FSG OUT?

Undanfarnir dagar hafa heldur betur verið viðburðaríkir og má segja að fótboltasamfélagið hafi farið gjörsamlega á hliðina þegar félögin 12 tilkynntu um stofnun Ofurdeildar Evrópu. Líklegast höfum við aldrei séð stuðningsmenn erkifjenda í boltanum svo sameinaða í einhverju máli tengdu fótboltanum. Nánast allir voru á móti stofnun þessarar deildar, mis heitir í andstöðu sinni, en engu að síður afskaplega fáir sem voru sammála þessari leið.

Við fórum yfir þetta í Gullkastinu, tvö kvöld í röð. Atburðarásin var ótrúleg og hlutirnir gerðust hrikalega hratt, svo hratt að maður varla náði að melta þá hluti sem voru í gangi. Eins og fram kom í fyrra Gullkastinu, þá vorum við að horfa á skrítinn hlut, deiluaðila þar sem enginn gat flokkast sem góði aðilinn. Þetta snerist meira um hver var minna vondur, hver var minna gráðugur. Það var athyglisvert að sjá samtök eins og UEFA hoppa á vagninn með stuðningsmönnum fótboltans og tala um að leikurinn væri ekkert án stuðningsmanna og að þeir ættu að hafa rödd í þessu öllu. Samtök sem byggst hafa upp á græðgi og spillingu í mörg, mörg ár. Samtök sem úthluta stuðningsmönnum liðanna í úrslitum Meistaradeildarinnar 15% af miðum á leikinn. Hægt væri að týna til ótal atriði sem sýna fram á hræsnina.

En hræsnin er víða og hún er svo sannarlega líka hjá okkur stuðningsmönnum. Við viljum að sjálfsögðu halda í öll góðu fínu gildin okkar, en öskrum svo á að kaupa Mbappé og Haaland í næstu setningu. Maður hefur staðið sjálfan sig af hræsni þegar kemur að fótboltanum, alveg ótal sinnum, og maður mun væntanlega standa sig af slíku líka í framtíðinni. Þannig er þetta og mun alveg pottþétt verða þannig áfram þegar kemur að blessuðum fótboltanum sem er svona elskaður út um allan heim.

En hvað næst, hversu mikill er skaðinn orðinn og hvert verður framhaldið? Það er ómögulegt um að segja, en vonandi var þetta stórt viðvörunarljós fyrir alla aðila sem að þessu koma. UEFA, FIFA og svo æðstu stjórnendur/eigendur knattspyrnuliða á þessu stóra sviði þar sem peningarnir eru svona miklir, verða hreinlega að læra af þessu rugli öllu saman. Það þarf að koma í veg fyrir að svona fíaskó geti gerst aftur, finna farveg þar sem allir geta notið góðs af. Þessi stóru lið eru forsenda þess að þessir sjónvarpsréttarsamningar eru jafn stórir og verðmætir og raunin er og það efast enginn um að þessar fjárhæðir hríslast niður allan fótbolta pýramídann. Menn verða eflaust aldrei sammála um sanngjarna skiptingu á peningunum, en það hlýtur að vera hægt að finna lausn sem menn geta sætt sig við.

Þá að okkar málum. Eigendur okkar, FSG, hafa verið mikið á milli tannanna á stuðningsmönnum og það réttilega. Það má með sanni segja að þeir hafi skitið langt upp á hnakka. Enn og aftur er ein helsta ástæða þess að þeir eru bara engan veginn nógu vel tengdir raunveruleikanum. Ekkert samtal við stjórnendur liðsins, leikmenn eða stuðningsmenn. Því miður hefur það verið helsta ástæða fyrir þeim mistökum sem þeir hafa gert í eigendatíð sinni og virðist sem þeir haldi bara áfram að berja hausnum í vegginn. Þeir hafa nokkrum sinnum komið fram og beðist afsökunar á mistökunum, og hafa gert það í þessu tilfelli líka. Málið er að í þetta skiptið eru mistökin svo stór og hafa skapað enn stærri gjá á milli sín og stuðningsmannanna. Verður þeim fyrirgefið í þetta skiptið líka? Líklegast ekki, það verða allavega mjög margir sem munu aldrei fyrirgefa þeim þetta.

