Um Loic Remy

Liverpool er sagt hafa virkjað klásúlu í samningi Loic Remy hjá QPR þess efnis að hann megi fara til Meistaradeildarfélags fyrir £8,5m. Hann hefur einnig samþykkt kaup og kjör við okkar menn og hefur verið á leiðinni til Boston í læknisskoðun sl. tvo daga. Mín kenning er sú að þar sem hann missti af því þegar liðið flaug út hafi honum verið reddað miða sjóleiðina. Þetta passar ágætlega m.v. að kynning á honum (og væntanlega Origi) er áætluð á fimmtudaginn.

Loic Remy er líklega í fljótu bragði það næsta sem við komumst í beinum leikmannakaupum í staðin fyrir Luis Suarez þó slíkur samanburður væri auðvitað verulega ósanngjarn og langt frá því hvernig forráðamenn Liverpool eru að hugsa þetta. Kaup á 27 ára sóknarmanni sem var á láni í fyrra koma kampavíninu ekkert úr kælinum en skoðum hann aðeins betur, það er hellingur spunnið í þennan leikmann þó ferill hans hafi verið töluvert misjafn.

Loic Remy – leið hans til Liverpool
Remy hefur hæfileika sem líklega hafa heillað Scoutahreyfinguna frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið sem mjög hrár og fljótur unglingur í Lyon þaðan sem hann er fæddur og uppalinn. Hann spilaði með mjög góðu og virtu unglingaliði sem heitir ASPTT Lyon og var stjórnað af René Jacquet, bróðir Aimé Jacquet sem gerði Frakka að heimsmeisturum nokkrum árum áður. René Jacquet var með sambönd út um allt í knattspyrnuheiminum og endaði með því að Remy gekk til liðs við Tola Vologe, heimsfræga akademíu Lyon og spilaði þar upp lokaárin í yngri flokkum með mönnum eins og Benzema og Ben Arfa. Hann fékk samning hjá Lyon 2006 og spilaði sinn fyrsta leik í október sama ár er hann kom inná fyrir Sylvian Wiltord. Stjóri Lyon á þessum tíma var enginn annar en Gerard Houllier og var það hann sem gaf honum sitt fyrsta tækifæri. Remy átti þó mjög erfitt uppdráttar hjá Lyon sem varð meistari tímabilið á eftir með þá Benzema og Ben Arfa í banastuði ásamt þeirra “Emile Heskey” sem Houllier keypti í formi John Carew.

Lens 2008
Remy var að verða 22 ára og fór á láni til Lens í janúar 2008 til að fá leikreynslu og spilaði með þeim 10 leiki og skroaði 3 mörk.

Nice 2008-11
Samningurinn kvað á um að þeir hefðu möguleika á að kaupa hann er lánstíminn væri liðinn, Lens nýtti það ekki en Remy fór í stðin til Nice fyrir um €8m og var það hæsta verð á þeim tíma sem Lyon hafði fengið fyrir leikmann. Nice er lítill klúbbur og var á þessum tíma um miðja deild eða neðar. Þar sprakk Remy út í búningi númer 7 (just saying) og fór að skapa sér nafn fyrir alvöru. Hann skoraði 11 mörk fyrsta heila tímabilið sitt hjá félaginu og 16 mörk tímabilið á eftir en hann var ýmist látinn spila frammi eða á kantinum. Frábær frammistaða hans með Nice skilaði honum sæti í landsliðshópi Frakka.

Þarna fórum við fyrst að heyra þetta nafn enda einn heitasti sóknarmaður Evrópu. Rafa Benitez og njósnarateymi hans var búið að fylgjast með honum af áhuga frá því hann var í akademíu Lyon og var hann oft orðaður við Liverpool sem og önnur lið eftir árið 2009. Tímasetningin gat þó ekki verið verri því loksins þegar Liverpool ákvað að kaupa hann var ekki til króna í kassanum og skipt var um stjóra. Þann 16.júlí 2010 kom færsla á kop.is þess efnis að búið væri að bjóða í Remy skv. Sky Sports. Þar kom fram að Eduardo Macia sem var hjá Liverpool öll árin sem Benitez var stjóri hefði fylgst með honum í fimm ár og hefði mælt með Remy við Roy Hodgson sem þá var ný tekinn við. Haft var eftir umboðsmanni Remy í sömu frétt að hann hefði alla burði til að verða stórstjarna á Englandi og væri mikið til í að koma til Liverpool. Hann væri jafnfættur, gríðarlega fljótur og að lokum tók umboðsmaðurinn fullan Houllier á þetta og sagði að Remy minnti mikið á Thierry Henry og gæti jafnvel orðið betri en hann.

