L’pool 1 – Blackburn 1

mccarthy_reina.jpg

Ég hélt að Liverpool-liðið gæti varla spilað verr og verið andlausara en það gerði gegn Bolton fyrir tveimur vikum síðan, en þeir afsönnuðu það í dag þegar þeir gerðu grútlélegt 1-1 jafntefli við Blackburn á Anfield. Þrátt fyrir að hafa náð að jafna í dag var leikur liðsins einfaldlega ekki upp á marga fiska.

Rafa Benítez gerði óvenju fáar breytingar frá því í síðasta leik, tvær talsins og þær komu báðar til vegna meiðsla; Dirk Kuyt og Momo Sissoko eru frá og því komu Peter Crouch og Fabio Aurelio inn í liðið í þeirra stað. Liðið í heild sinni var sem hér segir:

Reina

Finnan – Carragher – Hyypiä – Riise

Pennant – Gerrard – Alonso – Aurelio

Crouch – Bellamy

Bekkur: Dudek, Palletta, Zenden, García, Gonzalez.

Um fyrri hálfleikinn er nánast ekkert hægt að segja. Leikurinn var jafn í upphafi og hvorugt liðið virtist geta tekið boltann niður og spilað að viti, en þegar leið á náðu Blackburn-menn þó frekar að athafna sig og þeir komust yfir á sautjándu mínútu með góðu marki. Bentley sendi boltann hátt fyrir úr djúpri stöðu á hægri kantinum, boltinn datt niður í teig okkar manna þar sem þeir Carragher og Finnan leyfðu honum bara að fljóta yfir á fjærstöngina. Pepe Reina ætlaði út í úthlaupið en hætti við og því fór enginn í boltann nema Benny McCarthy sem var óvaldaður á fjærstöng og skaut í tómt markið. Makalaust klúður hjá vörn okkar og markverði og það sást klárlega í þessari sókn hvað er að há liðinu þessa dagana: skortur á sjálfstrausti.

Þess utan gerðist fátt markvert í fyrri hálfleik. Riise átti eitt gott skot sem Friedel varði og í kjölfarið bjargaði varnarmaður Blackburn á línu frá Crouch, en að öðru leyti gerði liðið lítið af viti í fyrri hálfleik og var verðskuldað marki undir í hléi.

Seinni hálfleikurinn byrjaði svipað og sá fyrri, bæði lið virtust í hlutlausum gír og ekkert gekk hjá okkar mönnum að setja saman sóknir. Það skánaði aðeins þegar leið á hálfleikinn og þegar tæplega hálftími var eftir fengum við hornspyrnu úti við hægri kantinn fyrir framan The Kop. Fabio Aurelio sendi góðan bolta fyrir sem datt niður á fjærstöng þar sem Craig Bellamy var óvaldaður og skallaði í netið. Vörn Blackburn-manna hafði verið feykigóð í þessum leik en klikkaði í þetta eina sinn og það var nóg til að Bellamy næði að skora gegn sínum gömlu félögum og bjarga stigi fyrir okkur.

Eftir þetta kom svona fimm mínútna kafli þar sem Liverpool-liðið sótti af auknum krafti og maður hélt að þeir myndu sennilega innbyrða sigur en svo bara dó sá sóknarþungi út og leikurinn fjaraði út í hálfgerðu kæruleysi. Okkar menn voru að reyna en það var bara ekkert að ganga upp og jafnvel einföldustu hlutir virkuðu ofurerfiðir í þessum leik. Á endanum lauk leiknum með 1-1 jafntefli og það verður að segjast að það voru sanngjörn úrslit í dag.

Nú, eftir þennan leik erum við í tíunda sæti með ellefu stig eftir átta leiki. Man U eru á toppnum með nítján stig en Chelsea eiga leik seinna í dag og geta náð þeim að stigum, á meðan Arsenal eru í fjórða sætinu með fjórtán stig en eiga leik til góða. Þannig að við erum sennilega átta stigum á eftir Man U og Chelsea og sex stigum á eftir Arsenal, eftir aðeins átta umferðir.