Erum við þá komin á stað sem er no way back, og þeir þurfi bara að selja félagið frá sér? Það er ljóst að margir eru komnir á þá skoðun. Ég er ekki þar, svo það sé nú fært til bókar, og er það ekki vegna þess að maður sé ekki hundfúll með það hvernig þeir hafa höndlað þetta allt saman. Þögn þeirra sem var svo ærandi þegar fréttirnar brutust út og svo yfirlýsingin sem kom í kjölfarið. Þeir stein héldu kjafti og settu Klopp og liðið “out for dry”. Það er ekki hægt að afsaka slíkt og ætla ég mér ekki að gera það. En þrátt fyrir allt finnst mér við vera nokkuð heppnir með eigendur. Það er ansi margt sem þeir hafa gert sem maður er virkilega ánægður með og eitthvað sem maður verður að setja inn í jöfnuna þegar maður er að hugsa um þetta FSG OUT mál.

– Þeir björguðu félaginu frá gjaldþroti
– Þeir réðu Michael Edwards
– Þeir réðu Jurgen Klopp
– Þeir aðstoðuðu þessa menn í því að búa til eitt allra besta og skemmtilegasta Liverpool lið fyrr og síðar
– Þeir rifu félagið upp og hafa komið því á stall með allra allra stærstu félögunum í veröldinni
– Fyrsti Englandsmeistaratitillinn í 30 ár og sjötti Evrópumeistaratitillinn
– Þeir gerðu félagið sjálfbært með sinn rekstur
– Þeir afstýrðu því að fara frá Anfield og endurbyggðu hluta hans á glæsilegan máta
– Þeir byggðu nýtt æfingasvæði sem gjörbreytti allri umgjörð liðsins og öll lið Liverpool núna á sama svæði

Þetta er það allra helsta sem þeir hafa gert í eigendatíð sinni og þetta eru ekki neinir smá faktorar. Ef breyta ætti um eigendur núna, þá værum við að halda enn og aftur inn í óvissuna.
Hvaða aðilar eru það sem gætu reitt fram 2-3 milljarða punda til að kaupa félagið? Olíufurstar frá mið-austurlöndum? Myndu nýjir eigendur ekki horfa til þess að ávaxta fjárfestingu sína, þ.e. vera fyrst og síðast peningadrifnir líkt og núverandi eigendur? Myndu nýjir eigendur eitthvað frekar fókusa á gildi félagsins? Erum við almennt til í að fara í gegnum allt það sem fer í gang þegar um svona söluferli er um að ræða? Í algjörum draumaheimi þá ættu stuðningsmenn félagið, hvort sem það væri mjög dreifð eignaraðild eða með nokkrum vel efnuðum stuðningsmönnum. En ég bara sé það ekki gerast, fjárfestingin er það stór að það þarf gríðarlegt fjármagn bara til að kaupa félagið. Við þurfum bara að líta aðeins í kringum okkur. Flest liðin í efsta þrepinu á Englandi eru í eigu forríkra aðila. Nánast allir þessir eigendur eru drifnir áfram af peningum, eða því að bæta ímynd sína útávið. Þannig er fótboltinn bara orðinn og þetta er heldur ekkert nýtt af nálinni.

