Liðið gegn Newcastle – tvær breytingar

Loksins er landsleikjahléið búið og Liverpool er að mæta aftur til leiks þegar Newcastle heimsækir Anfield eftir tæpan klukkutíma. Klopp hefur valið liðið sem byrjar leikinn í dag en tvær breytingar eru á liðinu sem byrjaði 3-0 sigurleikinn gegn Burnley í síðustu umferð.

Adrian

TAA – Matip – VVD – Robertson

Wijnaldum – Fabinho – Chamberlain

Salah – Origi – Mane

Bekkur: Kelleher, Gomez, Lallana, Milner, Henderson, Shaqiri, Firmino

Firmino spilaði með Brasilíu fyrir nokkrum dögum síðan en Fabinho ekki áður en þeir þurftu að fljúga langa leið til baka, hann sest á bekkinn ásamt Jordan Henderson sem spilaði báða leikina fyrir England. Origi kemur í framlínuna og Chamberlain byrjar sinn fyrsta leik á Anfield síðan í apríl 2018.

Öflugt lið þrátt fyrir tvær breytingar og sterkur bekkur. Yrði flott að setja tóninn aftur strax eftir þetta hlé og næla í örugg og góð þrjú stig í viðbót.

22 Comments

  1. Var á næturvakt í nótt sem leið, beið með að fá lineuppið áður en ég færi að sofa. Vonandi bíður mín flugelasýning þegar ég horfi á leikinn eftir að ég fer á fætur seinna í dag 🙂

    3
  2. Flott lið en mér finnst Big Shaq svolítið mikið sveltur hjá okkur. Býr meira að baki væntanlega en hæfileikarnir eru til staðar.

    5
  3. Til hvers er VAR í enska boltanum ef það á ekki að nota það??
    Og í þessum töluðu orðum skorar oh oh Mané Mané!
    Koma svo rauðir keyra yfir þetta drasl!

    4
  4. Geggjað mark hjá Mane, en ótrúlegt að Matip hafi ekki fengið víti. Varnarmaðurinn heldur utan um hann

    2
  5. Akkurat svarið sem maður vill sjá eftir þetta mark sem við fengum í andlitið í byrjun leiks.

    3
  6. Sendingin frá Firmono… Það eru 11 snillingar í þessu liði og við elskum þá alla. Ekki hægt að toppa þetta.

    2
  7. Uss þvílíkt spil hjá Bobby og Mo og búmm 3-1. Geggjað mark!

    YNWA

    2
  8. Solid performance ekkert annað og algjörlega eftir plani.
    Firmino á öðru leveli og Mané frábær

    2
  9. Þvílík smíð. Hjá Klopp og leikmönnum. Lendum undir. No problem. Virðumst ósigrandi. Sama hvaða liði er stillt upp. On we go. On we go to glory.

    1
  10. Sæl og blessuð.

    Baneitruð blanda, sem þetta lið okkar er. Fáránlega góðir í langflesta staði. Firmino er óvænt maður leiksins – óvænt því hann átti auðvitað ekki að koma inn á fyrr en í síðari hálfleik Mané og Salah – báðir stórbrotnir, með 9 í einkunn en Firmino með 9+.

    Hnjúkaselið er miklu öflugra en ég hélt í upphafi móts, og þeir eiga eftir að gera toppsexliðum skráveifu. Vörnin okkar átti í basli með þá og stöku sinnum hefði getað farið illa. En auðvitað hefði sigurinn bara átt að verða stærri – ekki spurning með það, því mistækur markvörður þeirra svart/hvítu bjargaði oft á undraverðan hátt.

    En metin falla hvert af öðru – sigurlotan sæl og ný!!!

    3
  11. Fullt hús stiga eftir 5 leiki, það gerist ekki betra.
    Þeir vita að það má ekki tapa mörgum stigum ef við eigum að taka bikarinn í ár og þeir byrjar þetta tímabil af krafti.
    Þessi sóknarlína er svo geggjuð, Mane, Salah skora mörkin og meistari Firmino sér um samspilið.

    2

Kop.is ferðir í samstarfi við VITA

Liverpool 3-1 Newcastle