AC Milan – European Royalty 

Aðeins tvö lið hafa unnið Evrópukeppnina oftar heldur en Liverpool, AC Milan er annað þeirra. Þeir hafa ekki verið með undanfarin ár en rétt eins og Liverpool þá er AC Milan klárlega eitt af þeim félögum sem má flokka sem European Royalty.

Milan borg er raunar sú eina í Evrópu sem er heimaborg tveggja liða sem hafa unnið Evrópukeppni Meistaraliða eða Meistaradeildina. Höfuðborgir eins og London, Madríd, París, Berlín og Róm hafa ekki afrekað það. Hvað þá litlu liðin í Liverpool og Manchester.

Bakgrunnur 

Félagið er stofnað af tveimur Englendingum árið 1899 sem er ástæðan fyrir því að ensk þýðing á nafni heimaborgarinnar er notuð en ekki hið ítalska Milano eins og t.d. Internazionale Milano.

AC Milan var eina liðið í borginni í áratug og gekk vel. Liðið vann deildina tveimur árum eftir stofnun og svo aftur 1907 og 1908. Þá um sumarið varð ágreiningur vegna kaupa á erlendum leikmönnum til þess að nýtt lið var stofnað og nafnið á þessu nýja liði nokkuð gott í ljósi aðdragandans, Internazionale. Tvöfaldir meistarar AC Milan unnu titilinn ekki aftur eftir þetta fyrr en 43 árum seinna.

Milan er höfuðborg Lombardy héraðsins á Ítalíu og þó borgin sjálf sé töluvert fámennari en höfuðborgin (Róm) búa mun fleiri á svæðinu í kringum Milan. Lombardy héraðið er það langfjölmennasta af 20 héruðum landsins en talið er að einn sjötti af ítölum búi í Lombardy. Munum kannski eftir fréttum frá Bergamo og öðrum svæðum Lombardy héraðsins við upphafi kórnónaveirufaraldsins, þeir réðu ekkert við útbreiðslu faraldursins enda mannmergðin mikil og búið þröngt.

Róm er höfuðborg Ítalíu og landinu eðli málsins samkvæmt stjórnað þaðan, Milan er engu að síður hjarta iðnaðar-og fjármála landsins og hefur verið lengi. Hagkerfið miðað við verga landsframleiðslu (GDP) í Milan er það þriðja stærsta innan Evrópusambandins á eftir París og Róm, en mest meðal borga sem ekki eru höfuðborgir.

Fjárhagslegir yfirburðir Milan og fjölmenni hafa í gegnum tíðina tryggt svæðinu lykilhlutverkum á pólitíska sviðinu. Berlusconi fær sér kafla en löngu áður en hann kom til sögunnar hóf t.a.m. Benito Mussolini sinn feril í fjölmiðlum og pólitík í Mílan. Fasistaflokkur hans marseraði í október 1922 í fyrsta skipti á San Sepolcro torgið þar sem Mussolini ávarpaði hópinn og boðaði að þeir myndu yfirtaka Róm með valdi. Eftir að ítalskir andófsmenn náðu völdum á Norður-Ítalíu í lok seinni heimsstyrjaldar náðu þeir Mussolini þar sem hann var að reyna flýja til Sviss. Hann var myrtur við Como vatnið og þaðan var farið með líkið til Milan þar sem það hengt upp á hvofli og haft til sýnis til að staðfesta dauða hans. Milan leið engu að síður líka fyrir það að vera önnur af mikilvægustu borgum Ítalíu í seinni-heimsstyrjöldinni og fékk töluvert slæma útreið.

Eftir stríðið varð töluverður uppgangur og mikil fólksfjölgun á Lombardy svæðinu, mest af fólki frá dreifbýlum Suður-Ítalíu. Milan var byggð upp aftur með skýjakljúfum og tilheyrandi. Samhliða því fór AC Milan liðið aftur að láta til sín taka á knattspyrnuvellinum.

Á sjötta áratugnum var það sænskt tríó (Gre-No-Li) sem reif félagið upp, goðsagnirnar Gunnar Gren, Gunnar Nordahl and Nils Liedholm. Sá síðast nefndi var einmitt fyrirliði sænska landsliðsins þegar þeir komust í úrslit á HM 1958. Milan liðið vann deildina ´51, ´55, ´57, ´59 og ´62.

