Sunnudagshugleiðingar (+viðbót)

Þegar leiknum í gær lauk slökkti ég á sjónvarpinu. Beið eftir leikskýrslu Einars, og þegar hún birtist skrifaði ég mín fáorðuðu ummæli og slökkti svo á tölvunni. Í gær ákvað ég að leyfa mér, í allavega sólarhring, að vera eitthvað annað en Liverpool-aðdáandi. Það koma nefnilega tímar þar sem maður fær nóg af liðinu sínu og í gær, þar sem ég sat í sófanum og fór alvarlega að velta fyrir mér hvers vegna ég væri að halda með þessu helvítis liði, var einn þessara tíma.

Þannig að nú hef ég í raun ‘ekki’ haldið með Liverpool í sólarhring. Ég hef gert aðra hluti. Svo í morgun hef ég farið aðeins yfir spjallsíðurnar og lesið ummælin við leikskýrsluna í gær, og mig langar til að koma frá mér nokkrum punktum, sólarhring eftir tapið. Stundum skýrist hugsunin aðeins eftir því sem lengra líður frá atviki, og því er ég feginn að það var Einar en ekki ég sem skrifaði leikskýrslu í gær. Ég hefði sennilega verið miklu harðorðari en hann.

En allavega, hér koma nokkrir punktar sem liggja þungt á mér – og sennilega flestum Púllurum – á þessum sunnudegi:


LEIKMENN: Ég ákvað eftir leikinn í gær að vera alveg vægðarlaus. Héðan í frá er ég hættur að verja leikmenn, bara af því að mér finnst þeir stundum vera gagnrýndir of mikið. Það er ennþá satt, mér blöskrar stundum það skítkast sem ákveðnir leikmenn verða fyrir (og oft óverðskuldað) en það má ekki leyna sannleikanum.

Josemi, Djimi Traoré, Fernando Morientes og Peter Crouch eru ekki nógu góðir fyrir Liverpool FC. Munurinn er samt í því hvernig við skilgreinum ‘nógu góðir’. Til dæmis, þá er Traoré búinn að vera hjá okkur í sex ár. Hann þarf ekkert að aðlagast eða komast yfir slæman kafla, það sem við erum að sjá núna er Traoré eins og hann er. Hefur frábæra eiginleika, en skortir stundum leikskilning, er mistækir með meiru og í raun ekki treystandi í vörnina til lengri tíma. Hann, eins og Jerzy Dudek, getur verið brilljant í 4-5 leikjum í röð og svo kostað okkur þrjú stig í þeim næsta (sbr. Chelsea um daginn).

Josemi er ekki jafn mistækur og hann, en heldur ekki jafn rosalega hæfileikaríkur. Josemi hefur í rauninni allt sem varnarmaður á að hafa … samt vantar bara eitthvað. Hann er ágætis kostur að hafa í varaliðinu, en við vitum að hann verður aldrei tekinn alvarlega sem fyrsti kostur í liðið. Finnan er svo miklu, miklu, miklu betri.

Morientes og Crouch eru síðan öðruvísi. Þeir eru svo nýkomnir, þeir brilleruðu hjá sínum fyrri liðum og, eins og klisjan segir, við vitum hvað þeir geta. Málið er bara það að það sem við vitum að þeir geta, það gátu þeir hjá öðrum liðum. Hjá Liverpool hafa þeir nánast ekkert sýnt, og þá sérstaklega Morientes.

Það skiptir engu hvort hann heitir Morientes, Shearer, Schevchenko eða Maradona. Ef hann spilar eins illa fyrir Liverpool og Morientes er að gera núna á hann ekkert erindi í liðið.

Okkur vantar betri leikmenn, og okkur vantar líka leikmenn sem spila samkvæmt getu. Höfum ekkert með menn að gera sem við erum alltaf að vona og bíða eftir að hrökkvi í gang, og sýni okkur það sem við sáum svo oft hjá þeim með öðrum liðum.


RÓTERING: Ef það er eitthvað sem má gagnrýna Rafa fyrir, þá er það sú staðreynd að mér finnst hann rótera leikmönnum of mikið. Hversu oft sáum við sama byrjunarliðið tvo leiki í röð hjá Gérard Houllier? Mjög sjaldan. Hversu oft höfum við séð Rafa stilla upp sama liði tvo leiki í röð? Svar: nánast aldrei!

