Liverpool 1 – Chelsea 0

VIÐ ERUM KOMNIR Í ÚRSLIT

MEISTARADEILDARINNAR!!!

Ja hérna. Hafið þið einhvern tímann orðið vitni að meira spennandi knattspyrnuleik um ævina? Ekki ég, svo mikið er víst. Ef Eiður Smári hefði skorað úr dauðafærinu þarna á síðustu mínútunni, þá hefði ég drepið einhvern. En sem betur fer gerðist það ekki og því …

… ERU LIVERPOOL KOMNIR Í ÚRSLITALEIK MEISTARADEILDAR EVRÓPU 2005!!!

Lesist: úrslitaleik. Já, þar sem tvö bestu lið Evrópu takast á um titilinn, sigur í Meistaradeildinni. Mótherjar okkar verða væntanlega AC Milan, yndislega gott knattspyrnulið frá Ítalíu, en mér er svo sem sama um það núna. Eftir alveg gríðarlega erfitt tímabil fékk Rafael Benítez svo sannarlega laun fyrir erfiði sitt, hann fær að leiða lið sitt út á völlinn í Istanbúl eftir nokkrar vikur og takast á við stórlið í mesta stórleik Evrópuknattspyrnunnar á þessu ári.

En geymum fagnaðarlætin aðeins. Það þarf að gera þennan leik upp. Liverpool byrjuðu með þetta lið hér:

Dudek

Finnan – Carragher – Hyypiä – Traoré

García – Biscan – Hamann – Riise
Gerrard
Baros

BEKKUR: Carson, Welsh, Smicer, Warnock, Cissé, Kewell, Núnez.

Cissé kom svo inná fyrir Baros á u.þ.b. 60. mínútu og þeir Núnez og Kewell komu inná fyrir García og Hamann þegar einhverjar 10 mínútur voru eftir af leiknum.

Eins og í úrslitum Deildarbikarsins byrjuðu okkar menn af krafti og kaffærðu Meistarana strax í byrjun, og eins og í febrúar skilaði það sér í marki strax á 3. mínútu. Riise fékk boltann á vinstri vængnum og stútaði Géremi, gaf hann inná miðjuna á Steve Gerrard sem sendi frábæra bogasendingu yfir Terry og inn á Baros sem var kominn einn gegn Cech. Baros potaði í boltann og Cech kom aðvífandi og braut á honum (vítaspyrna #1), en í stað þess að dæma lét dómarinn leikinn ganga áfram. Þar kom Luis “Tumi Þumall” García aðvífandi og skaut lausu skoti að marki Chelsea. Eftir viðkomu í upphandlegg John Terry (vítaspyrna #2) náði William Gallas boltanum á marklínunni og hreinsaði frá. Luis García fagnaði samstundis og línuvörðurinn staðfesti það sem maður þorði varla að trúa að væri satt: Liverpool voru komnir yfir og með yfirhöndina í þessum ótrúlega slag!

Afgreiðum markið aðeins. Fór boltinn yfir línuna eða ekki? Mér sýndist það af endursýningunum en get samt ekki verið 100% viss. En vitiði hvað? Mér er svo slétt nákvæmlega fokking sama að það hálfa væri nóg. Muniði þegar við áttum að fá víti í leiknum í síðustu viku, þegar brotið var á Carra? Muniði þegar brotið var á Gerrard í úrslitaleiknum í febrúar og ekkert víti dæmt? Muniði þegar þeir þurftu sjálfsmark frá okkar manni til að lifa af úrslitaleikinn? Muniði þegar Frank Lampard ökklabraut Xabi Alonso? Muniði þegar Eiður Smári lét sig detta í síðustu viku og fiskaði Xabi Alonso í leikbann? Muniði þegar Tiago kýldi boltann af marklínunni á nýársdag þegar Antonio Núnez átti fyrsta mark sitt fyrir Liverpool víst?

Þá skuluð þið líka muna þetta: CHELSEA fengu nákvæmlega það sem þeir áttu skilið í dag, andskotann ekki neitt!

