Tottenham upphitun – leikmannaglugginn

KOMDU MEÐ KOP.IS Á ANFIELD!
SJÁ UPPLÝSINGAR HÉR!

“Liverpool invested a lot of money this summer and we went another way. We believe in our squad and added some players for the balance.”
– Mauricio Pochettino stjóri Tottenham.

Þetta sagði stjóri Tottenham bara orðrétt ári eftir að félagið sólundaði Gareth Bale peningunum sínum í leikmenn sem áttu nánast allir vægast sagt vont tímabil. Ég er ekki að segja að þetta sé rangt hjá honum en elsku vinur skrúfaðu niður í hræsninni, þetta er á Alex Ferguson leveli. Tottenham var ekki einu sinni að stækka hópinn sinn fyrir Meistaradeildina á síðasta tímabili.

Þessi upphitun verður þríþætt, fyrst hefðbundin yfirferð á okkar mönnum, því næst skoðum við Tottenham og þá með áherslu á stjórann þeirra. Að lokum skoðum við helstu fréttir af leikmannamarkaðnum sem lokar eftir helgi.


Liverpool

Pochettino er ekki að ljúga, Liverpool er búið að fjárfesta töluvert í sumar, svo mikið raunar að margir tala um þetta sem Tottenham sumar hjá okkar mönnum. Ennþá eigum við eftir að sjá tvo spennandi leikmenn spila fyrir félagið og þeir gera það líklega báðir um helgina. Adam Lallana er farin að æfa aftur eftir smávægileg meiðsli og verður í hóp á morgun. Hann er dýrasti leikmaður þessa sumarglugga og einn af þremur leikmönnum Liverpool með innherja upplýsingar um Pochettino, já og einn af a.m.k. þremur aðdáendum hans innan herbúða Liverpool.

Hinn leikmaðurinn sem við eigum eftir að sjá spila fyrir Liverpool er Mario Balotelli og er óhætt að segja að eftirvæntingin fyrir honum er gríðarleg á Merseyside. Báðir stjórar hafa reynt að draga úr mikilvægi hans í þessum leik, Rodgers segir að Liverpool snúist ekki um Balotelli heldur liðið í heild og Pochettino sagði að Balotelli væri frábær leikmaður en ekkert auka áhyggjuefni fyrir sína menn. Hann væri mikilvægur Liverpool en ekki Tottenham.

Fair enough, en mikið vona ég að allar fyrirsagnir eftir leik verði um Mario Balotelli, þá á baksíðum blaðanna fyrir frábæran leik, ekki á forsíðunni fyrir eitthvað ævintýralega vitlaust. Fyrsti leikur Balotelli er alltaf að fara snúast að stórum hluta um hann, a.m.k. í aðdraganda leiksins, hvað sem hver segir.

Síðasti leikur var okkar mönnum ansi dýrkeyptur, fyrir það fyrsta tapaðist þessi sex stiga leikur illa og ofan á það misstum við þrjá byrjunarliðsmenn í meiðsli, allt varnarmenn. Það er alltaf vont að þurfa hrófla mikið við vörninni, líka vörn Liverpool og vonandi erum við nú með næga breidd til að bregðast við þessu. Glen Johnson er pottþétt ekki með á morgun þó meiðsli hans séu ekki talin mjög alvarleg. Alberto Moreno er ekkert búinn að æfa í þessari viku en er að ná sér og gæti náð leiknum gegn Tottenham, ef ekki þá er Jose Enrique klár í slaginn og búinn að æfa alla þessa viku. Martin Skrtel meiddist einnig gegn City og er sagður tæpari en Moreno að ná þessum leik. Það er til lagar af leikmönnum til að fylla skarð Skrtel, lager sem gæti reyndar verið að minnka töluvert núna um helgina.

Hópurinn er annars í nokkuð góðu standi, það er langt síðan liðið spilaði síðasta leik í samhengi við hvernig þetta tímabil verður og það er mjög langt í næsta leik. Rodgers er líklega ekki að fara breyta miklu fyrir þennan slag að ég held, nema vegna meiðsla sem hann hefur ekki stjórn. Eina fyrir utan meiðsli er að ég held að Mario Balotelli fari beint í byrjunarliðið og Liverpool leggi upp með tígulmiðju.

29.08.14 - Gegn Tottenham

Liverpool hefur byrjað þetta tímabil full rólega m.v. stemminguna á síðasta tímabili og nú er kominn tími og mannskapur til að sækja aftur. Þetta var mjög þunglamalegt gegn Southamton með Gerrard og Lucas á miðjunni. Skárra að mörgu leiti gegn Man City en alls ekki nógu gott. Núna þarf að setja sóknarvélina í gang og ég tippa á að Rodgers geri það á móti Tottenham.