Evrópukeppni Meistaraliða var þarna að hefjast og kom uppgangur AC Milan á besta tíma hvað hana varðaði. Liðið vann Evrópukeppnina í fyrsta skipti árið 1963 með sigri á Eusebio og félögum í Benfica. Þeir endurtóku svo leikinn 1969 með sigri á Johan Cruyff og félögum í Ajax. Sænska tríóið hafði þarna löngu lagt skóna á hilluna, leiðtoginn í þessu gullaldarliði Milan var Gianni Rivera sem seinna varð varaforseti AC Milan og í kjölfarið á því þingmaður. Hann er enn goðsögn í Milan og talinn einn besti leikmaður í sögu félagsins.

Auk stóru Evróputitlanna vann Milan liðið einnig Evrópukeppni bikarhafa tvisvar á þessum árum 1968 og 1972. Gianni Rivera kvaddi liðið með tíunda deildartitli félagsins árið 1979 en í kjölfarið á því fór að halla hressilega undan fæti.

AC Milan var dæmt niður um deild árið 1980 í kjölfarið á Totonero veðmála skandalnum. Veðmálafyrirtæki voru staðin að því að hagræða úrslitum leikja með því að múta leikmönnum og dómurum. Eitthvað sem Bill Shankly hafði sakað nágranna AC Milan um áratugum áður og hafði líklega eitthvað til síns máls.

Milan fór upp um deild árið 1981 en féll árið eftir, eina skipti í sögu félagsins sem liðið hefur fallið um deild (án þess að vera dæmt niður). Þeir fóru upp strax aftur árið eftir en fjárhagsstaða félagsins var í molum sem var í engu samræmi við tíðarandann í borginni.

Milan varð á níunda áratugnum sú ofboðslega heimsborg sem hún hefur verið síðan. Milan er ein helsta tískuborg heimsins, hýsir m.a. höfuðstöðvar tískurisa eins og ArmaniVersace og Dolce & Gabbana). Það er hótel frá flestum helstu lúxus hótelkeðjum í borginni og er hún sögð vera í fimmta sæti á heimsvísu yfir veitingastaði með Michelin stjörnu.

Erlendum ferðamönnum fjölgaði mjög á níunda áratugnum og þá mest frá Bandaríkjunum og Japan. Það var rífandi uppgangur og gott partý í borginni og því líklega aðeins tímaspursmál hvenær einhver myndi fjárfesta í því sem skiptir heimamenn mestu máli, fótboltaliðunum.

Silvio Berlusconi

Að segja að hann sé umdeildur kemst ekki nálægt því að ná utan um þennan ævintýralega skrautlega stjórnmálamann sem er fæddur í Milan árið 1936. Auðveldasta lýsingin á Berlusconi er að hann er nokkurnvegin Evrópska útgáfan af Donald Trump.

Öfugt við Trump er Berlusconi ekki sonur milljarðamærings og hefur það verið rannsakað án árangurs í áratugi hvernig hann eignaðist upphaflega auðæfi sín. Það veit svosem hvert mannsbarn að Mafían fjármagnaði hann, það hefur bara ekki verið sannað með staðfestum hætti.

Eitt af dótturfélögum Finvest samsteypu Berlusconi fjölskyldunnar hafði fullkomlega upp úr þurru efni á að fjármagna byggingu 4.000 íbúða hverfis (Milano 2) fyrir rúmlega 10.000 manns á árunum 1970 – 1979.  Þetta verkefni var grunnurinn að ferli Berlosconi. Hagnað af þessu verkefni setti hann m.a. í stofnun auglýsingaskrifstofu og seinna sjónvarpsstöðva.

Hann hefur líklega alla tíð verið eins í einkalífinu en hann eignaðist m.a. tvö börn árið 1965 með sitthvorri konunni. Það er líklega hvað næst þeirri ímynd sem fólk utan ítalíu hefur af honum og er stundum frekar brosleg, ítalir þekkja þó einnig mun betur ímynd hans sem stjórmálamanns og það er ekki meint í jákvæðum skilningi.

Árið 1974 keypti Berlusconi villu af glæsilegustu gerð á andvirði blokkaríbúðar af dánarbúi manns sem hafði myrt eiginkonu sína og í kjölfarið framið sjálfsmorð. Innbú fylgdi með sem var líklega ekki minna virði en húsið. Lögfræðingurinn sem sá um söluna varð í kjölfarið lögmaður Berlusconi til áratuga og einn nánasti samstarfsmaður hans. Til að passa upp á öryggi sitt var maður á vegum Cosa Nostra Mafíunnar alltaf á verði í villunni. Mögnuð tilviljun auðvitað.

Byggingaverktaki er opinbera starfsheitið á áttunda áratugnum en guð má vita hvað hann var að gera óopinberlega í slagtogi við ítölsku Mafíuna sem var í blóma á þessum tíma (og er mögulega ennþá). Berlusconi á það sameignlegt með Mafíunni að hann metur hollustu ofar öllu og er svipað mikill narsissisti og Donald Trump.

