Byrjunarliðið gegn Boro’

Þá er komið í ljós hvernig Rodgers stillir upp í kvöld.

Mignolet

Manquillo – Toure – Sakho – Enrique

Rossiter – Lucas – Lallana

Markovic – Lambert – Sterling

Bekkur: Jones, Skrtel, Moreno, Williams, Suso, Borini, Balotelli.

Held allavega að við sjáum þetta svona, laga það þá til í leikskýrslunni.

Fyrirliði kvöldsins er Rickie Lambert. Það er örugglega í fyrsta sinn í sögunni að leikmaður sem er í fyrsta sinn í byrjunarliði Liverpool er jafnframt fyrirliði. Til hamingju með það Rickie.

Ljóst að þessi leikur er notaður í að gefa mínútur og koma mönnum í leikform sem minna hafa spilað. Á bekknum er 19 ára welskur strákur, Jordan Williams og Suso auk nafna sem töluvert hafa spilað.

Sjáum hvað verður.

92 Comments

  1. Strákar vitið þið hvernig best sé að nálgast miða á leik með liverpool ??

  2. Flott lið en hefði viljað sja suzo annars mjog sáttur. . Mignolet byrjar, pinu spes hefur ekki jones verið að taka þessa bikarleiki eg held það. Hann er kannski að reyna að stappa sjálfstrausti i Mignole ekki veitir af..

    Spai veseni i kvold samt og við vinnum i framlengingu eða vító 🙂

  3. Heppnismark er jafnmiki mark og annað mark, ég er ánægður með þetta eins og þetta er að spilast 🙂

  4. Þarf að labba með tuðruna inn í helvítis markið ??? Má ekki skjóta inni í teig ???
    Skrítið.

  5. Get ekki verið meira ósammála Hjörvar. Moreno er framtíðin.

    Annars er þetta flottur leikur, Liverpool stjórnar öllu.

  6. segi nu bara svona hef alltaf verið mikill enrique maður hann er svo mikið naut þessi gaur og skilar alltaf sinni varnarvinnu 100%

  7. Mignolet ótvírætt besti markvörðurinn á vellinum! Ósköp er Lambert lakur. Átti að vera plan B en er einhvern veginn bara B.

  8. Tetta er leikurinn sem Lallana turfti, hann er allt í öllu í tessu spili, hann verdur ad byrja næsta leik. Vill sjá sömu fremstu 3 med Balo uppá topp

  9. Enrique virkilega goður og hvort sem hann verður nr eitt eða 2 þa er ljost að við erum i toppmalum þarna i vinstri bakverði 🙂

  10. markovich verður að fara að sýna meira og standa undir sínum verðmiða lallana og lucas búnir að vera öflugir

  11. Lucas og Enrique búnir að vera öflugir í kvöld og gaman að sjá Rossi skora mark í sínum fyrsta leik.
    Nú þarf að halda hreinu og setja 2 í viðbót væri fínt.

  12. Kolo kallinn er sennilega sá eini sem eitthvað er hægt að setja út á

  13. Eigum við nokkuð að vera að leita að einhverjum til að setja út á, skemmtilegra að finna einhverja til að hæla.

    Hól fyrri hálfleiks fá Lucas, Lallana og Enrique. Lambert fær klapp á bakið, þetta kemur allt. 🙂

  14. Eg er ekki farin að örvænta neitt með Markovich en hann virðist þurfa tima, hugsanlega til að aðlagast bara, hann a heilan helling inni 🙂

  15. Rosalega er Liverpool farið að spila hugmyndasnauðan fótbolta í bland við eina allra verstu vörn Englands. Ótrúlega hægt allt saman!

  16. Lucas, Kolo, Enrique og Rodditer búnir að vera fínir en, Guð hvað Rickie Lambert, Markovic og Sakho eru búnir að vera slakir.

  17. Sammála varðandi hugmyndasnauð en hvað áttu við með eina allra verstu vörn Englands?

  18. Þessi varnarleikur,andstæðingurinn má bara ekki fá horn eða aukaspyrnu þá er allt í voða!!!

  19. lambert er ekki alveg að standa sig, hann má fara í frí fyrir mèr , ein heimskulegustu kaup sumarsins 🙁

  20. Mér finnst öll leikmannakaupin í sumar hafa klikkað, mér finnst ekkert af þeim sem komu í sumar hafa sýnt neitt.

  21. sjih hvað balotelli startaði þessari sókn m’boro fallega :/ nú verða menn að girða sig!

  22. Róa sig með Markovic hann er hvað 20 ara gamall og var að koma fra öðru landi, gefið honum allavega fram að áramótum 🙂

    Annars er þetta hundleiðinlegur leikur eins og siðustu 3 leikir 🙂

  23. Þvílík meðalmenska hjá Liverpool í þessum síðustu leikjum, það er eitthvað mikið að hjá liðinu, það er bara einn leikmaður búinn að spila á pari og það er Sterling aðrir geta bara ekki blautan.

  24. jahér. ættu ekki að vera komin amk 2 víti á þessar hendur á boro mönnum??

  25. Sæll öll,
    Enrique er vitlausu megin við manninn sinn í markinu. Enn og aftur grunndvallarmistök í varnarleik Liverpool.
    Rosalega hægur fótbolti hjá Liverpool. Liverpool getur ekki beðið eftir því að andstæðingurinn geri mistök, það þarf að þvinga hann til þessu með því að reyna á vörnina. Sorglega hugmyndasnauður sóknarleikur.

    Að lokum legg ég til að betri markmaður verður keyptur.