Þeir vissu mjög vel að Hamann, Finnan og Carragher voru með gult spjalt hjá okkur í dag. Þeir létu sig detta við hvert tækifæri, kvörtuðu a.m.k. 15 sinnum undan olnbogaskoti Liverpool-leikmanns og heimtuðu spjöld og vítaspyrnur og dauðadóma í annarri hverri sókn sinni. Þvílíkt samansafn af vælukjóum og leikurum hef ég aldrei séð! Og svo dirfast menn að segja að Luis García og Harry Kewell láti sig detta auðveldlega? Ekki aldeilis, þeir sýndu meiri hreðjar í kvöld en allt Chelsea-liðið til samans! Þetta Chelsea-lið hefur sloppið of oft með skrekkinn í vetur hvað vafasama dóma varðar, í kvöld fengu þeir makaleg málagjöld. Leyfum þeim að væla um það hvort boltinn fór yfir línuna eða ekki, mér gæti ekki verið meira sama!

Eftir markið var fyrri hálfleikurinn í járnum. Bæði lið áttu erfitt með að ná upp almennilegu spili og virtust umfram allt vera stressuð. Það var lítið um færi í fyrri hálfleik, einna helst þegar Drogba fékk skotfæri upp hægri vænginn en skaut beint á Dudek.

Í seinni hálfleik var ég ósáttur við eitt, og aðeins eitt, í leik okkar manna. Mér fannst menn láta taugarnar ráða ferðinni um of sem sýndi sig í því að okkar menn voru hreinlega lagstir í nauðvörn eftir ca. 60 mínútna leik. Maður sá á hliðarlínunni að Rafa var mér sammála, hann reyndi að reka liðið framar en menn einfaldlega þorðu því ekki.

Að öðru leyti er erfitt að gagnrýna þessa frammistöðu. Á endanum héldum við hreinu gegn Chelsea í 180 mínútur, skoruðum markið sem skipti máli og sýndum það hjarta og þann baráttuhug sem þarf til að komast í úrslit í svona stórkeppni. Það er spurning hvort Frank Lampard eigi ekki bara að koma til okkar, ef hann langar að vinna titla í Evrópu?!? :p

Dómarinn fær örlitla útnefningu hér sem vitleysingur leiksins, en hann dæmdi hvert einasta smáatriði Chelsea í hag og bætti við heilum sex fokking mínútum sem enginn veit hvernig gat staðist. En aukahjálpin dugði Chelsea ekki og rétt lið fór áfram í úrslitin. Það sannaðist einu sinni enn hér sem ég held að allir ættu að vita, sérstaklega Peter Kenyon og Roman Abramovitch: peningar geta aldrei keypt það sem fæst með því að spila með hjartanu. Liverpool-liðið spilaði með hjartanu í kvöld, stuðningsmennirnir sýndu að hugur þeirra og hjörtu voru með liðinu, enda hreinlega ljómaði Anfield af einhverjum rauðum bjarma í kvöld. Að heyra ‘You’ll Never Walk Alone’ á meðan leikmennirnir okkar föðmuðust í leikslok í kvöld, ég hef sjaldan verið jafn stoltur af því að halda með þessu liði!


MAÐUR LEIKSINS: Þegar það voru komnar svona 3 mínútur fram yfir venjulegan leiktíma var ég ekki alveg viss hvort ég ætti að þora að velja einn mann fram yfir aðra í kvöld. García skoraði markið, Gerrard var í heimsklassa á miðjunni og fyrir aftan hann voru þeir Biscan og Hamann ómetanlegir í vanþakklátum hlutverkum. Riise hljóp heilt maraþon í kvöld og var okkar besti sóknarmaður, á meðan bæði Baros og svo Cissé skiluðu sínu og vel það gegn “besta miðvarðapari Evrópu” (haha, kanntu annan?). Þá var vörnin okkar þétt og Dudek varði það fáa sem kom á vörnina af stöku öryggi. Einnig komu Kewell og Núnez vel inní leikinn, með ákveðna rósemi og héldu boltanum vel sem var ómetanlegt á lokamínútunum.