Berlusconi er þrátt fyrir þetta ekki mest þekktur á ítalíu sem byggingarverktaki og raunar ekki heldur sem stjórnmálamaður, hann sneri sér ekki að pólitík (með beinum hætti) nærri því strax.

Á áttunda áratugnum var RAI eina sjónvarpsstöð landsins og var einkaaðilum bannað að eiga sjónvarpsstöðvar fyrir utan local stöðvar sem náðu aðeins takmörkuðu svæði. Berlusconi átti eina slíka árið 1976 er gerðar voru reglubreytingar þess efnis að sami aðilinn mátti eiga fleiri en þrjár local sjónvarpsstöðvar á sama tíma. Áfram var bannað að senda út samræmda dagskrá fyrir allt landið engu að síður. Berlusconi var ekki lengi að sjá við því og sendi sömu dagskránna út á öllum stöðvum með nokkurra sekúndna delay á milli. Hann sópaði fljótt upp markaðnum og var kominn í beina samkeppni við RAI.

Berlusconi opnaði t.a.m. fyrir bandarískt sjónvarpsefni og eins miklu miklu meira af fótbolta í beinni útsendingu en þekkst hafði á RAI. Hann gjörsamlega rakaði inn auglýsingatekjum og sem dæmi voru auglýsingatekjur á Ítalíu meiri í kringum 1980 en í Evrópu samanlagt og það jókst eftir því sem leið á áratuginn. Hann var á undan sinni samtíð þarna þó hann væri vissulega að brjóta lögin. Eins og svo marg oft áður og miklu oftar eftir það komst hann einfaldlega upp með það.

Ekki aðeins gerði þessi velgengni Berlusconi að einum ríkasta manni landsins heldur fékk hann með þessu mjög öflugt tól til að stjórna umræðunni í landinu. Hann átti marga vini í stjórnmálum sem sáu sannarlega hag í því að hafa Berlusconi með sér frekar en á móti. Bettino Craxi forsætisráðherra Ítalíu frá 1983-1987 er gott dæmi um slíkan stjórnmálamann en hann var náin vinur Berlusconi. Craxi er almennt talinn einn spilltasti stjórnmálamaður í sögu Ítalíu, það er töluverður heiður á þeim bænum! Hann sá t.a.m. til þess að slaka á kröfum um eignarhald á fjölmiðlum og fækka vandamálum Berlusconi umtalsvert.

AC Milan í eigu Berlusconi

Svona var aðdragandi þess að Berlusconi “bjargaði” AC Milan í febrúar árið 1986. Hann var þarna á hátindi ferilsins sem viðskiptamongúll og í kjörstöðu til að eignast hið fornfræga Milan lið sem hann hefur stutt frá barnæsku. Utan Ítalíu var Berlusconi ekki hvað síst þekktur fyrir að vera eigandi AC Milan áður en hann náði kjöri sem forsætisráðherra. Hann varð gríðarlega vinsæll í Lombardy héraðinu enda gat hann ekki byrjað mikið betur með Milan liðið.

AC Milan endaði í fimmta sæti tímabilið 1986-87 og ljóst að Berlusconi vildi meira og var hans fyrsta þjálfararáðning ein sú besta í sögunni. Arrigo Sacchi var þá fertugur stjóri hjá Parma sem hann kom upp úr Seria C og var þremur stigum frá því að koma alla leið upp í Seria A árið eftir.

Parma liðið hafði unnið AC Milan tvisvar á skömmum tíma í bikarnum tímabilið 1986-87 og það var nóg til að sannfæra Berlusconi að fá hann til Milan. Stuðningsmenn liðsins höfðu töluverðar efasemdir um Sacchi enda hafði hann ekkert getað sem leikmaður og litla reynslu sem stjóri. Svar Sacchi varð seinna goðsagnakennt, “Ég vissi ekki að til þess að verða góður knapi þurfi maður að vera hestur fyrst”. 

Hópurinn sem hann fékk í arf innihélt ofboðslega sterkan kjarna sem hann byggði í kringum. Varnarlínan goðsagnakennda var til þá þegar og að mestu leiti uppalin hjá AC Milan.  Franco Baresi (27 ára), Mauro Tassotti (27 ára), Paolo Maldini (19 ára), Alessandro Costacurta (22 ára) Fillipo Galli (20 ára) og Roberto Donadoni sem kom sumarið áður 24 ára.

