Huddersfield á laugardag

Á laugardaginn hefst enska deildin aftur eftir landsleikjahlé sem var nú ansi glatað á svo margan hátt. Í fyrsta lagi var gengi Íslands ekki nægilega gott en fínt jafntefli úti gegn Frökkum kom í æfingaleik fyrir tapleik gegn Sviss í Þjóðardeildinni og í öðru lagi þá enduðu ansi margir lykilmenn Liverpool í einhverjum óþarfa meiðslum og vandræðum í landsliðsverkefnum sínum.

Virgil Van Dijk skoraði ásamt Gini Wijnaldum í sigurleik Hollendinga gegn Þýskalandi í Þjóðardeildinni en Van Dijk var sendur heim fyrir seinni leikinn þar sem hann er búinn að vera að stríða við einhver meiðsli í rifbeini undanfarnar vikur, Wijnaldum fékk svo einnig frí í þeim leik og gat sömuleiðis snúið fyrr aftur heim til æfinga fyrir leikinn um helgina.

Sadio Mane fingurbrotnaði og þurfti að gangast undir smávægilega aðgerð sem gekk vel. Hann æfði ekki með liðinu í dag og er tæpur fyrir leikinn um helgina, aðallega bara vegna óþæginda frekar en að hann sé alveg off. Naby Keita er hins vegar líklega frá næstu tvær vikurnar eftir að hafa tognað smávægilega aftan í læri í leik með sínu landsliði, aðstæðurnar þar sem þetta gerðist voru skelfilegar en þessi fimmtíu milljóna punda leikmaður þurfti að vera borinn út af vellinum á baki liðsfélaga síns því ekki voru börur á svæðinu. Það hefur ekki verið staðfest af Liverpool hve alvarleg meiðslin séu en fregnir í heimalandi hans segja að það séu tvær vikur.

Mo Salah skoraði beint úr hornspyrnu í æfingaleik með Egyptalandi í fyrri leik þeirra í þessari törn og fór svo útaf meiddur á 88.mínútu í stöðunni 4-1. Hann var með einhverja verki aftan í læri og leit það alls ekki vel út. Hann fór aftur til Liverpool og var á æfingu í dag svo hann verður líklega leikfær um helgina og það eru frábærar fréttir.

Eitthvað sá ég um að Trent Alexander-Arnold væri líka tæpur fyrir leikinn vegna einhverja smávægilegra meiðsla í baki en ekkert séð meira í kjölfarið og hann var á æfingu í dag með liðsfélugum sínum svo eflaust ekki alvarlegt það. Fabinho, Alisson og Firmino léku eitthvað smá með Brasilíu, Lovren með Króatíu sem mætti Englandi. Gomez átti góðan leik með enskum gegn Króötum og Henderson var svo góður að næla sér í spjald og var í banni í seinni leik Englendinga.

Jákvæðar fréttir hafa svo borist af Milner sem fór meiddur út af í síðasta leik Liverpool fyrir hlé þar sem hann hafði tognað í læri og átti að vera frá í einhverjar fjórar vikur en hann er mættur aftur á æfingar og verður eflaust klár í slaginn um helgina – hann hefur greinilega haft einhver sambönd enn þá í City og náð að koma höndum yfir Dr.Cugat sem hefur gefið honum sömu “vítamínsprautur” og hann gefur leikmönnum City svo þeir nái kraftaverkabata af sínum meiðslum, já eða að Milner sé hreinlega einhver robocop.

Adam Lallana er sömuleiðis kominn aftur til baka og farinn að æfa á fullu með liðinu. Hann hefði víst geta verið klár fyrir síðasta leik en það var víst frekar tekin sú ákvörðun að láta hann ná fleiri æfingum áður en hann snéri aftur. Það verður flott að fá hann aftur inn í hópinn og þá sérstaklega þar sem Keita verður frá í smá tíma.

Á tímapunkti leit þetta alveg hreint skelfilega út og það virtist stefna í að Klopp þyrfti að stilla upp hálfgerðu Deildarbikarliði en svo virðist ekki vera og að ástandið er ekki eins slæmt og stefndi í. Það virðist aðallega vera Keita sem mun missa af einhverjum leikjum þó að einhverjir gætu verið tæpir fyrir helgina.

Nú er að hefjast sex leikja gluggi hjá Liverpool fram að næsta landsleikjahléi(!) þar sem liðið mun spila fjóra deildarleiki og tvo leiki í Meistaradeild. Ég ætla bara að gerast það kræfur að ætlast til þess að Liverpool eigi að sigra alla þessa leiki, það er aðeins útileikur við Arsenal sem maður gæti kannski sannfært sig um að eitt stig væri ásættanlegt en í raun finnst mér að við eigum að vera nægilega sterkir til að klára þá þar. Í þessari leikjahrynu eru heimaleikir gegn Cardiff, Red Star og Fulham og útileikir gegn Huddersfield, Red Star og Arsenal. Sex leikir, sex sigrar – ég ætla að fara fram á það, allt annað væru ákveðin vonbrigði.

