Burnley 1 – L’pool 0

Þannig fór um sjóferð þá. Liverpool FC entust aðeins 90 mínútur í FA Bikarkeppninni vorið 2005, féllu út úr keppni eftir hörmulega frammistöðu fyrir Burnley-liði sem átti sigurinn fyllilega skilinn.

Við stilltum upp talsvert óreyndu og/eða veiku liði í kvöld, ekki bara af því að við vorum með menn í meiðslum heldur líka af því að nokkrir lykilmenn fengu verðskuldaða hvíld. Meiddir: Cissé, Alonso, Smicer, Gerrard, Finnan, Josemi, Kirkland. Farinn: Diao. Hvíldir: Carragher, Riise, Hamann. Ólöglegir: Pellegrino og Morientes.

Þannig að ljóst var að við myndum aldrei ná að stilla upp neinu liði sem gæti talist “klassa ofar” en þetta Burnley-lið, sem er í 10. sæti Championship-deildarinnar og því ekkert langt fyrir neðan okkur í gæðum. Ekki eins og Exeter og Man U allavega. Samt átti maður von á að menn á borð við Biscan, Núnez og Pongolle myndu ríða baggamuninn fyrir okkur, auk þess sem maður sá Traoré og Hyypiä fyrir sér loka vörninni vel gegn einum framherja Burnley-manna svo að við yrðum ekki í vandræðum þar.

Annað kom á daginn. Byrjunarliðið var s.s. svona:

DUDEK

RAVEN – HYYPIÄ – WHITBREAD – TRAORÉ

NÚNEZ – BISCAN – POTTER – WELSH – WARNOCK

SINAMA-PONGOLLE

BEKKUR: Harrison, Smyth, Otsemobor, Mellor, Baros.

Ég nenni varla að vera að tjá mig of ítarlega um þennan leik, en hér eru samt nokkrir punktar:

1. Við hverju bjóst maður eiginlega? Það var ljóst um leið og við sáum völlinn að hvorugt liðið væri að fara að spila léttleikandi og/eða flæðandi knattspyrnu í kvöld. Ég sagði við sessunauta mína yfir sjónvarpinu að þetta yrði spurning um hvort liðið myndi nýta færin sín betur, og hvort liðið hefði betur í “styrjöldinni”. Kom á daginn að hvorugt liðið nýtti færin sín, en Burnley unnu miðjustyrjöldina og síðan leikinn, með einhverju fáránlegasta marki sem ég hef á ævi minni séð.

2. Það kom mér á óvart hvað reyndari leikmennirnir voru daprir í kvöld. Zak Whitbread var miklu, miklu betri og öruggari í miðri vörninni en Hyypiä. Whitbread vann sína vinnu nær gallalaust, skilaði hverri einustu sendingu til samherja og var bara mjög góður í kvöld, á meðan Hyypiä virkaði seinn og óöruggur (mögulega þreyttur). Að sama skapi var Raven að berjast vel í hægri bakverðinum og skila sínu, á meðan Djimi Traoré var bara gjörsamlega úti að aka frá fyrstu mínútu. Á miðjunni voru Welsh, Warnock og Núnez að berjast gegn margnum en greyið Darren Potter fann sig aldrei, þrátt fyrir að reyna allt sem hann gat. Hins vegar var Igor Biscan svo lélegur í kvöld að það tekur því ekki einu sinni að eyða orðum í það. Ég hef aldrei séð Biscan spila jafn illa fyrir okkur og hann gerði í kvöld – akkúrrat þegar hann hafði góðan séns á að fá að spila nokkra leiki í röð með aðalliðinu (Gerrard & Alonso meiddir, Diao farinn) að þá spilaði hann svo fáránlega illa að ég verð hissa ef hann verður í hópnum gegn Southampton á laugardaginn.

