Wembley um helgina

Þessu blessaða landsleikjahléi lýkur formlega á laugardaginn næstkomandi, þegar okkar menn hefja eina erfiðustu lotu sem liðið hefur staðið frammi fyrir lengi með því að heimsækja Spurs á Wembley. Það má segja að lotunni ljúki þegar liðið fær City í heimsókn þann 10. október, og mun þá hafa spilað á móti Tottenham, PSG, Milano, Southampton og Chelsea (tvisvar). Þetta verða ansi margir erfiðir leikir á ekki lengri tíma, svo nú loks fer að reyna á breiddina.

Völlurinn

Eins og kunnugt er átti þetta að verða opnunarleikur hins nýja heimavallar Tottenham – White Hart Lane – en af ýmsum ástæðum þurfti að fresta þeirri opnun, ástæðan sem gefin hefur verið upp er sú að ýmis öryggiskerfi séu ekki tilbúin. Heimamenn hafa reyndar verið í standandi vandræðum með að finna staði fyrir þá leiki sem áttu að fara fram í haust, því Wembley er alls ekkert laus alla daga sem Tottenham á heimaleiki. Þar að auki er ekki einusinni vitað hvenær nákvæmlega hægt verður að opna völlinn, opinberlega er talað um að það verði í lok október í fyrsta lagi, heyrst hefur að það verði jafnvel ekki fyrr en um áramótin (en það eru sjálfsagt bara getgátur). Við skulum vona – svona fyrir hönd Spursara – að það fari ekki með þessa framkvæmd eins og Brandenburg flugvöllinn í Þýskalandi sem átti að vera tilbúinn árið 2011 en hefur enn ekki verið opnaður.

Hinn nýji White Hart Lane mun verða hinn glæsilegasti, verður með sæti fyrir 62062 manns, og byggingin sjálf er á 9 hæðum.

En við erum semsagt ekki að fara þangað.

Heldur á Wembley.

Það þarf kannski ekki að rifja upp síðustu heimsókn Rauða hersins á Wembley, en sá leikur tapaðist 4-1. Reyndar hefur svo öll tölfræði síðan þá verið ákaflega jákvæð, hvort sem við horfum á skoruð mörk, hrein lök (sorrýmemmig), mörk fengin á sig o.fl. Mögulega hefur þessi leikur verið dropinn sem fyllti mælinn hjá Klopp, eða svo segir a.m.k. James Pearce í grein á Liverpool Echo.

Andstæðingarnir

Tottenham voru fyrir síðustu umferð eitt fjögurra liða sem höfðu unnið fyrstu 3 leikina á mótinu, en misstigu sig í stórleiknum gegn Watford og þurftu þar að lúta í gras. Þeir mæta því væntanlega foxillir til leiks, en jafnframt örlítið vængbrotnir, því nú hefur verið staðfest að hvorki Hugo Lloris né Dele Alli verði með. Báðir eru þeir meiddir, Lloris auðvitað bæði með hnjask í baki og tognun á heila eftir að hafa verið gripinn glóðvolgur fullur undir stýri. Þetta mun þó engu breyta um stöðu hans sem fyrirliða. Það má því reikna með Vorm í markinu, en það eru svosem engar stórfréttir í ljósi þess að hann var líka í markinu í síðasta leik. Það að Dele Alli verði frá setur kannski meira strik í reikninginn hjá Pochettino. Þá kom Son aftur til klúbbsins frá Asíukeppninni núna í vikunni, og ólíklegt að honum verði hent í djúpu laugina strax um helgina. Enda eru bæði Kane og Lucas Moura leikfærir eftir því sem best er vitað. Jafnvel þó svo Son væri kominn á fullt væri vafasamt að hann ætti öruggt sæti í byrjunarliðinu. Lucas Moura hefur heldur betur fundið taktinn, var valinn leikmaður mánaðarins í úrvalsdeildinni í ágúst, og var m.a. potturinn og pannan í sigri liðsins á United.

Kane skyldi svo enginn vanmeta. Ef við skoðum tölfræði síðasta tímabils, þá var það aðeins Christiano Ronaldo sem fékk fleiri færi heldur en Kane. Þá er markaskorunin hjá honum með því besta, á síðasta tímabili var hann með fimmta hæsta xG (expected goals) í efstu 5 deildunum í Evrópu, 0.742 nánar tiltekið, og hann gerði svo gott betur með því að skora að meðaltali 0.817 mörk pr. 90 mínútur. Kane er búinn að spila 83 leiki síðan í ársbyrjun 2017, og það þrátt fyrir að hafa meiðst tvisvar á þessum tíma. Þess háttar leikjaálag getur auðvitað haft neikvæð áhrif, sérstaklega ef meiðsli blandast þar inn í. Það er ekki ólíklegt að hann hafi farið að spila eins fljótt og mögulegt var eftir meiðslin í vor til þess að eiga einhvern séns í að hirða markakóngstitilinn af Salah, og mögulega fór hann of snemma af stað því hann hefur ekki átt jafnmörg skot á mark eftir meiðslin eins og fyrir þau.