Fjórum dögum seinna fór Hodgson í viðtal og sagði þetta um einn efnilegasta leikmann Evrópu:

“He’s a player who was mentioned to me by the scouting department and a player the club were following before I came.
“He’s a player I know very little about. If I am going to be interested in a player I am going to have to watch him playing, study him and make judgments which I have not been able to.”

Liverpool keypti Joe Cole, Poulsen, Konchesky o.s.frv. stuttu seinna. Tony Pulis stjóri Stoke var meira að segja meira með puttann á púlsinsum en Hodgson og var sagður hafa boðið €10m í Remy eftir að hafa fylgst með honum hjá Nice, án árangurs þó.

Reyndar munaði mjög litlu að Remy hefði farið aftur heim til Lyon hálfu ári áður (janúar 2010). Stuðningsmenn Nice tóku slæmu gengi félagsins í lok árs 2009 mjög illa og hræktu á leikmenn liðsins, þ.á.m. Remy sem sagði þá hegðun óásættanlega og hótaði að yfirgefa liðið í janúarglugganum. Hann var þarna einn heitasti sóknarmaðurinn í Frakklandi og var Lyon tilbúið að kaupa hann aftur með því að nýta sér buy back klásúlu í samningi hans við Nice. Það gekk þó ekki í gegn þar sem stjóri liðsins Claude Puel vildi ekki eyða peningnum í hann. Remy var að vonum ekki sáttur enda Lyon næst hjarta hans (hans orð) og lýsti hann tilfinningum sínum svona

“I´m as disappointed as a kid who was promised a present then refused it at the last second.”

Marseille 2010-13
Eftir miklar vangaveltur allann veturinn og nánast allt sumarið fór það á endanum svo að Loic Remy endaði hjá Frakklandsmeisturum Marseille en stjóri þeirra (Didier Deschamps) hafði alveg séð Remy spila og það oft. Kaupverðið er talið hafa verið um €15m en hann var þó tæpur að ná í gegnum læknisskoðun, niðurstöður þeirrar skoðunnar sýndu mögulegan hjartagalla sem hefði líklega endaði feril Remy. Hann missti af fyrsta leik Marseille meðan beðið var eftir niðurstöðum sem komu nokkrum dögum seinna og sýndu að hann væri í lagi og mætti spila fótbolta á hæsta leveli.

Hjá Marseille byrjaði Remy með látum og leiddi sóknarlínu þeirra, hann skoraði 17 mörk fyrsta tímabilið sitt hjá félaginu og 20 mörk tímabilið á eftir. Þarna fékk hann einnig reynslu af því að spila í Meistaradeildinni og virtist vera að standa undir þeim væntingum sem alltaf hafa verið gerðar til hans í Frakklandi. Hann var metinn á rúmlega €20m á þessum tíma en hélt sig þó áfram hjá Marseille. Tottenham bauð í hann í janúarglugganum en Marseille vildi ekki selja sinn besta mann enda liðið í 6. sæti í deildinni og komið í 16-liða úrslit í meistaradeildinni. Hver hefði trúað því að þeir hefðu einnig haft Remy undir smásjánni?

Seinni hluti tímabilsins var þó afar slæmur fyrir Remy sem meiddist í febrúar og spilaði aðeins einn heilan leik eftir það. Marseille gekk ekki vel í deildinni og var Remy því alltaf látinn spila um leið og hann var kominn í sæmilegt stand sem gerði það að verkum að hann náði sér aldrei og meiddist ítrekað aftur.

Þriðja tímabil hans hjá Marseille var martröð og beint framhald af seinni hluta tímabilsins á undan, hann spilaði aðeins 12 leiki og var mjög mikið meiddur á þessum tíma og áhugi stærstu liða Evrópu dvínaði. Samband hans og Marseille var orðið stirrt í restina og Remy vildi yfirgefa félagið. Stór partur af ástæðunni var einnig að Elie Baup var tekinn við Marseille af Deschamps og Remy náði ekki eins vel til hans.

QPR 2012-13
Hann langaði að prufa eitthvað nýtt til að endurvekja ferilinn og vildi reyna sig í enska boltanum þangað sem hann fór í janúar 2012. Marseille samþykkti €10m boð frá Newcastle sem boðaði hann í læknisskoðun daginn eftir. Þetta var allt hið stórundarlegasta mál því Remy mætti ekki til Newcastle heldur poppaði upp í London þremur dögum seinna og skrifaði undir tæplega fimm ára samning við botnlið QPR. Kaupverðið er talið hafa verið um £8m sem er met hjá QPR og launin hans voru sögð vera um £70,000 á viku sem er mun meira en Newcastle var tilbúið að bjóða.

