Liðið gegn Ludogorets

Brendan Rodgers stillir þessu svona upp í dag:

Mignolet

Manquillo – Lovren – Sakho – Moreno

Henderson – Gerrard – Coutinho

Sterling – Balotelli – Lallana

Sem sagt Sterling kemur inn í stað Lazar sem er í banni.

Koma svo, byrjum þetta af krafti!

124 Comments

  1. Mér lýst vel á þetta lið, eigum að rúlla létt í gegn um þetta.

    Var samt að vonast eftir að Stevie myndi fá hvíld.

  2. Veit einhver hér um straum með sæmilegum gæðum fyrir þennan leik? livefootballol bara með einhverja frekar slappa í dag 🙁

  3. Hann stillir bara upp sinu besta liði sem er frábært, ekkert vanmat og skulum bara vona að okkar menn setji nokkur mörk 🙂

  4. Nr2!
    Það er til síða sem heitir frombar.com að mig minnir, þar eru fullt af linkum.
    veit reyndar ekki hversu góð gæðin eru. 🙂

  5. Fyrir þá sem eru með ITV stöðvarnar á gervihnattadiski, þá er þessi leikur þar.

    Razzgatið verður engin fyrirstaða og því spái ég 6-0.

  6. Wiziwig.tv er besta síðan, Svo er hægt að ná þessu í ótrúlegum gæðum með Acestream eða Sopcast

    Fiðrildi í maganum……..KOMA SVOOOOOOOOOOOOOO

  7. Þvílík gæsahúð að horfa á leikmenn liðsins undir hljóma CL lagsins! LOKSINS!!!

    Þessi leikur byrjar allavega betur en leikurinn á móti Aston Villa – leikmenn voru tilbúnir og Gerrard þurfti ekki að sækja menn inn í klefann!

    3-0 er mín spá – Balotelli (1) og Sterling (2)með mörkin – KOMA SVO!

  8. Spilum, spilum og spilum….. en engin ógn.

    Áhyggjuefni. Byrjum þar sem við enduðum Villa leikinn…

  9. Það er alveg yndislegt að sjá okkar menn aftur í CL þar sem að þeir eiga heima!
    🙂

  10. Viðurkenni pirring að sjá Sterling alltaf úti á kanti…

    Vill sjá hann frammi í 4-4-2….

  11. Manquillo mætti passa sig aðeins meira á að láta ekki toga sig svona endalaust út úr stöðunni sinni. Já og sá sem sagði að Balotelli nenni ekki að verjast skal éta hattinn sinn. 🙂

  12. Sa ekki fyrstu 3 leikina i deild en sa villa leikinn og þennan og finnst við bara daprir og hugmyndasnauðir

  13. Látið mig vita þegar það er tími til að panikka… -_-

  14. Biðst afsökunar á að henda fram svona fáránlegu kommenti. Þetta var skrifað í bræði þegar Lallana klúðraði dauðafæri. Ég tek þetta til baka og biðst enn og aftur afsökunar.

  15. Okkur sárvantar Suarez, hann er ástæða fyrir góðu gengi Liverpool í fyrra?

  16. Dómarinn hálf-slakur en jafnt á báða kanta.
    Þurfum þolinmæði og þá kemur árangurinn.

  17. rosalega er maður er orðinn þreyttur á eftirtöldu commenti:

    “rosalega söknum við Suarez”

    Hann er farinn!! Get over it!!

  18. Jæja, fyrsti fyrri hálfleikur okkar í meistaradeildinni í fimm ár. Finnst leikurinn bera þess talverð merki. Stress í okkar mönnum og greinilegt að þeir vilja alls ekki tapa þessum leik. Treysti á að við tökum þetta í seinni og smellum nokkrum boltum í netið fyrir framan Kop.

    Koma svo!

  19. Obboslega sem að Kúturinn hefur verið slappur bæði í dag og á móti Villa. Alltaf að reyna of mikið. Verst að þegar hann tekur “safe” sendingu þá misheppnast hún oftast líka. Magnað hvað hann er misjafn kallinn

  20. Coutinho búin að vera mistækur en bjó reyndar líka til besta færið okkar. Við tökum þetta í seinni hálfleik. Þeir brotna eftir fyrsta mark.

  21. Ahh gleymdi jákvæða púnktinum! Moreno er búinn að vera flottur!

  22. Jæja, eitt virkilega gott færi og Lúdó aldrei líklegir
    Hef ekki sérstakar áhyggjur af þessu, svo fremi sem við skorum.
    Hins vegar, ekki mikið að gerast fremst á vellinum, lúkkar frekar óáhugavert.
    Er þetta kanski af því að maður miðar alltaf við síðasta season?