Ég veit að við höfum “valkosti” í allar stöður, en ég er alvarlega á þeirri skoðun að liðið væri betra – stöðugra – ef hann bara tæki ákvarðanir. Veldi Warnock fram yfir Traoré eða öfugt, og héldi sig við það val. Annar þeirra á að vera #1 (að mínu mati Warnock) og fá að spila meira. Sama gildir um Zenden og Riise, sem fá sjaldnast nema 1-2 leiki í einu og eru svo hvíldir, og einnig menn eins og Cissé, Morientes, Sissoko, Hamann. Hvernig getum við t.d. ætlast til þess að Morientes komist í form ef hann fær að byrja inná í einum leik, og er svo á bekknum í þeim næsta, af því að allir þurfa að fá að spila? Hmm?

Ég held stundum að vandamálið sé það að Rafa hreinlega veit ekki hvert sitt sterkasta lið er. Ef allir væru heilir, engin meiðsli eða neitt, þá myndi ég vilja stilla upp þessu liði hjá Liverpool:

Reina

Finnan – Carra – Hyypiä – Warnock

García – Gerrard – Alonso – Kewell

Cissé – ???

Set spurningarmerkið, af því að með þetta lið væri möguleiki á smá sveigjanleika. Til að mynda gæti Rafa sett Sissoko eða Hamann á miðjuna og ýtt Gerrard fram í holuna, eða haft framherja með Cissé (þá yfirleitt Crouch), eða sett t.d. Zenden á vænginn fyrir García eða Kewell og ýtt þeim fram í holuna.

En bottom line-ið væri það að þarna værum við með 8-10 leikmenn sem væru að spila nánast hvern einasta leik. Vörnin, þessir fjórir, ættu að spila alla leiki að mínu mati. Það eykur stöðugleika ef menn eru ekki alltaf að aðlagast nýjum samherjum. Miðjan á að vera sjálfvalin og að mínu mati eiga García og Kewell alltaf að vera í byrjunarliðinu. Sáuð þið þá í gær? Þeir eru einu leikmennirnir sem við eigum sem eru að skapa fram á við. Með öðrum orðum, ómetanlegir í dag.

Og Cissé á ALLTAF AÐ VERA FRAMMI, því hann er sá eini sem við eigum í dag sem er að skora reglulega. Hinir framherjarnir okkar eru ekki einu sinni líklegir til að skora … nema Pongolle, sem hefur leikið einhverja 3-4 leiki og þegar skorað mark. Hann þarf ekki 20 leiki til að skora mark eins og Crouch og Morientes, af hverju fær hann ekki að spila meira?

Rafa þarf að finna sitt sterkasta byrjunarlið og halda sig við það, með örfáum breytingum á milli leikja. Sjáið bara Chelsea – þessi gríðarsterki hópur og samt róterar hann mjög lítið. Varnarlínan hans spilar alla leiki, hann breytir henni í raun bara í meiðslum, og miðjumennirnir þrír spila líka alla leiki. Drogba byrjar oftast frammi, en ekki alltaf, og svo róterar hann vængmönnunum sínum stundum en ekki mikið. Með öðrum orðum, níu af ellefu leikmönnum Mourinho eru nær alltaf í byrjunarliðinu: Cech, Ferreira, Terry, Gallas, del Horno, Makelele, Lampard, Essien, Drogba.


“Okkur vantar 2-3 nýja leikmenn í þetta lið.” Hversu oft höfum við ekki heyrt þetta?

Nú spyr ég ykkur, sem hafið séð liðið spila jafn vel og það gerði gegn Betís á útivelli, og jafn illa og það gerði í gær: haldið þið virkilega að Michael Owen hefði einhverju breytt í gær? Hefðum við haldið hreinu í gær, ef Gabriel Milito hefði verið í vörninni?

Svarið er einfalt: NEI. Og þá er ég ekki að dissa þessa menn, sem ég tók sem dæmi. Owen og Milito, og allir hinir frábæru leikmennirnir sem ég vildi óska að hefðu komið til okkar í sumar, eru toppklassa leikmenn sem myndu bæta hvaða lið sem er.