Þetta þótti mörgum (og þykir enn) bera vott um peningagræðgi leikmannsins enda QPR ekki að fara neitt nema beint niður um deild og hann allt of góður leikmaður til að taka þessa fáránlegu stefnubreytingu á ferlinum 26 ára. Þá búinn að vera einn af betri sóknarmönnum Frakklands fjögur af fimm tímabilum þó stjarna hans hafi vissulega dvínað undir það síðasta hjá Marseille.

Ekki hjálpaði það ímynd Remy að hann var handtekinn fjórum mánuðum seinna ásamt tveimur öðrum, grunaður um að hafa tekið þátt í hópnauðgun. Hann ásamt félögum sínum neitaði þó alltaf sök og var ekki sakfelldur, málið var látið niður falla í febrúar 2014. Hann opnaði sig vegna þessa stuttu seinna og sagði þetta mál hafa fengið mikið á sig og m.a. verið til þess að ekkert stórlið sýndi honum áhuga á síðasta ári er hann endaði á láni hjá Newcastle.

Newcastle 2013-14
Hjá skítlélegu liði QPR skoraði Remy 6 mörk í 14 leikjum og féll með þeim vorið 2013. Newcastle landaði honum loksins í kjölfarið en þó aðeins á lánssamningi. Hann er of góður til að spila í Championship deildinni og var á EPL launum sem fékk QPR til að samþykkja þennan lánssamning. Skuggi vegna nauðgunarmálsins vofði einnig yfir en Remy vildi nýta tækifærið og fara til Newcastle, stuðningsmenn þeirra tóku honum vel þrátt fyrir að hafa valið QPR nokkrum mánuðum áður og vildi hann þakka þeim fyrir það.

Hjá Newcastle byrjaði Remy með látum og var búinn að skora 8 mörk eftir 10 leiki þrátt fyrir að hafa misst úr byrjun tímabilsins vegna meiðsla. Þegar yfir lauk var hann búinn að skora 14 mörk í 27 leikjum og koma sér aftur inn í myndina hjá stóru Meistaradeildarliðunum. Liverpool og Arsenal hafa þar helst verið nefnd til sögunnar ásamt auðvitað Newcastle og virðumst við núna loksins vera að landa þessum leikmanni, Loic Remy er nafn sem hefur líklega verið á korktöflunni á skrifstofu Liverpool í að verða áratug og hann hefur að ég held verið orðaður (mismikið) við Liverpool í öllum leikmannagluggum sl. 6 ár.

Frammistaða Remy í fyrra tryggði honum einnig sæti í sterku liði Frakka á HM í sumar þar sem Remy var sprækur. Hann á núna 24 landsleiki með Frökkum og finnur fyrir hjá Liverpool vin sinn Mamadou Sakho.

Leikmaðurinn
Samningur Remy við Liverpool er sagður verða til fimm ára ef af verður og vonandi nær hann loksins almennilegri fótfestu. Hann var fáanlegur á þessu lága verði vegna klásúlu í samningi um að mega fara til liða í Meistaradeildinni. Hann hefur talað um það síðan hann kom til QPR að hann teldi sig hafa getuna í að spila fyrir topp 5 klúbb í öllum stærstu deildum Evrópu, síðast í mars sagði hann þetta við France Football

“Nowadays, without being pretentious, I might be able to play for a bigger club, a top-five European club.

“I do not know… Yes, I will be part of the European top five, or I will be part of a very large club. I’m sure of what I can do. I can still be much better.”

Kostir
Helsti kostur Remy er hversu fljótur hann er að hlaupa, hann er ekki ósvipaður Djibril Cisse hvað þetta varðar fyrir fótbrotin og reyndar er það ekki alveg tilviiljun að Remy hefur alla tíð verið líkt við Henry þó hann sé enn sem komið er ekkert í sömu deild og gamli Arsenal snillingurinn. Við erum að tala um að hann getur verið fáránlega fljótur og hans helsti styrkleiki er að stinga varnarmenn andstæðinganna af og þannig kemst hann oft einn gegn markmanni. Hann var alltaf kantmaður/vængframherji á fyrstu árum ferilsins en fór að spila meira fremst hjá Marseille er sóknarmaður þeirra (Giganc) meiddist. Didier Deschamps stjóri Marseille setti Remy upp á topp og hann svaraði þeirri ábyrgð vel.

Hann leitar mikið út á vænginn og því er vel hægt að skilja að margir sjái takta Henry í honum. Það er reyndar ekki ólíklegt að Henry sé eitt af hans átrúnarðargóðum enda báðir frakkar, spila sömu stöðu og það passar m.v. aldur og leikstíl beggja. (Fullkomlega að giska hérna).