Ásamt því að fá Sacchi til félagsins var sumarglugginn 1987 hreinlega fáránlegur, Ruud Gullit og Marco van Basten komu frá Hollandi og Carlo Ancelotti kom á miðjuna frá Roma. Auk þeirra komu þrír leikmenn sem Sacchi tók með sér frá Parma. Það var því ekki hein tilviljun að Milan næði árangri strax. Sacchi var kominn með lið sem var nógu gott til að taka titilinn af Maradona og félögum í Napoli.

Sumarið eftir kom Frank Rijkaard og hinn uppaldi Albertini fékk sínar fyrstu mínútur. Þarna var Sacchi kominn með “besta” lið Evrópu og þeir staðfestu það með því að vinna Evópukeppni Meistaraliða tvö ár í röð, 1989 og 1990.

Þó verður að hafa í huga að besta lið Evrópu á þessum tíma mátti ekki spila í Evrópukeppninni í kjölfar Heysel. Sama hvaða skoðun menn hafa á því þá dregur fjarvera ensku liðanna mjög mikið úr vægi allra sigurvegara á þeim árum sem ensku liðin voru bönnuð. Því til stuðnings er hægt að benda á að frá 1976 til 1985 var alltaf enskt lið í úrslitum nema árið 1983, átta af níu árum þar til ensku liðin voru bönnuð. Liverpool var þetta enska lið í fjórum af þessum átta skiptum. Liverpool liðið 1987-1989 var af mörgum talið það besta þar til bara núna eftir að Klopp tók við.

Byrjunarliðið sem vann Evrópukeppni Meistaraliða 1988 (hefðu ekki átt glætu í John Barnes og félaga í Liverpool) 

AC Milan og velgengni þeirra var sannarlega vatn á myllu Berlusconi sem kunni heldur betur að nýta sér það. Hann var allt umlykjandi í ítölsku samfélagi. Hann sannaði það á þessum árum og hefur sannað það oft síðan hann hann er úr teflon þegar kemur að hneykslismálum og hvað þá dómsmálum. Hann hefur samtals verið dæmdur í yfir 20 ára fangelsi á lífsleiðinni fyrir hin ýmsu brot sem daga svo uppi, hverfa eða er jafnvel snúið seinna með mis ótrúverðugum hætti.

Hann var t.a.m. í vandræðum á árunum 1992-94 er ítalska stjórnin hrundi í endalausum málaferlum vegna spillingamála. Berlusconi missti fullt af sínum helstu bandamönnum í stjórnmálunum, menn sem höfðu varið hann og jafnvel hagrætt leikreglum til að hliðra til málum fyrir Silvio.

Hann sá aðeins eina rökrétta niðurstöðu við þessum vanda, stofna stjórnmálaflokk og bjóða sig sjálfur fram, nema hvað? Hann stofnaði Forza Italia 1994 og naut auðvitað góðs af og nýtti sér óspart að eiga þrjár sjónvarpsstöðvar og gríðarleg auðæfi.

Til að mynda stjórn myndaði hann kosningabandalag m.a. með fasistaflokki og náði kjör með naumum meirihluta. Hann hófst þegar handa við að raða vinum sínum í áhrifastöður.

  • Skattalögmaðurinn hans var eðlilega gerður að fjármálaráðherra og fór að gefa út reglugerðir sem hjálpuðu fyrirtækjum Berluscni skattalega.
  • Fimmtíu af þingmönnum Forza Italia voru fyrrum starfsmenn Publitalia, auglýsingafyrirtækis Berlusconi.
  • Cesare Previti, lögmaðurinn sem var honum innan handar við kaup á villunni 1976 og hans hægri hönd alla tíð síðan var gerður að varnarmálaráðherra. Berlusconi vildi gera hann að dómsmálaráðherra en flokkarnir sem mynduðu með honum kosningabandalag töldu fortíð hans of grugguga fyrir það embætti. Priviti var seinna dæmdur í 11 ára fangelsi fyrir að múta dómurum í dómsmálum er sneru að Berlusconi.
  • Starfsmenn úr fjölmiðlafyrirtækjum Berlusconi voru settir yfir Rai 1 og RAI 2, ríkisstjónvarpið.

Þetta er svona brotabort af því sem Berlusconi var að gera fyrstu dagana sem forsætisráðherra. Hann gekk þó fljótlega of langt við að kveða niður rannsóknir á sjálfan sig, kosningabandalagið hélt ekki og féll ríkisstjórn Berlusconi eftir hálft ár. Hann var árið eftir (1995) fundinn sekur um mútugreiðslur, mál sem var svo fellt niður fimm árum seinna á vægast sagt tæpum grundvelli og lagaklækjum sem einmitt voru settar á í tíð Berlusconi.