Hins vegar hef ég ákveðið að nefna tvo menn sérstaklega sem menn leiksins í kvöld:

1. JAMIE fokking CARRAGHER! John Terry hvað!?!?!? Ég ætla rétt að vona að Sven Göran Eriksson hafi verið að horfa í kvöld, því að ég get ekki séð hvernig hægt er með einhverjum haldbærum rökum að halda því fram að Terry sé miklu betri miðvörður en Carra eftir leikinn í kvöld. “Legend” var einfaldlega í súper-dúper-alheimsklassa í kvöld. Það var ekkert sem hann gerði ekki, og þegar hann tók boltann af Kezman undir lokin og tók á sprett með hann fram vinstri kantinn og útaf við hliðarlínuna trylltist ég. Mig langaði til að hlaupa út um dyrnar, synda yfir Atlantshafið og brjótast inn í Anfield-klefann til þess eins að geta sagt honum hversu mikill fokking snillingur hann er, eftir þennan leik. Ég hef ALDREI séð hann spila jafn vel, og ég hef hreinlega aldrei nokkurn tímann séð nokkurn einasta miðvörð í heiminum spila jafn ótrúlega sterkan varnarleik í 96 mínútur og Jamie “Legend” Carragher gerði í kvöld. Aldrei. Hann er einstakur og við eigum hann! Þið hinir megið eiga ykkar Rio, Sol og Terry … við myndum ekki vilja skipta við ykkur fyrir neinn pening!

2. ‘The special one’ ??? Taktískt undrabarn? Besti þjálfari í Evrópu? Yeah right! José Mourinho er ekki einu sinni besti þjálfari á Englandi, hvað þá í allri álfunni. Til að orða það á sem prúðastan máta, þá gjörsamlega skúraði RAFAEL BENÍTEZ gólfið með José Mourinho í þessu einvígi. Þetta einvígi vannst alveg jafn mikið utan vallar og innan, á meðan skiptingarnar okkar dugðu 100% frábærlega í báðum leikjum þessa einvígis, sérstaklega í kvöld, þá hafði José eftirfarandi til málanna að leggja: setja Robert Huth inná Í FRAMLÍNUNA! Sniðugt! Og … taka Glen Johnson út fyrir Géremi? Líka sniðugt, eftir þrjár mínútur var Riise búinn að binda skóreimarnar á Géremi saman og skapa mark fyrir Liverpool. Rafael Benítez sýndi í kvöld hvers vegna við eigum að treysta honum fyrir framtíð Liverpool – hann er búinn að koma þessu meiðslahrjáða, sundurtætta og óstöðuga Liverpool-liði í úrslit TVEGGJA KEPPNA í vetur, og það á sínu fyrsta tímabili. Ekki einu sinni José Mourinho hefur leikið það eftir! ‘The special one’ ? His name is Rafa, Rafa Benítez!!!

Og að lokum…


Steven Gerrard. Fer. Ekki. Fet. Í. Sumar.

😀 😀 😀 😀 😀 😀 😀 😀 😀 😀

Xabi Alonso kemur inn í úrslitaleikinn. Við verðum með nánast okkar sterkasta lið í þeim leik. Djöfull ætla ég að njóta þess að horfa á PSV Eindhoven og AC Milan spila annað kvöld … eftir að ég er búinn að panta mér farseðil til Istanbúl! 😀

Frábært kvöld. Til hamingu Púllarar nær og fjær, þetta var sko sanngjarnt og við getum lítið annað gert en fagnað þessu ærlega!


**Uppfært (Einar Örn)**: Þetta er svo yyyyyndislega sætt að það er ekki fyndið. Þetta er það, sem mig dreymdi um þegar við drógumst gegn Chelsea. Ég vonaðist alltaf til að lenda ekki á móti Chelsea, þar sem að ég vissi ekki hvar ég myndi enda ef við myndum tapa enn einu sinni fyrir þeim. En eftir að við sáum að við myndum mæta þeim, þá var ég sæmilega bjartsýnn.

Ég var á Players í kvöld, mætti 90 mínútum fyrir leik og fékk ekki einu sinni sæti. Ég verð eiginlega að játa að ég var furðu rólegur í fyrri hálfleikurinn, en sá seinni var nánast óbærilegur vegna spennu.

