Leikur með Klopp!

Í tilefni af því að nú eru 4 ár síðan Jürgen Klopp tók við Liverpool og að liðið trónir á toppnum, að Liverpool hefur unnið flest alla leiki sína og að Liverpool er Evrópumeistari og… Allavega, nú eru ótalmargar ástæður til að fagna og því hafa Liverpool-klúbburinn, Kop.is og Útgáfan ákveðið að gefa fjórum heppnum bókina Klopp: Allt í botn.

Til að komist í pottinn ferðu á FB-síðu Útgáfunnar og “lækar” síðuna. Vinningshafar verða dregnir út þar eftir örfáa daga og fá afhent sitt eintak á Spot, á fánadegi klúbbsins þann 10. nóvember nk., þar sem höfundur bókarinnar mun mæta, árita bókina og fylgjast með Liverpool taka á móti Manchester City.

FB-síða Útgáfunnar:
https://www.facebook.com/%C3%9Atg%C3%A1fan-119823952751987/

Ein athugasemd

Liverpool 2-1 Tottenham

Gullkastið – Hendersonsokkur