3. Undir lokin lét Antonio Núnez skapið hlaupa með sig í gönur og gaf einum varnarmanni Burnley olnbogaskot, fékk verðskuldað rautt spjald fyrir. Þetta var óíþróttamannslegt hjá Núnez og nokkuð sem maður vill helst ekki sjá hjá Liverpool – og eins og það hafi ekki verið nógu mikil fjarvera leikmanna fyrir þá verðum við án Núnez á laugardaginn. Menn fá sjálfkrafa rautt spjald í næsta leik fyrir að fá beint rautt spjald, og ég geri ráð fyrir að aganefnd gefi Núnez þriggja leikja bann fyrir þetta. Heimskulegt af honum og kemur sér illa fyrir okkur.

4. Djimmy, Djimmy, Djimmy. Hvað get ég eiginlega sagt? Ef ég ætti að kjósa núna myndi Djimi Traoré vinna verðlaunin Mestu Framför Ársins með yfirburðakosningu. Hann er einfaldlega búinn að vera nýr maður fyrir okkur í vetur, miðað við fyrstu árin sín á Anfield. En í kvöld var hann bara úti á þekju. Ég treysti mér ekki til að tjá mig um hvort hann var betri eða verri en Biscan í kvöld, en þeir voru áberandi LANGslökustu leikmenn okkar í kvöld. Markið hans Traoré gerði samt útslagið. Ef tapið gegn Man U á laugardag var Dudek að kenna, þá var þetta tap í kvöld algjörlega, 110%, gjörsamlega og skuldlaust Traoré að kenna.

Ég meina … hvað eru menn að hugsa að gera svona? Burnley-maður sleppur inn í teiginn vinstra megin og rennir boltanum fyrir markið. Hann fer framhjá Hyypiä og Dudek, sem eiga enga sök hér, og beint í fæturnar á Traoré á fjærstönginni. ALLIR SKYNSAMIR VARNARMENN hefðu áttað sig á aðstæðunum – snúandi baki í völlinn, ekki vitandi hvort það er maður að koma til að pressa á þig eða ekki – og bara rennt boltanum innanfótar í horn. Það er það sem á að gera. Það er skyldan, það er hið skynsama, það er auðvelda lausnin.

En ekki Djimmy. Neeeeiiiiii… hann reyndi einhvern fáránlegan Cruyff-snúning með boltann, Á FOKKING MARKLÍNUNNI, sem tókst ekki og boltinn rúllaði yfir línuna. Hann var aleinn þegar þetta gerðist og ekki undir neinni pressu. Það var hins vegar Burnley-maður að koma aðvífandi og það er til marks um það hversu heimskuleg þessi ákvörðun Djimmys var að þótt þessi tekníski snúningur hefði tekist fullkomlega hefði hann ekkert verið í betri stöðu, hann hefði verið í kyrrstöðu, með boltann á helvítis marklínunni, þegar Burnley-maðurinn hefði einfaldlega tæklað hann yfir línuna. Hann hefði fengið á sig markið hvort sem þessi snúningur hefði tekist eða ekki!!!

Flettið upp orðinu dómgreindarleysi og þá sjáið þið myndina sem er efst í þessari leikskýrslu. Traoré í netinu og boltinn með, á meðan Burnley-maður fagnar þessari síðbúnu jólagjöf.

En já, allavega, svona fór um sjóferð þá. Við erum fimmta Úrvalsdeildarliðið sem fellur út úr FA Bikarnum í þessari umferð – sem sannar enn og aftur hvað er svona heillandi við þessa keppni þar sem allir geta unnið alla. Þetta var fyllilega verðskuldað tap, Burnley-menn voru betri í 90-mínútur og í rauninni er það eina sem var svekkjandi við þennan leik var hvernig við töpuðum. Ef við hefðum ekki fengið þetta heimskulega sjálfsmark á okkur hefðum við sennilega vel getað haldið hreinu í þessum leik og jafnvel náð að stela þessu undir lokin – þar sem Burnley höfðu gert allt rétt í leiknum nema að skapa góð marktækifæri. Flestar þeirra sóknir höfðu endað með töpuðum boltum eða skotum af lööööngu færi, þannig að það var ekkert sem benti sérstaklega til þess að þeir væru að fara að komast yfir þegar Traoré ákvað að eyðileggja leikinn fyrir okkur, og tímabilið fyrir sjálfum sér.