Lið sem sækja á Liverpool gætu lent í basli með hraðabreytingarnar sem Remy býr yfir og hann gæti þrifist mjög vel í mun betra og sókndjarfara liði en hann hefur verið að spila með áður. Hann er mjög hungraður í að sanna sig hjá stóru liði og þetta er hans stóra tækifæri, einmitt eiginleikar sem FSG vill að leitað sé að hjá leikmönnum sem keyptir eru til félagsins.

Hann er samt ekki bara fljótur og alls ekki eins einhæfur og Cisse. Remy getur spilað á vængnum líka og hefur gert það töluvert í öllum liðum sem hann hefur spilað með, hann er engu að síður bestur sem striker. Hann er einnig ágætur í loftinu og veit alveg hvar markið er með höfðinu rétt eins og löppunum, hann skoraði m.a. helming marka sinna með höfðinu veturinn 2011/22 (Marseille). Hann skoraði meira að segja 5 af 15 mörkum sínum hjá Nice (2009/10) með höfðinu þrátt fyrir að spila á kantinum.

Remy er sagður vera nokkuð einfættur, eða réttara sagt hann er miklu betri og skotvissari með hægri löppinni þó hann sé ekkert John Arne Riise lélegur með veikari löppinni. Hann er mjög góður slúttari og nýtir færin sín vel. Sérstaklega er hann hættulegur í svona Henry hlaupum inn af vængnum. Remy kemur þá inn af vinstri vængnum og leggur boltann fyrir sig á hægri löppina.

Margt af þessu gæti vel verið lýsing á Daniel Sturridge og líklega er það breidd sem Remy gefur Liverpool fyrst og fremst. Remy skoraði bara tveimur mörkum minna en Wilfred Bony á síðasta tímabili og var með einni færri stoðsendingu þrátt fyrir að hafa spilað átta leikjum minna. Svona ef einhver vildi frekar að þau kaup yrðu kláruð. Flestir sóknarmenn sem spilað hafa undir stjórn Brendan Rodgers undanfarin ár hafa bætt sinn leik töluvert og Remy þarf ekki að bæta markaskorun sína mjög mikið til að verða með allra markahæstu mönnum.

Gallar
Remy er þó alls ekki gallalaus og það er ekki tilviljun og óheppni að leikaður með alla þessa hæfileika hefur ekki (ennnþá) náð lengra á ferlinum. Hann er sagður vera frekar latur sóknarmaður sem vinnur ekki nægjanlega mikla varnarvinnu, gangi honum vel að komast upp með slíkt hjá Liverpool þar sem sóknarmenn þurfa að skila litlu minni varnarvinnu en aðrir leikmenn liðsins. Remy þarf að breyta leikstíl sínum töluvert til að uppfylla þessi skilyrði og m.v. þessar lýsingar kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi byrja á bekknum í fyrstu umferðunum og koma þá inn til að sprengja sóknarleikinn upp.

Hvort sem menn flokka það sem ókost eða ekki þá er hann einnig sagður töluvert valtur á fótunum og dettur við minnstu snertingu. Sjáum til og látum á það reyna hjá Liverpool áður en við förum að dæma hann út frá slíku. Hann er einnig sagður vera erfiður í skapinu og eru orðrómar uppi um að hann hafi neitað að spila lokaleik tímabilsins fyrir Newcastle sem var einmitt gegn Liverpool (óstaðfest slúður). Eins var hann eitthvað búinn að mála sig út í horn hjá Marseille er hann fór þaðan.

Moneyball hugmyndafræðin gengur út á að nýta sér svona hluti og ef eitthvað er til í þessu kemur ekkert á óvart að FSG taki sénsinn á honum þrátt fyrir þessar lýsingar, munum að hann blómstraði hjá bæði Nice og Marseille er hann hafði stjóra sem treystu á hann og spiluðu honum. Við munum einnig að Daniel Sturridge var lýst á svipaðan hátt.

Remy er einmitt sagður vera nokkuð eigingjarn líkt og Sturridge. Að lokum er hann víst ansi oft gripinn í landhelgi og er það líklega sú neikvæða lýsing á honum sem ég hef hvað mestar áhyggjur. Það er fátt meira pirrandi en sóknarmenn sem eyðileggja allt of margar sóknir með því að virðast ekki kunna rangstöðuregluna.

