WBA og hinn eini sanni Pulis

Já, við erum varla búin að jafna okkur eftir heimsókn Tony Pulis Jr. með lið sitt, þegar hinn eini sanni birtist. Þrátt fyrir að þetta sé orginallinn, þá er hann með ansi mikið ódýrara lið, en byggir á sömu hlutunum. Nú fáum við að sjá fyrir alvöru hvort Jurgen Klopp hafi lært eitthvað af leiknum á mánudaginn. Má ég samt biðja um eitt? Vinsamlegast hefjið leikinn í fyrri hálfleik drengir, ég bara get ekki aftur að horfa á hálf máttlaust lið eiga aðeins 45 mínútur til að brjóta varnarmúrinn á bak aftur. Það er nokkuð ljóst að þeim mun fyrr sem menn ná að brjóta ísinn, því mun meiri eru líkurnar á að sópa þeim upp. Já, þetta er djúp lógík, ég veit. Við sáum þetta gerast gegn Hull og einnig gegn Leicester. Meira að segja á útivelli gegn Chelsea, þá var þetta einhvern veginn alltaf í öruggum höndum okkar eftir að hafa keyrt yfir þá af krafti í byrjun.

Þetta WBA lið er nokkuð vel mannað aftarlega á vellinum og viðurkenni ég fúslega að það er engin haka í gólf þegar maður kemst að því. Þeir eru með reynslubolta sem kunna enska boltann alveg frá a-ö. Yfirleitt kíki ég á Physioroom síðuna þegar ég á upphitun og það er ekki oft sem maður sér að það sé 0 í listanum hjá einhverju liði, en það er raunin með WBA, það eru allir leikmenn hjá þeim heilir og ekki einn einasti sem flokkaður er tæpur fyrir leikinn. Engu að síður verða þeir án Johnny Evans í vörninni, þar sem hann tekur út leikbann. Ætli við fáum ekki hinn bráðskemmtilega Jonas Olsson inn í hans stað. Þeir verða því væntanlega með Ben Foster í markinu og fyrir framan hann verða Craig Dawson, Gareth McAuley, Jonas Olsson og Allan Nyom. Það verða svo ekki margir metrarnir í þá Claudio Jacob og Darren Fletcher. Ætli þeir Chadli og Rondon teljist ekki vera mesta ógnin þeirra upp við okkar mark. Rondon er gríðarlega líkamlega sterkur leikmaður og Chadli er ansi seigur. McAuley er þriðji markahæstur hjá þeim, enda eru þeir ansi sterkir í föstum leikatriðum.

Lið WBA er ósigrað í 4 leikjum í röð í deildinni. Þrír síðustu leikir þeirra hafa endað með 1-1 jafntefli. Þeir náðu sterku stigi heima gegn Tottenham um síðustu helgi, en sóttu svo aðeins tvö stig í heimsóknum sínum til Sunderland og Stoke. Þar áður höfðu þeir flengt West Ham heima, en það hafa svo sem flestir stundað þá iðju þetta haustið. Þeir sitja í tólfta sæti með 10 stig eftir þessa fyrstu 8 leiki. Þeir hafa skorað 9 mörk en aðeins fengið á sig 8 mörk. Þessi tölfræði í byrjun tímabils segir mikið um þá, þetta eru baráttuglaðir leikmenn sem fórna sér öllum í verkefnið og fylgja ákveðnu skipulagi sem allir gjörþekkja út og inn. Tony Pulis er einn af morðingjum fótboltans, en hann má eiga það að hann stendur fast á sinni hugmyndafræði og hann hefur ekki sömu fjárráð og stóru liðin. Hann er sem sagt góður í því sem hann gerir, hversu leiðinlegt það er svo fyrir hinn almenna knattspyrnuunnanda. Þeir sem ráða hann vita vel að þeir eru ekki að fara að sjá liðið sitt spila einhvern Samba bolta, en mjög líklega halda þeir sæti sínu í deildinni. Ég persónulega mun ekkert gráta mig í svefn þegar Pulis og hans hugmyndafræði hætta afskiptum af knattspyrnu. Ekki það að góður varnarleikur geti ekki verið fínasta skemmtun, en þessi bolti hjá kappanum flokkast undir eitthvað allt annað. Breytingin frá mánudeginum er sú að við eigum alveg von á að WBA noti skyndisóknir og láti reyna almennilega á vörnina okkar.

