The Liverpool Encyclopedia

LFC-3D-jpeg-250x274Hálfguðirnir Arngrímur og Mummi sitja sjaldnast auðnulausir með hendur í skauti.

Þeir hafa verið að vinna að enn einu mögnuðu ritinu að undanförnu, alfræðiorðabók um besta og fallegasta lið í heimi, Liverpool Football Club.

Við erum að tala um 650 blaðsíður, með um 420.000 orðum og 1.100 myndum um þennan klúbb guðanna þar sem þeir félagar birta m.a.:

Ágrip, bæði ævi- og leikferils allra leikmanna sem hafa leikið fyrir Liverpool frá stofnun til dagsins í dag.

Ítarleg ágrip um alla þá sem stjórnað hafa félaginu.

Upprifjun á öllum merkilegustu atvikum og viðburðum sem á daga félagsins hefur drifið.

Tölfræðiupplýsingar sem birst hafa á www.lfchistory.net.

Bókin fór í forsölu síðasta föstudag. Þeir sem panta hana fyrir 25.júlí fá 20% afslátt af verðinu. Að auki verða þeir sem pantað hafa sér bók fyrir 10.ágúst með á sérstökum “Heiðurslista” (Roll of honour) í henni.

Tekið er við pöntunum á www.liverpoolbook.com

Hjartanlega til hamingju með þetta félagar Arngrímur Baldursson og Guðmundur Magnússon – og auðvitað við öll sem fáum að njóta meistarverka drengjanna!

9 Comments

  1. verður þessi bók gefin út í fleiri löndum en á Íslandi ? er hún á ensku eða íslensku eða bæði kannski ?

  2. Nr. 3 Viðar

    Svona stórvirki myndi nú líklega litlu skila á Íslensku enda ansi lítill hluti af markaðnum sem kann okkar góða tungumál. Líkt og LFCHistory er bókin á ensku geri ég ráð fyrir. Fínar upplýsingar ef þið smellið á linginn í færslunni.

  3. Djöfullinn ég ginnti. nú er ég meistarinn sjálfur og hann bara maður hálfur.

  4. Babú eg átti svo sem ekki von á að hun væri á íslensku en eg man þó fyrir 10-15 árum var gefin út bókin saga Liverpool íslensku og hun virtist duga fyrir íslenskan markað…

  5. Viddi, það var saga Liverpoolklúbbsins á Íslandi.
    Efast um að hún hafi verið gefin út á fleiri tungumáum en Íslensku 😉

Preston 0 – Liverpool 4

Stjórinn