En á meðan liðið spilar með jafn lítið sjálfstraust og jafn litla trú á sjálfu sér og það gerði í gær – þá gætum við allt eins stillt upp heimsliðinu, og við hefðum samt tapað fyrir Fulham. Munurinn á liðunum í gær var sá að Fulham-menn komu af krafti inn í leikinn, höfðu trú á því sem þeir voru að gera og ætluðu sér að sigra hvað sem það kostar. Þeir voru grófir, þeir byrjuðu að tefja leikinn um leið og þeir komust yfir, þeir reyndu að fiska spjöld á okkar leikmenn, þeir vörðust með kjafti og klóm og þeir skoruðu þessi tvö mörk.

Þessi geta til að geta bitið á jaxlinn, kreppt hnefana og sagt við sjálfan sig: “Mér er sama þótt ég drepist í leiðinni, ég ÆTLA að vinna þennan helvítis leik!”

Fulham hafa þessa getu í dag. Við ekki. Það var ekki fyrr en á 65. mínútu, u.þ.b. þegar Luis García kom inná, að við fórum að spila eins og við ætluðum okkur að skora. Þar áður var þetta búið að vera ótrúlega stefnulaust, kraftlaust og í raun áhugalaust.

Mér er sama hvort leikmaðurinn heitir Josemi eða Steven Gerrard. Við getum rætt um getu leikmanna eins og við viljum … en það eina sem ég ÞOLI EKKI er þegar ég sé leikmenn spila eins og þeir hafi ekki trú á sér eða liðinu, þegar ég sé menn ekki gera sitt besta.

Í gær gerðu okkar menn ekki sitt besta. Svo einfalt er það bara.


Sem sagt, þrír punktar sem hafa legið mikið á mér síðan í gær. Við erum enn að spila með leikmenn í okkar liði sem kæmust ekki í byrjunarliðin hjá Man U eða Arsenal, hvað þá Chelsea, og á meðan það er staðreynd getum við ekki ætlast til að vera með jafn gott lið í deildinni og þessi þrjú lið.

Við erum ennþá að rótera allt of mikið, Rafa þarf að ákveða hvert sitt sterkasta 11-manna lið sé og halda sig við það í eins mörgum leikjum og hann getur.

Og, leikmennirnir sem eru valdir þurfa að hætta þessu helvítis væli og bara láta slag standa. Haldið þið að Cissé þjáist einhvern tímann af litlu sjálfstrausti? Ef svo er, þá sér maður það ekki á velli. Hann er grimmur, hann ætlar sér að skora, hann skammar menn alveg sama hvort þeir heita Jói Jóns eða Stevie G. Hann hefur trú á þessu.

Sama gildir um Jamie Carragher, Steven Gerrard, Xabi Alonso (sem var einn fárra sem reyndi í gær) og, miðað við leikinn í gær, Harry Kewell (hann var okkar besti maður, eini jákvæði punktur leiksins).

En á meðan menn eins og Morientes og Riise, sem fá boltann og hugsa bara “ég get ekki” eru að spila í Liverpool náum við aldrei árangri. Hversu oft reyndi Kewell að sóla mann í gær? Hversu oft reyndi Riise að sóla mann í gær? Hversu oft reyndi García að sóla mann í gær? Aðeins einn af þessum þremur hafði greinilega ekki trú á því að hann gæti sólað mann … og það var ekki Kewell eða García.

Úff, þetta er bara svo pirrandi. Jafnvel þótt liðið okkar sé gallað og gæti verið betra, þá vitum við að þessir leikmenn sem spiluðu í gær eiga að geta miklu betur en þetta. Ég þoli ekki að sjá þetta lið sífellt spila undir getu. Þoli það ekki!

Vona að þið njótið vikunnar.