Meiðslalistinn hjá Liverpool er bara óvenju lítill núna. Wijnaldum er stóra spurningamerkið fyrir leikinn, en eitthvað var einnig að angra Milner. Þar fyrir utan þá eru það bara Joe Gomez og Ojo, en það eru afskaplega jákvæðar fréttir af Gomez þar sem hann hefur hafið æfingar að nýju með aðalliðinu. Þessi stutti listi er afskaplega óvenjulegur þegar Liverpool á í hlut og er ég viss um að við þurfum ekki að bíða lengi eftir að sjá hann “eðlilegan” aftur. Karius mun halda sinni stöðu í markinu, tel það nokkuð ljóst fyrst hann hélt sinni stöðu í síðasta leik. Vörnin ætti einnig að vera algjörlega óbreytt, sé enga ástæðu til að hrófla neitt við henni. Hún er líklegast það jákvæðasta undanfarið, því hún virðist vera að ná að spila sig aðeins saman og mikið voðalega gott væri að það færi að komast á smá stöðugleiki þar. Það hefst fyrst og fremst með því að menn nái að spila sig saman nokkra leiki í röð og það virðist vera að gerast núna. Jordan Henderson er svo byrjaður að blómstra á ný sem aftasti miðjumaður og það er alveg fáránlega jákvætt, sér í lagi eftir að hann fékk (réttilega oftast) á sig mikla gagnrýni á síðustu tveim tímabilum. Adam Lallana VERÐUR svo að koma inn í sína stöðu á miðjunni, hann er að verða fáránlega mikilvægur sá drengur. Breytingin á liðinu eftir hans innkomu í síðasta leik var í raun rosalega, og ég hálf vorkenndi Daniel Sturridge að hann skildi skipta við hann, því hann leit enn verr út fyrir bragðið, er nokkuð viss um að hann hefði fengið úr meiru að moða með Lallana á miðjunni. Ég er svo aðeins í vafa með þriðju miðjustöðuna. Emre Can var ferlega dapur framan af leik gegn Man.Utd, en vann sig svo inn í hann. Spurningin er hvort það eigi ekki hreinlega að halda Coutinho á miðjunni og keyra á þetta WBA lið, halda áfram með þá Firmino og Mané úti á vængjunum og svo annað hvort Sturridge eða Origi á toppnum. Jú, Sturridge var ekki góður í síðasta leik, en í mínum huga er bara tímaspursmál hvenær hann hrekkur í gang í markaskoruninni og þá erum við komnir með eitt alvöru vopn til viðbótar. Finnst umræðan um endalok hans hjá Liverpool vera ansi hreint dapra eftir nokkra leiki án þess að skora. Komist hann í gír, þá er hann einn allra besti framherji deildarinnar. Annað sem mælir með því að Coutinho byrji leikinn er að Pulis sleppir oft miðjunni í sínu skipulagi, þ.e. boltanum er spilað yfir miðjuna og því varnarhlutverkið minna mikilvægt hjá mönnum eins og Coutinho og Lallana, þó það sé alltaf eitthvert. Mér finnst líklegt að Can byrji leikinn og að Sturridge setjist á bekkinn, en ég ætla engu að síður að stilla liðinu upp eins og ég myndi vilja sjá það í leiknum.

Karius

Clyne – Matip – Lovren – Milner

Lallana – Henderson – Coutinho

Mané – Sturridge – Firmino

Það má búast við því að okkar menn verði mikið með boltann og því skiptir gríðarlegu máli að menn séu að hreyfa sig hratt og mikið án bolta, reyna að teygja á skipulaginu hjá mótherjum okkar. Það mun reyna mikið á hugmyndaflugið hjá þessum tæknilega góðu mönnum eins og Firmino, Coutinho, Lallana og Mané. En við megum ekki gleyma okkur, ein dúndra fram völlinn á Rondon getur sett okkur í mikla hættu. Ég er orðinn aðeins rólegri yfir stórum og sterkum framherjum eftir komu Matip, en þetta er samt alltaf eitthvar sem blundar í okkur. Eins er það með föstu leikatriðin, þau eru ennþá gríðarlega mikil ógn og ég tala nú ekki um þegar lið er í heimsókn sem gerir út á slíkt. Karius, ég er að horfa til þín núna. Hann hefur verið smá hikandi núna í byrjun Liverpool ferilsins, en ég trúi því og treysti að það sé bara byrjendaskjálfti. Hann er búinn að mæta Man.Utd á Anfield, þannig að sá skjálfti ætti að fara að hverfa. Vonandi nær hann að halda markinu hreinu annan leikinn í röð af því að ég hef akkúrat enga trú á því að við eigum eftir að sjá annan leikinn í röð á Anfield þar sem við skorum ekki mark, ég bara neita að trúa því. Ég vil sjá okkur í virkilegri hápressu þegar við missum boltann, því þar liggja stóru tækifærin gegn svona liðum, refsa þeim strax aftur og um leið og þau telja sig hafa tækifæri á að sækja.

Ég er bara bjartsýnn á þennan leik og er svo sannarlega að vona að hann setji af stað góða sigurhrinu sem sýni okkur það að við séum að fara að setja mark okkar á deildina þetta árið. Leikirnir sem framundan eru í deildinni á eftir þessum heimaleik gegn WBA eru Crystal Palace (Ú), Watford (H), Southampton (Ú), Sunderland (H), Bournemouth (Ú), West Ham (H), Middlesbrough (Ú) og svo Everton (Ú) og þá erum við dottnir í jólavertíðina og stutt í að deildarkeppnin sé hálfnuð. Við vitum svo sannarlega að það er ekki hægt að telja nein stig fyrr en þau eru komin í hús, þessi leikur er nákvæmlega þannig. Það er þó algjörlega ljóst að verkefnin sem framundan eru, þau eru bara þess eðlis að ef menn halda rétt á spöðunum og spila af krafti, þá geta menn komið sér í þá stöðu að það verði um allt að keppa á nýju ári. Mikið væri það nú skemmtilegt að fara inn í janúar og allt opið í allar áttir. Ég ætla að spá því að tónninn verði gefinn á morgun og að við tökum Pulis og hans menn og flengjum þá í beinni útsendingu. Karius heldur hreinu aftur og við setjum 4 kvikindi í mark andstæðinganna. Firmino (2), Coutinho og Sturridge setja mörkin.