Hvað er þá til ráða? Það er alveg ljóst mál að það er mikið verk fyrir höndum ætli FSG sér að vinna stuðningsmenn á sitt band. Í mörgum tilvikum mun það ekki gerast, sama hvað. Fyrir það fyrsta þá VERÐA þeir að fara að hlusta meira og leita sér meiri ráðlegginga varðandi það sem þeir hafa litla sem enga hugmynd um. Í mínum huga er tvennt í stöðunni. Annað hvort að láta hluta af félaginu í hendur stuðningsmanna, þyrfti ekki að vera stór hluti, fyrst og fremst til að tryggja inn aðila úr þeim hópi í stjórn félagsins. Mér finnst þetta vera ólíklegt í stöðunni. Hinn kosturinn væri að fá einhvern inn í stjórn án einhvers eignarhalds. Einhvern sem er með tengsl inn í borgina, tengsl við stuðningsmenn. Einhvern eins og Kenny Dalglish t.d. Eins komu þeir í Blood Red Podcastinu fram með nafn Tony Barrett. Sá er mjög vel tengdur í allar áttir og ætti að geta komið inn með þennan vinkil sem sárlega vantar í stórar ákvarðanatökur. Þetta yrði allavega fyrsta skrefið í átt að því að koma í veg fyrir mistök sem verða vegna þess að eigendurnir skilja ekki kúltúrinn í fótboltanum. Þeir hafa sýnt það í gegnum tíðina að þeir eru tilbúnir að taka U-beygjur þegar á þarf að halda, en það er bara ekki alltaf nóg og núna eiga þeir akkúrat ekkert inni lengur, ekkert rúm fyrir fleiri svona mistök.

Er ég stuðningsmaður FSG? Langt því frá. Ég er fyrst og fremst stuðningsmaður Liverpool Football Club. Ég hef verið það alla tíð og mun vera það þar til ég yfirgef þetta líf. Ég vil veg þessa félags sem mestan, en vil jafnframt halda í þau góðu gildi sem félagið stendur fyrir. Það reynir vel á alla tengda félaginu þessa dagana, eigendur, stjórnendur liðsins, leikmenn og ekki síst stuðningsmennina. Við höfum oft lent í áföllum og erum orðin ýmsu vön. Við höfum gengið í gegnum miklu verri atburði, því miður. Ég er á því FSG OUT sé ekki málið á þessum tímapunkti. Sú skoðun mín er mynduð fyrst og fremst útfrá því hvað ég tel farsælast fyrir félagið. Eeen…þeir þurfa svo sannarlega að sýna það í verki að þeim hafi verið alvara með þessari afsökunarbeiðni sinni. Sýnið okkur það að þið ætlið að hlusta og breyta rétt, annars mun maður hoppa um borð í FSG OUT vagninn.

21 Comments

  1. Ef maður skoðar tekjurnar sem FSG hefur ekki bara frá Liverpool heldur öllu því sem þeir eiga eru þeir moldríkir. Og ef maður skoðar nettó eyðslu eða skuldir miðað við alla aðra klúbba sem áttu að vera i þessari super league þá er Liverpool og FSG í LANG bestu stöðunni með kannski Tottenham. Meistaradeild 2019, Deildarmeistarar 2020 skilar inn slatta af pening og þótt þeir hafi tapað 100 milljonum punda i Covid ættu í raun að vera hellingur af peningum eftir er það ekki? munum líklega tapa Gini, og selja Shaq, Oxlade, Origi, og eitthverja aðra miðlungsmenn á ágætis launum og ágætis verðmiða þá skil ég ekki alveg afhverju að splæsa í annaðhvort Mbappe eða Haaland ætti að vera eitthvað vandamál. Stærstu lið í heiminum eru að þjást mun verr og hafa ekki efni á þeim, minni lið eru að þjást líka og hefðu ekki haft efni á þeim fyrir Covid svo ég spyr nú bara afhverju er það ekki raunhæft að splæsa í einn þeirra? ef eitthver hefur allar tölurnar á pappír og getur sýnt fram á að FSG sé ekki í neinnu stöðu til að gera það fínt tek það alveg í mál en það er ekkert sem bendir til þess sérstaklega miðað við aðra klúbba. Annars langar mér líka að bæta við er sammála um að þeir hafi gert mjög mikið af réttum hlutum en þetta risastóra feil með super league fór mjög illa í mig en ég vil samt ekki selja til olíufursta eða eitthverjar United Glazers týpur. Ég vil sjá þá bæta þetta upp með einni stórstjörnu ef það er raunhæft sem allt í raun bendir til að það sé alveg.

    11
  2. Fínn pistill hjá Steina! Í stuttu máli FSG hefur gert nóg fyrir klúbbinn sem sannar að þeir eru þeir réttu þrátt fyrir allt. Mér hefur alltaf litist vel á John Henry og sáttur við afsökunarbeiðni hans.