Stjórnmálamenn á Ítalíu virtust ekki þora að hjóla alla leið í Berlusconi, líklega þar sem hann gat klárað þeirra pólitíska feril í gegnum sjónvarpsstöðvar sínar og áróður þar. Mussolini og hans menn hefðu dauðöfundað Berlusconi af þeim tækjum og tækifærum sem hann hafði er kemur að áróðri til að hygla sjálfum sér.

Stjórnmál á Ítalíu eru skrautleg með og án Berlusconi en eftir að hann var sýknaður um aldamótin bauð hann sig aftur fram árið 2001. Hann var miklu líflegri í kosningabaráttunni en leiðtogar vinstri flokkana sem höfðu verið við völd og náði til nógu margra með popúlískum skoðunum.

Hann náði aftur kjöri og var stjórnin fyrsta fyrsta kjörtímabilið eins og lögfræðistofa, litlu skrárri en síðast og kom hann í gegn fullt af reglugerðum sem hjálpuðu honum viðskiptalega og eins héldu honum frá fangelsi. Því meira sem maður kynnir sér pólitískan feril Berlusconi því ótrúlegri verður lesturinn. Hann reyndi m.a. að gera breytingar á stjórnarskrá landsins og færa meiri völd til forsætisráðherrans árið 2003 og náði því í gegnum þingið með naumum meirihluta.

61% af þjóðinni höfnuðu þessum sjórnarskrárbreytingum hinsvegar.

Árið 2005 tapaði hann aftur völdum en við tók níu flokka stjórn sem var mjög tæp. Berlusconi mútaði einum af leiðtogunum níu 3m fyrir að fella stjórnina sem gekk eftir og með því að einfalda söguna all verulega var enn á ný boðað til kosningar árið 2008. Berlusconi náði völdum enn á ný.

Hann af öllum mönnum var því forsætisráherra þegar fjármálahrunið skall á og var langt kominn með að setja Ítalíu á hausinn. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn steig inn í og var brotthvarf Berlosconi nánast skilyrði fyrir því að aðrir leiðtogar innan ESB samþykktu frekari aðstoð við ítalí. Hann hélt því a.m.k. fram að ESB hefði plottað hann út er hann reyndi að bjóða sig fram enn eina ferðina tveimur árum seinna.

Þetta var bara stjórnmálaferillinn á hundavaði. Helstu hneykslismálin hafa verið kvennamálin og þá ásókn hans í ungar stelpur, jafnvel undir lögaldri. Svokölluð bunga bunga partý. Hann hefur fengið dóm fyrir að sofa hjá vændiskonu undir lögaldri. Það sem kom lögreglunni á sporið er að hann lét fella niður dómsmál gegn henni og vöknuðu við það grunsemdir um að ekki væri allt með felldu í samskiptum hans við stelpuna. Dómnum var auðvitað snúið og málið fellt niður seinna.

AC Milan

Eftir fimm ára fjarveru ensku liðanna í Evrópu var landslagið gjörbreytt í upphafi tíunda áratugarins. Frá því að Liverpool spilaði til úrslita árið 1985 komst enskt lið ekki aftur í úrslit fyrr en árið 1999. Eftir þann leik liðu önnur sex ár þar til England átti aftur fulltrúa í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þá mætti Liverpool einmitt ofurliði AC Milan.

Seria A var sterkasta deildin með öllum helstu stórstjörnunum þegar nýr áratugur gekk í garð og mikill efnahagslegur uppgangur var í landinu, sérstaklega á norður-Ítalíu.

Fabio Capello tók við verulega góðu búi af Sacchi hjá Milan og hélt velgengninni áfram og vel það. Liðið vann deildina þrjú tímabil í röð frá 1992-94 og tók m.a. 58 leikja kafla í Seria A án þess að tapa leik. Milan liðið fór sömuleiðis í úrslit Evrópukeppni Meistaraliða þrjú tímabil í röð, árin 1993-95

  • Marseille vann leikinn árið 1993 en það félag var í kjölfarið sett í bann frá Evrópu fyrir að múta andstæðingum sínum í frönsku deildinni. Helvíti kaldhænislegt að andstæðingar liðsins sem Berlusconi á séu dæmdir fyrir slíkt.
  • Árið 1994 var hinsvegar engin vafi og burstaði AC Milan úrslitaleikinn gegn Guardiola, Txiki Begiristain, Koeman, Romario, Hristo Stoichkov og félögum í Barcelona 4-0.
  • Eitt besta Ajax lið sögunnar skellti svo AC Milan árið 1995 í úrslitaleiknum 1-0.