Mignolet virðist ætla að verða markmaður Nr.1 í vetur að öllu leiti án samkeppni, sá þarf að stíga upp ef þetta á ekki að verða hans lokatímabil sem markmaður nr. 1 hjá Liverpool.

Ef Skrtel er frá er þessi leikur risastórt tækifæri fyrir Mamadou Sakho. Margir vilja reyndar fá hann inn í liðið hvort sem Skrtel er meiddur eða ekki og ég rétti upp hönd með þeim hópi. Komi Sakho inn fer Lovren hægra megin í vörnina sem er ekki hans staða en ætti að vera honum eðlilegri þar sem hann er jafnfættur.

Bara ekkert Kolo Toure grín Brendan!

Moreno verður á sínum stað ef hann er heill og væri það til marks um hversu langt hann er þá kominn á undan Enrique í goggunarröðinni. Enrique hefur ekki verið í hóp það sem af er þessu móti en á að vera tilbúinn ef kallið kemur, vonandi eru fréttir þess efnis að hann fari í þessum glugga ekki sannar enda þurfum við augljóslega þessa breidd.

Rodgers virðist síðan treysta hinum unga og óreynda Manquillo vel og hann ætti að vera öruggur inn ef Johnson er meiddur. Jon Flanagan er auðvitað ennþá á meiðslalistanum líka, Wisdom er farinn á láni og það er búið að selja Kelly.

Gerrard þarf að sinna sínum varnarskyldum mun betur en hann hefur verið að gera í fyrstu tveimur leikjunum og það er alveg ljóst að Pochettino leggur upp með að sækja á þau svæði sem Gerrard skilur eftir sig milli varnar og miðju. 4-2-3-1 kerfið með fimm miðjumönnum sem pressa ætti að henta mjög vel til að gera einmitt þetta og hef ég þar sérstaklega áhyggjur af Eriksen.

Mögulega heldur Joe Allen sæti sínu og Coutinho verður sá sem víkur fyrir Balotelli. Ég hef þó verið að segja það eftir síðustu tvo leiki að Coutinho þurfi að fara aftur í þá stöðu sem hentaði honum svo vel á síðasta tímabili og það er á miðjunni. Hann þarf svo sannarlega að bæta sinn leik engu að síður. Henderson er sjálfvalinn við hliðina á honum.

Tígulmiðjan er það kerfi sem hentar Sterling hvað best og verður spennandi að sjá Sterling með Balotelli og Sturridge fyrir framan sig. Hann hefur ekki verið nóg í boltanum í fyrstu tveimur leikjunum og of auðvelt að klippa hann út. Þetta er öllu meira mál þegar hann er í holunni.

Lallana verður pottþétt á bekknum í þessum leik sem eykur breiddina til muna. Ef Rodgers hættir ekki á það að láta Balotelli byrja þennan leik fáum við annaðhvort Lambert inn í sama hlutverk eða (það sem er líklegra) Lazar Markovic. Serbinn getur farið bæði á vænginn og í holuna. Þetta er aðeins betri breidd en Aspas og Moses. Þá væru Emre Can og Allen einnig á bekknum.

Síðasta tímabil hefur nákvæmlega ekkert að segja á morgun, þetta er nýtt Liverpool lið og þó mannskapurinn sé svipaður þá er þetta allt annað Tottenham lið líka. Liverpool vann 0-5 á White Harte Lane í fyrra og 4-0 á Anfield. Andre Villas Boas var rekinn eftir tapið heima á meðan Sherwood notaði tækifærið meðan hann kom á Anfield sem stjóri að sitja uppi í stúku til að læra betur, enda var útreiðin sem Tottenham fékk í þessum leikjum ekkert annað en kennslustund

Spá: Liverpool var búið að tapa 5-6 leikjum í röð á White Hart Lane áður en Brendan Rodgers Liverpool mætti þangað í fyrra. Liverpool er ekkert að fara vinna þetta með fimm mörkum á morgun en ég held að við vinnum þetta nú samt. Europa League leikur Tottenham situr vonandi í þeim líka frá því á fimmtudaginn og truflar undirbúninginn fyrir þennan leik.

Segi 1-2 sigur eftir þriðju undir væntingum frammistöðu tímabilsins. Balotelli og Sterling skora mörkin.


Tottenham

Tottenham stillti að mestu upp varaliði á fimmtudaginn gegn félagi sem minnir mann á dimmu dagana er Liverpool tók þátt í Europa League, AEL Limassol.

