Byrjunarliðið gegn Spurs: Diaz, Konate og Elliot byrja

Góðan og gleðilegan sólarsunnudag.

 

Klopp hefur ákveðið að gera þrjár breytingar á byrjunarliðinu sem hafði sigur á West Ham á miðvikudaginn. Það eru þeir Luis Diaz, Harvey Elliot og Konate sem koma inn í liðið, í staðinn fyrir Henderson, Jota og Matip.

 

Sigur í dag þýðir að liðið okkar kemst upp fyrir Norður Lundúnabúana í fimmta sæti, svo lengi sem staðan breytist ekki í leik Astona Villa sem er ennþá í gangi.

Á móti þessu liði tefla Tottenham fram þessum ellefu köppum:

 

Hvernig lýst ykkur á og hvernig spáið þið að leikar fari?

 

 

39 Comments

  1. Tökum þetta 3-1 ekkert annað en sigur kemur til greina. Sterkt lið og gaman að sjá Carvalho í hópnum.

    4
  2. Glæsileg spilamennska hjá Arnold og Jones !! Svo strax annað glæsimark ! Gæti hreinlega endað með stórsigri Liverpool í dag.

    4
  3. Hvar eru sauðirnir í Stockley Park???

    Er þetta ekki rautt?

    9
  4. Farðu í manninn Virgill!

    Fyrst er hann bjargvættur í grasinu… og svo dettur hann í grasið

    2
  5. úff… Robertson í tvígang að gefa þeim dauðafæri
    Virgill í bæði skiptin að tapa einvígi

    Þarna bjargaði Alisson okkur en tæpt var það!

    Glatað að gefa þeim líflínu

    1
  6. Alvöru leikur…….var farinn að gæla við að laga markahlutfallið þetta getur farið i allar áttir….

    1
  7. Galopinn leikur.
    Tottenham með rándýrt lið og þeir komast upp með næstum hvað sem er í vörninni hjá þeim.

    Fljúgandi fætur og takkar í mittishæð

    2
  8. Sælir félagar

    Robbo verður að gera svo vel að halda einbeitingu. Svona hroki og kæruleysi ekki boðlegt atferli. Annars er þetta búinn að vera góð frammistaða hjá liðinu og ef menn halda hausnum skrúfuðum á þá á þessi leikur að vinnast með yfirburðum. Ef menn hisvegar koma með hroka og virðingarleysi fyrir andstæðingnum inn í leikinn þá býður það hættunni heim. Áfram með smjörið Rauðir og vinna þennan leik.

    Það er nú þannig

    YNWA

    2
  9. Það ætti að kalla vörnina “sjálfsmorðssveitina”…..þvílíka vitleysan í gangi á köflum þarna og van Dækinn er heldur betur búinn að missa hraðann. Tierney er skelfilegur og á ekki að koma nálægt dómgæslu.

    3
  10. Halló hafnarfjörður eru menn að reyna að hleypa totturum í leikinn

  11. það er skammt stórra högga á milli.

    Nú erum við búnir að vera með miðjuna í nokkuð traustum höndum en sóknin bitlaus og þessi vörn…

    Allir að góna á boltann og robbo gerir son réttstæðan.

    úff.

    1
  12. Þetta gæti endað illa.

    Gerpið Richalison er mættur. Ekki fækkar háskatæklingunum við það.

    Og svo gæti það bjargað tímabilinu fyrir þann neonhærða ef honum tækist að ræna okkur stigum.

  13. Þessi Konate er svo ónýtt fyrirbrogði og Robbo er alveg kominn yfir síðasta söludag.

    1
  14. Ég er með spennuskitu, er í borginni að horfa beint sól og blíða úti

    1
  15. ,,Og svo gæti það bjargað tímabilinu fyrir þann neonhærða ef honum tækist að ræna okkur stigum.”

    I f****ng rest my case

  16. Joooooota!!!!

    Minn maður!!!

    Portúgal fær 12 stig frá mér í maí

    5
  17. Sælir félagar

    Robbo þarf að skrúfa hausinn á sér á ef hann er ekki bara forskrúfaður. Gefur 1 mark í fyrri og næstum annað og gerir svo Son réttstæðan í öðru marki Spurs. Skelfileg frammistaða hans í seinni ásamt nánast öllu liðinu. Vona að ég eigi aldrei eftir að sjá þennan lata göngubolta framar hjá liðinum sem það sýndi allan seinni hálfleik og hafði næstum kostað okkur leikinn. Ef ekki væri fyrir sendingu Lucas Moura á Jota væri liðið ef til vill með núll stig úr þessum leik og svo láta þeir Gerpið að auki skora mark á Anfield sem er óafsakanlegt. En sem betur fer náðust þessi 3 stig og það ber að þakka.

    Það er nú þannig

    YNWA

    1
    • blendnar tilfinningingar að sjá meistara DJ bjarga okkur enn eina ferðina?

      2

Stelpurnar heimsækja Leicester

LIVERPOOL 4 – SPURS 3 (Skýrsla uppfærð)