    Að því sögðu trúi ég því og geri ráð fyrir að við fáum myndarlega sumargjöf/gjafir í sumar. Alvöru leikmenn sem eru klárir strax næsta tímabil, engan biðtíma eða leikmenn sem þurfa eitt tímabil til að komast í liðið! Búinn að fá nóg af svoleiðis æfingum!

    11
  3. Ég ætla að skila mínu atkvæði
    Ég styð FSG þrátt fyrir þetta.
    En voru þessi mistök þeirra akkúrat það sem FSG er að gera? Að reyna hámarka allar tekjur og verðgildi Liverpool FC.
    Við þurfum ekki að halda í eina Sek að þessir menn eigi LFC því þeir elska fótbolta eða félagið svo mikið.
    En ef sameiginleg markmið FSG og okkar sem styðjum þetta félag séu þau sömu og félagið vinni reglulega titla þá getum við lifað saman.

    6
  4. Sælir félagar

    Takk SSteinn fyrir pistilinn. hann er eins og talaður út úr mínu hjarta og ég hefi engu við hann að bæta nema einu sem þó kemur fram en er aldrei of oft sagt. “ÞEIR RÉÐU JURGEN KLOPP”.

    Það er nú þannig

    YNWA

    11
  5. Það voru að mér skilst þrír aðrir aðilar tilbúnir að kaupa klúbbinn á sínum tíma, FSG voru valdir úr hópnum. Að segja að FSG hafi bjargað klúbbnum frá gjaldþroti er kannski rétt en mikil einföldun. Klúbbnum hefði verið bjargað þó FSG hefðu ekki komið inn.

    Ég held að FSG hafi nú sýnt að þeim er sama um gildi félagsins svo framarlega sem þeir haldi áfram að ávaxta sitt pund.

    Ég held að eina afsökunin sem ég og margir stuðningsmenn tökum gilda er hressileg styrking á leikmannahópnum í sumar.

    Vandamálið er samt ekki bara Super League. Ég mun t.d. seint fyrirgefa þessa Ben Davies reddingu.

    Ég vil FSG út, en þó ekki fyrir hvern sem er.

    Ég mun þó styðja klúbbinn áfram hvort sem við fáum nýja eigendur eða ekki.

    7
  6. Mjög góður pistill, og kemur á réttum tíma nú þegar rikinu sem upp þyrlaðist er að setjast. Kosturinn við þessa uppákomu er samt sá, að hver sem á hvaða fótboltafélag, amk á Englandi, veit núna að stuðningsmenn og samfélagið líða ekki hvað sem er. Ég er ekki á vagni Snæfríðar Íslandssólar í Íslandsklukkuni, sem valdi frekar þann versta en þann næst besta.

    Annars þurfum við bara að fara að nýta öll þessi færi okkar og leiðin er greið.

    YNWA

    2
  7. Ég er kominn með nóg, veit ekki hvort það sé bara þessi ákvörðun með ofurdeildina eða bara hversu ótrulega markaðsvædd enska deildin/fótbolti er orðinn. Hvort sem það eru eigendurnir, stuðningsmenn eða leikmenn, þá eru allir bara að drepast úr græðgi og allir brjálaðir yfir því að fá ekki nýjasta dótið og mestu tekjurnar.

    Eins og Snæfríður þá kýs ég frekar þann versta en þann næstversta og ætla bara að hætta að pæla í þessum hundleiðinlega VAR bolta sem spilaður er af einhverju liði út í heimi.

    Ætla að einbeita mér að því að horfa á Fylki í sumar, þar sem mínir menn eru að spila á heimavelli mínum og hætta að pæla í þessari sápuóperu í Englandi.

    P.S. Þessi árangur eigenda Liverpool (FSG) síðustu ár, kemur útaf því að Jurgen Klopp er þjálfari. Og Jurgen klopp kom ekki til Liverpool ÚTAF eigindunum heldur ÞRÁTT FYRIR þessa eigendur! Klopp kom útaf sögunni og gildum félagsins sem þessir eigindur vildu rústa. Svo þessir eigendur eiga ekki að geta skreitt sig með þeim fjöðrum sem Klopp hefur komið með og heldur ekki að fá hrós fyrir að fá Klopp. Því hann var kominn með áhuga á að þjálfa Liverpool löngu áður en þessir eigindur komu.