Það er fyndið að heyra stjóra Spurs stæra sig af því að kaupa enga leikmenn og treysta á þá sem fyrir eru en segja má að núna séu þeir loksins að njóta góðs af þeim leikmönnum sem keyptir voru fyrir síðasta tímabil. Pochettino má samt eiga það að með hann á hliðarlínunni vikar mun meiri ógn af Tottenham heldur en á síðasta tímabili, ekki það að heppnissigur á West Ham og góðir sigrar á QPR og Limassol sendi mann hlaupandi á klósettið af stressi.

Miðað við síðustu leiki sé ég lið Tottenham ca. svona fyrir mér
29.08.14 - Lið Tottenham

Hvernig Tottenham er að ná að halda Hugo Lloris annað tímabil utan Meistaradeildarinnar skil ég ekki alveg en þar held ég að þeir séu með næstbesta markmann deildarinnar. Eric Dier hefur komið með miklum látum inn í enska boltann og skorað í báðum fyrstu deildarleikjum sínum. Hann ætti að halda sinni stöðu í hægri bakverði, Rose eða Ben Davies berjast um stöðuna vinstra megin á meðan.

Michael Dawson fyrrum fyrirliði Tottenham er því miður farinn til Hull og vörn þeirra því ekki jafn svakalega hæg fyrir vikið. Kaboul og Vertonhen verða líklega á sínum stað.

Bentaleb spilaði síðasta leik á miðjunni með Capoue, þá voru Sandro, Paulinho og Dembele fyrir utan liðið. Það er fínasta breidd og þeir voru að selja Gylfa Sig. Ég tippa á að Dembele komi inn í þessa viðureign fyrir Bentaleb. Capoue er einn af þeim sem keyptur var inn í fyrra en var meiddur stóran part tímabilsins.

Chadli skoraði tvö mörk í síðasta leik og virðist vera að aðlagast enska boltanum betur núna en á síðasta tímabili. Lamela var allt í öllu í síðasta leik og það er eins og við söðgum svo oft í fyrra, alvöru mjög góður leikmaður. Hann er heldur betur heill heilsu núna og verður líklega besti leikmaður Spurs í vetur. Eriksen gerir einnig tilkall þar og þeir rótera stöðum á því svæði sem mig grunar að Gerrard verði uppálagt að verja.

Adebayor var í byrjunarliðinu síðan fram yfir Kane og Soldado og verður það líklega einnig núna. Það er leikmaður sem svipar til Balotelli að því leiti að stundum virðist hann bara ekki nenna þessu. Óstöðvandi þegar hann hinsvegar er rétt stilltur.


Stjóri Tottenham

Mauricio Pochettino er mjög spennandi stjóri sem hefur stimplað sig rækilega inn í enska boltann á skömmum tíma. Hann tók við liði Southamton sem var ekki talið í teljandi veseni af Nigel Atkins sem hafði farið með þá upp um tvær deildir. Ákvörðun Nicola Cortese framkvæmdastjóra Southamton var alls ekki vinsæl á Englandi og því töluverð pressa á Pochettino að standa sig. Núna 18 mánuðum seinna er hann kominn með mun stærra félag og það man enginn eftir Atkins.

Pochettino skilur ensku vel og hefur talað tungumálið við sína leikmenn síðan hann kom til Englands. Viðtöl hefur hann þar til nú hinsvegar alltaf tekið á Spænsku. Þessi fyrrum Argentínski harðjaxl er 42 ára og spilaði nánast allann sinn feril í Barcelona borg á Spáni utan nokkurra ára í Frakklandi með PSG. Trikkið er bara að hann spilaði fyrir hitt liðið í höfuðborg Katalóníu, Espanyol.

Frá 1999 – 2002 spilaði Pochettino 20 landsleiki fyrir Argentínu og var í hjarta varnarinnar er liðið féll út með skömm á HM 2002. Hann hætti að spila árið 2006, þá 34 ára gamall og sneri sér að þjálfun.

Pochettino var í janúar 2009 ráðin stjóri Espanyol sem var í þriðja neðsta sæti og áður búið að skipta um stjóra á þessari sömu leiktíð. Hann tók við liði sem innihélt 9 leikmenn sem hann spilaði með áður, breytti alveg um leikstíl og sneri gengi félagsins við þannig að þeir enduðu í 10. sæti löngu öryggir frá fallsvæðinu. Árið eftir var liðið á svipuðum slóðum og að spila skemmtilegan fótbolta, það tímabil fékk m.a. hinn 19 ára gamli leikmaður Inter, Philip Coutinho fyrst séns í Evrópu en hann var lánsmaður frá janúar 2012 og stóð sig mjög vel.