**Viðbót (EÖE)**: Ég er fullkomlega sammála þessu. Vil bæta nokkrum punktum varðandi bakverði, kantmenn og sókn.

1. Er það tilviljun að í fyrstu fjórum leikjunum okkar, á móti Boro, Sunderland, Tottenham og Man U spiluðum við með þessa vörn:

Finnan – Carra – Hyypia – Warnock

Og fengum á okkur EKKI EITT EINASTA MARK! Núll! Þessi fjögurra manna varnarlína hefur ekki fengið á sig eitt einasta mark í vetur, hvort sem er í deildinni eða Meistaradeildinni.

Í leiknum á móti Birmingham breytti Rafa vörninni (Josemi kom inn) og þá strax fengum við á okkur 2 mörk. Rafa breytti svo vörninni AFTUR í næsta leik (setti Traore í vinstri bakvörðinn) og við fengum á okkur FJÖGUR mörk.

Ég er ekki að segja að mörkin tvö og fjögur hafi verið Josemi og Traore að kenna. En það er augljóst að vörnin með Finnan, Carra, Hyypia og Warnock fékk ekki á sig *eitt einasta mark í deildinni*. Um leið og Rafa fór að breyta henni, þá hrundi vörnin. Hvaða fokking vit er að breyta vörn, sem fær ekki á sig mörk? Fyrir utan það náttúrulega að Finnan og Warnock eru umtalsvert betri framá við en Josemi og Traore.

Ef að Rafa telur að Warnock sé framtíðarbakvörður hjá enska landsliðinu, SETTU HANN ÞÁ Í LIÐIÐ. Það er ekki bara að varnarvinnan hjá Traore sé oft misjöfn, heldur er það hreinlega *pínlegt* að sjá hann sækja fram. Bjóst einhver við að vinstri kanturinn hjá okkur myndi skila einhverju í gær?

2. Ég er kominn með hundleið á framherjum með lítið sjálfstraust. Ég vil sjá menn, sem eru kokhraustir og hafa endalausa trú á sjálfum sér. Ég fékk nóg af þessu þegar að Heskey var hjá liðinu og Houllier var alltalf að blaðra um að hann hefði svo viðkvæmt sjálfstraust. Þjáist Wayne Rooney stöðugt af of litlu sjálfstrausti? Hvað með Thierry Henry, Samuel Eto’o, Nilsteroy og svo framvegis? Nei, þetta eru framherjar, sem eru eigingjarnir, hafa endalaust álit á sjálfum sér og eru sannfærðir um að þeir *muni* skora. Það á ekki við um Crouch og Morientes í dag og ég nenni hreinlega ekki að vorkenna þeim vegna skorts á sjálfstrausti.

Cisse á að vera sjálfkrafa í þessu liði þó ekki væri nema bara fyrir það að hann hefur trú á sjálfum sér.

3. Og þessi sífellda stefna Rafa að vera alltaf að rótera leikmönnum. Og ég hef hugsað mikið um samanburðinn á Chelsea og okkur. Einn stór munur á þessum liðum er að þeirra tveir bestu miðjumenn, makelele og Lampard eru ALLTAF í liðinu. Alonso og Gerrard eru hins vegar bara öðru hvort saman í liðinu okkar, hvort sem það er vegna meðisla eða hvíldar.

Og ég er 100% sammála því að ég vil sjá Kewell og Garcia spila á köntunum okkar næstu leiki, þeir eru hreinlega einu mennirnir, sem geta skapað eitthvað hjá þessu liði. Ef það á að gefa þeim hvíld, þá á EKKI að hafa Sissoko eða Riise á köntunum, heldur er Zenden eini maðurinn, sem getur leyst þá af.

Það er alveg hægt að gera gott lið úr þessum hóp. En til þess að það gerist, þá *verður* Rafa að hætta þessu hringli, sérstaklega með vörnina. Þegar að Finnan er orðinn heill, þá á að hann að setja aftur þá vörn, sem byrjaði tímabilið fyrir okkur og hætta með þennan fíflaskap með Josemi og Traore. Hann á svo að gefa Cisse, Garcia og Kewell fast sæti í liðinu í næstu leikjum.

Svo þarf hann að slá Morientes og Crouch hressilega, svo þeir hætti þessu væli og fari að skora fyrir þetta lið. Ég er að missa þolinmæðina, og þá *sérstaklega* með Fernando Morientes. Það efast enginn um hæfileikana hans, en svo lengi sem hann sýnir þá ekki fyrir *okkar lið*, þá er hann gjörsamlega gagnslaus fyrir okkur.