Æji, ég nenni ekki að pæla í þessu. Ég er pirraður yfir þessu tapi en reyni samt að halda rónni, veit að þetta var algjört varalið hjá okkur og reyni að segja sjálfum mér að þetta gæti verið “blessun í dulargervi” eða “lán í óláni” eða eitthvað álíka rugl. Kannski er það bara betra að þurfa ekki að spila í þessari bikarkeppni líka, ef við förum í úrslit Deildarbikarsins og erum að spila í Meistaradeildinni?

Nei, fuck it. Auðvitað viljum við vinna þessa dollu eins og aðrar. En því miður … það verður engin ferna í ár, býst ég við! :confused:

Næst: Southampton á útivelli í deildinni á laugardaginn og ég ætla að gerast svo djarfur að spá því að Traoré og Biscan verði ekki í liðinu í þeim leik. Get ekki séð Benítez fyrir mér velja þá í liðið eftir kvöldið í kvöld.

13 Comments

  1. Þetta er að verða gjörsamlega óþolandi… tapa gegn Burnley og það sanngjarnt! Úffff og fyrir korteri töpuðum við fyrir Chelsea og ManUtd. jæja já hvar endar þetta…. detta í klisjuna og segja: Þetta kemur á næsta ári… gefum Rafa smá tíma…. svo margir meiddir…. þetta er bara bikarinn…. blablabla… ÞETTA ER ÓÞOLANDI! Ekki hægt að kenna Dudek núna og næsta Traore…. við eigum að vera betra lið að við þolum ein mistök hér og þar… andskotans helv….
    bless

  2. Sælir félagar,

    eigum við ekki að athuga hvað er í boði hér eftir, vinnum deildarbikarinn, förum í 8 liða úrslit í meistaradeildinni og TRYGGJUM OKKUR FJÓRÐA SÆTIÐ Í DEILDINNI og vonandi dugar það til að halda þeim leikmönnum sem við viljum halda og laða til okkar fleiri toppleikmenn svo sem hægri kantmann og eins og einn markmann.

    Kv Stjáni

  3. :tongue:Svona framistaða er til skammar og hrokafull uppstilling Rafa einstök og þetta er ekki umræðuvert. Bara skömm :confused:

  4. Ég segi bara pass…….. : 😯 😯 🙁

    Mér er öllum lokið. Ég var að vona að Carra og Riise yrðu í liðinu í kvöld. Miklu frekar þá tvo en Hyypia og Nunez. Við vorum bara eins og sundurleit hjörð í kvöld. Eina ljósið í myrkrinu var leikur Zak Whitbread og Dudeks!!!!!!

    Það er ekkert annað að gera en að henda þessu aftur fyrir og einbeita sér að því sem eftir er!!!!!

  5. Þetta kom mér í sjálfu sér ekkert á óvart, við hvílum 2 menn sem í sjálfu sér gefa okkur EKKERT frammár (Carra & Hamann) og Riise fékk að auki að hvíla. Liðið var því að vissu leyti eins gott að það gat orðið en ég hefði frekar viljað fá Mellor til að byrja frammi í stað Pongolle, einungis vegna þess að völlurinn (eins slæmur og hann var) hentaði honum betur. Leikurinn sjálfur var skelfilegur og alveg agalegt að sjá Biscan vera algjöran farþega í leiknum í ca. 80 mín. Potter reyndi eitt og annað en það gekk nákvæmlega EKKERT upp hjá honum. Mér var meinilla við að Baros hafi þurft að koma þarna inná þar sem hann hefur verið í bölvuðum meiðslum undanfarið og völlurinn bauð uppá einhver fl. óvænt meiðsli.

    Varðandi Traore þá held ég að drengurinn hafi sýnt eitt það mesta dómgreindarleysi í leik sem ég hef nokkurn tímann séð. Að reyna þetta á svona velli með strekkingsvind er gjörsamlega ófyrirgefanlegt.

    Ég hefði verið sáttur við að halda núllinu í þessum leik og taka þá svo á Anfield, þar sem eitthvað gras er.