Eftir 13 leiki á sínu þriðja tímabili var Espanyol í neðsta sæti með 9 stig og var Pochettino rekinn í nóvember 2012. Hann var því ekkert augljóst val fyrir Southamton þremur mánuðum seinna og maður skildi alveg Englendingana sem blöskraði það að efnilegum enskum stjóra með frábæran árangur væri sparkað fyrir mann með ekki merkilegri ferilsskrá.

Ef það er eitthvað til sem heitir gamli skólinn í þjálfunarfræðum þá held ég að það sé óhætt að segja að Pochettino sé af nýja skólanum. Hann er reyndar grjótharður hvað æfingaprógrammið varðar og hefur sín lið í eins góðu formi og mögulegt er.

James Ward-Prowse miðjumaðurinn ungi sagði að það væri stundum eins og menn þyrftu tvö hjörtu til að þola æfingarnar hans og spilastíl. Hann er hataður á æfinasvæðinu frá mánudögum til föstudags en elskaður á leikdegi.

Á æfingatímabilinu fyrir síðasta tímabil voru oft þrjár æfingar á dag og miklu meiri kraftur og ákafi settur í þær en áður þekktust hjá Southamton. Þeir mættu á æfingu frá 10-12 aftur frá 14-16 og svo í þriðja sinn milli 18 og 20. Pochettino mætir klukkan 7 alla daga og er aldrei farinn fyrr en í fyrsta lagi 12 tímum síðar.

Þegar tímabilið byrjar slakar hann aðeins á álaginu en heldur mönnum samt alveg í rúmlega topp standi líkamlega. Gary-Taylor Fletcher fengi t.a.m. ekki margar mínútur á æfingasvæði Tottenham, það er ljóst. Dæmigerð vika hjá Southamton og Espanyol var þannig að á mánudögum var hvíld. Þriðjudaga og miðvikudaga var allt sett í botn á æfingasvæðinu og tekið 2-3 æfingar á dag. Á fimmtudögum voru léttari æfingar og á föstudögum var farið í taktík með áherslu á andstæðinga morgundagsins. Rétt eins og á við um alla aðra andstæðinga Liverpool þá má gera ráð fyrir að búið sé að kortleggja leik okkar manna niður í smáatriði fyrir morgundaginn.

Dani Osvaldo sem spilaði með honum hjá Espanyol og Southamton sagði að hann hefði látið alla leikmenn æfa með GPS flögu og mælt þannig niður í smáatriði hreyfingar þeirra á æfingum og væri svo með IPad til að greina þeirra framlag í leikjum. Þetta er auðvitað engin bylting í þjálfun núna en eitthvað segir mér að t.d. Sherwood eða Redknapp forverar hans hjá Tottenham hafi ekki mikið verið að velta svona hlutum fyrir sér.

Osvaldo sagði að hann hafi stundum langað til að ganga frá Mauricio Pochettino á æfingum en sagði jafnframt að þær virkuðu, ekki að það væri að sjá í fyrra hvað Osvaldo varðar.

Ein gagnrýni sem Pochettino fær er að hann heldur uppá vissa leikmenn og er íhaldssamur á byrjunarliðið, eitthvað sem gekk upp hjá Southamton sem hefur ekki það stóran hóp en gæti orðið verra hjá Tottenham sem hefur fleiri stór nöfn sem halda þarf góðum.

Ef við ættum að líkja leikstíl Pochettino við einhvern þjálfara þá væri það líklega einmitt Brendan Rodgers og það er nákvæmlega engin tilviljun að Liverpool hafi keypt þrjá leikmenn sem spiluðu vel hjá honum í fyrra. Líkt og Rodgers er hann óhræddur við að gefa ungum heimamönnum séns og þróa þá áfram eftir sinni hugmyndafræði. Hann vill raunar helst hafa unga leikmenn í góðu formi sem eru tilbúnir að hlaupa allar 90 mínúturnar og trúa 100% á hans leikstíl. Eitthvað sem honum tókst hjá Southamton.

Southamton er tiltölulega nýkomið í Úrvalsdeild og ennþá að ná fótfestu, strax á sínu öðru tímabili var hann reglulega með hinn 19 ára James Ward-Prowse í liðinu. Hann gaf einnig Calum Chambers 19 ára tækifæri, hann fór á góðan pening til Arsenal og beint í liðið hjá þeim. Luke Shaw var lykilmaður 18 ára og hljóp upp og niður vænginn, ekki trúa orði af því sem Van Gaal segir um að hann sé ekki í formi, en þar er enn einn ungi enski leikmaðurinn sem fékk 100% traust hjá Pochettino. Sam Gallagher 18 ára sóknarmaður fékk nokkrar mínútur í fyrra og eins hinn 19 ára miðjumaður Harrison Reed.

