Auglýsing: Salöt á Serrano

Við á Serrano erum byrjuð að selja nýja línu af salötum. Þetta eru fjórar tegundir af fjölbreyttum og ljúffengum hágæða salötum. Ólíkt öðrum skyndibitastöðum þá er þetta ekki bara iceberg kál með kjúklingabitum, heldur er þetta blanda af fjórum salat tegundum (rauðlaufssalat, Klettasalat, Iceberg og Frisée), pico de gallo salsa, sem og úrvali af grænmeti og kjúklingi.

Allar sósurnar sem við bjóðum með salötunum eru búnar til á Serrano. Tegundirnar eru semsagt fjórar:

* * *

Verano Salat: Rauðlaufssalat, Klettasalat, Iceberg, Frisée, Fersk Salsa, Kjúklingur, Feta Ostur, Ristuð Graskersfræ, Vinaigrette Lime dressing

Classico Salat: Rauðlaufssalat, Klettasalat, Iceberg, Frisée, Fersk Salsa, Kjúklingur, Nachos Flögur, Jalapenos, Maís, Mangó sýrður rjómi.

Fresco Salat: Rauðlaufssalat, Klettasalat, Iceberg, Frisée, Fersk Salsa, Kjúklingur, Maís, Pinto Baunir, Svartar Baunir, Hunangs Dijon Dressing.

Pepino Salat: Rauðlaufssalat, Klettasalat, Iceberg, Frisée, Fersk Salsa, Kjúklingur, Parmesan Ostur, Agúrka, Svartur Pipar, Balsamic Dressing.

* * *

Ég fullyrði það hér með að betri salöt fást ekki á skyndibitastað á Íslandi. Endilega kíkið við og smakkið 🙂

19 Comments

  1. Getið þið sent norður til Akureyrar … mig dauðlangar í Verano og Classico … !! (og hin líka … )

  2. Kristján, ég er að vinna í því að reyna að nálgast þig með staðsetningarnar 🙂

    Og Doddi, ekkert mál. Ég bara ábyrgist ekki alveg ferskleikann. 🙂

  3. Fínt að fá smá tilbreytingu á quesadillas 😉
    Gott að geta styrkt Liverpool óbeint með skyndibitaáti! 😀

  4. Ég elska Serrano, væri til í að éta þetta í öll mál, hollt og skuggalega gott, prufa eflaust þetta salat einhverntíman ! vona að þér gangi vel með staðinn, ég styð þig allavega ! 🙂

  5. Glæsilegt.

    Enn meiri ástæða til að fara á Serranos.

    Keep up the good work.

  6. Ég elska Serrano, fæ mér oft quesadillas þar. Mun pottþétt prófa þessi salöt (sérstaklega ef maður ætlar í enn eitt “bikiní-líkami fyrir sumarið” átakið….hóst hóst).

  7. Takk kærlega. 🙂

    Frú Rafa, þú getur líka fengið þér burrito fyrir átakið. Það er kannski svona millistigið frá quesadilla alla leið yfir í salöt.

  8. afhverju fá ekki Liverpool menn sértilboð á Serrano, til dæmis væri hægt að búa til mjög exótískt salsa salat eitthvað og kalla það Luis Garcia. Þá gæti ég pantað mér Luis Garcia salat !

  9. Jón, Serrano (ekkert S í endan) er við Stjörnutorg í Kringlunni og á nýju N1 bensínstöðinni við Hringbraut við hliðiná BSÍ.

    Og Kiddi, þetta er athyglisverð hugmynd 🙂

  10. Einar, ég skora á þig að gera þetta. Bara til að sjá hvort Kristján standi við stóru orðin 🙂

  11. Haha, gleymdu exótíska Luis Garcia salatinu – Rafa burritos væri hinsvegar eitthvað sem fengi mig til að flytja í tjald fyrir utan Serrano á Hringbraut! Nú eða þá Steven Gerrard quesadilla… nammi namm! 😉

Er Malouda fyrstur á dagskrá?

Hyypia áfram (uppfært: Kewell vill líka vera áfram)