Ég verð að segja að mómentið þegar Jamie Carragher tók Kezman, þá var ég í fyrsta skipti viss um að við myndum vinna þetta. Carra gerir ALLT fyrir þetta lið, það er svo augljóst og ég man að ég stökk upp og öskraði: “Sjáiði þennan fokking snilling” þegar Carra dreif sig upp kantinn. Þvílíkur leikmaður og hann var klárlega maður leiksins.

Ég var þó alltaf að undibúa mig andlega undir markið frá Chelsea. Þeir hafa verið svo heppnir í vetur að ég bjóst alltaf við að þeir myndu klára þetta. En þeir gerðu það ekki. Fyrir utan eitt til tvö færi áttu þeir ekki sjens. Við áttum í raun jafnmörg dauðafæri í leiknum og þeir.

Bara einn punktur, sem Kristján minntist lauslega á. Ég verð að játa að ég var hissa á að sjá hvað Liverpool stuðningsmmenn á Players voru fúlir yfir skiptingunni á Nunez og Kewell. Þetta voru FULLKOMNAR Skiptingar. Það gekk ekkret að halda boltanum í liðinu og því var fullkomið að fá Núnez, sem gæti keyrt uppí hornið og barist á kantinum og Kewell, sem gæti haldið boltanum. Þeir gerðu nákvæmlega það, sem ég átti von á.

En þetta var allt frábært. Æði! 🙂


Vitiði hver er tapsár? [Jose Mourinho](http://news.bbc.co.uk/sport1/hi/football/europe/4505867.stm) en núna er mér bara nákvæmlega sama hvað Chelsea menn segja.

Ég hélt að ég myndi fyrst og fremst gleðjast yfir óförum Chelsea í þessari stöðu. Eeeeeen staðreyndin er bara sú að mér er nákvæmlega sama um Mourinho, Lampard, Eið Smára *og Chelsea*. Þetta snýst allt um **Liverpool** Við unnum undanúrslitarimmu í fyrsta skipti í 20 ár og **VIÐ ERUM KOMNIR Í ÚRSLIT Í MEISTARADEILDINNI!!!** Í fótbolta gerist þetta varla betra. 🙂

Til hamingju, öll!

30 Comments

  1. Ætlaði bara að standa við orð mín og óska ykkur innilega til hamingju með sigurinn. Þið áttuð þetta fyllilega skilið enda börðust þið eins og ljón allan tíman. Ég von að þið klárið dæmið núna og takið dolluna í Istanbul. Annað væri bara rugl. Ég veit amk með hverjum ég held þar!

  2. MIGLANGARFARA!!!

    Loksins loksins unnum við þetta fjárans Chel$ea lið og það gat hreinlega ekki verið sætari sigur. Uppstilling Chelsea hreinlega lék beint uppí hendurnar á Liverpool, vængmannalausir, bakvarðalausir að reyna að brjótast í gegnum Haman, Biscan, Hyppia OG Carragher!! Svakalega skemmti ég mér vel undir lokinn þegar Kewel var að stríða þeim með boltann við hornfánann, aftur og aftur. Carragher var óumdeilanlega maður leiksins, Riise fær líka sérstaka tilnefningu sem þindarlausasti maður liðsins, ég sá ekki betur en að hann væri bæði að spila bakvörð og fremsta sóknarmann 😀

  3. Alger snilld.

    Held að ég hafi aldrei verið vitni að annarri eins stemmningu á Ölveri. 150 manns öskrandi við markið.

  4. Sjá má margar frábærar myndir af leiknum HÉRNA!

    Ég mæli með því að þið rúllið niður þennan þráð. Neðarlega á síðunni kemur notandi sem kallar sig RED LOZZA með mynd sem er priceless … Xabi Alonso hleypur inná völlinn og stekkur á Stevie G, þeir fallast í faðma og það er til mynd af því.

    Er Stevie að fara til Chelsea? Ekki glæta í helvíti, horfið á hvað hann er ánægður á þessum myndum, sjáið hvað hann og Xabi eru ánægðir saman. Fokk, hvað þetta var yndislegur leikur! 🙂

  5. Sniiiiiillldd…..

    Og bara svo það sé á hreinu, þá stóð Gallas á marklínunni með vinstri fót og hreinsaði boltann með þeim hægri.

