Módelið Luis Garcia

luisgarcia-marchom-1a.jpg

*Athugasemd (EÖE): Nota bene, ég skrifaði þetta í síðasta landsleikjahlé, en vegna mistaka birtist þetta aldei.*

Er það ekki til marks um fréttadeyfð í landsleikjahléum þegar að ég sest niður við skriftir fyrir þessa síðu og ætla mér að tala um….

**fatatísku!**

Ég hef talsvert mikinn áhuga á tísku, en hef samt ekki fundið hjá mér þörf fyrir að tala um þann áhuga minn á þessari síðu. Þangað til að mér veittist gott tækifæri núna.

Fyrir þá, sem hafa ratað inní eina af mínum uppáhaldsfatabúðum, H&M einhvers staðar í Evrópu á síðustu vikum, þá hafa þeir sömu væntanlega tekið eftir því að aðalmódelið fyrir karlalínu H&M er litli Spánverjinn okkar, **Luis Garcia**.

H&M er stærsta keðja af fatabúðum í Evrópu og er með haug af búðum í nánast öllum Evrópulöndum (fyrir utan Ísland náttúrulega). Það er því ljóst að þetta mun gera umtalsvert mikið til að auka vinsældir Luis Garcia og eflaust draga einhverja nýja aðdáendur að Liverpool liðinu. Sem er bara gott mál.

En allavegana, þið getið séð allt um karlalínuna hjá H&M, sem Luis Garcia er að kynna á [þessari síðu](http://www.hm.com/corporate/inspiration/hmman/do?action=inspirationviewhmman&campaignname=hmman&version=20051126145427422&puff=) og meira að segja skoðað myndbönd með honum. Fatalínan er líka að mínu mati geðveikt flott, en það er annað mál. Ef karl-lesendum þessarar síðu gengur illa að fá sinn betri helming til að horfa á Liverpool leiki, þá ætti Garcia að geta hjálpað. 🙂

Annars er leikur á laugardaginn, sem þýðir að efni þessarar síðu fer vonandi batnandi. 🙂

8 Comments

  1. Ég einmitt sá þessar myndir af honum þegar ég var í H&M í Köben um daginn, fínar myndir af stráknum ( konan var á sama máli 🙂 ).

    Já og svo er fatalínan helv… flott líka.

  2. Reyndar en H&M á íslandi, en sú búð er alveg skelfilega léleg í öllu fyrir utan barnaföt. En ég rak líka upp stór augu þegar ég sá þennann félaga okkar á auglýsingaskilti í Munchen.

  3. Ég skil ekki afhverju engin alvöru H&M búð er á Íslandi.

    Þegar ég bjó í tvö ár í DK verslaði ég nánast bara þar, flott föt á mjög góðu verði.

  4. Jú leikur á miðvikudaginn við Sunderland. Frúin er einmitt búinn að fá sér Liverpool búning með kvennasniði og García #10 aftaná, :confused: en er það samt ekki bara hið besta mál enda kallinn helvtíti töff 😉

  5. Það er H&M Rowells á íslandi, ekki rugla því saman við Hennes og Mauritz… svona álíka algengt og misskilningurinn að Megapixlar = Gæði … Big mistake … 🙂
    Annars eru þetta fínustu myndir …
    Sveinn K, (Einimaðurinn á Íslandi sem á Luis Garcia Treyju 🙂 )

  6. Ekki að ég sé nein sérstök tískufrík (en geng þó í fötum!!) að þá lenti ég inní H&M búð í Malmö fyrir einu og 1/2 ári síðan og villtist gjörsamlega vegna stærðarinnar. En á Íslandi er þetta öðruvísi. Maður þarf að leita vel og innilega til að finna H&M búðina fyrir svo utan heimskulega staðsetningu hennar. Svo eru engin karlaföt til þarna þar sem maður fær impression-ið er maður kemur í búðina að þetta sé barna- og kvenfataverslun. Virkilega lélegt framtak hérlendis hjá þessu annars ágæta fyrirtæki.

Manchester City 0 – Liverpool 1

BBC: Ronaldinho mun vinna gullboltann