15 Comments

  1. Mér þykir 4-0 vera mikil bjartsýni. Sjálfur yrði ég afskaplega glaður með 1-0 eða 2-1. Ég yrði ekkert hissa þó þetta færi 0-0 eða 1-1 sömuleiðis. Glaðastur yrði ég nú samt ef okkar menn sýndu bara að þeir geta alveg unnið 4-0.

  2. Takk fyrir þetta fína yfirlit SSteinn. Þú ert bjartsýnn á leikinn og er það gott en ég held að þetta sé einn af þessum snúnu leikjum þar sem erfitt verður að ná í 3 stig. Liverpool virðist eiga í fullu tré við öll lið sem leika lipran og hraðan bolta en þegar liðin leggjast í vörn þá vandast málið. Frábært ef Lallana er heill heilsu því ekki veitir af leikni og útsjónarsemi hjá mörgum leikmönnum í svona leik. Held líka að hann skori mark og Sturridge setur annað. Tony Pulis karlinn má eiga það að hann fær yfirleitt býsna mikið út úr sínum mannskap þó fjármagn sé af skornum skammti. Minna lið hans svolítið á íslenska landsliðið á þeim tíma þegar liðið var mótast eftir að Lars kom til skjalanna. Legið í vörn og tiltölulega fáar sóknir nýttar býsna vel.

  3. Sælir félagar

    Takk SSteinn fyrir góða upphitun og sanngjarna spá. Ef okkur tekst að setja mark á þá snemma er líklegt að mörkin verði mörg. Ef hinsvegar gengur illa að brjótast í gegnum Pulis-strætóinn þá verða þau fá eða engin. Því er mikilvægt að brjótast snemma í gegnum vörn Pulis sem verður margmenn og vel skipulögð. Ég ætla að stóla á að það takist og spái 5 – 0.

    Það er nú þannig

    YNWA

  4. já, maður tók eftir því að menn sem gátu hraunað yfir Hodgson, Bruce, Pulis, Allardyce, Pardew ofl áttu það til að dásama Lars í næstu setningu.

    Svo er það spurning hvort Pulis myndi ekki spila skemmtilegri bolta en Mourinho ef hann hefði úr svipuðum leikmannahóp að velja.

    Þó maður eigi það til að bölva Pulis þá getur maður líka glaðst þegar hann hirðir stig af keppinautum okkar,, t.d. eins og gegn Spurs um sl. helgi.

  5. Takk fyrir frábæra upphitun!

    Núna vill ég fara sjá Ings í hóp og þá helst að byrja inná. Mér finnst það mætti alveg gefa honum séns á kostnað Sturridge eða Origi.

  6. Ég reikna með að E.Can(Wijnaldum ef heill) verði í liðinu og Coutinho verður færður fram á kostnað Sturridge.

    Þótt að við séum rosalega góðir að sækja þá má aldrei vanmeta andstæðinginn og mér finnst full djarft að hafa Coutinho/Lallana á miðsvæðinu en báðum finnst ekkert skemmtilegra en að sækja og það mikið. Þá er bara Henderson eftir til þess að passa uppá miðsvæðið.
    Svo að ég held að Henderson/Can(Wijnaldum) sé betra og það gefur Lallana enþá meiri frjálsræði á að sækja.

  7. Þetta verður ströggl og tekur á taugarnar en þegar við skorum verður það spurning hvað okkar menn hafa mikinn tíma til að gera fleiri. Verð á Siglufirði, hótel Sigló, hvar er best að horfa leikinn á Siglufirði. Fyrirfram takk fyrir góð svör á Kop við treystum.
    Björn

  8. Spái 1-1. Fáum á okkur eitt mark vegna klúðurs hjá Karius og einum varnarmanni en skorum úr vafasömu mjúku víti. #Antijinx

  9. Wijnaldum verður að byrja á kostnað Sturridge og þá með Firmino uppá topp með Kút og Mane sér við hlið… Hápressan virkar einna best með þetta lið sem og flæðið í sóknarleiknum

  10. Björn í bakaríið förum við og tökum þá í bakaríið. Kaldur á krana og allir glaðir. Bara mæta tímanlega.

  11. Sturridge hefur ekkert að gera að vera með. Það á bara að selja hann.

  12. Takk fyrir flotta upphitun.

    Sammála #5 varðandi Ings, inn með strákinn (á kostnað Origi eða Sturridge).

    Áfram Liverpool!

Vangaveltur í kjölfar United leiksins

Liverpool – WBA 2-1 (leik lokið)