Og næsti leikur er á Old Trafford, gegn Man U og það er ljóst að ef við töpum þeim leik getum við kvatt titilbaráttuna í ár. Jafntefli er algjört lágmark á Old Trafford, og það er vissulega djöfullegt að þurfa að gera slíkar kröfur á þessum erfiða útivelli en liðið er einfaldlega búið að mála sig út í horn með slæmri byrjun á deildarkeppninni. Ég hef ekki hugmynd um það hvers vegna liðið er ekki að ná að spila betur en þetta, þarf að melta það aðeins betur en sjálfsagt hafið þið lesendurnir ykkar að segja um gengi liðsins. Hlakka til að lesa það í ummælunum.

Maður leiksins: Xabi Alonso, sá eini sem spilaði eitthvað nálægt sinni bestu getu í dag. Og fyrir þá sem eru að telja, þá er þetta annar heimaleikur liðsins í röð sem Gerrard og Alonso spila saman á miðjunni, og Gerrard gat nákvæmlega ekkert

Næsti leikur: Bordeaux í Meistaradeildinni í miðri viku.

36 Comments

  1. :mad:Ekki batnar það. Þvílíkt og slíkt. Ömurlegt er ekki einusinni við hæfi. “pennant” fer að verða besta lýsingarorðið yfir lélegur og annað eftir því. Aurelio er hann fótboltamaður eða vatnskarl. Og loksins fær RB launað að verðleikumfyrir að vera stöðugt að djöflast með vörnina. Nei og aftur nei nú er nóg komið og meira en það. Og engu um að kenna öðru en afar slakri framistöðu LFC 😡 😡 😡

  2. Ég verð bara að viðurkenna að eftir Bolton leikinn var líf í mér..(reiði) en núna er mér bara gjörsamlega öllum lokið..allur vindur úr mér og já ég er einn af þessum miðjugerrard vælurum ..svo ég held að það fari best á því að ég bara haldi kjafti það sem eftir er dags.. 🙁

    En nú er bara að setja hausinn undir sig og vinna upp í pusið…stundum er þetta bara svona. Allt upp í vind og ágjöfin að kæffæra allt. En þá þýðir ekkert að skríða undir þiljur og gefast upp. Það þarf að halda áfram að vinna.

    YNWA….ps..ég elska Liverpool!!

  3. alltaf gott að kíkka hingað inn eftir leik … hef þó aldrei skrifað hér fyrr en núna!!!

    en vóóóoó hvað maður er ekki sáttur við þetta lið núna … já þetta lið, usssss 😯
    ég hafði nú meiri trú á þeim en þetta – líkt og búið var að spá fyrir þeim á þessari góðu síðu!!

    koma svoooo, verðið að hanga í baráttunni 😉

  4. Ég held nú eftir þennan leik fara allir að hætta að væla um Alonso og Gerrard á miðjunni !! Þeir eru ekki góðir saman og það vantaði klárlega Momo og Bolo með þeim á miðjunni í dag !! Liðið spilar bara einfaldlega mikið betur með Gerrard úti á kantinum eða að sjálfsögðu í frjálsu hlutverki en það er spurning með að menn vilji fórna öðrum strikernum því við vitum öll að einum varnarmanni verður ekki fórnað !!

    Fannst líka bara eitthvað stemmingsleysi vera í gangi í dag, bæði hjá liðinu og áhorfendum ! Svakalega leiðinlegur leikur og vonandi að liðið fari að rífa sig upp úr þessu ef það ætlar ekki að enda í UEFA cup á næsta ári!!

    Svo er eitthvað mikið að vörninni þessa dagana !! Menn eins og Carra og Hyypia lýta út eins og einhverjir aumingjar sem eiga bara heima í 3.deildinni !! Þetta er algjörlega óásættanlegt og vonandi að Agger verði tilbúin í næsta leik!

    Sé aðeins eitt jákvætt út úr þessum leik og það er það að Bellamy skoraði loksins !