    Hann var inni og enginn chelsea maður kvartaði. Enginn spurning.
    :biggrin2: :biggrin: :biggrin2: :biggrin: :biggrin2: :biggrin: :tongue:

  6. :biggrin2: Hvílíkur leikur ! Til hamingju allir saman.
    Hárrétt hjá þér Kristinn J, ég ætlaði einmitt að benda á þessa staðreynd að þerag að vinstri fóturinn er á marklínu hlítur sá hægri að vera fyrir innan marklínu þegar að hreinsað er.
    Einföld staðreynd, við áttum þetta skilið því við vorum betri.
    Carrager var maður leiksins, hvílíkir yfirburðir hjá einum manni !
    Vá hvað ég er stoltur í dag ! :biggrin2:

  7. JAAAAA..
    Við erum komnir í úrslitaleikinn í CL. Þvílíkt kvöld. Öskraði sig hásan á ölveri. Verð nú bara að segja eins og kom fram held ég á þessari síðu að það var bara ekki möguleiki að við myndum tapa 5 leikjum á moti Cheslki á einum vetri. EKKI FRÆÐILEGUR.

    Djöfull var CARRA GÓÐUR. Maður verður fyrsti maðurinn hjá Jóa Útherja á morgun að setja númerið og nafnið á treyjuna. Viðtölin við SG og Carra eftir leikinn sögðu bara allt. Carra gefur sig 200% í hvern leik og vel það. Vitandi það að hann var með gult á bakinu og hefði getað misst af úrslitaleiknum sýnir bara að það hann hugsar um liðið fyrst og fremst. SNILLINGUR

    Sjáumst í Istanbúl

  8. Var fannst samt mourinho taka þessu tapi vel hann sýndi okkur virðingu þó að maður skilji alveg að sé ekki sáttur við markið enn ég var ánægður að hann skildi fara út á völlin og taka í spaðan á leikmönnum LIVER eina liðið sem er að fara spila úrslitarleik í meistaradeildinni þvílík hamingja mætum milan og vinnum 2-1 garcia og cisse setja hann!!!!

  9. Þetta er náttúrulega búið að vera lýginni líkast þetta tímabil… og við erum komnir í ÚRSLIT CL… YNDISLEGT og að vinna Chelsea er undanúrslitum er náttúrulega ennþá yndislegra.
    Carragher, Riise og Garcia voru óaðfinnandi í þessum leik.
    Er ekki möguleiki að fá gistingu hjá Halim Al þegar maður fer á leikinn í Istanbul?
    Til hamingju – TAKK

  10. Við erum komnir í úrslit Meistaradeildarinnar….

    Og við unnum Chelsea í undanúrslitum!!! Ég er ekki enn kominn yfir þetta. Ef einhver hefði sagt mér þetta í upphafi tímabilsins, þá hefði ég efast um geðheilsu viðkomandi. 🙂

    Langaði bara að koma þessu á framfæri 🙂

  11. Geðveikt! Ótrúlegt! Æðislegt!…

    Það er LIVERPOOL sem er búið að stela senunni í enska boltanum í vetur!

    Hvað með það að manjú eða arsenal vinna FA bikarinn??

    Hvað með það þótt chel$kí hafi unnið deildarbikarinn og ensku deildina??

    Hvað með það að john terry hafi verið kosinn leikmaður ársins?? Það sjá allir að Carragher er besti varnarmaðurinn í ensku deildinni!

    LIVERPOOL eru komnir í úrslit í CL og það er mesti sigurinn allra enskra liða í vetur!!

    Þetta er besti dagurinn sem ég hef upplifað sem púllari síðan 12.maí 2001 þegar FA bikarinn vannst!

  12. TIL HAMINGJU MEÐ ÁRANGURINN LIVERPOOL, AÐDÁENDUR OG ÁHANGENDUR !

    Ég eltist um nokkur ár vegna streitu þegar við spiluðum við Juventus á útivelli ? Svei mér þá ef ég hafi ekki elst um svona einn áratug í kvöld…. Þvílík öskrandi, gargandi, djöfulsins snilld !!!!!!