Þó svo að Kane sé sá sem skorar mest fyrir liðið, þá er enginn skortur á mönnum sem kunna að sparka í leðurtuðruna í liðinu. Þetta er að auki lið sem er í raun búið að spila sig saman síðustu 3 tímabil. Vissulega var engum leikmönnum bætt við í sumarglugganum. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því. Kannski mat Pochettino það þannig að það þyrfti einfaldlega ekki að styrkja liðið. Kannski fann hann engan leikmann sem var klár bæting á hópnum sem hann er með í höndunum (staða sem maður er að vona að Jürgen Klopp sé mögulega loksins að komast í). Nú og kannski var ekki til peningur. Smíði nýja leikvangsins kostar vissulega seðilinn, og ekki bætir þessi seinkun úr skák. Hver raunveruleg ástæða er skiptir kannski ekki öllu máli, því hópurinn er einfaldlega mjög sterkur. Þá er þetta jafnframt hópur sem má segja að sé á besta aldri:

Þar að auki er Tottenham með einn yngsta hóp deildarinnar, eða með jafn lágan meðalaldur og Newcastle, 26.4 ár. Aðeins eitt lið er með lægri meðalaldur (25,9 ár), það lið spilar í rauðum búningum og er að mæta á Wembley um helgina.

Semsagt, við erum að fara að mæta gríðarsterku liði sem hefur verið meðal efstu liða í deildinni undanfarin ár, á velli sem okkar mönnum hefur ekkert gengið neitt svakalega vel á síðustu árin.

Og hvernig er svo líklegt að Pochettino muni stilla upp? Í síðasta leik henti hann í 3-5-2, í leikjunum þar á undan var verið að henda í 4-4-2 (þar á meðal með tígulmiðju) en fjarvera Dele Alli gæti þýtt að það yrði að hrista upp í kerfinu frá síðasta leik, sem þar að auki tapaðist. Nú er undirritaður alls enginn sérfræðingur í því hvernig sé best að stilla upp liði Tottenham (og ósköp lítill sérfræðingur í uppstillingu annarra knattspyrnuliða ef út í það er farið), en gerum samt tilraun til að skjóta:

Vorm

Trippier – Alderweireld – Vertonghen – Rose

Dembéle – Eriksen – Dier – Lamela

Moura – Kane

Stilli þessu upp í klassísku 4-4-2, en þetta gæti vel orðið meira 4-2-3-1, og auðvitað skal alls ekki útiloka að 3-5-2 fái að halda sér, en þá myndi Sanches væntanlega mæta í miðja vörnina milli þeirra Toby og Jan.. Hér er ég að veðja á að Lamela sé orðinn leikfær, hann var að glíma við einhver meiðsli en æfði víst í vikunni.

Lærisveinar Klopp

Hinir rauðklæddu mæta í þennan leik með einn besta árangur síðustu ára eftir fjórar umferðir á bakinu: 4 sigrar, 9 mörk skoruð, eitt fengið á sig. Og samt vitum við alveg að liðið hefur í raun bara verið í 2. gír eða svo. Sem getur auðvitað bæði verið jákvætt og neikvætt, svigrúmið til að gefa í er talsvert, en ekki gott ef liðið er fast í þessum gír. Megnið af leikmönnum kom til baka úr landsleikjahléinu í vikunni, og reyndar mun Klopp ekki fá nema tvær æfingar með öllum leikmönnum til undirbúnings.

Meiðslalistinn hefur oft verið verri. Auðvitað tókst Lallana að meiðast í byrjun landsleikjahlés, og reyndar krækti Mignolet sér líka í eitthvað smá hjask á fingri og þurfti að draga sig úr belgíska hópnum. Það kom samt ekki í veg fyrir að hann mætti á æfingu í dag (miðvikudag), svo hann verður að öllum líkindum á bekknum. Fjarvera Lallana þýðir að það losnar pláss á bekknum, Maddock vill meina að Fabinho taki það sæti. Reyndar er það svo að Klopp mun örugglega stilla upp sínu sterkasta – eða allt að því – liði, enda gæti ég alveg trúað að nú setji menn höfuðáherslu á að ná góðum árangri í deild. En auðvitað vita menn vel af því að PSG mæta á Anfield á þriðjudagskvöldið. Ég hugsa að Klopp hugsi sem svo að liðið eigi alveg að ráða við að spila tvo leiki með rúmlega þriggja sólarhringa pásu á milli, enda skammt liðið á tímabilið.