Niðurstaða
Remy var nokkuð spennandi kostur fyrir 4-5 árum þó maður vissi sama og ekkert um hann. Ef að hann væri 4-5 árum yngri núna væri maður líklega afar spenntur fyrir þessum leikmanni en hann hefur það ekki með sér að vera ungur og efnilegur lengur. Stöðugleiki er það sem hann þarf að sýna til að komast í lið Liverpool og líklega fær hann aldrei betra tækifæri en nákvæmlega núna. Brendan Rodgers er á pappír líklega einn besti stjóri sem Remy gat lent undir núna og hjá Liverpool er hann með eitt mest skapandi knattspyrnulið knattspyrnunnar á bak við sig. Umræðan eftir síðasta tímabil er nánast öll á þann við að Suarez hafi haldið þessi liði einn á floti en við ættum að vita töluvert betur og þeir sem gengið hafa til liðsins það sem af er tímabili ættu allir að þétta möguleika okkar sóknarlega.

Rodgers þarf að finna leikmenn sem skila 10-20 mörkum og planta þeim í kringum Sturridge. Loic Remy hefur gert nákvæmlega það hjá öllum liðum sem hann hefur spilað með og er núna á besta aldri og nýbúinn að endurheimta sjálfstraustið eftir frábært tímabil með afar döpru liði Newcastle. Hann hefur alla burði til að verða miklu betri í hjá betra liði. Hvort sem honum tekst að sýna það eða ekki þá býr miklu meira í Remy en hann hefur sýnt og nú 27 ára ætti hann að vera nálgast hátind síns ferils. Hann hefur alla burði til að gera eins og Daniel Sturridge og springa út fyrir alvöru hjá Liverpool.

Miðað við markaðinn í dag eru 8m allt að því þjófnaður fyrir Remy og áhættan lítil sem enginn, það liggur við að manni finnist þetta verð of lágt og mögulega dregur það ómeðvitað úr spenningnum.

Þetta eru auðvitað engin Torres eða Suarez leikmannakaup og ekki verið að gera þær væntingar til Remy, en það kæmi mér alls ekki á óvart ef hann kæmi ansi mörgum á óvart í búningi Liverpool og verði mun betri en margir halda. Hann hægir a.m.k. ekkert á sóknarleiknum það er ljóst.

Yfir til þín Zaf

36 Comments

  1. Mögulega smá jinx en það er þá líka eins gott að Remy endurtaki ekki leikinn og semji einhversstaðar annarsstaðar óvænt núna.

  2. Hehe , gæti verið Babu, en vona ekki. Ég verð að segja að ég er mjög spenntur fyrir þessum leikmanni. Ég held að við fáum 10-15 mörk frá honum næsta season. Næst er svo Isco 🙂

  3. Frábær pistill og fróðlegur.

    Í fyrra leit þetta svona út.

    Luis Suarez 31 mark í deildinni.

    Loic Remy 14 (9. sæti yfir markahæstu menn)
    Rickie Lambert 13 (13. sæti)
    Adam Lallana 9 (19.sæti)
    = 36 mörk.

    Svo má bæta Markovic við þetta. Allavegana á pappírnum ættum við að vera með menn sem ættu að geta bætt upp mörkin hans Suarez, þótt að hlutirnir séu aldrei svo einfaldir. En mér líst gríðarlega vel á þessi kaup fyrir þennan pening. Áhættan er lítil.

  4. Frábær pistill og færir mann töluvert betur í skilning um þennan kappa 🙂

  5. Svo má ekki gleyma því að við þurfum ekki endilega að fá öll þessi 31 mörk sem Suarez skoraði í fyrra á næstu leiktíð. Mjög mikið af mörkum Suarez voru ekki lykilmörk, þeas hann var ekki endilega að vinna leiki með lykilmarki heldur skoraði hann ansi margar þrennur og tvennur í vetur. Þegar Bale var hjá Tottenham þá var hann ansi oft að skora eina mark leiksins, eða úrslitamark á síðustu stundu.

    Annað er að ef við styrkjum vörnina okkar þá þurfum við ekki að skora 100 plús mörk þó það sé voða gaman. 90 mörk gætu vel dugað okkur í vetur td.

    Svo má ekki gleyma að við erum með markahæsta mann deildarinnar í fyrra í okkar röðum, þeas fyrir utan Suarez. Sturridge var næst markahæstur í deildinni með 21 mark. Ég efast ekki um að hann fari yfir 20 mörkin í vetur, og gott betur þar sem hann verður aðal strikerinn okkar.

    Mér líst vel á hópinn fyrir veturinn og oft snýst þetta meira um að lið smelli saman frekar en að vera með stórstjörnur á stangli, þó það sé auðvitað ekki slæmt.

    Hef fulla trú á BR og ef hann heldur okkur í topp 4 í vetur og við komumst uppúr riðli í Meistaradeildinni þá er framtíðin mjög björt.

