Crouch klár í slaginn (uppfært)

Peter Crouch er klár í slaginn gegn Spurs á morgun og ef hann fær sénsinn þá verður þetta fyrsti leikurinn hans í deildinni fyrir Liverpool. Þetta er góður fréttir í ljósi þess að Morientes er frá vegna meiðsla og verður pottþétt ekki með gegn Spurs á morgun og síðan Betis í miðri viku, ætti að verða klár fyrir næstu helgi. Crouch [segist þekkja vel til Tottenham](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N149918050909-0830.htm) og að hann hafi verið “trainee” þar áður en hann fór til Q.P.R., einnig hafi hann spilað með ungu strákunum í yngri landsliðum Englands s.s. Ledley King.
Ég tel líklegt að Rafa haldi sig við 4-4-1-1 kerfið og Cisse byrji frammi einn en að Crouch fær pottþétt að spreyta sig eitthvað í leiknum. Við verðum að vinna þennan leik… ég er spenntur!!!


Uppfært (Kristján Atli): Það virðist vera mikið fjallað um framherjana okkar fyrir helgina og er nokkuð af góðum greinum að finna. Fannst við hæfi að láta vísanir á þær fylgja með þessari færslu:

Liverpool Echo: We’re Behind You (Djibril Cissé)
Liverpool Echo: Crouch To Earn His Spurs
LFC.tv: Better news for Nando
LFC.tv: Deadline Day Woe And Super Cup Success (Rick Parry)

Flottar greinar sem stytta stundirnar fram að leiknum á morgun. Sérstaklega finnst mér grein Rick Parry áhugaverð, mæli með henni. 🙂

6 Comments

  1. Aggi ég tel meiri líkur á því að Benitez byrji með Crouch frammi. Þetta er einn af erfiðari útileikjum tímabilsins og því þurfum við að hafa leikmann frammi sem getur haldið boltanum. Það eina sem gæti breitt því plani er formið á Crouch.

    Vonandi fáum við samt á einhverjum tímapunkti í leiknum að sjá þá báða frammi.

    Kveðja
    Krizzi

  2. Jæja þá er þessi farinn, í fýlu…

    Kirkland vill verða um kyrrt hjá WBA

    Chris Kirkland, markvörður frá Liverpool, vill helst af öllu verða um kyrrt í herbúðum WBA þegar þessu keppnistímabili lýkur. Hann er í láni hjá félaginu til vorsins en vill helst ekki snúa aftur að lánstímanum loknum.

    Af mbl og sky

  3. Gunnar Aron, ég held að þetta sé frekar bara raunsæi hjá Kirkland. Hann er svona smám saman að átta sig á því að hann kemst ekkert að hjá Liverpool þegar hann snýr aftur, en Reina og Carson verða þá væntanlega orðnir okkar markvarðapar #1 & 2.

    Krizzi – ég er sammála því að Crouch hentar betur í þetta kerfi en Cissé og þá sérstaklega á útivöllum. Hins vegar er Crouch búinn að vera meiddur í rúman mánuð og því í litlu leikformi, á meðan Cissé hefur verið að spila & skora. Þess vegna er Djib líklegri. Hins vegar talar opinbera síðan í dag um að þeir gætu jafnvel báðir byrjað leikinn frammi, þá væntanlega í 4-4-2.

    Sjáum hvað setur. Er að leita uppi frekari upplýsingar um líklegt byrjunarlið fyrir upphitun mína seinna í dag. 🙂

Rafa tjáir sig um leikmenn (uppfært)

T’ham 0 – L’pool 0 (uppfært)