Fyrir umferðina er Liverpool með 20 stig ásamt Chelsea og Man City en með slakari markatölu en hin tvö og sitja í þriðja sætinu en þó líklega búnir með töluvert erfiðara leikja prógram. Chelsea byrja umferðina á því að mæta Man Utd og Man City taka á móti Burnley. Svo mætast Man City og Tottenham vikuna eftir svo þarna eru hugsanlega tveir leikir þar sem þau lið gætu misst einhver stig á meðan að Liverpool á að eiga tvo skyldusigra.

Gengi David Wagner og hans manna hefur ekki verið gott í upphafi leiktíðar og þykir ansi, ansi líklegt að þeir muni fara niður í vetur. Þeir voru afar tæpir á því í fyrra en rétt sluppu fyrir horn og gerðu svo gott sem ekkert merkilegt í leikmannaglugganum í sumar og þykja bara ansi líklegir til að fara niður ásamt Cardiff. Þessi tvö lið líklega þau sem teljast hvað slökust í vetur.

Huddersfield hafa átt nokkuð erfiða byrjun og allt það en þeir eru með þrjú stig fyrir umferðina og hafa gert þrjú jafntefli og tapað fimm með markatöluna 4-17. Ég nenni nú ekki að fara eitthvað rosalega djúpt í Huddersfield, það er ekki mikið af áberandi styrkleikjum í þeirra leik og þeir eru að fá einhverja leikmenn til baka úr meiðslum, þar á meðal þeirra besta leikmann Aaron Mooy.

Alison

TAA – Gomez – Van Dijk – Robertson

Shaqiri – Henderson – Wijnaldum

Salah – Firmino – Sturridge

Ætla nú bara að taka skot út í bláinn með byrjunarliðið þar sem þeir Keita, Milner og Mane eru allir tæpir/meiddir fyrir helgina. Klopp gaf það nokkurn veginn til kynna eftir leikinn gegn Man City að hann hafi þurft að spila svolítið á hugmyndum síðustu leiktíðar og á þeim mannskap sem þekkti hvað best til hans í upphafi leiktíðar vegna þess hve þétt og erfitt prógramið var. Við höfum því lítið séð til leikmanna eins og Shaqiri, Keita og sérstaklega Fabinho en Klopp gaf í skyn að við munum sjá meira af þeim næstu vikurnar og jafnvel að við munum breyta ögn uppstillingu liðsins meira en við gerðum síðast. Það kæmi því kannski ekki rosalega á óvart ef að Klopp muni hafa liðið ögn “sókndjarfara” í næstu 2-3 leikjum og muni koma Shaqiri inn í tíuna og við munum spila meira í anda 4-2-3-1 líkt og við sáum stundum í æfingaleikjunum í sumar eða jafnvel bæti við öðrum framherja og fari í þessa 4-2-2-2 uppstillingu sem við sáum stundum í fyrra.

Það verður mjög fróðlegt að sjá hvað hann hyggst gera fyrir þennan leik og ef Mane og Milner eru tæpir fyrir leikinn þá gæti það þýtt að við sjáum ansi áhugaverðar breytingar á liðinu. Ef þeir eru ekki klárir í að byrja leikinn finnst mér líklegt að Sturridge og Shaqiri muni koma inn en þó væri gaman að fá að sjá Fabinho með einhverjar mínútur líka en tvær nokkuð stórar breytingar er eflaust nóg fyrir þennan leik.

Eins og ég segi þá finnst mér þetta eiga að vera skyldusigur fyrir Liverpool og leikur þar sem ég vil sjá stóran sigur. Það er vont ef leikmenn koma með vanmat í huga í leikinn en ég vona að Klopp sé með þá rétt fókuseraða fyrir þennan leik en þar sem ég sit nú bara heima að röfla um þetta þá ætla ég að fara fram á mikið. Ég vil clean sheet, ég vil dóminerandi frammistöðu, ég vil sjá nokkur mörk og lykilmenn í sókninni komast á blað og fá blóðbragð í kjaftinn. Skyldusigur og allt annað en þetta yrði vonbrigði.

Mikið er gott að enski boltinn sé að byrja að rúlla aftur!