    13
  8. Góð styrking í sumar með hækkandi sól og stuðningsmönnum aftur á völlinn er það eina sem ég bið um núna.
    FSG ? mér er sama ég ætla vera meira hlutlaus og sjá hvað gerist í sumar.

    Careful what you wish for var sagt ..Kanski selja þeir og fáum eh viðbjóðslega eigendur sem kanski taka alla peninga úr klúbbnum eða þá við fáum eh moldríkt lið með olíu putta sem skíta gullstöngum hver veit.

    3
    • Gleymdi að nefna það má svo henda VAR útí hafsauga og helst aldrei koma aftur.

      4
  9. Takk fyrir þennan flotta pistil.

    Algerlega sammála með þína niðurstöðu.

    1
  10. FSG in, í bili. Má kannski segja að þeir séu komnir á síðasta séns.
    Menn gera mistök en þá skiptir máli hvernig menn bregðast við, afsökunarbeiðnin var ærleg og kom frá hjartanu. Ég er þeim eiginlega reiðari að hafa ekki gert betur í að fá inn miðverði í janúar.
    Ef það á raunverulega að berjast við olíuliðin og ManU þá þarf að setja miklu meiri pening í leikmannakaup, miklu meiri, annars verður þetta erfitt.

    1
  11. Ég myndi segja fyrir mig að þetta er úrslitasumar fyrir þá, þeir hafa eytt fáranlega litlu í netto eyðslu seinustu ár og vonandi var það útaf því að þetta er sumarið sem átti að eyða(Mbappe)
    Ef að þeir kaupa ekki 2-3 alvöru leikmenn í sumar þá má sparka þeim út á hafsauga.
    Það eru nokkuð margir leikmenn sem þurfa að fara í sumar sem spil ekki nóg til að réttlæta vera sína hjá félaginu og útaf því að Klopp vill ekki hafa stóran hóp því hann spilar rosalega mikið á sömu mönnum.

  12. Á hvaða fylleri er þessir ofurtölva að spa liverpool i 4 sæti.
    Öll lið sem eru i 2-5 sæti vinna leikina a lokametrunum meðan lfc gerir jafntefli. Leicter að klara palace nuna

    • FSG eru dansa á línunni hjá mér. Þeir hafa gert margt gott og sumt slæmt. Ég öfund þá ekki eiga að þurfa keppa við eigendur Money City.
      En 2 stærstu mistók FSG hjá mér er að þeir gátu unnið deildina 2013-14 ef þeir hefðu ekki veikt liðið sumarið 2013. Ég vildi halda öllum þar á meðal Reina(alltaf betri en Migno), Carroll, Downing og styrkja breiddina með kaupa 2-3 topp leikmenn en staðinn voru fengnir Aspas sem skoraði 1 mark og Moses á láni sem átti hvað 1 mark og stoðsendingu.
      Svo voru mistók byggja ekki nýjan 60-70 þús leikvöll hliðina á Anfield. FSG héltu þeir voru spara eitthvað en hafa eytt hátt i £300m i stækka Anfield sem er enn ólokið.
      Hins vegar hafði nýr völlur kostað lítið meira og sala á nafnrétti hafði dekkað stærsta hluta kostnaðar.

  13. Tottenham og Arsenal eru nú líka komnir með svaka fína velli og gott bókhald 🙂
    Eini munurinn er að FSG höfðu þá gæfu á að ráða Klopp sem getur unnið titla og byggt upp lið fyrir lítinn sem engan pening. Ég sé ekkert endilega að FSG sé eitthvað betri (eða verri eigendur) en gengur og gerist nema að þeir eru á stundum algjörlega lausir við alla tengingnu við aðdáendur liðsins.
    Ofurdeildarskitan ýtir mér nær FSGout.