Hálfpartinn vonbrigði fyrir þetta Milan lið að vinna aðeins einn Evróputitil á þessum árum þar sem þeir voru óumdeilt besta félagslið í heimi.

Eftir að Capello hætti komu 2-3 ár þar sem Milan liðið var í lægð og ákveðnum kynslóðaskiptum. Carlo Ancelotti sem kom til AC Milan sem leikmaður skömmu eftir að Berlusconi keypti félagið tók svo við sem stjóri liðsins árið 2001 og hóf nýtt gullaldarskeið og byggði upp enn eitt gjörsamlega frábæra AC Milan liðið.

Það lið þekkjum við ágætlega enda spilaði Liverpool tvisvar við þá í úrslitum Meistaradeildarinnar árin 2005 og 2007. Tveimur árum áður (2003) höfðu þeir unnið Juventus í úrslitum.

AC Milan í dag 

Eftir nokkur erfið ár hjá bæði AC Milan og Berlusconi ákvað hann að selja félagið árið 2017. Hann var þá áttræður og vildi ekki setja meiri pening í fótbolta, kvartaði fyrir eignarhaldi annarra stórliða í Evrópu sem jafnvel eru með heilu olíuríkin og ríkissjóði þeirra á bakvið sig. Erfitt að þræta við hann þar raunar.

Kaupandinn var kínverskur auðmaður að talið var en átti svo engan pening þegar upp var staðið. Klárlega ekki í það minnsta eftir að stjórnvöld í Kína stöðvuðu fáránlegt fjáraustur kínverja í evrópskum fótbolta.

AC Milan var því í mjög djúpum skít og stefndi jafnvel í gjaldþrot og raundar erfitt að meta hvort þeir séu komnir fyrir vind með það því að Elliott vogunarsjóðurinn frá Bandaríkjunum tók yfir AC Milan af kínverjunum og keypti upp skuldir félagsins. Elliott vogunarsjóðurinn er gríðarlega öflugur og á m.a. meirihlutan í Twitter og er einn af stærri styrktaraðilum Repúblikanaflokkins í heimalandinu.

Vogunarsjóðurinn græðir mest á því að AC Milan gangi sem best og að hægt sé að selja félagið með hagnaði sem er líklega að ganga ágætlega enn sem komið er, AC Milan er á toppnum á Ítalíu og komið aftur í Meistaradeildina þó þetta verði líklega þeirri síðasti leikur í þeirri keppni á þessu tímabili.

Það að AC Milan sé á toppnum í Seria A segir reyndar meira um stöðuna á ítalska boltanum heldur en gæði núverandi leikmanna liðsins. Fertugur Zlatan Ibrahimovic er aðalmaðurinn á San Siro enn á ný og 35 ára Oliver Giroud er næst markahæstur hjá þeim. Juventus er í tómu rugli um þessar mundir 14 stigum á eftir toppliðinu og mögulega á leið í annan skandal þar sem verið er að rannsaka leikmannakaup félagsins undanfarin ár og samskipti þeirra við ákveðna umboðsmenn. Væri sekt í slíku máli ekki dæmigert fyrir ítalska boltann.

Liverpool

Þvílíka vika hjá Liverpool! Klopp er búinn að nota sama byrjunarliðið í báðum leikjunum gegn Everton og Wolves og hefur góðan möguleika á að skipta þeim öllum út í þessum leik. Liverpool tryggði sér sigur í riðlinum í fjórum leikjum og á miklu mikilvægari leik á laugardaginn gegn Steven Gerrard og félögum heldur en þennan gegn AC Milan. Það væri því réttast að skipta alfarið um lið í þessum leik og nota svo svotil sama lið gegn Leicester í deildarbikarnum seinna í mánuðinum.

Það er þó ekki þar með sagt að Klopp þurfi að stilla upp slæmu liði og því síður gefa þennan leik. Hann fær gott tækifæri í Milan til að gefa leikmönnum sem þurfa að spila dýrmætar mínútur og ég hugsa að hann komi til með að nýta sér það. Eina þarf að fara mjög varlega með hópinn enda desember klikkaður mánuður og janúar litlu skárri.

Fyrir ári síðan átti Liverpool nokkurnvegin alveg eins leik gegn Midtjylland í Danmörku. Þar spilaði Klopp mönnum eins og Salah, Trent, Fabinho, Keita og Jota í byrjunarliðinu og henti Bobby, Hendo, Mané og Robertson inná þegar leið á leikinn. Sá leikur kostaði okkur Jota í nokkra mánuði sem hafði verið okkar besti maður fram að því.

