Kvennaliðið mætir Palace

Það er komið að næsta leik hjá kvennaliðinu, en núna kl. 13 mæta Crystal Palace í heimsókn á Prenton Park.

Liðið lék síðast gegn Bristol á útivelli í leik sem var hvergi sýndur, sá leikur endaði með steindauðu 0-0 jafntefli. Hins vegar bar það til tíðinda að Ashley Hodson varð þá leikjahæsti leikmaður Liverpool Women frá upphafi, en hún kom inná í sínum 116. leik fyrir liðið. Áður hafði Gemma Bonner átt flesta leiki, en hún fór jú til City fyrir 4 árum.

Nóg um það, liðið sem mætir á völlinn á eftir verður svona skipað:

Laws

Moore – Robe – Matthews

Wardlaw – Kearns – Holland – Hinds

Kiernan – Hodson – Lawley

Bekkur: Foster, Roberts, Bailey, Furness, Humphrey, Daniels, Walters, Parry, Silcock

Ashley Hodson heldur því áfram að bæta leikjametið. Mér sýnist á öllu að Matt Beard sé að prófa einhverja 3-4-3 uppstillingu, en það kemur í ljós á eftir. Það kemur líka ögn á óvart að Niamh Fahey sé hvergi sjáanleg, og að Jasmine Matthews taki fyrirliðabandið í hennar stað (EDIT: Fahey fékk rautt í síðasta leik og er því í banni). Síðan er Silcock nýtt nafn á bekknum, ég geri ráð fyrir að það sé leikmaður U23 liðsins en því miður eru hvergi til upplýsingar um hvaða leikmenn eru þar.

Leikurinn verður sýndur á öllum helstu miðlum Liverpool (EDIT: slóðin á leikinn á YouTube er hér), og við munum uppfæra færsluna með úrslitum og stöðu í deildinni síðar í dag.


Leik lokið með 2-1 sigri okkar kvenna, Taylor Hinds skoraði fyrra markið eftir einnar mínútu leik, Palace jöfnuðu um miðjan fyrri hálfleikinn en Ashley Hodson skoraði svo skömmu síðar reyndist það sigurmarkið.

Staðan í deildinni lítur þá svona út:

Að vísu eru ekki allir leikirnir búnir, þannig gætu Charlton komist í 9 stig sem dæmi. En það kemur svosem ekki á óvart að sjá t.d. Sheffield og Durham þarna við toppinn, og líklegt að þetta verði liðin sem verði í baráttunni um að komast upp í efstu deild.

Næsti leikur er sunnudaginn 2. október gegn Coventry sem eru í næstneðsta sæti með 1 stig, en helgina þar á eftir heimsækir svo liðið Sheffield í leik sem við skulum vona að verði toppslagur þegar að leikdegi kemur.

3 Comments

  1. Frábært að setja þessar fréttir af kvennaliðinu hér inn. Dóttirinn hefur virkilega gaman að þessu og fylgist vel með kvennaliðinu.
    Hafðu miklar þakkir fyrir.

    5
  2. Segi það sama og Styrmir. Takk.

    En hvað skyldum við þurfa að bíða lengi eftir alvöru sjónvarpssýningum á kvennaboltanum? Bretarnir virðast aftarlega á merinni með þetta. Hér heima er allt fullt af stelpum og konum sem eru grjótharðir Púllarar.

    4
  3. Takk, gaman að það séu fleiri að fylgjast með. Auðvitað vill maður að okkar konur komist aftur í fremstu röð, og líklega munu fleiri fylgjast með þá, en eins og skáldið sagði: “You’ll never walk alone” og við yfirgefum ekki stelpurnar okkar þó þær séu ekki að spila í efstu deild sem stendur.

    2

Liverpool 3 – 3 Brentford (skýrsla)

Upphitun: Enn ein heimsóknin til Porto í evrópu