Ef ekki hefði verið fyrir ótrúlegt sumar hjá Southamton væri Pochettino að skilja við þá í toppmálum til framtíðar eftir 18 mánaða starf. Þetta er auðvitað alls ekki honum einum að þakka en hann á sinn þátt í bæði uppgangi Southamton og því verði sem þeir eru að fá fyrir sína leikmenn núna.

Lið Pochettino spila hið Spænska 4-2-3-1 kerfi, lagt er upp með að vera í topp standi og pressa andstæðinginn út um allann völl og linna ekki látum fyrr en boltanum er náð. Svipað og hugmyndafræði manna eins og Guardiola, Klopp og Rodgers gengur út á.

Hann er vanalega með einn uppi á topp og þrjá sóknartengiliði fyrir aftan hann. Ekkert kick and run heldur er lagt upp með að spila boltanum. Þegar Lloris tekur markspyrnur er lagt upp með að gera eins og Barcelona, miðverðirnir draga sig út á vængina og fá boltann þar meðan bakverðirnir fara hátt upp og styðja við miðjuna sóknarlega. Það gæti t.a.m. útskýrt hvern fjandan bakvörðurinn Eric Dier var að gera allt í einu fremstur gegn West Ham er hann lokaði þeim leik.

Jay Rodriguez stórbætti leik sinn á síðasta tímabili og var mjög óheppinn að vera ekki í Brasilíu í sumar vegna meiðsla. Hann er mikill aðdáandi Pochettino og orðaði það svona fyrir stuttu

‘He brought the best out of me and gave me self-belief, To work with him was brilliant, it was hard work but the lads loved it and we got results.

‘His tactical awareness gave you confidence, you wanted to go out for him because he’s such a great guy. You can talk to him. The players respected him so much.’

Leikmenn Southamton voru tilbúnir að ganga yfir eld og brennistein fyrir hann, nánast

Daniel Levy hefur rekið 8 stjóra frá Tottenham á 13 árum, ég skal viðurkenna að ég mun ekki gráta það þegar hann rekur Pochettino, ég hef bullandi trú á þessum stjóra.


Leikmannaglugginn.

Höfum þennan þráð opinn fyrir leikmannagluggann líka, það er mikið að gerast bak við tjöldin en aldrei þessu vant er Liverpool líklega búið að græja öll sín innkaup fyrir síðasta dag og enginn með teljandi væntingar um að eitthvað stórvægilegt gerist í þeirri deild. Hinsvegar gætu nokkrir verið á leiðinni frá félaginu, bæði á láni og fyrir fullt og allt.

Daniel Agger.
Mjög óvæntar fréttir herma að Liverpool hafi tekið tilboði frá hans gamla félagi Bröndby upp á 3m um að kaupa hann. Þetta væri auðvitað gjafaverð fyrir Agger sem er ekki orðinn 30 ára en segir kannski líka hversu langt frá því hann er að vinna sér sæti í liðinu eða á hæsta leveli yfir höfuð. Hann hefur aldrei náð að verða sá leikmaður sem maður bjóst við skömmu eftir að hann gekk til liðs við Liverpool og líklega hafa tíð meiðsli tekið sinn toll þar. Gleymum ekki að hann var í liðinu sem fór í úrslit Meistaradeildarinnar 2007.

Agger á meira en allt gott skilið frá stuðningsmönnum Liverpool og eins á hann skilið að fara heim til Bröndby á lægra verði óski hann þess. Agger var mjög trúr Liverpool alla tíð á mjög erfiðum tímum og var lengi vel bara mjög góður miðvörður. Liverpool er sagt hafa hafnað 20m tilboði í hann frá Man City 2012 og 15m boði frá Barcelona 2013. Hann sagði aldrei orð við þessu annað en hann langaði ekkert að fara frá Liverpool. Hann segir núna að hann hann hafi ekki áhuga á að spila fyrir neitt annað félag en Bröndby fari hann frá Liverpool, það þrátt fyrir áhuga frá bæði A. Madríd og Napoli. Hann hefur verið hjá félaginu í 8 ár og á meðan það verður eftirsjá af honum þá er þetta líklega rétti tíminn til að hleypa nýjum mönnum að. Líklega vanmetum við aðeins hversu lítinn áhuga Agger hefur annars á fótbolta.