Hópurinn sem hann hefur úr að velja núna er á móti stærri og sterkari enda meiðslalistinn ekki eins fullkomlega fáránlegur.

Svona tippa ég á byrjunarlið Liverpool: 

Klopp gerir jafnan ekki 11 breytingar á byrjunarliðinu og ég hugsa að einn af Salah, Mané eða Jota verði með þar sem Kadie Gordon er ekki í Meistaradeildarhópi Liverpool. Eins er óljóst hvort Gomez og Keita eru klárir, þetta gæti því verið úrvals auglýsingagluggi fyrir Nat Phillips sem Klopp var að hrósa hressilega fyrir helgina.

James Milner nældi sér í bann í uppbótartíma gegn Porto og því ætti Tyler Morton að koma aftur inn rétt eins og gegn Porto.  Þarna erum við að tala um 10 breytingar frá Wolves leiknum en engu að síður öflugut lið að mestu án unglinga. Það án Jones og Elliott sem eru og verða áfram á meiðslalistanum.

Kelleher spilaði þennan leik í fyrra í Danmörku og á skilið að taka tvo af næstu þremur. Hann er þar fyrir utan mun nær því að vera klár í slaginn á þessu leveli en fyrir ári síðan.

Konate kemur klárlega inn og vonandi Joe Gomez líka, m.a. Nat Phillips missti af leiknum í Danmörku fyrir ári síðan vegna meiðsla. Fabinho byrjaði þann leik með Rhys Williams í miðverðinum og Billy the Kid kom inná í seinni hálfleik!

Tismikas ætti að vera nokkuð pottþétt í liðinu og Neco Williams ætti að fá þennan rétt eins og Porto leikinn. Báðir eru töluvert nær því að njóta traust hjá Klopp en fyrir ári síðan. Tsimikas klárlega auðvitað.

Ox byrjar klárlega og vonandi er Keita klár í slaginn með honum. Það væri rosaleg viðbót fyrir desember að fá Keita aftur inn, hann var frábær áður en hann meiddist síðast. Ef Keita er ekki klár eða Morton ekki treyst þarf Klopp að nota 1-2 af miðjunni sem spilaði gegn Wolves og Everton.

Ef að Origi byrjar ekki eftir þetta mark gegn Wolves boðum við til mótmæla á Austurvelli klukkan 20:30 á þriðjudaginn. Minamino ætti einnig að fá þessar mínútur og einn af fab four hugsa ég og þá líklega Salah. Væri líka gaman að sjá einhvern af unglingunum í þessum leik, pólska Messi eða einhvern af þeim.

Spá

Gæti ekki verið mikið meira sama hvernig þessi leikur fer enda skipir hann Liverpool voðalega litlu máli. Vonandi tapar mjög breytt Liverpool lið ekki, segjum 2-2 en auðvitað væri flottast að vinna alla leikina í riðlinum.  Origi með tvö.

 

 

15 Comments

  1. Hver þarf bók í jólagjöf eftir að hafa lesið þessa hér fyrir neðan….takk fyrir Einar

    16
  2. Best væri ef Salah fengi alveg frí í þessum leik. Með tæpa framherja á ekki að taka séns með lykilmenn í leikjum sem skipta ekki öllu máli nema jú það er alltaf gaman að vinna leiki. Aðrir sem ættu ekki að koma nálægt þessum leik eru VvD, TAA og Hendó. Geta liðsins er ekki það sem stendur í vegi fyrir því að liðið geti verið á toppnum á öllum vígstöðvum heldur miklu frekar meiðslalistinn. Best að minnast ekkert á það að meiðslalistinn sé að styttist því þá er það segin saga að einhver meiðist. Auðvitað á Origi að vera númer eitt á blaði í þessum leik, annað væri bókstaflega fíflalegt. Láta svo Minamino og Williams spila 90 mínútur.

    7
    • Svo það sé á hreinu er ég rúmlega sammála, best væri ef enginn af þeim sem byrja gegn Villa færu með til Ítalíu. Efast bara um að Klopp sé þar.

      3
  3. Það var mjög slæmt af Milner að taka á sig óþarfa gult spjald í seinasta leik og vera í banni á móti Milan því að hann hefði alltaf byrjað þann leik.
    Ég vil sjá liðið svona í þessum leik.
    ?——–?————–Allison———————
    Williams–Konate—Matip—Tsimikas
    -?————–Morton—Fabinho————-
    ?——————-Chamberlain?—————
    ——-Minamino—–Origi——-Mane—–

    Þetta er sterkt lið sem gæti alveg tekið 3 stig.
    Lykilatriðið ætti að vera að geta hvílt okkar bestu menn að mestu en þar sem að hópurinn býður ekki alveg uppá það þá verða leikmenn eins og Mane og Fabinho að spila, eða eins og ég myndi stilla þessu upp.

