Birmingham á morgun.

pennant.jpg
Okkar menn fara til St.Andrews og mæta Birmingham í 4. umferð deildarbikarsins. Það er ljóst að nokkrir fastamenn [fá hvíld á morgun](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N154006061107-1434.htm) eða Gerrard, Hyypia, Garcia og Reina á meðan Bellamy kemur aftur inn eftir meiðsli og Dudek eftir leikbann.

Við mættum Birmingham síðast í 6. umferð FA Cup og [rústuðum þeim 7-0 á St. Andrews](http://www.kop.is/gamalt/2006/03/21/21.48.57/), ég sé það ekki gerast enda ekki á hverjum degi sem við skorum meira en 3 mörk í leik t.d. gerðum við það einungis 3 sinnum á síðasta tímabili og þá var það gegn Birmingham (7-0), Fulham (5-1) og gegn Luton (5-3). Birmingham spilar í dag í næst efstu deild og er sem stendur í 4. sæti með 30 stig eftir 16 leiki, efstir eru Cardiff með 33 stig. Í leikjum okkar í deildinni í fyrra gerðum við bæði skiptin jafntefli, [2-2 á St. Andrews](http://www.kop.is/gamalt/2005/09/24/14.11.58/) og [1-1 á Anfield.](http://www.kop.is/gamalt/2006/02/01/21.56.09/) Það er því ljóst að þrátt fyrir að við séum búnir að vinna 4 leiki í röð og ekki búnir að fá mark á okkur í síðustu tveimur leikjum að þessi viðureign verður erfið. Birmingham liðið mætir 100% klárt til leiks og vilja örugglega [hefna ófaranna](http://home.skysports.com/list.aspx?hlid=427108&CPID=2&clid=41&lid=&title=Hyypia+wary+of+Blues) síðan í fyrra á meðan við erum að hvíla nokkra lykilmenn. Hins vegar ætti þetta einmitt að vera leikur fyrir menn eins og Gonzalez, Agger, Paletta, Bellamy, Pennant, Fowler, Aurelio o.s.frv. að sýna getu sína og gera Rafa erfitt fyrir að horfa framhjá þeim í næstu leikjum. Ég ætlaði að segja gera kröfu um byrjunarliðssæti en eins og Rafa hefur sýnt okkur í undanförnum 100 leikjum þá er hann gjarn á að breyta sigur- sem tapliði þannig að enginn er öruggur með að byrja inná nema kannski Reina, Gerrard og Carragher.

Pennant spilaði með Birmingham og hefur Rafa verið að nýta sér [þekkingu hans](http://www.liverpoolfc.tv/news/drilldown/N154008061107-1502.htm) á fyrrum samherjum sínum.

“I was asking him about how they will play and which players, things that we know but he knows especially. He said it would be a very difficult game because they will press us, play a physical game and be good in the air.”

Skv. þessu þá býst Rafa við erfiðum leik á morgun og erum við þar sammála.

Ég hef ekki hugmynd um byrjunarliðið á morgun en skýt á að það verði svona:

Dudek

Peltier – Agger – Paletta – Aurelio

Pennant – Zenden – Sissoko – Mark Gonzalez

Fowler – Crouch

Bekkur: Martin, Carragher, Finnan, Alonso, Warnock, Bellamy, Riise (veljið einhverja fimm).

Birmingham eru á fínu róli um þessar mundir og hafa unnið síðust 5 leiki. Þeirra bestu menn eru Matthew Upson, David Dunn, Mikael Forssell, Olivier Tebily, Bruno N´Gotty, Radhi Jaidi og hinn ungi og gríðarlega efnilegi Nicklas Bendtner sem er í láni frá Arsenal. Hver af þeim er heill og mun spila hef ég ekki hugmynd en það er á hreinu að þetta er fínn mannskapur.

Mín spá: Ég sé sigur í hörkuleik. Leikurinn verður hraður og skemmtiegur og mikið um marktækifæri. Ég vona að varnarleikurinn verði traustari en gegn Reading um daginn í sömu keppni en jafnframt að sóknarleikurinn verði áfram öflugur. Fowler er ávallt líklegur til þess að skora og það verður gaman að sjá hann spila með Bellamy. Ég tel að Fowler gæti náð vel saman með bæði Bellamy eða Kuyt. Pennant vill örugglega sýna sínum fyrrum samherjum að hann hafi bætt sig sem leikmaður og það er kominn tími til að bæði Gonzalez og Aurelio standi undir væntingum. Þetta endar 2-3 þar sem Fowler, Agger og Aurelio skora. Markið hans Aurelio verður beint úr aukaspyrnu og stórglæsilegt 🙂

5 Comments

  1. Verður Sissoko ekki í banni gegn Arsenal um helgina ef hann fær gult á morgun?

    Ef svo er þá efast ég um að hann verði með :confused:

    Og ætli Bellamy fái ekki einn leik í byrjunarliðinu líka svona upp á gamanið. Hann og Fowler saman frammi 🙂

  2. Ég hugsa einmitt að Sissoko verði bara á bekknum og ekki notaður nema í neyð.

  3. Crouch, Riise, Finnan fóru ekki með til Birmingham og verða því ekki með í kvöld.

    Bellamy byrjar örugglega inná við hliðina á Fowler og Kuyt sem er með í hópnum verður þá á bekknum.

  4. Held að við getum bara verið ánægðir ef við vinnum þennan leik miðað við hve margir verða hvíldir hjá okkur. Birmingham virðast líka vera bara með hörkumannskap – þeirra bestu menn myndu alveg ganga inn í nokkur úrvalsdeildarlið. Hins vegar hlakka ég mikið til að sjá leikinn því ég vona að e-r efnilegir fái að spreyta sig eins og Peltier. Langar að fara sjá okkar efnilegu stráka í alvöruleik (Paul Anderson o.fl.) því ég vil sjá leikmenn koma upp úr unglingastarfinu og okkar unga varaliði. Verðum að gefa þeim séns einhvern tímann.

  5. Það má vel vera að Birmingham séu með hörkumannskap Biggun, en ekki gleyma því að það er góð ástæða fyrir því að liðið er í Championship deildinni.

Rafa mun rótera á morgun

Byrjunarliðið gegn Birmingham