Jordon Ibe
Ekki fáum við annan Sterling upp þegar líður á tímabilið, a.m.k. ekki hjá Liverpool. Steve McClaren er greinilega virtur á Anfield því aftur fær hann einn af efnilegri leikmönnum Liverpool á láni til Derby. Helst hefði maður viljað sjá Ibe fara í úrvalsdeildina en líklega gerir það engu minna gagn fyrir hann að spila með mjög góðu liði í Championship deildinni og líklega spila alla leiki. Ibe gæti hæglega valtað fyrir þessa deild í vetur, hann er það góður.

Fabio Borini
Rodgers var nokkuð skýr þegar kom að Borini og segir að hann eins og nokkrir aðrir viti 100% sína stöðu hjá félaginu. Borni greyið er með 14m boð frá Sunderland sem Liverpool vill að hann taki en honum langar augljóslega ekki að fara. Rodgers sagði þetta við Liverpool Echo

“I think Fabio’s situation is clear,” Rodgers told the ECHO.

“All the players who there have been doubts about know exactly where they are at.

“Fabio has got a move there to Sunderland which has been ongoing for a number of weeks. He knows where he stands in terms of his position here at Liverpool.

“For him, it’s best to move on and get playing regularly. But that’s something he has to decide.”

Satt að segja myndi ég sjá á eftir Borini og myndi frekar vilja hafa hann sem einn af fjórum góðum sóknarmönnum í vetur, hvað þá ef hann vill vera áfram. Hann þarf samt að spila og fær það ekki hjá Liverpool, 14m boð er síðan bara of gott til að hafna. Meiðslasaga Borni hjá Liverpool er annars með ólíkindum hann hefur alltaf meiðst um leið og hann fær smá séns í liðinu.

Gerum ráð fyrir að hann fari á mánudaginn.

Jack Robinson
Yngsti leikmaður í sögu Liverpool er farinn til QPR þaðan sem hann var strax lánaður til Huddersfield. Einu sinni var hann mun meira efni en Flanagan sem sýnir okkur hversu lítið er að marka þessa stráka þegar þeir eru 16-18 ára. Robinson verður aldrei í toppklassa en mun vonandi eiga góðan feril í úrvalsdeildarliði.

Aðrir
Assaidi hlýtur að fara á mánudaginn. Coathes virðist ekki vera inni í myndinni þó ég myndi alls ekki gráta það að halda honum sem 4. kosti fram yfir Toure. Lucas Leiva er ennþá á mála hjá Liverpool og verður það vonandi áfram í næstu viku. Ef hann fer þurfum við mann í hans stað. Jose Enrique trúi ég ekki að hann verði seldur núna loksins þegar hann er kominn til baka úr meiðslum.

Xabi Alonso
Líklega er Alonso á topp 5 yfir mína uppáhalds leikmenn hjá Liverpool í seinni tíð og honum þykir greinilega vænt um það. Hann er 32 ára núna og hefur verið á leið frá Real Madríd í sumar. Ég er ekki að segja að það sé einhver voðaleg hetjudáð að velja Bayern fram yfir önnur lið en hann segist ekki vilja fara til annara liða á Englandi en Liverpool til að varðveita tengsl sín við okkur. Ég kaupi það og bóka þetta sem skoruð stig hjá meistara Xabi Alonso.

Fernando Torres
Karlanginn virðist loksins vera að yfirgefa Enska boltann sem er fínt mál og vonandi nær hann sér á strik á nýjum vígstöðum. Torres var frábær hjá Liverpool, gjörsamlega frábær og skilaði okkur 50m. Sagan held ég að muni dæma hann aðeins betur heldur en við gerðum er hann fór á vondum tíma til Chelsea, erkifjenda Liverpool. Helminginn af tíma hans hjá Liverpool var ekki staðið við nein loforð og félagið var í frjálsu falli í kjölfar stríðsástans innanhúss og gjaldþrots. Það sveið hvað mest að hann fór þegar félagið var komið með nýja eigendur og nýjan þjálfara, líklega kom það bara of seint.

Hann var ekkert frábær í mótlæti og sýndi stuðningsmönnum Liverpool ekki mikla virðingu í fyrsta viðtali hjá Chelsea en eftir situr að Liverpool fékk hans langbestu ár og 50m í kveðjugjöf. Sama dag fengum við Luis Suarez (og einhvern annan sóknarmann).

Ári eftir að hann fór til Chelsea stal Liverpool Daniel Sturridge frá þeim á rétt rúmlega 1/5 upphæðarinnar sem þeir borguðu fyrir Torres. Hann er núna búinn að skora fleiri mörk í fyrstu 50 leikjum sínum fyrir Liverpool en nokkur annar, toppar þar margar goðsagnir úr sögu félagsins ásamt manninn sem átti metið, Fernando Torres.