20 Comments

  1. Ég vill bara þakka fyrir þessa grein og ég gæti ekki verið meira sammála . Ég var svo brjálaður í gær og þegar ég var að lesa bloggsíður hér og þar sauð á mér….

    Málið er að okkar leikmenn hafa ekki trú á því sem er verið að gera, og það MÁ og Á að gagnrýna leikmenn en ekki gleyma að hæla þeim líka :confused:

    Rafa þarf að losa sig við menn sem hafa ekki baráttu og gleði til að spila fyrir LIVERPOOL og fá menn sem vilja deyja fyrir liðið. Það skiptir ekki máli hvort hann kosti 1mill eða 26mill , bara að hann gefi sig 100% í leikinn…

    Ég vona að betri tímar komi fljótt og að leikgleðin og baráttuvilljinn í leikmönnum komi fram , annars meiga þeir fara , og er mér sama hvað þeir heita .

    Takk fyrir síðuna og vonandi verðið þið jafn duglegir að skrifa og pæla ….

  2. Sælir drengir….
    nú þarf aðeins að staldra við. Hvernig getið þið dásamað Djibril Cissé svona mikið? Hann er búinn að vera hræðilegur. (sem og reyndar allir okkar framherjar) en mér finnst orðið pínlegt hvað þið hefjið Cissé alltaf upp til skýjanna. Cissé hefur ekkert getað í þeim leikjum sem hann hefur spilað. Í gær var hann settur út á kant einfaldlega vegna þess að hann var svo lélegur sem fremsti meður í fyrri hálfleik að það var pínlegt að horfa uppá. Það eina sem hann virðist geta er að hlaupa hratt og það nýttist á vængnum í seinni hálfleik í gær, en hann bara kom boltanum ekki almennilega fyrir markið. Crouch og morientes eru þannig leikmenn að þeir þurfa þjónustu, eru bestir þegar það eru alvöru væmgmenn í liðinu sem komast upp að endamörkum og gefa ALVÖRU bolta fyrir markið, við bara eigum ekki svoleiðis leikmenn í dag (helst Kewell en samt ekki!!!) Cissé er líka sóknarmaður sem þarf þjónustu en bara öðruvísi, hann á að fá stungusendingar í gagnum varnir andstæðinganna eða fá boltann í eða við teiginn þar sem hann þarf lítið annað að gera en að horfa á markið.

    Mergur málsins finnst mér vera að við höfum ekki nógu góða leikmenn í því að búa til færi og góðar sóknir, því miður. Við getum ekki skellt allri skuldinni á Crouch og Morientes fyrir að vera svona lélegir, vandamálið er að mínu vita alvarlegra en svo!!!!!

  3. Góð grein hjá Kristjáni og viðbæturnar hjá Einari – er sammála öllu nema það að ég trúi því að Owen sé svo mikill markahrókur að hann hefði getað breytt einhverju. Ég trúi því. Þannig er ég bara. Í réttu umhverfi er hann stórhættulegur og þegar hann var hjá okkur var hann alltaf markahæstur.

    Ég vil líka skjóta á lfc fan … það er ekki verið að hefja Cisse upp til skýjanna, það hefur aðallega verið bent á þann sannleik að hann er okkar besti sóknarmaður í dag. Hvaða sóknarmenn (trick question) hafa skorað fyrir Liverpool á þessu tímabili?

    Ég hætti aldrei að vera Liverpool aðdáandi. Ég kannski pæli minna í liðinu einn daginn, en ég er haldinn þeirri bölvun að halda alltaf með Liverpool – og sem slíkur er ég eins og þið hinir gífurlega pirraður á þessu gengi í deildinni. Það verður enginn bikar í ár hjá okkur með þessu áframhaldi. Stöðugleikann vantar. Rafa og stjórnin klúðruðu sumrinu – það eru til peningar – og vonandi verða gerð góð janúarkaup. En þangað til verða menn að bretta upp ermar og sýna sama hálfleik eins og seinni hálfleikinn á móti Milan, fyrri hálfleikinn á móti Betis… o.s.frv. Trú, von og kærleikur – er það ekki málið? 🙂