  5. Arsenal er þekkt fyrir hratt spil, fáar snertingar og gífurlegan hraða.

    Man Utd hefur aukið hraðann mikið á þessu tímabili og önnur lið (nema Arsenal) eiga í vandræðum með að eiga við slíkt.

    Chelsea eru gífurlega massívir, sterka einstaklinga í öllum stöðum sem vinna mörg návígi og gera liðinu kleift að halda uppi hárri pressu og halda boltanum afar vel.

    Liverpool ? Hvað er einkenni þessa liðs? Fullt af frambærilegum fótboltamönnum en þetta er lið sem hefur ekki enn fundið sitt identity. Spila þeir hratt? Halda þeir uppi hárri pressu? Skapa þeir mikil vandræði fyrir andstæðingana? Nei, nei og nei.

    Þetta er lið sem akkúrat þessa stundina reiðir sig á einstaklingsframtök og happ og glapp. Skot af 30 metra færi, langar sendingar og tilviljunarkendar fyrirgjafir eru ekki áskrift að meistaraliði, sama hversu einstaklingarnir eru góðir. Lið án stefnu gerir ekki mikið.

    Þetta er þáttur Benitez. Það er hans að koma inn sínum stefnum og áhersluþáttum inn í leik liðsins. Undirbúningstímabilið er tíminn til þess – sjáið bara muninn á Man Utd á þessu tímabili. Þeir bættu ekki miklu við hópinn en það er greinilegt hvað hefur verið æft fyrir tímabilið – spila hratt, spila hratt og spila hratt. Hvað hefur Liverpool bætt við sig?

    Leikur Liverpool á áreiðanlega eftir að batna rétt eins og á síðasta tímabili en það verður um seinan. Dejavú.

  6. Þetta var fáranlega lélegt. Crouch var eins ömurlegur og hann var í landsleiknum á móti Króatíu og hann getur ekki neitt. Vill frekar sjá Fowler inná ef hann er heill. Gerrard er ekki að gera neitt inná miðjunni hafa hann í frjálsa hlutverkinu. Garcia á alltaf að vera í byrjunarliðinu enda yfirburðamaður, sem og Daniel Agger. En í dag er Liverpool miðlungslið sem getur í raun verið ánægt með jafntefli við Blackburn á heimavelli.

  7. Hvað þótti ykkur um framistöðu Pennant í dag? Sá maður verður að fara að sýna mikið meira ef hann ætlar að réttlæta þessi kaup á sér! Mér þótti hann ömulegur eins og reyndar margur annar í dag. Hann tapaði allt of mörgum boltum og gat varla spilað boltanum frá sér öðruvísi en hann sendi á Blackburn mann.

  8. Ég kenni því um að það vanti Sissoko og Agger.

    Þið vitið það kannski betur en ég, en ég man ekki til þess að liðið hafi unnið leik með Hyypia á vellinum eða án Sissoko, hvað þá þegar Hyypia er með og Sissoko er ekki með.

    Hvorki Alonso né Gerrard eru þessir menn sem miðjumenn annarra liða óttast að mæta í tæklingum, en ég vil meina að þeir séu ófáir sem óttist það að mæta Sissoko á vellinum.

  9. Ætla að gerast svo grófur að segja strax, að titilbarátta Liverpool er brostin … það er enginn andi í þessu liði þessa dagana! Enginn verður glaðari en ég ef þessi bölsýn mín í dag reynist röng, … en hún gæti verið lituð af mikilli drykkju gærkvöldsins – ég er soldið þungur og pirraður í hausnum 🙂

  10. Þetta er búið spil. Það er nokkuð ljóst að deildartitlinum verður ekki fagnað í Liverpool vorið 2007 :confused:

  11. Kommon, evs, Garcia er mjög misjafn í leikjum. Það má treysta á að hann sé góður í meistaradeildarleikjunum en í deildarleikjunum er stundum eins og hann nenni ekki að leggja sig fram. Eins er fáránlegt að gagnrýna Crouch sérstaklega, þar sem hann hefur fengið of fá tækifæri í byrjunarliði í vetur og getur væntanlega átt slæma daga eins og aðrir.