  6. Sem betur fer missti ég af þessum leik!

    Ég sem er búinn að dást að framförum og endurfæðingu Traore’s í vetur síðan gerir hann eitthvað svona! 😡

    Þetta hlýtur þá að þýða það að við stöndum okkur betur í hinum keppnunum miðað við kenningar Rafa. Lykilmenn mæta úthvíldir á móti Southampton!

  7. Sælir mér er spurn, var ég ekki að horfa á sama leik og þú Kristján.

    Þú heldur því fram að Hyypia hafi verið afleitur í vörninni en Whitbread miklu betri, öruggari og með betri sendingar. Í þeim leik sem ég horfði á þá settu sóknarmaður(menn) Burnley, Whitebread ítrekað undir pressu þegar hann var með boltann, þessi pressa virkaði því Whitbread sendi hvað eftir annað í lappirnar á miðjumönnum þeirra eða háa bolta fram sem töpuðust. Auk þess vann hann ekki alla skallabolta sem hann fór upp í eins og Hyypia gerði, né tæklingar.

    Sem dæmi í markinu: hann átti ekki að tapa þeirri tæklingu, fannst eins og hann væri hræddur við að fara að fullum krafti í hana. Þessi tapaða tækling varð til þess að leikmaður Burnley slapp inn fyrir og við vitum rest ala Traore. Bresku lýsendurnir (3 séðfræðingar sem þekkja leikinn út í gegn, einn þeirra var Rush) kommentuðu líka á það að varnarmaður mætti ekki tapa svona tæklingum.

    Ég gat ekki betur séð en að Hyypia væri yfirvegaður og öryggið uppmálað þarna í vörninni. Ekki man ég eftir tæklingu, né skallabolta sem hann tapaði í leiknum. Reyndar átti hann nokkuð margar slakar sendingar fram á völlinn, þarf að bæta það fyrir næsta leik. Og vissulega er hann hægur en bætir það upp með góðum staðsetningum.

    Heilt yfir hélt nú samt vörninn ágætlega í þessum leik, það var miðjan sem tapaðist. Welsh þarf að bæta leik sinn um 100% til að eiga framtíð hjá Liverpool.

    Kalt mat miðað við leikinn í gærkveldi : einungis tveir af ungu leikmönnunum eiga möguleika í hópinn á næsta ári það eru Pongolle og Warnock sem að mínu mati var einn af betri mönnum okkar í gær.

    ps. annars góður pistill hjá þér Kristján

    Kveðja
    Krizzi

  8. Eitt finnst mér fáránlegt. Pellegrino og Morientes fengu ekki leyfi til að spila leikinn af þvi að þessum leik var frestað síðast og þeir ekki komnir og hvað þá komnir með leikheimild. Núna voru þeir þó komnir og voru með leikheimild en fengu samt ekki að spila(????????) Er þetta djók ársins eða? Leikmenn sem voru í banni fyrir leikinn fengu að spila núna þar sem þeir voru búnir að taka út bannið….en ég meina..væri þá ekki réttast að þeir fengu ekki að spila leikinn líka eins og Pelli og Mori??

    En hvað um það. Fólk er ósátt við að hann stilli upp unglingaliðinu gegn Burnley en miðað við upptalninguna hér að ofan þá eru ekki margir eftir í hópnum til að spila. Satt best að segja er ég farinn að sjá á eftir Diao í lán til Birmingham eftir frammistöðu Biscan í kvöld. En allavega fengu þessir krakkar séns í kvöld og þeir tóku þann séns alls ekki. Ég samt styð alveg Benitez í þessu vali og er í raun mjög sáttur að hann gefi strákunum séns. Ég vil bara ekki að menn festist í “4.sætis” syndróminu og stefni að því að spila bara deild og CL þegar það eru fleiri dollur í húfi. Hann allavega sendi þessa stráka á völlinn til að vinna og ekkert annað sem var raunhæft markmið en því miður gekk það ekki eftir. Mér er skítsama þótt þetta sé elsti bikar í heimi. Hann ræður og hann spilar út spilunum svona og þetta mun koma ungu strákunum til góða síðar. Hættum röfli og leyfum karlinum að stjórna.

