Byrjunarliðin á Emirates Stadium

Rauði herinn mætir í Lundúnaborg til að takast á við Fallbyssuskytturnar á Emirates-vellinum. Bæði lið eru með sitt hvort markmiðið til að spila upp á í formi stigamets og inngöngu í Evrópudeildina.

Byrjunarliðin

Bæði lið eru komin á skýrslu fyrir leikinn á eftir og Klopp stillir upp sérlega sterku liði og Oxlade-Chamberlain fær sénsinn inná miðjunni:

Liverpool: Alisson; Trent, Gomez, Van Dijk, Robertson; Fabinho, Wijnaldum, Oxlade-Chamberlain; Salah, Mane, Firmino

Bekkurinn: Adrian, Williams, Lovren, Shaqiri, Keita, Elliott, Jones, Minamino, Origi

Mikel Arteta hefur einnig skilað inn sínu liðsvali og það er eftirfarandi:

Aðalmarkaskorarinn Aubameyang byrjar á bekknum og þá væntanlega með uppkomandi bikarleik í huga og sama gildir um Bellerin og Ceballos en annars er liðið líkt því sem búist var við.

Blaðamannafundur

Klopp var á kantinum á fjar-blaðamannafundi í gær og sem fyrr var hann tungulipur og kjarnyrtur:

Upphitunarlagið

Í tilefni af því að fallbyssuliðið mætir því rósrauða í höfuðborginni þá er við hæfi að Guns N’ Roses trylli í lýðnum með Paradísarborginni þar sem fótboltagrasið er grænt og vel vænt. Rokk & ról!

 

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og minnum við að sjálfsögðu á heimavöll okkar, Sport & Grill í Smáralind. Boltatilboð yfir leikjum og um að gera að hafa samband uppá að panta borð.

Come on you REDS! Allez! Allez! Allez!

YNWA!

Við minnum á #kopis á Twitter og umræðuna í athugasemdum hér að neðan og á Facebook.

35 Comments

  1. Djöfull eru menn lengi þunir eftir að hafa landað þeim enska.
    Leik eftir leik eru þeir eins og höfuðlaus her.

    Þvilik skita

    5
  2. Það verður að verzla í sumar. Margir farnir að hafa það ansi þægilegt án þess að stöðu þeirra sé ógnað.

    3
  3. Hversu sofandi geta menn verið, búið að gefa þeim 2 mörk á silfurfati með fáranlegum mistökum.
    Klopp þarf að óskra vel á menn í hálfleik.
    Djöfull er þetta lélegt.

    3
  4. Hvað halda þeir að þeir séu. Séu það góðir að þurfa ekki að hafa fyrir þessu.

    3
  5. Ef þetta er það sem koma skal eftir hlé, tap í dag og ég tek mér hlé fram á verðlaunar daginn. Koma svo!!!

    4
  6. Jæja farið þið bara að taka ykkur sumarfrí Liverpool þið greinilega nennið þessu ekki lengur og þegar þið gefið öðrum liðum 2 mörk þá eruð þið ekki lengur með hugan við leikinn.

    2
  7. Alveg skelfilegt einbeitingarleysi hjá okkar mönnum. Er virkilega ekki meiri vilji til þess að taka stigametið.

    1
  8. Það er bara enginn leiðtogi þarna inn á vellinum…Virgil er kanski frábær að öskra á sína menn á sínu tungumáli með Hollandi… en liðið er oftast frekar hauslaust þegar Hendo eða Milner eru með bandið….

    1
  9. Óafsakanlegt. Algerlega. Virðingarleysi, kæruleysi, einbeitingarleysi, hroki. Drulla sér niður á jörðina og hætta að halda að það sé bara nóg að mæta í vinnuna.
    Koma svo rauðir í seinni!!!!!!

    1
  10. Sælir félagar

    Þegar menn sýna svona hroka og kæruleysi sem er ekkert annað en virðangarleysi fyrir andstæðingum sínum þá fer svona. Ég fer fram á að menn eins og Alisson og VvD sýni einbeitingu og virðingu í sínum leik. Það er ömurlegt að sjá svona frammistöðu eftir að vera komnir yfir. Svo yrði ég feginn ef farþeginn AOC (Ox) yrði tekinn útaf. Betra að hafa engann en hann inná. Hann hefur bverið yfirtakslélegur í undanförnum leikjum og nú þykir mér fullreynt. hann getur ekkert og á ekki að vera inná.

    Það er nú þannig

    YNWA

    3
  11. Væril til í að sjá Jones eða Keita koma inná fyrir uxann í hálfleik

    2
  12. Sæl og blessuð.

    Það er eins og það sé eitthvert lögmál að við töpum þegar Hendó er ekki með.

    Sjáum hvað gerist!

    3
  13. Erum englands meistarar en eg er samt pirraður, get ekki sæt við að tapa stigum a moti asnenal

    1
  14. Kemur ekkert ut ur þeasum Minamino

    Djöfull er þetta lelegt og bitlaust.

    Er farinn að kvíða fyrir 22 julí tapinu við chelsea og
    taka við þessum bikar a tomum velli.

    4
    • Honum að kenna að besti miðvörður heims og besti markvörður heims gera byrjenda mistök?

      2
  15. Tja ef við erum alveg sanngjörn þá gat Klopp ekkert gert við þessum mistökum í vörninni 🙂

    3
    • Hann fær falleinkunn af því að hann nær ekki að mótivera líðið. Svona einbeitingarleysi á ekki að sjást og þar ber stjórinn ábyrgðina

      2
      • Held þetta sé nú ágætlega mótiverað hjá honum – bara hörmuleg mistök í tvígang en annars bara fullkomnir yfirburðir á ,,erfiðum” útivelli!

        1

Heimsókn til höfuðborgarinnar

Arsenal 2-1 Liverpool