Hjá AC Milan kemur kann í stað Mario Balotelli, endum þetta á þessu

25 Comments

  1. Agger, Agger elsku Daniel Agger. Hver elskar ekki Agger?

    Ef þið finnið einn Liverpool aðdáenda sem elskar ekki Agger er sá hin sami ekki Liverpool aðdándi.

    Því miður settu meiðsli stórt skarð í ferils Agger hjá Liverpool. Ímyndið ykkur hverskonar leikmaður hann væri í dag ef hann hefði ekki hlotið 50% af þessum meiðlsum sem hann fékk! Hans verður sárt saknað sem leikmanni með STÓRT LIVERPOOL HJARTA! (ef hann fer)

    Annars spái ég bara aftur 5-0. Balotelli með þrennu og Sturridge 2. Ég veit að ég er bjartsýnn enda bjart úti klukkan 6:45!

    ÁFRAM LIVERPOOL

  2. Enn og aftur fer Babu á kostum, við hvað vinnur þessi gæða drengur eiginlega.

    Held að þetta sé vægt tilfelli af hinu fræga cunting. Hann ber mjög mikla fyrir því sem við erum að gera og okkar þjálfara.

    Ég sá góða hluti í city leiknum og það er alveg jafn öruggt og rigning á Íslandi að við verðum í baráttu um titilinn. Liðið er einfaldlega það sterkt. Gleymum ekki að töp eru mjög mikilvæg ef þau eru notuð rétt og menn læra af þeim.

    Liverpool í dag er einfaldlega of sterkt fyrir Tottenham eins og staðan er í dag og það er enginn hroki í þessu hjá mér bara hvernig ég sé þetta.

  3. Get ekki beðið.
    Það væri hægt að segja Super Mario að standa við hornfánann og þeir þyrftu samt 3 til að dekka hann 🙂

  4. Sæll öll,

    Því miður hef ég slæma tilfinningu fyrir þessum leik og held að við töpum honum. Við fyrstu sýn virðist þetta tímabil ætla að verða ströggl og við verðum heppnir ef við náum meistaradeildarsæti, sem er svooooo mikilvægt því peningarnir þrefaldast á næsta ári. Sömu vandræðin eru að hrjá okkur í varnarleiknum og á síðasta tímabili og mér finnst ólíklegt að við skorum jafn mikið af mörkum og í fyrra.

  5. Þetta verður mjög erfiður leikur en svakalega er ég spenntur fyrir okkar mönnum.

    Moreno er það sem okkur hefur vantað í vinstri bakvörðinn. Eðlilegt að gera mistök í fyrsta leik. Lovren virðist vera leiðtoginn sem okkur vantaði í vörnina.

    Breiddin á miðjunni. Já sæll, Markovich, Lallana, Coutinho, Sterling, Henderson, Can, Allen, Lucas, Gerrard, Suso.

    Og við erum komnir með Bakotelli! Til viðbótar við Sturridge og ekki er slæmt að hafa Lambert með.

    Það má bæta við markmanni og varnarsinnuðum miðjumanni. Hef áhyggjur af Lucas vini mínum.

    Mun sjá eftir Agger sem er frábær en horfumst í augu við það; við eigum heilt bretti af hafsentum.

    Borini er fínn en 14 mills betri fyrir félagið. Assaidi má og á að selja.

    Spurningin er hvað tekur liðið langan tíma að slípast til. Þetta eru miklar breytingar. Vonandi smellur þetta saman á morgun.

    YNWA

  6. Glæsilegt upphitun i alla staði.

    Þegar maður lítur á byrjunarlið Babu og á bekkinn þá sér maður vel hvað við erum komnir með miklu meiri breidd í hópinn okkar.

    En það gapir líka á mann að Gerrard er veiki bletturinn þarna í einni mikilvægustu stöðunni á vellinum. Leiðist að segja það en kannski er tími Gerrard að líða undir lok og hann á ekki að vera fyrstur á blað í öllum leikjum lengur.

  7. Frábær upphitun að vanda Babu.

    Ég held að Rodgers fari með einn framherja inn í þennan leik, eins og í fyrra (DS var þá meiddur). Allen heldur sæti sínu en það er bara spurning um Coutinho eða Lazar. Ætla að tippa á þann síðari.

    Er frekar smeykur fyrir þennan leik. Vantar enn smá flæði í okkar leik, en það kemur eflaust með tímanum. Ætla að skjóta á 2-2 jafntefli í annars hörkuleik.

  8. Þú átt hrós skilið fyrir að nota orðið “tígulmiðja”. Allt þetta tal um “demantsmiðju” er búið að fara mikið í taugarnar á mér. Vonandi munu aðrir sem skrifa á þessa frábæru síðu líka átta sig á að enska orðið diamind þýðir í þessu samhengi tígull en ekki demantur.

