæa Keane þá er þinn tími kominn. Torres ekki með ég er ekki alveg sáttur, en við tökum þettað 0-3 Koma svo allir sem einn……

  2. Nei heyrðu, hann er inná. Hann var ekki i uppsettu liði í sjónvarpinu.

    GOTT GOTT

  3. Lélegt hjá öllum þessum Tottenham aðdáendum sem eru að púa á Keane.
    Annars ætla ég að vera fyrstur til að segja þetta á þessari síðu, Dossena er búinn að vera drullufínn í þessum fyrri hálfleik.

  4. Fernando FOKKING Torres væri búinn að skora 5 mörk í þessum seinni FUCKING FUCKCKCKCKCK KHálfleik FUCK

    Þeir geta sjálfum sér um kennt fyrir að tapa þessu

  5. 90 mín búnar og babel að koma við boltann í fyrsta skipti?? kom inná á 66 mín fyrir keane…
    góður leikur hjá babel í dag…

  6. Jæja þannig fór það, léleg nýting á færum fór með okkur í þessum leik.
    Góðar 30 mín dugðu Tottenham til sigurs 🙁
    Fúlt en svona er boltinn 🙁

  7. Það er í svona leikjum sem lið vinna eða tapa titlum. Tap fyrir einu af botnliðunum gerir lítið úr sigri á toppliðinu um daginn. Chelsea verða meistarar, mutd í öðru liverpool í þriðja.
    Youseless Benayoun var maður leiksins.

  8. er ekki kannski málið að segja að Gamla góða liðið er mætt á svæðið aftur 😉 en sorglegt hvernig þessi leikur fór kom þarna smá kafli í seinni hálfleik þar sem við vorum að fara setja annað markið og vinna leikinn, En svo kom bara tottenham inn í leikinn með þeim afleiðingum að síðustu 30 mins var tottenham með boltan og liverpool minnti frekar á derby í fyrra heldur en toppliði 😉 en fyrst tapið er komin þá hjóta þeir að fara á sigurbraut aftur, alla vega er chelsea búð að sýna það að þeir eru ekki að fara gefast upp heldur setja upp veislur eins og þeim er einum lagið.

Tottenham á morgun

Tottenham 2 – Liverpool 1