    Captain Fantastic er síðan bara að spila eins og Captain Mediocre, at best…ó hvernig tíminn líður, skipting takk

  23. #35 datt einu sinni út, þá dugði að refresha. Er í lagi eins og er hjá mér.

  24. Finnst Brendan vera að klikka aftur. Hann er greinilega búinn að leggja upp fyrir tímabilið að spila 4-3-3 sem hefur ekkert gengið eins og í þessi leikur en og aftur undirstrikar. Hann datt á lausnina á móti Spurs en er of þrjóskur að breyta frá upphaflegu áætlunum sýnum. Lallana er greinilega ekki tilbúinn, þannig útaf með hann og annan striker inná í 4-4-2 með tígulmiðju, það sjá þetta allir!!!

  25. Hefur Liverpool farið svona hrikalega aftur? Suarez farinn ásamt allri getu! Grautfúlt

  26. Rosalega eru Liverpool lélegir núna, þetta er sami pakkinn á móti Villa um helgina.

  27. Mér er fyrirmunað að skilja Coutinho inni á þessum velli.

    Því miður.

  28. Flott skipting, Lallana orðinn þreyttur og Coutinho úti að aka, Vill sjá Borini bíta í krumluna á sér!!!

  29. kútur fyrir lúkas?
    Veit að brassinn er ekki búinn að sýna sitt besta í kvöld…en whaaat? Við þurfum mark!
    Láttu mig éta hattinn minn BR!

  30. Hvað er málið er verið að pakka í vörn sóknarsinnaður út varnasinnaður inn????? Hvað er í gangi er Brendan bara sáttur við jafnteflið?

  31. Sjúses! Við erum á rúllandi rassgatinu.

    Fokk hvað fallið er hátt frá því á síðasta tímabili.

    Lélegt! HUNDlélegt.

  32. Liverpool hefur ekkert að gera í þessari keppni, erum að spila hræðilegan bolta, þetta er til skammar!!!????????????????????????????????

  33. Þegar Lucas er farinn að skjóta á markið, þá er örvæntingin búin að ná hámarki.

    Það er agalega pínlegt að horfa á liðið okkar þessa dagana.

  34. Úfff….. Held að það sé tími núna til að … leggjast í gólfið af angist…. -_- Er það bara ég eða eru sóknaraðgerðir Liverpool á síðasta fjórðungi vallarins fyrirsjáanlegri en liturinn á búningum leikmanna…. ??

  35. Suarez er ekki bara farinn, hann er líka í banni og hefði ekki verið í liðinu í kvöld.

    Við söknum örugglega öll Suarez, öll lið myndu sakna leikmann í hans gæðaflokki eins og margoft hefur verið farið yfir á þessari síðu og víðar – en er ekki kominn tími til að sleppa takinu?

    Ég sakna meira Sturridge, sem er enn leikmaður Liverpool.

    Það er meiri skjálfti í liðinu en ég átti von á sem sýnir sig helst í spá minni fyrr í kvöld, þá var ég í meistaradeildarvímu eftir að hafa hlusta á CL lagið á repeat í dag.

  36. Super Mario! Sá velur tímann!

    Ps. meira örlagavælið hérna fyrir ofan. Ákvað að líta ekki á síðuna fyrr en nú, þar sem ég bjóst við u.þ.b. þessum grátkórslevels.

  37. Jááááá – nú held ég að einhverjir í blokkinni hafa fengið vægt sjokk !!!

    KING BALO!!!!

  38. Allir að æpa Balotelli en ég segi bara Alberto Moreno!!!!! bjargaði big time

  39. Smjörþefinn af þessu var hægt að finna eftir frammistöðu leikmanna í 80 mínútur…

    FOKK!

    GRÚTLÉLEGT LIÐ Í DAG

    ÖMURLEGIR Á ALLAN HÁTT

  40. Guð minn eini…. eruð þið ekki að djóka í manni…..

  41. Hahah, svei! Klaufalegt, en gestirnir framkvæmdu þetta óaðfinnanlega frá A til Ö, mjög góður counter. Liverpool of graðir þarna.

  42. Og þetta tek ég ekki til baka né biðst afsökunar. Þvílíkur aumingjaskapur!

  43. Hvað er í gangi, hvernig getur eitt lið breyst svona mikið á milli tímabila, jú Tottenham lenti í þess þegar þeir seldu Bale.
    Liverpool er í slæmum málum þó að þeir skori úr þessu víti

  44. Þetta er ekki hægt með Mignolet, gerir aftur og aftur svo mikil grundvallarmistök að hálfa væri miklu meira en nóg!