    Ætli maður taki sér ekki frí 26. maí svo að maður geti nú fagnað almennilega með sínu liði… :biggrin:

    p.s. það var þá satt sem að aðstoðarþjálfari Rafa sagði um viðureiginir L´pool vs. Chelsea: “það er ekki leikur fjögur sem skiptir máli heldur sá fimmti”

  13. YES!

    Ég veit ekki hvort ég get sofnað í kvöld! Ég hef aldrei elskað þetta lið jafn mikið á æfi minni! Carra er of góður…

    Ég horfi leikinn á sky eða ITV1 og þar síndu þeir sem má ekki sína og var líklegast ekki sínt á örðum stöðum, það var þegar enginn annar en Jimmyjump og félagi hans hlupu inná völlinn og það var þess vegna sem var bætt 6 mínútum við (en kanski aðeins of langt). (http://www.jimmyjump.com/ing/main.html) Munu ekki allir eftir honum á síðasta evrópumóti þegar hann hljóp inná og skutlaði sér í netið? Hann gerði það aftur þarna.

    Annars vegar, YOU NEVER WALK ALONE!!!

  14. Jimmy jump sást reyndar líka á Sýn….mér þótti þetta fyndið á evrópumótinu en var bálreiður í kvöld, enda að deyja úr stressi :confused:

    En frábær leikur :biggrin2:

  15. Ég get svo svarið það, þegar Eiður fékk færið undir lokin sá ég allt líf mitt flassa fyrir augunum á mér. Og ekki nóg með það, ég sá framtíðina í eitt sekúndubrot í “alternative” raunveruleika, allt slefið yfir gulldrengnum hérna heima yfir að skora draumamarkið á lokasekúndunum sem tryggði Chelsea í úrslitaleikinn…

    Sennilega hef ég aldrei verið jafn viðbjóðslega ánægður með að eitthvað fari úrskeiðis hjá íslenskum íþróttamanni og þegar boltinn sigldi framhjá. Ómægod, þvílík frammistaða og LOKSINS AÐ VAFAATRIÐI FÉLL LIVERPOOL Í SKAUT Í FOKKINGS VETUR! Snilld og aftur snilld. Mourinho fær plús í kladdann fyrir að klappa fyrir Liverpool-stuðningsmönnum þegar hann gekk af velli. Hefði ekki búist við svo íþróttamannslegri framkomu af honum. En mikið ofboðslega er þetta sætt eftir suss-ið í Cardiff. Og eitt orð enn: Carragher. Fallegasta orð í heimi.

  16. Ég hef haldið með Liverpool lengi…….. :biggrin2:

    En svei mér þá……… ég hef sjaldan eða aldrei verið jafn ánægður með einn sigur hjá okkar mönnum…….. :biggrin2:

    Krisján Atli, ég er búinn að hlægja mig máttlausan yfir leikskýrslunni þinni……. :biggrin2:
    Þú er frábær penni og neglir stundum sannleikann alveg frábærlega…….

    Ég sofna með drauma um Carragher taka framlínunana hjá Chelsea í nefið………

    Þegar Eiður skaut úr þessu færi þá öskraði ég upp yfir mig eins og ég hefði verið skotinn eða einhver sparkað í punginn á mér……. þegar ég sá tuðruna fara fram hjá, trúði ég ekki eigin augum…

    Við áttum það svo innilega skilið að vinna í kvöld.

    Ég geymi myndina af Alonso og Gerrard faðmast eftir leikinn í hjarta mínu forever……

    Það er ekki glætan að Gerrard fari frá okkur í sumar.

    Til hamingju félagar nær og fjær…. við erum komnir í úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu……

    Sjáiði fyrir ykkur Gerrard og Carragher lyfta dollunni upp saman 26. maí…………… 😉

  17. Ég er SVOOOOO FULLUR að ég get ekki sagt það sem ég vil! YNWA, people!!

  18. Frábær skýrsla Kristján og það var hreint út sagt yndislegt hvað þetta Chelsea var jarðað í kvöld.

    King Carra átti stórleik og stemningin var á vellinum var hreinlega ólýsandi.

    Við vinnum CL. Ekki nokkur spurning!