  6. Aðeins að öðru.
    Voðalega finnst mér BR vera horaður þessa dagana.
    Er hann lasinn eða fékk hann sér nýja konu?

    Verði Remy velkominn. Vonandi verða nokkrar leikmannakynningar næstu 7 daga.
    Ekki er tíðin að stytta manni stundirnar en það styttir fljótlega upp, tímabilið nálgast eins og óð fluga.

    YNWA

  7. Eitt varðandi rangstæðusækna leikmenn. Það gerist oft þegar líður á leiki að varnarmenn fara að spæ minna í þeim, því þeir eru alltaf rangstæðir og þá eiga þeir til að sleppa í gegn.

  8. Flottur pistill eins og alltaf Babu.

    Ég bíð Remy velkominn og efast ekki um að hann á eftir að reynast Liverpool vel.
    Nú get ég notið þess ennþá betur að sötra Remy cognac yfir flottum fótbolta.

  9. Ég held að þessi kaup á Remy eigi eftir að reynast ansi góð, þetta er góður leikmaður sem hefur spilað í þessari deildog einnig í CL og það er dýrmæt reynsla enda ekki margir aðrir í þessu liði sem hafa spilað mikið í CL áður.
    Og fyrir þennan pening þá er þetta hálfgert rán.

  10. Sæl og blessuð.

    Líst dável á þennan fransmann og þykir sem hann hafi verið harla óheppinn á sínum ferli. Með réttri blöndu færni, iðjusemi og heppni væri ekki útilokað að hann væri nefndur í sömu andrá og Þröstur Hinriks, landi hans og goðsögn. Hver veit hvað tekur við nú þegar hann er kominn í þjálfaragreipar BR og fær öflugar stoðsendingadælur allt frá öftustu línu.

    Þetta hjálpar vissulega til við að yfirvinna þann aðskilnaðarkvíða sem er óumflýjanlegur nú þegar nafni er horfinn á Nývang.

    Það er og rétt sem fram kemur á skrafinu að við þurfum ekki að niðurlægja öll liðin sem við mætum. Nafni rak jú, eins og nefnt hefur verið, gjarnan smiðshöggið á kistulok heillum horfinna andstæðinga. Hver man ekki eftir markinu gegn Everton og MU? WBA að Norwich ógleymdum – allt var þetta æðislegt og e.t.v. full þörf því hriplek vörnin gat glutrað ýmsu niður á ævintýralegan hátt.

    Vonandi fáum við þriðjungi færri mörk á okkur á næsta sísoni.

    En nú vil ég fá nýja krafta í stað hins heillum horfna Jónssonar í fúllbakknum. Megi hann verma bekk eða jafnvel íklæðast annarri treyju komandi síson. Gæðadrengur, vafalítið, en þetta er orðið ágætt.

    Jamm, nýtt nafn að læra og hver veit nema maður taki upp strigann, penslana og olíulitina og hengi svo nýja mynd upp á vegg.

  11. Nr. 10 Björninn

    Útsending hefst klukkan 23:30 í kvöld (23.07.14) en ætli leikurinn byrji ekki á miðnætti (24.07.14)
    Ætti að standa 23.07.14 hjá okkur en leikurinn er klárlega í kvöld.

  12. Ef það er einhver sem getur komið ferlinum hans Remy á réttan kjöl, þá er það Brendan Rodgers. En auðvitað er það undir leikmanninum sjálfum líka að leggja sig 100% fram á æfingum og í leikjum.

  13. glæsilegur pistill Babú, nú bíður maður eftir sambærilegum pistli um Markovic 😉

    eg er spenntur fyrir Remy og hlakka til að sja hann i rauðu treyjunni,að fa þennan gæja a 8.5 milljónir er brandari og frábær kaup.

    Maður er samt að biða eftir fleiru, hvar er vinstri bakvörðurinn og Lovren ? það tvennt vil eg að verði klárað.

  14. Nr. 15 Tryggvi

    Tek þessari frétt auðvitað með smá fyrirvara en ef þetta er rétt get ég alls ekki sagt að ség sé spenntur. Er Liverpool semsagt að fá 20 ára bakvörð með sama og enga leikreynslu á hæsta leveli á láni frá A. Madríd til þess að hann geti öðlast leikreynslu? Ef hann stendur sig vel þá hefur A. Madríd alltaf möguleika á að fá hann til baka.

    Eigum við ekki feikinóg af hægri bakvörðum með nákvæmlega sama profile og lítinn spilatíma? Wisdom er reyndar farinn á láni og þá líklega sem miðvörður. Mcloughlin er á svipuðum aldri og saður mikið efni. John Flanagan er nákvæmlega þessi leikmaður hjá Liverpool bara local og með meiri reynslu. Þar fyrir utan eigum við svo Glen Johnson.

