Gullkastið – Lognið á undan storminum

Sannarlega lognið á undan storminum þessa dagana, Liverpool leik helgarinnar var frestað og landsleikjahlé hefur tekið við. Nýttum tækifærið til að rýna betur í leikmannakaup Liverpool undanfarin ár og þeirri vegferð sem félagið er á. Skoðuðum rosalegt leikjaprógramm október mánaðar og byrjun tímabilsins í deildinni.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.


  Egils Gull       Húsasmiðjan          Sólon           Jói Útherji         Ögurverk ehf

MP3: Þáttur 396

5 Comments

  1. Takk fyrir þáttinn, piltar. Alltaf hressandi að hlusta. En mikið er L.E.I.Ð.I.N.L.E.G.T. að bíða og bíða og bíða eftir næsta fótboltaleik. Grrrr!

    4
  2. Takk fyrir góðan þátt, gaman að taka smá retrospect á fyrri glugga og hvernig sagan hefur dæmt þá.

    Sagan er klárlega ekki að vinna með frænda mínum,. Túra Melo. Þessi ‘panic’-trade hafa ekki verið að slá í gegn en ég hef samt fulla trú á honum enda hefur hann verið að koma sterkur inn með rækjubrauðréttinn sinn í undanfarnar fermingaveislur í fjölskyldunni 🙂

    Smá hot take – ef við hefðum fengið Carvalho líka til okkar í hópinn í janúar, þá hefðum við tekið fernuna!

    2
  3. Frábær þáttur og góðar pælingar. En hendið þessu stefi. Líður eins og vera á hold í símanum: “Þú ert númer 10 í röðinni.”

    3
  4. Hef trú á því að Arthur komi sterkur inn eftir landsleikja hléð. Hann var sem ungur brassi eitt mesta efni í boltanum. Hann vill virkilega sýna hvað í honum býr. Vona að honum takist að vinna hug og hjörtu Liverpools stuðningsmanna á komandi vikum.

    5
    • Hann ku vera æfa aukalega og með sér þjálfara til að koma sér í betra form það er allavega hugarfar hjá honum sjáum hvað setur !

      4

Liverpool 2 – 1 Chelsea

Derby slagur á Anfield hjá stelpunum