    Og já takk fyrir þessa rosalegu upphitun, vel gert..

    5
    • Var Miller ekki bara klókur að ná sér í spjald og taka út leikbann í leik sem engu máli skiptir.

      1
      • Það væri klókt ef að það væri mannskapur til að spila þennan leik. Núna þarf að nota einn af Hendo, Thiago eða Fabinho.

      • Mögulega ekki ef Keita er klár í slaginn.
        Morton ætti alveg að fá þennan eins og Porto leikinn enda riðillinn ennþá meira búinn núna.

  4. Sæl og blessuð.

    Mikil og glæsileg upphitun þarna á ferð. Ég vissi ekki að Milan nafnið væri vegna enskra róta en ég er alltaf viðkvæmur fyrir því þegar örnefni utan enskra málsvæða eru rituð og sögð á enskunni: Munich, Bavaria, Copenhagen osfrv. Svona vill maður helst ekki sjá í íslenskum textum. Að því sögðu þá er Lombard héraðið með þetta tignarlega íslenska heiti: Langbarðaland. Lombardy er enskan sumsé.

    Annars vona ég auðvitað að varmannskapurinn fái að sprikla og vinni þennan leik með marki frá ónefndum belga á 95. mínútu.

    4
  5. Það er mjög sérstakt að skoða stöðuna í þessum dauðariðli sem við lentum í að við erum búnir að skora fleiri mörk en öll hin liðin til samans og hin 3 liðin eru öll með mínus í markatölu.
    #yfirburðir

    7
  6. Sælir félagar

    Þessi upphitun er nánast bókmenntaleg og er einnig söguleg upplifun og takk fyrir hana Einar. Hvað leikinn varðar er ég sammála þeim sem vilja gefa öllu aðalliðinu frí eða því sem næst. Mér lízt vel á tillögu Red hér fyrir ofan.

    Það er nú þannig

    YNWA

    5
  7. Held að Einar sé með liðið nokkuð nálægt því sem Klopp stillir upp í byrjun. Góð blanda af reynslu og hungri eftir sigri, sem ég tel LFC virkilega vilja í sögulegu tilliti.
    Spái 1-2, hverjir skora nema Origi og Salah, eins og skrifað í skýjin.

    YNWA

  8. Tvær spurningar eftir þessa geggjuðu upphitun.
    1: Ertu ekkert að vinna á daginn, Einar?
    2: Hvernig er hægt að halda með þessu AC-Milan liði?

    Forza Liverpool (og Sampdoria)!

    5
    • Mig langaði að læka þetta en síðasta orðið kom í veg fyrir það, þótt I Blucerchiati séu skárri en mörg önnur lið.

      1
  9. Rosaleg upphitun, takk fyrir mig. Hvað varðar þá leikmenn sem spila leikinn þá urðu þeir að vera lista yfir leikmenn í meistaradeildinn en eru einhverjir þröskuldar á því hvað meigi breyta liði á milli leikja ? Kannski svara þessu einhverjir hér ini sem vita betur og bæti þá við þakklæti til síðuhaldar og þeirra sem skrifa hér inn.

    1
    • Mér vitanlega eru engin takmörk fyrir því hvaða leikmenn eru valdir í byrjunarlið og á bekk, svo lengi sem téðir leikmenn eru í upphaflegum hóp. Þannig eru t.d. bæði Kaide Gordon og Mateusz Musialowski fyrir utan þann hóp og hafa því ekki komið við sögu í leikjunum í riðlakeppninni. Svo má koma með leiðréttingar á þessum hóp eftir að riðlakeppni lýkur, ef ég man rétt var t.d. Nat Phillips ekki í CL hópnum fyrripart vetrar á síðasta tímabili, en var tekinn inn fyrir útsláttarleikina. Það kæmi ekki á óvart þó einhver slík breyting yrði gerð í ár, en svosem ólíklegt að úr þessu fái Liverpool einhvern þannig mótherja að það sé á það hættandi að tefla Kaide Gordon fram. Útilokum samt ekkert.

      En semsagt, ég er svona 99% viss um að það séu engar reglur sem segja “ekki megi breyta byrjunarliði um meira en X prósent milli leikja”, enda væru slíkar reglur alveg arfavitlausar.

      2

Wolves 0 – Liverpool 1

Gullkastið – Be Divock!