Ég ætla því að spá sama byrjunarliði og síðast:

Alisson

TAA – Gomez – Van Dijk – Robertson

Winjaldum – Henderson – Milner

Salah – Firmino – Mané

Bekkur: Mignolet, Clyne, Fabinho, Matip, Shaqiri, Keita, Sturridge

Í ljósi væntanlegs leikjaálags er auðvitað allt eins líklegt að Klopp fari nú að rótera, t.d. gæti hann hent Keita aftur í byrjunarliðið. Hvað bekkinn varðar, þá miða ég við að taka Moreno af bekknum, síðast var Clyne sá sem fékk að færa sig upp í stúku. Veit ekkert um það hvorn Klopp vilji hafa til að geta skipt inná.

Þá er það spáin (mjög mikilvægt, og að sjálfsögðu er haldið bókhald yfir allar spár okkar kop.is penna, sama hvar þær koma fram). Einar Matthías vill meina að Alisson muni ekki fá á sig fleiri mörk. Eigum við ekki bara að segja að það sé rétt hjá honum, og að þetta fari 2-0? Mané með bæði mörkin.

Það væri a.m.k. æðislegt að vera komin með 15 stig eftir 5 leiki, og veitir víst ekki af miðað við liðin sem eru að narta í hælana á okkur.

Koma svo!

15 Comments

  1. Takk fyrir þetta. Huhm, held að Henderson og Milner verði ekki báðir í byrjunarliðinu að þessu sinni. En þó er aldrei að vita hvernig púslið hjá Klopp er fyrir næsta mánuðinn. Brjálað álag framundan.

  2. Sælir félagar

    Takk fyrir góða upphitun Daníel. Ég hefi svo sem ekki miklu við hana að bæta en trúi á sigur okkar manna. Annað hvort lið mun vinna þennan leik (?!?) og það stórt. Ég treyst því að það verði Liverpool og spái 1 – 4.

    Það er nú þannig

    YNWA

  3. Frábær upphitun eins og vanalega.

    “spilað á móti Tottenham, PSG, Milano, Southampton og Chelsea (tvisvar).” Á þetta ekki að vera Napoli en ekki Milano þarna eða er ég að rugla 🙂

  4. Sæl og blessuð

    Trúi ekki öðru en að við sjáum eitthvað af ónýttum fótum á morgun, svo ekki verði ónýtir fætur í lok þessarar tarnar. Fabinho verður í byrjunarliði með freyðandi sleftauma í munnvikum – hungraður í að sýna sig og sanna. Shaquiri röltir líka inn á völlinn með hinum.

    Nú þarf að sýna þeim hvítklæddu af hverju reginmunur er á góðu liði og afburðaliði: ,,Konu sem þekkt hefur ágætan mann, finst góður maður hlægilegur” sagði Laxness og það á við á fleiri sviðum lífsins.

  5. Geir #3: Æ þú veist þarna ítalska liðið sem er með sérhljóðana a, i og o í nafninu…

  6. þetta verður auðvitað hörku leikur, það er næsta víst. Sitthvort markmiðið verður hjá báðum, Tottenhan ætlar sér ekki að tapa tveimur leikjum í röð, meðan Liverpool vill vinna fimmta leikinn í röð, og halda stöðu sinni á toppnum. Hvort markmiðið verður ofan á á endanum er ?
    En ég hallast að sigri okkar manna 0-2.
    Have a happy saturday 11,30.

    YNWA

  7. Þetta verður hörkuleikur, það er næsta víst.
    1-2 stendur í kúlunni minni og sigurmarkið á 86.

    Þessi syrpa framundan er kærkomin og nóg að hreyfa til einn eða tvo á þeirri keyrslu.
    YNWA

  8. Gríðarlega mikilvægur leikur sem má helst ekki tapast, jafntefli væri nokkuð gott en ég held að við náum að merja sigur á frábæru liði spurs.
    Ég vil frekar sjá Klopp hvíla annað hvort Salah eða Mane á móti Psg og setja Shaqiri þar inn.
    Deildin er númer 1.2 og 3

  9. Þetta verður leikurinn sem Salah dettur í gírinn. 3-1 fyrir liverpool Salah með 2 og Firmino 1.

  10. Mig dreymdi í nótt hvernig leikurinn færi. Hann fer 0-1 fyrir okkar mönnum og Fabinho skorar ?

  11. Leikurinn er auglýstur kl. 11. 15 í fréttablaðinu í dag en hér til hliðar á síðunni stendur að hann sé kl. 12.30 svo hvort er rétt?

Gullkastið – Tottenham umræða

Byrjunarliðið gegn Tottenham