  9. Þú segir: “Ef tapið gegn manchester united á laugardag var Dudek að kenna, þá var þetta tap í kvöld algjörlega, 110%, gjörsamlega og skuldlaust Traoré að kenna”

    Ég er alls ekki sammála þessu. Vissulega var þetta skelfilegt hjá honum, en ég kenni Rafa Benitez algjörlega um þetta.
    Ímyndaðu þér: Við erum nýbúnir að spila ömurlega og mórallinn kannski ekki upp á það besta, við erum að spila á móti baráttuliði sem eru að standa sig ágætlega í B-deild og er þetta þeirra möguleiki til að standa sig og slá í gegn. Síðast en ekki síst þá fer leikurinn svo fram á kartöflugarði.
    Og hann lætur stráklinga leika sinn fyrsta leik.
    Þú kvílir ekki í FA-cup. Það á einfaldlega að vera regla

    Eins og ég hef fullyrt þá er: Rafael Benitez í besta falli á sama stað og Gerard Houllier var þegar hann var rekinn, ef hann nær þá að vera þar.

    Því miður

  10. Fyrirgefðu, Stebo, en þetta er ekki svaravert!

    >Rafael Benitez í besta falli á sama stað og Gerard Houllier var þegar hann var rekinn, ef hann nær þá að vera þar.

    Þér hreinlega getur ekki verið alvara. Ef þér er alvara, þá hefurðu ekki verið að horfa á sama fótboltalið og við hin.

  11. Menn eru dæmdir af einum hlut – árangri. Engu öðru. Þó að liðið sé að leika “skemmtilegri” fótbolta þá gildir það engu svo lengi sem liðið er lagt frá þeim bestu. Af hverju er þetta ekki svaravert? Árangur GH á síðsta tímabili er sennilega betri en hjá Rafa, er ekki með hann á hreinu en það hlýtur að vera. Ég þoli ekki Houllier og vil ég ekki að þetta sé svona en ég einfaldlega verð að gera það og hvet ég þig til að gera hið sama.

    Hvað var GH með mörg stig á sama tíma í fyrra?? Það væri gaman að sjá þá tölfræði og sjá hve “frábær” Rafa sé.

    Kv.Stebo
    p.s stórkostleg síða

  12. Stebo – Liverpool er í ár með 37 stig eftir 23 leiki. Í fyrra vorum við með 34 stig eftir 23 leiki. Í ár erum við komnir með hálfan fót inn í úrslitaleik Deildarbikarsins, í fyrra duttum við út í 16-liða úrslitum. Í ár erum við komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar, um þetta leyti í fyrra vorum við í 16-liða úrslitum UEFA Keppninnar. Í ár duttum við út í 32-liða úrslitum FA Bikarkeppninnar, í fyrra duttum við út í 16-liða úrslitum. Í ár erum við oftast nær að leika skemmtilega, flæðandi og fjölhæfa sóknarknattspyrnu þar sem margir skiptast á um að skora mörkin. Í fyrra vorum við að spila einhæfan bolta sem flest lið voru farin að læra á og sjá við, og við treystum nær eingöngu á Michael Owen til að skora mörkin.

    Þetta var samanburður á fyrsta tímabilinu undir stjórn Rafael Benítez og sjötta tímabilinu undir stjórn Gérard Houllier.

    Eins og þú sagðir Stebo – menn verða dæmdir af árangrinum og engu öðru. Eins og staðan er í dag erum við betur staddir í öllu öðru en FA-bikarnum heldur en á sama tíma í fyrra … og við komumst ekki langt í þeirri keppni hvort eð er.

    Þannig að vinsamlegast, róaðu þig áður en þú kemur með innihaldslausar staðhæfingar.

  13. The league is our bread and butter – sagði Shanley einu sinni. Það að vera 3 stigum ofar en GH var er ekki ásættanlegt. Það verður að segjast.

Burnley í kvöld!

Enn um Burnley-tapið