  9. Þar sem ég var að gera athugasemd við málfar gerði ég auðvitað sjálfur innsláttarvillu.
    Diamind => diamond

  10. Sæl og blessuð.

    Takk fyrir enn einn snilldarpistilinn og svo hlýddi ég með ánægju á hlaðvarpið hér um daginn. Ekkert nema skemmtilegt og þessi síða er meistaradeildar.

    Er sem endranær, uggandi yfir komandi rimmu. Ekki þó jafn skelkaður og ég var er við mættum suðurríkjastrákunum í City. Átti aldrei von á öðru en tapi þar en kom satt að segja á óvart hversu mikið við þáttum þrátt fyrir allt í þeim leik og með réttu hugarfari hefði mátt komast betur frá honum.

    Varnarleikurinn er í mínum huga að taka miklum stakkaskiptum. Nýju varnarmennirnir okkar eru grimmir og liggja framarlega. Skrtel og Jónsson eru brotnir og beygðir og vilja helst standa á marklínunni með hinum mjög svo ótrausta Mignolet. Mistökin sem gerð voru má að einhverju leyti rekja til þessa tómarúms sem myndaðist þarna á milli. Ef menn fara yfir þetta aftur og aftur og aftur, ég tala nú ekki um þar sem Sakho og “hinn” fúllbakkinn mæta nú til leiks, þá má búast við skemmtilegri varnarvinnu og samstilltari. Ef þessi veiki hlekkur lagast þá erum við til alls líklegir.

    Hlakka til að sjá hinn stælta Balotelli. Hver hlakkar ekki til að sjá hann?

    Þetta verður eitthvað annað en slátrunin í fyrra. Arentínumaðurinn í leikstjórasætinu er skæður og eins og bent er á hérna, nútímans maður. Enginn krakki eða hasbín.

    Jæja, bring it on!

  11. Farvel agger.held og lykke i brøndby.en að öðru,við þurfum stoppara fyrir framan vörnina svona macherano typu.gerrard er ekki að valda þessu.ef við náum þvi hef eg ekki ahyggjur af timabilinu.

  12. Ég ætla að spá Coutinho á bekkinn og Lallana byrji inná.

    En smá útúrdúr, eru einhverjir með reynslu af streyminu frá knattspyrna.is ? Ég hef verið að nota síður eins og wiziwig og bloodzeed en ég er ekki nógu ánægður með gæðin á þeim. Eða er eitthvað annað í gangi á netinu sem maður borgar jafnvel eitthvað smá fyrir (annað en okurpakkinn á 365) ?

  13. Það kann kannski einhver að undrast að Swansea séu á toppnum, en þeir hafa jú bara leikið á móti liðum úr neðri hluta deildarinnar.

    (Hei, maður verður nú að endurnýta brandarana á milli ára!)

  14. Galdurinn er að koma á óvart. Ég held að það væri sterkur leikur á að láta Rickie Lambert byrja í tígulmiðju. Það kæmi andstæðingnum á óvart og tottenham væri mögulega ekki andlega undirbúnir því. Lambert er búinn að sýna það í síðustu leikjum að hann á fullt erindi í byrjunarliðið. Hann hefur klárlega sína kosti og það er meiri ógn í kringum hann þegar hann kemur inn á.

    Mér finnst að Coutinhno ætti líka að fara á bekkinn á kostnað Marcovic. Vopnin sem hefðum á bekknum væru þá svakaleg. Balotelli og Lallana auk Coutinho. Ég geng líka svo langt að vilja setja Emre Can Inná fyrir Gerrard. Ég held að Það myndi koma captein fantastik í gang að fá smá bekkjarsetu.

    En þetta eru bara bollaleggingar. Treysti Rodgers betur fyrir þessu en sjálfum mér. .)

  15. heldég séorðingeðveikur fagnaði þegar everton minnkaði muninn í 3-2

  16. Everton vörnin er að sýna framúrskarandi leik. Mikið vona ég að þeir verði svona góðir 27 september….

  17. Svaka leikur í gangi á Stamford Bridge, ekki hægt að segja að Chelsea séu leiðinlegir á þessari leiktíð. Þeir virka firnasterkir.

  18. Takk fyrir frábæra upphitun, þvílík forréttindi sem kop-verjar færa okkur hinum sem latari erum!
    Að sígildri fyrirspurn, veit einhver um stað í Barcelona sem er líklegur til að sýna leikinn?

  19. er staddur úti á sjó og er með allar skysports er leikurinn sýndur þar ?

Meistaradeildin – Real Madríd – Basel – Ludogorets

Mange tak kære Daniel!