    Ég veit ekkert um þennan unga leikmann og kannski er þetta bara frábær leikmaður sem maður á að taka fagnandi, sama á hvernig díl hann kemur. En m.v. forsendur sem þessi frétt gefur myndi ég kjósa mun betri kost í þessa stöðu, einhvern sem er nú þegar betri en það sem við eigum fyrir.

  15. Flottur pistill og eins og Einar Örn (#3) bendir á erum við að vinna í að bæta okkur upp marka- og stoðsendingamissinn frá Suarez. Remy, Lallana og Lambert fara langt með það m.v. tölfræði þeirra í Úrvalsdeildinni síðustu tímabil og ef við bætum svo Markovic og jafnvel Borini við erum við bæði komnir með slatta af mörkum/stoðsendingum og meiri breidd/fjölbreytileika í leikmannahópinn.

    Enginn einn þeirra er jafn góður og Suarez, auðvitað ekki, en hópurinn er óútreiknanlegri og fjölhæfari. Það þýðir að Brendan Rodgers hefur meiri möguleika á að úthugsa mótherja sína. Ef þið haldið að það sé ekki vænleg leið til árangurs legg ég til að þið skoðið leikmannahópana sem Fergie vann deildina með eftir að hann missti Cristiano Ronaldo og Carlos Tevez. Enginn nærri því jafn góður og þeir kom í staðinn en hann var með breidd og óútreiknanleika. Strength in numbers.

  16. Er einhver stadur a hofudborgarsvædinu sem ætlar ad sýna leikinn i kvöld ?

  17. Hugsa að það sé erfitt að tala um að 3-4 leikmenn komi með mörkin hans Suarez, ekki nema að við séum að fara að spila með fleiri en 11 menn inn á vellinum. Annars held ég að best væri að hugsa þetta ekki svoleiðis. Við erum bara allt annað lið án hans og verðum að “skilgreina” okkur upp á nýtt – vonandi með mörkum og sóknarbolta, hvaðan sem þau koma. Hundrað mörk vissulega ekkert skilyrði fyrir velgengni.

    Remy annars flott kaup. Betri leikmaður en Sturridge áður en hann kom til okkar – vonandi að hann geti tekið svipað stökk. Merkilega ódýr framlína sem við höfum miðað við gæði. Sturridge, Remy og Lambert fyrir 24m…

  18. Remy á leið til USA til að skrifa undir var sagt. Fór hann með árabát? Svakalegan tíma tekur alltaf að staðfesta þessi kaup.

  19. Fair enough, Babu – viðurkenni að ég veit ekkert um mannin annað en að hann kemur frá Atlético sem mér fannst með frekar sannfærandi vörn – sé hinsvegar að hann spilaði sáralítið svo þetta er alveg rétt hjá þér.

  20. Vandaður og góður pistill. Það eru þessir pistar sem gera þessa síðu svona góða.

    Ég er hinsvegar hættur að trúa neinu fyrr en að viðkomandi leikmaður hefur skrifað undir.

    Remy er án nokkurs vafa kaup án mikillar áhættu.

    Ég tel að hann muni leggja sig allan fram fyrir félagið. Þetta er hans síðasti möguleiki til að standa sig á stóra sviðinu.

    Það er áhugavert hvernig hann samdi við QPR: 8,5 mill ef félag í topp 4 myndi kaupa hann!

    Hann ætlar sér augljóslega að fara alla leið. Hann er 27 ára og ef hann stendur sig ekki hjá okkur eða öðrum topp klúbbum núna þá gerist það varla í framtíðinni.

    Liverpool verður að eiga tvö lið í vetur. Til einföldunar má setja ,,liðin” upp með þessum hætti:

    1. Mignlolet/Reina
    2. Johnson/Flanagan
    3. Enrique/Kelly
    4. Sakho/Agger
    5. Skrtel/Toure
    6. Henderson/Allen
    7. Sterling/Madrovic
    8. Gerrard/Lucas
    9. Sturridge/Lampard
    10. Coutinho/Lallana
    11. Can/Suso

    Síðan má bæta við Borini, Assaidi, Ibe og unglingum.

    Það er augljóst að það þarf að styrkja vinstri bakvörðinn. Fá miðvörð í stað Toure og styrkja okkur fram á við.

    Við eigum tvo heimsklassa leikmenn Gerrrad og Sturridge.

    Þeir sem geta orðið heimsklassa leikmenn eru; Sterling, Sakho,Markovic, Henderson, Coutinho, og Can. Ibe er líka gríðarlegt efni.

