Liðið gegn Lincoln – Van Dijk byrjar

Það er nokkuð mikið róterað hjá Jurgen Klopp fyrir deildarbikarslaginn við Lincoln City í kvöld, leikmenn sem eru rétt utan byrjunarliðs byrja inn á og nokkrir gætu fengið tækifæri til að sína að þeir hafi hlutverk í liðinu.

Adrian

N.Williams – R.Williams – VVD – Tsimikas

Grujic – Jones

Shaqiri – Minamino – Elliott
Origi

Bekkur: Kelleher, Fabinho, Keita, Jota, Wilson, TAA, Van Den Berg

Miðvörðurinn Rhys Williams byrjar í miðverðinum við hlið Virgil Van Dijk sem er nokkuð óvænt í byrjunarliðinu. Neco Williams stillir sér upp í hægri bakverðinum og Kostast Tsimikas spilar sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í þeim vinstri.

Framtíð þeirra Marko Grujic, Xherdan Shaqiri og Divock Origi er í óvissu en þeir byrja allir inn á í dag. Hinir efnilegu Curtis Jones og Harvey Elliott eru í liðinu ásamt Takumi Minamino.

Diogo Jota er í leikmannahópnum en byrjar á bekknum sem er nokkuð öflugur í kvöld og er Harry Wilson, sem einnig er orðaður við brottför einnig á bekknum en engin Rhian Brewster sem virðist nálægt því að róa á önnur mið á næstu dögum.

Hvað uppstillinguna varðar þá virðist þetta vera hópur sem mun líklega vera í 4-2-3-1 eða einhvers konar 4-4-2 nema ef Minamino eða Shaqiri séu hluti af miðjumönnunum í kvöld.

Sterkt lið leikmanna sem vantar mínútur og tækifæri, þetta ætti að vera rétt rúmlega nógu sterkt til að klára leikinn í kvöld.

8 Comments

  1. Sá á bjarta framtíð fyrir sér hann Curtis Jones, virkilega efnilegur leikmaður.
    Núna væri ég til í að sjá Diogo Jota koma inná fyrir Origi

    1
  2. 2,5 á 3-0 sigur Liverpool. Sennilega léttasta veðmál fyrr og síðar. Þessi leikur fer 7-0.

    1

Heimsókn til Lincolnshire

Lincoln 2-7 Liverpool