14 Comments

  1. Sæl og blessuð.

    Nú er lag fyrir bekkjarsetumenn að sýna hvað í þeim býr. Ég treysti því að Höddesfíldarar hringsnúist enn um sjálfa sig eftir að blásið hefur verið til leiksloka, slíkur verður atgangurinn í Shaq, Sturr, Fab og öðrum sem hungrar og þyrstir eftir óskerrtum tíma á vellinum. 0-4 og ekkert rugl.

  2. Ég hata landsleikjahlé og mun aldrei fara á landsleik. það er bara þannig.

  3. Sannfærandi sigur og að laga markatöluna væri mjög kærkomið. Vonandi fá Shaqiri og Sturridge að byrja.

  4. Sælirfélagar

    Það er ekkert í boði annað en sigur í þessum leik og er mér nokkuð sama þó hann verði ljótur og allt það. Það bara verður að vera sigur. Eins og Lúðvik bendir á þá er líklegt að einhverjir bekkjarar fái tækifæri og þeir verða að sýna að þa’ sé raunveruleg barátta um sæti í byrjunarliðinu. Spái sigri annað hvort verður þetta 0 – 1 eða 0 – 5. Við sjáum til.

    Það er nú þannig

    YNWA

  5. ekki svartsýnn enn við töpuðum stigum síðast fyrir liðunum sem féllu vonandi verður þetta öðruvísi

  6. Er sammála Sigkarli, nema ég segji 0-1 til 0-5, einhverstaðar þar á milli. Hver skorar er ekki beint aðal atriðið, þó vil ég fara að sjá Salah, verði hann með, setjann, koma stráknum í gírinn. Eins Sturridge.

    YNWA

  7. Oft erfitt að koma sér í gang eftir landsleikahlé og ég tala nú ekki um þegar heimamenn misstu ekki marga í landsleiki á meðan að okkar menn voru flestir á flakki um jarðkríngluna.
    Þeir munu vera þéttir en spái að við náum að vinna þá en það verður að hafa fyrir því 0-1 og Winjaldum með markið.

  8. Eitt finnst mér dálítið öfugsnúið, þessi þjóðarkeppni átti að koma í stað vináttuleikja, en samt eru liðin að spila vináttuleiki inn á milli þjóðardeildarleikja. Mín skoðun er sú, að þeir sem megi taka þátt í leikjum fyrir sitt land hafi aldrei spilað landsleik áður, nema leik í þjóðardeildini í framtíðini, og þá vináttuleikir út. Það verður að fara að taka tillit til þeirra sem eru í eldlínuni ´stundum tvisvar í viku.

    YNWA

  9. Allir leikir fram að næsta landsleikjahlé ery skyldusigrar í mínum augum. Fullkomið tækifæri fyrir nýju strákana að sýna sig koma svo

  10. Algjörlega sammála Árna ,, Allir leikir fram að næsta landsleikjahléi eru skyldusigrar “. Og nú þegar hvíla þarf lykilmenn vegna meiðsla gerum við kröfur um að varamenn sanni sig. Já, ég sætti mig bara alls ekki við neitt annað en sigra í þessum leikjum.

  11. Ég vill nú bara minna menn hér á Kop.is á að þetta lið vann man utd á síðasta tímabili 2-1 að mig minnir. Ég vara menn við vanmati, þetta verður ekkert “walk in the park” hjá okkar mönnum. Tökum þetta af fullri alvöru og mætum í leikinn.

  12. Stórhættulegt viðhorf að tala um skyldusigra, að mínu mati. Manni finnst vera mjög gott tækifæri framundan til stigasöfnunar en öll liðin í ensku eru góð og öll lið geta unnið á góðum degi.

    Ég held líka að útileikur eftir landsleikjahlé, gegn liði sem hefur haft allan þann tíma til æfinga/hvíldar sé mjög erfiður.

    Að því sögðu þá reikna ég með sigri okkar manna, en það kæmi mér mjög á óvart ef hann yrði stór og sannfærandi.

  13. Það er ekkert sem heitir skildusigur í enskudeildinni.
    Það eru til leikir sem við erum miklu sigurstranglegri en það er ekkert gefið í þessu og ef þessi stóru lið í deildinni myndu vinna alla svokallaða skildusigra þá ættu öll top 6 liðinn að vera með 84 stig og eiga svo 10 leiki eftir gegn hvort öðru en þetta virkar ekki þannig.

    Þetta er þessi klisja að taka einn leik í einu og bera virðingu fyrir mótherjanum hvort sem það er Man City eða Huddersfield en báðir þessir leikir gefa 3 stig.

  14. Shaqiri, Lallana and Sturridge replace Mane, Wijnaldum and Firmino

Gullkastið – Katrín Ómars

Liðið gegn Huddersfield