Byrjunarliðin vs. Crystal Palace á Selhurst Park

Liverpool mætir kristalknattspyrnuhöllinni á Selhurst Park í Lundúnum í dag. Patrick Viera & Palace gegn Klopp og Rauða hernum!

Byrjunarliðin

Knattspyrnuþjálfararnir hafa lokið við að velja sín byrjunarlið og þau hafa verið opinberuð:

Liverpool: Alisson; Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Robertson; Fabinho, Henderson, Jones; Oxlade-Chamberlain, Jota, Firmino

Bekkurinn: Kelleher, Konate, Milner, Gomez, Minamino, Tsimikas, Gordon, Williams, Morton

Óbreytt lið frá síðasta deildarleik gegn Brentford og Oxlade-Chamberlain hefur jafnað sig nægilega af ökklameiðslunum til að byrja leikinn. Ox fyrir Kaide Gordon er önnur af tveimur breytingum frá deildarbikarleiknum með Kellaher hinn leikmaðurinn sem fer út fyrir Alisson.

Crystal Palace XI: Guaita, Ward, Mitchel, Guehi, Olise, Hughes, Mateta, Schlupp, Andersen, Edouard, Gallagher.

Bekkurinn: Butland, Clyne, Ferguson, Kelly, Milivojevic, Riedewald, Ayew, Eze, Benteke

Aðalmaðurinn Zaha ekki með heimamönnum í dag og þrír fyrrum Liverpool-menn á bekknum með Benteke, Clyne og Kelly á tréverkinu.

Kloppvarpið

Okkar maður hefði þetta að segja fyrir leikinn í dag á blaðamannafundinum á föstudag:

Come on you REDS! Allez! Allez! Allez!

YNWA!

Við minnum á #kopis á Twitter og umræðuna í athugasemdum hér að neðan og á Facebook.

25 Comments

  1. Glaður að sjá að Matip hafi sloppið við meiðsli.
    Eigum við ekki bara vera hressir í dag og segja 0-3 fyrir Liverpool ?

    5
  2. Liverpool eru að taka betri horn þessa dagana og frábært að Virgil van Dijk skildi skora. Eins finnst mér gaman að heyra stuðningsmenn syngja Diogo Jota lagið, hann á það svo sannarlega skilið.

    Ohhh, he wears the number 20…

    Það er nú þannig

    Áfram Liverpool!!!

    7
  3. Tvö hættulegustu færi Palace nú í fyrri hálfleik koma eftir mistök (hræðilegar sendingar) okkar manna … ég ætla að vona að það verði ekki mikið meira um slíkt … væri til í að Jota setti í tvist eða þrist svo ég verði rórri … og líka gott upp á Fantasy 😉

    3
    • Jæja… byrjun seinni hálfleiks sýnir að það má ekkert slaka á á móti Crystal … sem betur fer höfum við Allison !

      1
  4. Já sloppy eftir mörkin góðu. Þarf aðeins að ydda á þessu í hálfleik.
    Flott mörk koma svo í seinni !

    2
  5. Halló lfc leikurinn er ekkert buinn, við erum bara heppnir að Cp seu ekki bunir að jafna

    Koma svo

    2
  6. Hvað er að geradt með Firmino. Hann hefur ekki verið nema skugginn af sjálfum sér.

    2
  7. Það er engin breidd hjá þessi liði okkar. Ég óttast að það komi okkur í koll.

    3
  8. Einn slakasti klukkutími sem maður hefur mjög lengi séð frá liðinu okkar. Eins og þetta byrjaði nú vel. Við höldum svo mikið með þeim að við getum ekki hallmælt þeim. Virðist vera einhver kóvíd-mæði í liðinu. Margir búnir að veikjast og það lítur út eins og hreinlega sé ekki orka til að halda út í 90. Ef ekki væri fyrir stórkostlegar vörslur Allison hefðum við getað verið 5-2 undir. Núna bara heldur maður í vonina um að liðið haldi út.

    2
  9. Ok þetta víti var …æi ég veit það ekki ..jú rennir sér á Jota og ekki í boltann en spurning hvernig dómarar meta þetta. Maður hefur alveg séð ódýrari víti en þetta samt?

    2

Upphitun fyrir heimsókn á Selhurst Park

Crystal Palace 1 – 3 Liverpool