    2
  14. Takk fyrir þennan! Ítarlegur og vel orðaður.
    Það er rétt að byrja á að minna fólk að Prem league var það sem byrjaði að hnoða í snjóboltann hvað peninga varðar og önnur lönd litið á ensku úrvalsdeildina öfundar augum. Einhversstaðar heyrði ég að 91% af innkomu Prem league helst innan hennar og restin síast niður í neðri deildir sem er með hreint ólíkindum. Grasrótin að fá spark í rassgatið þar, því miður. Og þarna byrjaði græðgin að gerjast og hefur fengið að grossera.

    Það þarf ekkert að minnast á UEFA og þeirra græðgi en Steini er með réttan flöt þar á. Hinsvegar, þessi “stóru” lið verða að muna að þau væru ekki svona stór ef enski fótboltinn frá botni til topps væri ekki svona fjandi áhugaverður. Áhangendur skilja það á meðan erlendir fjármálamenn (lesist: Ameríkanar) gefa skít í 100 plús ára sögu liða og ætla að selja sálu þeirra hæstbjóðanda.

    Ég gef skít í afsökunarbeiðni JWH og hvað mig varðar er hann eins og belja í hálfu kafi eftir að svellið bráðnaði undan henni. Það vantaði bara vasaklútinn og fiðluleikara fyrir aftan hann í myndbandinu til að fullkomna þessa þvælu! FSG hefur gert frábæra hluti hjá LFC fram að þessu sem gerir þetta útspil svo miklu meira særandi fyrir aðdáendur. Er ekki nóg að FSG hafi fengið gefins klúbbinn (£300m) og geta selt hann á minnst 10x það í dag ef þeir vilja meiri aur?

    Knattspyrnuyfirvöld þurfa samt að taka alfarið á aðal vandamálinu í dag sem er að sliga mjög mörg lið út um allan heim. Umboðsmenn (agents) og laun leikmanna. Það að lið séu að borga 70% eða meira af árlegri innkomu sinni í laun gerir klúbbana ósjálfbæra. Tek ég sem dæmi afætuna Raio Minolo (eða hvað hann heitir aftur) sem er umbinn hans Pogba. Scums borgaði £88m fyrir Pogba og ekki nóg með það þá þurftu þeir að greiða umbanum tugir milljóna að auki til að klàra samningin! Ofan á það koma svo stjörnuhá laun hans Pogba ásamt undirskriftarbónus. Er þetta eðlilegt?!? Það er alltaf gaman að sjá þá eyða peningum þarna uppfrá en ekki rétt að afæturnar séu að taka svona mikinn pening út úr boltanum. Liðin þurfa að skoða sinn rekstur hvað þetta varðar og hjálp frá knattspyrnuyfirvöldum er nauðsyn. Það að rotta sig saman og byrja á nýrri peningadeild er ekki lausnin fyrir fòtboltann. Skera æxlið í burtu.

    En hvað LFC varðar þá vil ég sjá £250m eyðslu í sumar hjá JWH og co. og duglega hreinsun hjá klúbbnum sem ég tæki til greina sem hugsanlega afsökunarbeiðni. Það er kominn tími á að fara í vasana og eyða duglega!

    3
  15. Flottur Eirikur! Ég fór aðeins fínna í orðalagið með JWH hér að ofan um “sumargjafir” og yfirbót á ruglinu þarna vestan hafs. Þú segir þetta tæpitungulaust og ég kvitta algjörlega undir það!

    1
    • Enda ekkert annað sem kemur til greina til að rétta skútuna við. Ég samt stór efast um að við gerum mikið í sumar. Ég giska á 2 inn og 4 út sem verður banabiti Klopps.

      • Sl. sumar greiddi liðið innan við fjórðung af kaupverði Thiago og sirka 10% af kaupverði Jota. Þar eru aðrir stórir gjalddagar í sumar.
        Taprekstur á sl ári ásamt því að meistaradeildarstæti er ólíklegt og verði ekki af því grunar mig að skilaboðin verði seljið til að kaupa.

        En út af þessu ofurdeildarklúðri er möguleiki að FSG þori ekki öðru en að kaupa sér fyrirgefningu.

Liverpool 1 – 1 Newcastle, Deja Vu. (Skýrsla uppfærð)

Kvennaliðið heimsækir Sheffield