  12. hvað með gonzalez? það var beðið eftir honum, fékk ekki atvinnuleyfi ,svo kemur hann og spilar ekki neitt ?Liv góðir framm yfir miðju,svo búið, fyrir gjafir vonlausar framhjá eða yfir hélt að Bellamy væri ekki með í seinni hálfleik fyrr en hann skoraði,þeir verða að læra að skora????

  13. hvað ??? eru allir sofandi ekkert svar eða er ég ekki með?svarið ummæli 13

  14. Hefur Gerrard gert eitthvað í haust inni á fótboltavelli með LFC en ekki enskum? 😯

  15. einsi, rólegur það var laugardagskvöld í gær. Mönnum er fyrirgefið að hafa ekki setið yfir tölvuskjánum. :laugh:

    Gonzalez er mjög efnilegur og góður og ég hef séð nóg til hans í byrjun tímabils til að hafa trú á honum, en hann á samt enn aðeins í land með að gera tilkall til þess að spila alla leiki með okkur. Hann þarf t.d. greinilega að aðlagast enskri knattspyrnu og hörkunni þar í landi betur en t.d. Fabio Aurelio, sem virðist henta betur í þess háttar bolta, og hann þarf að skila bolta betur frá sér – við höfum ekki enn séð hann spæna upp kantinn, framhjá bakverði og gefa góða fyrirgjöf eins og við höfum t.d. séð Pennant gera.

    Það sem ég sé há liðinu einna mest í dag er skortur á sjálfstrausti. Ef liðið hefði byrjað tímabilið á sigri á Anfield gegn Maccabi Haifa og svo sigri gegn Sheffield United hefði sjálfstraustið verið í botni og engin leið að segja hversu hátt liðið væri búið að klifra núna, en þess í stað fóru þessir leikir í jafntefli og svo töpuðum við illa fyrir Everton og Chelsea, sem sló úr okkur tennurnar. Þannig að menn eru að reyna að berja í sig sjálfstraust aftur og á meðan það gerist er erfitt að spila gæðabolta.

    Ég hef ennþá trú á því að þetta lið sé nógu sterkt til að berjast í toppnum – ég hef hvorki misst trúna á Rafa né leikmönnum hans, og mér þykja þeir Bellamy, Pennant, Aurelio, Gonzalez og Palletta ennþá nógu góðir til að spila fyrir Liverpool í toppbaráttu. Vandamálið er bara það að á meðan liðið ekki hefur sjálfstraust til að spila af fullri getu munum við ekki sjá það taka þeim framförum sem það þarf og detta í “gírinn” eins og þeir gerðu í fyrra. Þetta kemur með tímanum en tíminn bara vinnur á móti okkur í þessu því með hverjum leiknum færumst við fjær toppbaráttunni.

    Hver veit? Kannski vinnum við United óvænt á Old Trafford eftir viku og það þrykkir tímabilinu í “gírinn” … og kannski töpum við illa þar og þurfum að þola aðra tvo mánuði af hörmunum áður en liðið loksins jafnar sig og fer að reyna að bjarga því sem bjargað verður? Það er ómögulegt að segja og þetta eru hvoru tveggja raunhæfir möguleikar, ég vona bara að raunin verði eitthvað líkari þeim fyrri.

    YNWA. 🙂

  16. Ég vill sjá meira af Gonzalez. Maður hefur verið að lesa eitthvað um að hann sé efnilegur og hans tími muni koma. Ég segi bara eins og Gaui Þórðar, ef hann er nógu góður þá er hann nógu gamall!

    Enn sem komið er hafa Aurelio, Pennant og Bellamy valdið mér vonbrigðum og gengi liðsins kannski svolítið í takt við framistöðu þeirra og reyndar fleiri.

    Það er ekki bjart yfir því núna en þetta er ekki búið gott fólk.

