Liðið gegn United

Við vonum að svefnleysið hafi ekki farið illa með Liverpool aðdáendur, né að ofurtrekktar taugar hafi skemmt þennan annars ágæta sunnudagsmorgun, en nú fer aaaalveg að bresta á með næststærsta leik tímabilsins (sá stærsti er auðvitað Liverpool-United á Anfield).

Það eru nokkur óvænt atriði í uppstillingunni í dag:

Bekkur: Adrian, Gomez, Matip, Tsimikas, Ox, Jones, Minamino, Origi, Mané

Semsagt, enginn Fabinho í hóp, talað um að hann sé eitthvað smávægilega meiddur á hné. Eins er Kelleher ekki á bekk, ekkert búið að gefa út hvað er með hann. Það var vitað að Elliott og Thiago yrðu ekki leikfærir, en Jones þykir vera orðinn hæfur til að vera á bekk og gæti þá sjálfsagt komið inn í seinni hálfleik ef þörf þykir. Eins er örlítið áhugavert að Konate fái loksins sénsinn í byrjunarliði, og það á útivelli gegn United!

Manni hefði nú liðið betur með Fab inná, en mestu máli skiptir að leikmennirnir sem eru inná spili á fullu gasi. Ég hef svosem ekki trú á öðru.

1-2 sigur eftir mörk frá Salah og Hendo.

KOMA SVO!!!

45 Comments

  1. Ég er svartsýnis maður að eðlisfari og því spái ég mínum mönnum tapi 2-1 eins og ég hef gert síðan í fyrravetur með ágætum árangri enda höfum við ekki tapað leik síðan og því engin ástæðan til að breyta til.

    2
  2. Herfilegt að missa fab á ögurstundu. Óþolandi meiðsli. Keita verður að herða sig í pressunni en hann verður væntanlega fremstur.

    En hvað er með Mané? Sjóðheitur þessa dagana…?

    1
  3. Maður hélt kanski að þetta væri farið að líta svona út í kring um jólin þaes að lykilmenn væru að meiðast en ekki í okt ..Milner á greinilega að vera lykillinn af þessum titli í ár.

    2
  4. Sæl öll.

    Þessi leikur vinnst á miðjunni og utd eru sterkari þar þessa dagana. Því miður töpum við í dag 2-1.

    2
      • Þetta má ekki verða til þess að OGS verður rekinn. Klopp sýna enn og aftur hvað hann og hans teymi eru frábærir þjálfarar!

        1
  5. Keita búinn að vera flottur en samt of margar aulasendindingar á miðjunni sem skapar hættu bara spurning hvenær svona sendingar skapa mark hjá Utd. En þvílík byrjun og nú kemur salah með flott mark.

    2
  6. Allt að gerast.

    Munum samt að mu er með dýrari bekk en sem nemur nokkrum skuttogurum.

    Spyrjum að leikslokum. Þeir eru alltaf slappir í fyrri hálfleik en þeim vex ásmegin undir lokin.

    en samt…

    mmmmmmama!!!

    5
  7. Litla veislan og Kristján Rögnvaldsson alveg búinn að missa kúlið.

    3
  8. Áhorfendur að fara og nú fer pobga líka…

    en … rosalegt að missa keita… var einmitt farinn að fíla hann…

    3
  9. Hvað er í gangi! Það mætti halda að Kári og Sölvi hafi skrifað nýtt handrit og það fyrir okkur Liverpool menn. Staðan er 0-5, þrenna frá Salah, mark tekið af United og svo fær Pogba rautt og 30 mínútur eftir. Endilega að bæta við og niðurlægja þá enn frekar takk fyrir og halda hreinu líka.

    1
  10. Það var alltaf að fara að koma rautt á united í þessum seinni hálfleik.

    Og Pogba er svín og hefur alltaf verið.

    1
  11. Mér finnst alveg ótrúlegt hvað það er enginn karakter í þessu UTD liði akkúrat enginn áhugi einu sinni að reyna nokkuð finnst margir gagnrýna Ole sem er full skiljanlegt en leikmennirnir sem eru á vellinum eru ekki að gera stjóranum neinn greiða.

    • Hei ekki gleyma Fred hann var sá eini sem djöflaðist allann leikinn fyrir þá enda hata flestir man utd menn karlgreið sem ég skil ekki, liðið væri örugglega betra með 10 Fredda í liðinu
      🙂

Upphitun: Heimsókn á heimavöll erkifjendanna

Manchester United 0 – 5 Liverpool