  19. Til hamingju med tennan sigur Liverpool-menn, Liverpool atti tetta skilid, teir skorudu ju eina “markid” i einviginu 😉

    Ekki taka tessu sem einhverju dissi, en mikid var tetta leidinlegt einvigi, omurlegar 180 minutur og jafnvel leidinlegra en UEFA Cup einvigid gegn Barcelona 2001
    :biggrin2:

    Eg skil vel ad tid hafid verid spenntir, en fyrir hinn hlutlausa ahorfanda var tetta hrein hormung.

    En aftur, njotid sigursins, eftirleikurinn verdur audveldur gegn Milan, teir verda ordnir daudtreyttir 25. mai, mun treyttari en teir eru nuna, og ta er nu mikid sagt.

  20. Ég setti saman eina vísu fyrir leikinn í gær en þorði ekki að setja hana hérna inn fyrr en eftir leik.

    Þetta er leikur um landsins heiður
    og líklega spilar okkar Eiður.
    Ég vil lauslega á það minna
    að LIVERPOOL munu vinna
    og laslegur snýr hann heim leiður.

    Djöfull er ég sáttur við þetta allt saman! Gerist ekki betra, bara gerist ekki betra. Til hamingju allir Liverpool aðdáendur nær og fjær!

  21. Hehe flott vísa Geiri!

    Þakka hrósið fyrir leikskýrsluna, þetta er það sem gerist þegar maður skrifar um fótboltasigur uppfullur af endorfíni, adrenalíni og öðrum náttúrulegum vímugjöfum :biggrin:

    Og mikið svaf ég nú vel. Langt síðan ég hef sofnað/sofið/vaknað jafn ánægður… ætla mér að skemmta mér verulega vel yfir leiknum í kvöld. Það verður ennþá skemmtilegra að horfa á hann vitandi að við erum þegar komnir í úrslitin.

    Persónulega, þá vill ég fá AC Milan. Ef við vinnum Deportivo, Mónakó, Olympiakos, Bayer Leverkusen, Juventus, Chelsea og AC Milan í þessari keppni mun nefnilega enginn geta sagt að við höfum fengið þetta gefið. Því ekki að sigra þá bestu, og sanna þannig hverjir eru bestir!?!?!?

  22. Til hamingju allir LIVERPOOL addaendur :biggrin:
    Eg vil byrja a ad takka Krisjani og Einari fyrir frabæra sidu.
    Tad er eitt sem eg hef verid ad pæla i sem er hvernig fjolmidlar hafa skrifad um leikina hja Liverpool i evropukeppnini serstaklega rimmunum a moti Juventus og Chelsea.Flestir tala um ad Liverpool hafi komist afram vegna tess ad andstædingarnir spiludu ekki sinn leik eda eitthvad alika en malid er ad LIverpool leifdi teim bara ekki ad spila sinn leik svo einfalt er tad og tad sinir stirk Liverpool ad minu mati.Vid unnum tessi lid af tvi ad vid vorum einfaldlega betri.
    Madur spilar akkurat eins og andstædingurinn leifir 😉

  23. Glæsilegt.

    Flott leikskýrsla nafni, gott ljóð geiri og klassa leikur púllarar.

    Ef svona leikur með svona líka frábærum aðdáendum dregur ekki fram það besta í leikmönnum, þá er eitthvað að. Enda sýndi það sig að leikmenn voru tilbúnir í verkefnið, heimavöllurinn gerði útslagið.

    Þetta þýðir að andstæðingar okkar munu á komandi árum hræðast það að mæta LIVERPOOL á ANFIELD. Þannig var það og þannig á það að vera.

    KVeðja
    Krizzi

  24. Jamm, einmitt Gummi, það er frekar fyndið hvernig umfjöllunin hefur verið. Ef maður á að taka mark á fjölmiðlum, þá léku Juventus tvisvar illa og Chelsea tvisvar illa. Þvílík tilviljun að þessi lið leika svona illa á móti okkur.

    Já, eða ekki. Auðvitað er það vegna þess að Rafa snéri á Cappello og Mourinho og Liverpool liðið lék þannig að hin liðin voru ekki betri en þau voru. *Þú spilar ekki betur en andstæðingurinn leyfir* er kannski klisja, en það er samt býsna mikill sannleikur í því. 🙂

Liverpool að kaupa Reina?

Fór boltinn inn?