  4. lfc fan (btw, af hverju í ósköpunum skrifar þú ekki undir nafni? Þetta eru sæmileg skrif hjá þér og engin ástæða til að fela sig undir nafnleynd) – við erum alls ekki að hefja Cisse neitt til skýjanna hér á þessari síðu. Kristján Atli er mikill aðdáandi hans, en ég er ekki enn sannfærður og ef þú hefur lesið þessa síðu allt tímabilið, þá geturðu vel séð að ég hef *oft* gagnrýnt Cisse hér á þessum vettvangi.

    En það er hins vegar fáránlegt að halda því fram að hann hafi verið “hræðilegur”, einsog þú heldur fram, því hann hefur skorað nánast undantekningalaust þegar hann hefur fengið að spila í framlínunni.

    Það er líka fáránlegt að halda því fram að við séum að kenna Crouch og Morientes um slæmt gengi. Það er að mínu mati afskaplega erfitt að lesa það útúr þessum skrifum. Þeir eru aðeins hluti af vandamálinu, sem að mínu mati felst í rangri vörn, vitlausum kantmönnum og endalausu hringli með byrjunarliðið. Crouch og Moro eru aðeins hluti vandamálsins. Reyndar er mér illa við að para þá saman, því ég hef séð jákvæða hluti hjá Crouch og að koma til Liverpool var stórt stökk fyrir hann. En Moro hefur engar afsakanir fyrir slæmu gengi hjá Liverpool.

    En einsog ég sagi áður, þeir eru aðeins hluti vandamálsins.

  5. Mikið djöfull væru dagarnir leiðinlegir og lengi að líða ef að við hefðum ekki fótboltann til að tala um 🙂

    Það er fyrst og fremst röng notkun á þeim mannsskap sem við höfum til taks hjá okkur að sinni, menn eru að spila út úr stöðum leik eftir leik og ekki einn eða tveir heldur stundum þrír leikmenn. Það sér það hver maður að það gengur ekki til lengdar.

    Rafa, keyptu menn til að geta spilað það kerfi sem þú vilt nota en ekki reyna að troða því á þá sem eru til taks núna, aðlagaðu leikkerfið að leikmönnunum en ekki leikmennina að leikkerfinu.

  6. Með aðeins færri orðum…við erum komnir með Barbie and girl friends í liðið okkar. Við erum með allt of mikið af meginlandsleikmönnum sem skortir eistu til að geta tæklað duglega.

  7. Fá bara Hemma Hreiðars í liðið, þá væri loks farið að tækla vandamálin almennilega

  8. Er sammála flestu sem kom fram í upphafspóstinum, en held að aðalvandamálið sé að Rafael Benitez skilji bara ekki enska boltann. Flestir þessara leikmanna eru bara ekkert búnir undir enskan fóbolta og þjálfarateymið ekki heldur. Við vitum hvað Benitez, Morientes, Garcia og félagar geta, þeir hafa bara ekki sýnt okkur neitt ennþá í enska boltanum. Hef það sterklega á tilfinningunni að ef við værum í spænsku deildinni þá værum við mun ofar. Hvað segið þið um að fá bara Phil Thompson sem aðstoðarmann fyrir Benitez?(eða bara hvern sem er sem hefur þekkingu á ensku knattspyrnunni..) Því þekkingarleysi og reynsluleysi á enska boltanum held ég að sé grunnvandamálið. Sem smitar út frá sér í skorti á sjálfstrausti, enn lakara gengi o.s.fr.

    Ps. Varðandi sumarkaup sem aldrei áttu sér stað: Þá skil ég Benitez vel að hafa ekki keypt leikmenn á uppsprengdu verði sem enginn trygging er á að standi sig. En að vera síkvartandi yfir því opinberlega að það vanti leikmenn í liðið og nota það sem afsökun fyrir slöku gengi liðsins finnst mér bara fyrir neðan allar hellur, og síst til þess að auka sjálfstraust leikmanna. Því eins og Kristján Atli benti á þá hefðu Owen eða Milto litlu bjargað gegn Fulham. Þessi hópur á að ekki að vera berjast við minni lið en manutd eða Arsenal, þótt það vanti leikmenn. Oft finnst mér líka eins og Rafa sé að sníða leikmennina að kerfinu en ekki kerfið að leikmönnunum.

