Komdu með Kop.is á Anfield í janúar!

Áminning: Sala á þessari ferð er í fullum gangi!

Komdu með Kop.is á stórleik Liverpool og Manchester United á Anfield í janúar!

Þá er komið að næstu hópferð okkar. Við förum aðeins eina í vetur og hún verður ekki af minni gerðinni en við ætlum á leik Liverpool og Manchester United á Anfield helgina 15. – 17. janúar n.k.!

Til að bóka ykkar pláss í ferðina farið þá á vef Úrval Útsýnar og fylgið leiðbeiningum þar.

Dagskrá ferðarinnar í grófum dráttum:

  • 3 dagar, 2 nætur
  • Íslensk fararstjórn
  • Flogið með leiguvél á vegum Úrval Útsýnar og Kop.is, eldsnemma á föstudagsmorgni
  • Flogið verður beint á John Lennon Airport í Liverpool
  • Innritun á Thistle Atlantic Tower, 4-stjörnu hótel í hjarta Liverpool, fyrir hádegi á föstudegi
  • Skoðunarferð á Anfield fyrir þá sem vilja
  • Frjáls dagskrá á föstudegi
  • Morgunmatur, upphitun fyrir leik og stórleikurinn sjálfur á laugardegi
  • Frjáls dagskrá á sunnudegi
  • Flogið heim frá John Lennon Airport seint á sunnudagskvöldi

Fararstjórn að þessu sinni annast:

  • Babú
  • Kristján Atli
  • Maggi
  • SSteinn

Þið lásuð rétt, fjórmenningarnir verða allir með að þessu sinni og lofa frábærri skemmtun að venju!

Verð er kr. 159.900,- á mann í tvíbýli.

Við látum vita um nánari dagskrá og slíkt þegar nær dregur, til dæmis á eftir að koma í ljós hvort leikurinn verður færður yfir á sunnudag, en við hvetjum fólk til að hika ekki heldur bóka sitt pláss strax á vef Úrval Útsýnar.

Við hvetjum United-aðdáendur endilega til að koma með líka. Þetta verður frábær ferð og ekki síður góð fyrir t.d. vini sem halda með sitt hvoru liðinu. Við tökum vel á móti United-aðdáendum í þessari ferð!

8 Comments

  1. Hvenær eru menn að búast við því að það seljist upp á leikinn?

  2. er ekkert að gerast á síðuni þessa vikuna, engar fréttir af okkar mönnum með sínum landsliðum eða eithvað svoleiðis? 🙂

  3. Var að panta fyrir mig og konuna og vinahjón á leðinni að panta.
    Þetta verður snilld!

    Hvernig er það, búist þið við mörgum fótboltabullum frá litla liðinu í Manchester í þessa ferð?

  4. Islogi – við erum ekki með tölur yfir hverjir eru United-aðdáendur og hverjir ekki. En það verða allir Kop.is-arar í þessari ferð, því get ég lofað!

  5. lítð hægt að bóka sig í ferð á liverpool – man utd í jan þar sem það er uppselt á hótelin.

Opin þráður – Landsleikir

Opinn þráður