    Treysti á Rodgers og FSG

    YNWA

  21. æðislegur pistill og alltaf jafn gaman að detta í vip lesningu og vonandi er það fyrirgefið að það sé stundað nett þráðrán.

    en hvenær verður gefið út lineupið á leiknum í kvöld… er að vona að maður sjái markovic í blússandi fílíng í kvöld…

    er þetta ekki annars fyrsti leikurinn sem allt crúið er saman á ný þ.e. allir hm fararnir????

  22. Mignolet og Sakho eru enn í fríi enda fóru þeir lengst á HM. Sama gildir um Origi sem ég las á Twitter að væri í fríi hjá Lille fram að helgi og muni því væntanlega klára félagaskiptin til okkar eftir helgina. Miðað við frítímann hans finnst mér líklegt að Mignolet og Sakho verði einnig með liðinu frá og með helginni en nái ekki þessum leik né leiknum á sunnudag.

    Allir aðrir myndi maður gera ráð fyrir að séu með nema kannski t.d. Can sem er e-ð tæpur með vöðvatognun í síðasta leik (og eins Tiago Ilori sem fór út af með hnjask í fyrsta æfingaleik).

    Þannig að já, við sjáum Markovic vonandi í kvöld en sennilega ekki meira en í 45 mínútur.

  23. #24 Guðlaugur Þór :

    Eigum við ekki eitthvað að Skoða nr 9 hjá þér…;) gæti trúað að þú hafir ruglast aðeins á leikmönnum….

    Annars jákvætt að auka breiddin og ég þykist vita hvaða leikmaður á að vera þarna…

    Insjallah…
    Carl Berg

  24. Afsakið þráðránið en þar sem ég er í sumarfríi á AK getur einhver svarað mer um hvort að það sé hægt að horfa á leikin einhverstaðar á eftir?

  25. BT sport synir leikinn og bt 2 synir tottenham halftima a undan helda að við faum að sja markovich i kvold

  26. Það má kannski bæta við Þegar Remy var upp á sitt besta með Newcastle í fyrra þá hafði hann eitt Stykki Cabaye fyrir aftan sig. Þegar umræddur Cabaye spilaði með newcastle þá var hann maðurinn sem var að koma Remy í færi og spila hann í færi sem nýtti í mörk. Það er óhætt að segja að Cabaye var frábær í fyrra með Newcastle og gerði leikmennina í kringum sig mun betri. Og Remy var einn þeirra sem blómstraði með hann við hliðinna á sér. Þegar Cabaye fór þá bara gafst Newcastle upp. Engin sem steig af skarið og gerði sömu hlutinna eða var reyna eitthvað. Remy fékk aftur á móti hrós fyrir dugnað og eljusemi þegar Newcastle tók þetta Taprun í lok tímabilsins. Maður hugsar núna fyrst Remy hafði bara einn svona Sóknrsinnaðan leikmann með sér í fyrra hvernig verður hann þá þegar hann hefur Couthino sem elskar að gefa þessar fáranlegu Split the defence sendingunna. Eða Sterling sem er öskufljótur og hefur verið að bæta sendingarnar sínar, Eða King Gerrard sem er oftar enn ekki með stórkostlegar sendingar. Lallana er einn sem kann að spila samherja í færi! Remy er að fara í lið sem er með stefnunna á hreinu og hann veit hvernig þjónustu hann fær þarna í fremstu víglínu, Svona fyrirfram er þetta eins og skrifað í skýinn hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis? Enn vonandi verður þetta frábær kaup þegar þessi væntanlegi 5 ára samningur klárast 🙂

    Enn annað, ég farin að hafa áhyggjur af þessu Samningsferli sem Liverpool virðast stunda. maður las það um helginna að Remy væri á leiðinni til okkar ásamt Origi og Lovren enn það virðist ekkert vera í gangi nemar þessi skaldbökuhraði í kaup og samningskjör. Þegar maður hugsar út í það að við misstum Gylfa til Spurs fyrir 2 árum, HM til Dortmund í fyrra, og svo nátturlega Kono í januar! Þá setur maður soldið spurningamerki hvað þetta virðist ganga hægt oft :S Þegar kemur að mínu félagi þá vil ég bara klára þetta sem fyrst!!! en væntanlega eru menn að reyna spara einhverjar krónur með svona ferli :S

  27. Nú er talað um að okkar menn ætli ser Vidal fyrir rúmar 40 kúlur, væri ekki leiðinlegt að fa hann þó eg taki þessu með algjörum fyrirvara ennþa..

    klára Lovren , Moreno og Vidal og við erum klárir í tímabilið ..

  28. vidal var buinn að segja að draumurinn væri að spila fyrir united…þannig að við getum gleymt honum held eg…svo virðist sem moreno díllinn sé off,, allaveganna heyrir maður ekkert af þvi

Stevie hættur með landsliðinu

Liverpool 0 v Roma 1