  26. Liverpool hefur legið í sókn en ekkert færi skapað, stjórnar miðsvæðinu algjöræega en vörnin, guð minn.

  27. Mér telst til að við ættum að hafa fengið a m k tvo viti, jafnvel þrjú. Þetta var allavega viti i lokin og þegar Lalana var tekinn niður

  28. ooooooooooog þarna sjáum við hvers vegna enrique er ekki byrjunarliðs. gerir svo margt svo vel – en rangar ákvarðanir eru aaaallt of stór hluti af hans leik

  29. Hey muniði í fyrra (þegar við þurftum að byrja í 2. umferð ), fórum í framlengingu á móti Nott. County. Það var nánast byrjunarliðið sem þurfti að hefja leik fyrir Liverpool, enda enginn breidd. Enginn Suarez, sem var í banni. Leikurinn vannst 4-2 og svo unnum við Man. Utd. með einu marki í næsta leik. Það getur allt gerst 🙂

    Liðið þarf tíma og við verðum að vera þolinmóð – sem getur verið krefjandi eftir frábært tímabil í fyrra. Mér finnst ósanngjarnt að dæma kaupin í sumar misheppnuð, það er 23. september.

  30. Ok markovich fékk opna bílskúrshurð inní teig en ákvað að hlaupa bara á varnarmann… Af hverju skaut hann ekki allavega??

  31. Ég er nú bara voða sáttur með að fá exta langan leik og mögulega bara skemmtilega vítaspyrnukeppni. Þetta er bara æði, svona á þetta að vera í hverri viku 🙂

  32. Þarna kom falleg sokn sem minnti sma a siðasta timabil.. koma svooo meira svona !!!

  33. Þetta er alveg heilalaust!!! Tímabilið í fyrra formlega staðfest sem ONE hit wonder tímabil

  34. Sterling verður að taka þetta á sig hann hefði átt að fara með boltann í stutt spil upp í hornfánan drepa leikinn þar. #reynsluleysi#19áragamall

  35. Hvað er Sterling að gera? Allt nema þetta, og Hann gerði það bara samt!

  36. Þetta er ekki boðlegt að bjóða fólki uppá svona rugl, Brendan er ekki að ráða við verkefnið sem stendur.

  37. þetta lið hefur ekki hefi til þess að lenda over í deildinni en 8 sæti omg

  38. Hneykslanleg frammistaða Liverpool eina ferðina enn. Það er RISA krísa í gangi á Anfield.

  39. Kolo búinn að vera fínn í kvöld að mínu mati, engan veginn hægt að kenna honum um þó hann hafi gefið vítið… Það er Sterling sem að á jöfnunar markið skuldlaust

  40. 71. Sendi Brendan þessa sendingu til baka? Tók Brendan manninn niður í teignum?

  41. þeir ættu að sleppa markmönnunum þeir gera lítið gagn hvort eð er

  42. Brendan fellur um nokkra punkta hjá mér eftir þennan leik. það er ljóst.

    Fyrir það fyrsta, af hverju að taka markovic útaf og halda Sterling inná þegar greinilegt var að hann átti ekki mikið eftir á tankinum.
    Svo eftir að þreyta Sterling fer virkilega að segja til sín og hann á 2 mjög slæmar sendingar og þar af aðra sem kostar okkur jöfunarmarkið, að láta hann taka vítaspyrnu númer 5 er með ólikindum.

    og þessi vítaspyrnukeppni… wtf..

  43. Við fengum þó allavega nóg af mörkum í kvöld, 31 mark, aldrei séð annað eins 😀

  44. frábær leikur, algerlega æðislegt. Vinnum allar dollurnar sem eru í boði! Endum á að verða heimsmeistarar!!! 🙂

  45. hahahaha held að eg se ekki i uppáhaldi hja folkinu i blokkinni eftir öll þessi fagnaðarlæti eftir hvert einasta víti glæsileg spilamennska hja liðinu gæti ekki verið meira sàttur klárlega top 4 i vetur vill minna alla skítahalsna herna inna að everton og arsenal töpuðu stay positive

  46. Það sem ég sá af þessum leik var margt fínt í gangi. Vörnin virkaði traust og margir leikmenn sýndu ágætistakta. T.d Lallana og svo nátturulega Sterling.

    Mér finnst eins og flest minni liðin í ensku deildinni ( og Chelsea) munu liggja aftarlega gegn Liverpool og láta Liverpool um spilið. Gæðin sem mér finnst vanta hjá Liverpool eru leikmenn sem eru góðir að senda boltann manna á milli gegn þéttri vörn. Reyndar hefur spil gegn þéttri vörn líka mikið með hlaup án bolta að gera og það vantar þessa lokasendingu sem gerir útslagið. Fannst Suso hafa þann eiginleika og það lagaðist líka margt í kjölfarið er hann kom inn á. Hann er allt öðruvísi en Marcovic – Ekki eins snöggur en með þeim mun betri sendingargetu.

    En það sem kemur á móti er að ég sá kafla í þessum leik – þar sem Liverpool var virkilega að yfirspila Middlesbrough. Í framlengingunni var Liverpool t.d miklu betra – en því miður þá sýndi gullmolinn okkar að hann er mannlegur í restina og við misstum leikin niður í jafntefli.

    Ef menn eru að að pirra sig yfir því að gera jafntefli í þessum leik -þá vil ég minna á að þetta var í raun varaliðið okkar sem var að spila. Einu þrír byrjunarliðsmennirnir sem byrjðuðu leikinn voru Sterling og Mignolet og Manquillo. Reyndar spilaði Lallana – en hann væri ekki í byrjunarliðinu ef allir menn væru heilir.

Middlesbrough í Capital One Cup á þriðjudag

Liverpool 16 – Middlesbro’ 15