Úrslit í Fantasy Premier League.

Núna þegar deildin er búinn þarf víst að gera upp Draumaliðsleikinn en þar sem ég vann ekki þá hef ég engann áhuga á því :)! En úrslitin eru ljós og sá sem var hlutskarpastur var Reynir Berg Þorvaldsson með liði Lens? og fékk hann heil 2222 stig í keppninni. Hann var tæplega 200 stigum á undan næsta mannig og því vel að sigrinum kominn.

Hvað varðar okkur sem skrifum á þessa síðu þá urðu úrslitin þessi:
SSteinn varð í 38 sæti með 1878 stig.
Magnús Þór varð í 45 sæti með 1865 stig.
Undirritaður varð í 65 sæti með 1824 stig.
EÖE varð í 202 sæti með 1558 stig.
Olli varð í 215 sæti með 1515 stig.
Babu varð í 230 sæti með 1459 stig.

Ótrúlegt en satt þá varð SSteinn efstur okkar en það sem er minna ótrúlegt er að Babu varð neðstur 🙂

7 Comments

  1. Ég segi það og stend ekki við það……KAR spilaði sem Babu í ár.

    Ég tók ekkert þátt í svona asnalegum leik!

    :p

    (Annars bætti ég held ég metið mitt í að hætta snemma að spá í þessu)

  2. Enn og aftur kemur það vel í ljós hver af pennunum hérna hefur mesta hæfileikana í framkvæmdastjórastöðu 😉

    Þetta ætti ekkert að koma þér á óvart Aggi minn, það sama var uppi á teningnum á síðasta ári

  3. Það verður mikið unnið í að grafa upp hvar þessi 13 stig liggja, ég tel í dag líklegast að mistök mín að kaupa Hemma Hreiðars í haust hafi kostað mig sigurinn.

    Ekki það að ég ætli að segja Hemma það sjálfur……..

  4. Djöfulsins snillingur hlýtur þessi Reynir Berg að vera. Ef við skoðum listan yfir efstu menn á Íslandi er hann líka lang efstur þar eða 68 stigum yfir næsta mann. Yfir heiminn er hann svo í 50 sæti einungis 42 stigum á eftir efsta manni sem verður að teljast frábær árangur.

    Spurning hvort að Benitez fái hann ekki bara í þjálfarateamið fyrir næsta season;)

  5. Já, þetta er magnaður árangur hjá honum.

    Hann fær að verðlaunum gjafabréf hjá Serrano, einsog var lofað þegar við settum upp keppnina.

  6. ég á ekki eitt aukatekið orð. það að steini vinur minn standi uppi sem sigurvegari af okkur pennanum verður að teljast ekkert minna en hneyksli, ég er gáttaður

One Ping

  1. Pingback:

Babel má fara

Hverjir koma? #3 – Sanli Tuncay