  9. Hörku grein nafni, þú hittir naglan á höfuðið í mjög mörgu.

    Eins og ég hef komið inná áður þá hefði ég vilja sjá Warnock spila í gær + næstu leiki. Hann er nagli sem kann að spila í þessari hröðu og hörðu deild. Svo sjá allir að Josemi er annað hvort með ekkert sjálfstraust eða hefur engan áhuga á því að spila fyrir LFC. Menn bara labba framhjá honum og við erum að fá á okkur of mörg mörk vegna þess.

    Finnan er góður, mun betri en Josemi, en hann verðu ekki yngri með árunum (orðin 31, verður 32 næsta vetur). Á þeim aldri getur hann bara spilað ákveðið marga leiki á fullu tempói. Við þurfum að fá feska leggi í hægri bakvaðarstöðuna sem Finnan gæti síðan bakkað upp.

    Eins og Kristján og Einar tala um þá á ekki að rótera öftustu 4 (vörninni) nema um meiðsli séu að ræða. Ég vil þó bæta við varnartengiliði, ef við spilum með sömu menn í vörn + sama varnartengilið (Alonso eða Hamann) þá náum við upp stöðuleika. Hverjir muna ekki eftir LfC 2002 sama vörninn með Hamann fyrir framan sig leik eftir leik, það skilaði 2. sæti og 5 titlum.

    Varðandi Morientes þá er hann ekki bara búinn vera lélegur í deildinni, heldur líka í evrópuleikjum. Gaurinn er svo hikalega mikil kelling að það hálfa væri helmingur. Að horfa uppá hann missa boltann frá sér trekk í trekk í gær bara vegna þess að varnarmaður eða miðjumaður pessuðu hann, var óþolandi. Morientes hafði kannski allan tímann í heiminum í spænsku eða frönsku deildinni. Moro er sjálfur búinn að tala um það boltinn sé hraðari með meiri hörku og því þurfi hann að aðlagast. Sú aðlögun mun ALDREI ganga upp því get ég lofað ykkur. Hér á við máltækið : þú kennir ekki gömlum hundi að sitja.

    Svo er það hugafar leikmanna, hvar er tuðið, tæklingarnar, röbbissið. Ég hata að sjá okkur stefna í að verða prúðasta lið deildarinnar. Við verðum að mæta af hörku í þessa útileiki annars er tímabilið búið. Það eru leikmenn LFC sem eiga að vinna alla 50-50 bolta, það eru leikmenn andstæðinganna sem eiga að væla undan hörku okkar manna. Það eru leikmenn LFC sem eiga að láta dómarann heyra það ef hann er að dæma okkur í óhag. Hvar eru tilfinningarnar, ákveðnin?

    Krizzi

  10. Bara svo að það sé á hreinu er Steve Finnan fæddur 1976 sem gerir hann 29 ára.
    Annars verð ég bara að segja hversu gott það er fyrir sálarlífið að hafa þessa síðu til að detta á þegar að (fótbolta)lífið er að fara illa með mann !
    Hér fær maður huggun og útrás eftir hentisemi.
    Svo vil ég bara benda mönnum á að setja nú í spilun í tölvunni eða geislanum lagið sem við allir elskum, því að textinn á vel við í dag.
    You´ll never walk alone !

  11. það er rétt Hafliði hann er 76′ módel, þá vitum við það. Okkur vantar samt betri bakvörð hægrameginn.

    Krizzi

  12. Ég er ósammála þér, Krizzi, hægri bakvarðarstaðan er laaaangt frá því að vera vandamál hjá okkur. Þurfum fyrst að finna okkur vinsti bakvörð, hægri kantmann og sóknarmann.

  13. Ekki gleyma miðverði Einar. Ég sé fyrir mér Finnan og Warnock geta leyst bakvarðarstöðurnar en það sem vantar í þetta lið er tvennt af mínu mati. Annars vegar eru það tveir nýjir leikmenn(í að minnsta kosti), hægri kantmaður og miðvörður. Það sjá allir að okkur vantar kantmann á hægri vænginn, en mér finnst menn stundum gleyma vandamálinu með vörnina.