  45. Hlaut að koma að því að það borgaði sig að hafa svona viljugan Borini í liðinu.

  46. Jæja…

    Rodgers hefði að mínu mati átt fyrir löngu að vera búinn að þétta þetta lið…

  47. Áttum þetta ekki skilið…

    ógeðslegur leikur í dag á allan hátt og púllarar mega skammast sín.

    Ég geri það allavega.

  48. Vá, þvílíkur hasar! Bakverðirnir flottir. Moreno er eina klára bætingin á starting XI sem við fengum í glugganum – og engin smá bæting, m.v. sumt af því sem hann er búinn að sýna. Reyndar hef ég lítið við þetta að athuga, við vorum með NÆFURÞUNNT lið og þurfum nauðsynlega á breiddinni að halda.

    En já, sigur er sigur. Ekki var þetta nú mjög sannfærandi samt. 🙂

  49. Ég hálf vorkenni Ludo mönnum eftir þennan leik þeir áttu skilið að fá meira út úr þessum leik.
    En ég er gríðarlega ánægður með þennan sigur maður!!

  50. Stend við það sem ég sagði áðan Moreno var besti maðurinn á vellinum í dag . Frábært að Balo skoraði og Gerrard skorar ALLTAF úr víti það er bara þannig.

  51. Maður vorkennir hreinlega hinu liðinu, áttu svo sannarlega skilið að lágmarki stig. Greyið markmaðurinn :/

  52. 3 stig, bað ekki um meira, fékk ekki meira.

    Til hamingju kæru púllarar! Í lok tímabils munum við bara eftir stigunum en ekki spilamennskunni.

  53. Fótbolti er 90 mín +…takk Gerrard að troða feitum ullarsokk uppí marga neikvæðnispésa…..:)

  54. Vá hvað það eru margir hérna sem mættu bara allveg sleppa því að tjá sig, ótrúlegt hvað menn geta verið neikvæðir. Áfram Liverpool

  55. Alveg greinilegt að það eru öfundsjúkir andstæðingar okkar sem eru ekki að spila í meistaradeild á þessu tímabili að commenta hér inni.

  56. sjálfstraust og samspilun er ósköp lítil í okkar liði. Allir eru að læra hver á annan, allt tekur of mikla orku og er ekki fókuserað né nákvæmt. eins og að spila lag eftir nótum, en ekki eftir kunnáttu eða minni – það er ekkert í puttunum. ennþá.

    aðeins tíminn mun laga það – og vonandi tekst mönnum að berja sig saman og kreista út stigin þar til að þetta fer að verða auðveldara.

    breytingin á liðinu er svo rosaleg – það er bara þannig. leiktíðin verður okkur púllurum erfið.

  57. 5 leikir búnir hjá Liverpool á tímabilinu. Aðeins einn verið góður (gegn Spurs). Aðrir slakir.

  58. Sæll öll,

    A.Moreno með stórleik og lýtur mjög vel úr í augnablikinu.

    Ég legg svo til að betri markmaður verður keyptur.

  59. Verið úti og vælið þar. Hér er meiri neikvæðni og bölsýni en á öllum kommentakerfum landsins samanlagt. Styðjum okkar lið í gegnum þykkt og þunnt.The only way is up. YNWA

  60. hahahaha þvílíkir kúkalabbar sumir herna inna hvort þetta séu gúmmípúllarar eða utd menn veit eg ekki

  61. Bylgjan að gera upp á bak núna í morgunsárið með því að fá United manninn Þráinn til að fara með íþróttafréttir. Skv. Bylgjunni rétt marði Liverpool leikinn með óverðskulduðu víti. Hvað var að vítinu? Eitt að menn fari með svona vitleysu á kaffistofum landsins, en annað í útvarpi.

  62. Hvað er það annað en að merja sigur þegar leikurinn vinnst með einu marki, vítaspyrnu á síðustu sekúndunum í uppbótartíma?
    Hafi Þráinn sagt þetta þá held ég að það sé nokkuð rétt sagt frá burtséð með hvaða liði hann heldur í enska boltanum.
    Liðið spilaði ekki nógu vel en þrjú verðmæt stig í hús og nú er að horfa fram á veginn, nýr leikur eftir nokkra daga og hann verður að vinnast.

  63. Ludicrous rassgat þessi leikur, en sigurinn vannst. Nú þarf liðið bara að kreista fram ljóta sigra þar til spilamennskan batnar. Það mun gerast. Höldum í bjartsýnina. YNWA.

PFC Ludogorets frá Razgrad

Liverpool 2 – Ludogorets 1