    Af mínu mati er Sami Hyypia frábær leikmaður. Hann er leikmaður sem hefur svo sannarlega gert mikið fyrir félagið og mun ávalt verða minnst fyrir þau afrek. En eins og svo margir aðrir þá hefur Hyypia sínar takmarkanir. Ég hef sagt þetta áður á spjallinu á liverpool.is og ég skal segja það aftur hér. Ef við ætlum okkur að spila árangursríkan sóknarbolta er ekki bara nóg að hafa leikmenn sem geta sótt. Þú verður að geta varist þegar þú missir boltann og ef Sami er kominn hátt uppá völlinn eiga sóknarmenn oft auðvelt með að komast framhjá honum. Hann er einfaldlega of hægur. Í þessa stöðu vantar okkur Sol Campbell type of player. Stór og sterkur, góður í loftinu og er HRAÐUR. Þetta verður æ sýnilegra með hverjum leiknum.

    Í annan stað er það eins og kom fram í pistlinum, að leyfa mönnum að spila í sinni stöðu nokkra leiki í röð. Ekki þetta endalausa rót. Ég skil þörfina á að rótera liðinu því ég held að enginn hafi orku í að spila einhverja 60 leiki á tímabili. En það þarf ekki að rótera eftir 1-2 leiki. Það er allt í lagi núna að leyfa mönnum að spila einhverja 10-15 leiki í röð og hvíla síðan í deildarbikar eða í CL eftir að við tryggjum okkur áfram(getum gert það í næstu umferð og þá eru tveir leikir eftir). Benitez þarf að ákveða hvað er hans sterkasta XI og halda sig við það í einhvern tíma.

    En þetta er bara mín skoðun og speglar hún á engan hátt skoðun þjálfarateymis Liverpool…..hvað þá þjóðarinnar :tongue:

  14. Hjartanlega sammála Innvortis, vörnin er allt of hæg, það sjá líka andstæðingar okkar í deildinni.

    Einar mitt álit er að okkur vantar betri hægri bakvörð með Finnan, ég er ekki að tala um að selja Finnan heldur að láta hann fá meiri samkeppni frá klassa bakverði. Er mikil samkeppni um stöður ekki af hinu góða. Þó geri ég mér fullkomnlega grein fyrir því að það er meira áríðandi að kaupa miðvörð og hægri kantmann.

    Krizzi

  15. Þakkir fyrir góða greiningu og umræður. Mér sýnist að öllu samanlögðu þá vanti liðið fyrst og fremst sjálfstraust og “eistu” til að vinna svona leiki eins og gegn Fulham. Spurning er þá hvar ná liðsmenn í þetta tvennt. Hvar fá liðsmenn þann kraft, dug og sjáfstraust til að fara eins og grenjandi ljón inn á völlinn. Svar: þarna verður að koma til kasta RB. Það er hann sem á að “motivera” liðið fyrir leik. Hann á að byggja upp þetta allt hjá einstaklingum og liðsheildinni. Með stöðugum hrókeringum og endalausum breytingum á uppstillingu er hann að senda þau skilaboð til manna að þeir séu ekki að standa sig. Og hvernig á að “motivera” mannskap sem er alltaf að fá röng skilaboð. Nei félagar nú er komið til kasta RF að sýna að hann sé stjóri af einhverjum alvöru “caliber” eða hann má taka pokann sinn mín vegna.
    Sjáið bara Everton á síðustu leiktíð. Þar var “motiveringin” í lagi og slakt miðlungslið náði ótrúlegum árangri. Slíkt er auðvitað líka hægt að gera með klúbb eins og LFC ef menn kunna sitt fag.
    Þó hópurinn sé ekki sá sterkasti í deildinni þá hefur hann afl til að gera það sem gera þarf ef stjórinn kemur þeim í rétt hugarástand og fyllir þá af sjálfstrausti, sigurvilja og grimmd. Það er nú þannig!

Fulham 2 – Liverpool 0

Pompey á morgun