    Áfram Liverpool

  17. Dreg kannski aðeins í land með Crouch en gegn snöggum og sterkum varnarmönnum eins og Króatía og Blackburn hafa á að skipa er hann of auðveldur. Það virðist ekkert mál að taka boltann af honum. En heilt yfir er það auðvitað málið að það vantar alla stemningu í liðið. Gerrard og Alonso virðast ekki geta verið saman á miðjunni.

  18. Ekki einungis Bellamy, Pennant og Aurelio hafa valdið vonbrigðum. Nefni líka: Reina, Carragher, Hyypia, Alonso og Gerrard. Munar um minna, enda er staðan vægast sagt slæm.

  19. Nú langar mig að setja spurningamerki við Benitez. (Tek þó fram að ég er ekki að fara halda því fram að hann eigi að fara segja af sér!!)

    Er það tilviljun að liðið hefur undanfarin þrjú tímabil tapað baráttunni um enska titilinn strax í byrjun tímabilsins.

    Tímabilið 2004/5
    Leikir Sigur Jafntefli Tap Stig Fullt hús
    11 5 2 4 17 (33)
    Tímabilið 2005/6
    Leikir Sigur Jafntefli Tap Stig Fullt hús
    9 3 4 2 13 (27)

    Tímabilið 2006/7
    Leikir Sigur Jafntefli Tap Stig Fullt hús
    8 3 2 3 11 (24)

    Það er nokkuð ljóst að lið sem er orðið næstum 10 stigum á eftir toppliðinu þegar tveir til þrír mánuðir eru liðnir af móti á ekki mikla möguleika á að vinna titla. Tala ekki um þegar tilvonandi meistarar eru að tapa 3-4 leikjum yfir allt tímabilið.

    Það er mín skoðun eftir slæma byrjun þrjú tímabil í röð að eitthvað er stórlega að undirbúningstímabilinu hjá liðinu. Undirbúningstímabilið núna gaf svo sem ekki góð fyrirheit þegar liðið var að láta smálið í Sviss og Þýskalandi rassskella sig í æfingaleikjum.

    Menn virðast einfaldlega koma þreyttir, þungir og án nokkurs sjálfstraust til leiks á hverju tímabili. Ég man undanfarnar leiktíðir átti liðið í mesta basli með að halda boltanum innan liðsins og liðið var að skapa sér fá færi. Þrátt fyrir nokkra sigra þá einkenndist leikur liðsins af ströggli og sigrarnir voru ekki sannfærandi.

    Það var ekki fyrr en í nóvember bæði tímabilin undan að liðið fór að vinna leiki og jafnvel útileiki, eitthvað sem liðið hefur átt í stöku basli með undir stjórn Benitez.

    Er sammála mönnum hér á undan að greinilegt er að allt sjálfstraust vantar í liðið, en það eru fleiri þættir sem spila þarna inní. Liðið vann góða sigra á Tottenham, West Ham og Galat. en það virðist ekki hafa fært liðinu neitt. Ekkert meir sjálfstraust eða ekkert betri fótbolta. Menn eru greinilega ekki í líkamlegu né andlegu standi þegar þeir mæta til leiks í byrjun tímabils.
    Þá kemur liðið einfaldlega illa skipulagt í sína fyrstu leiki. Allan rythma vantar í leik liðsins og liðið þarf að leika fram í nóvember til þess að einhver stöðugleiki fer að myndast. Það virðist sem svo að það þurfti alltaf að byggja liðið uppfrá grunni í byrjun hverjar leiktíðar í stað þess að geta byggt ofan á það sem fyrir var.

  20. Alveg er ég sammála síðasta ræðumanni, ég hef einmitt (aha) verið að hugsa það sama, það væri fróðlegt að vita hvernig Rafa hagaði undirbúningstímabilinu hjá Valencia miðað við hvernig hann gerir það hjá Liverpool. Það gefur augaleið finnst mér að þú þarft að haga þeim öðruvísi þar sem deildirnar sú spænska og sú enska eru gjörólíkar og þar með má segja að menn þurfa að vera í “öðruvísi” formi ef svo má segja, ég er ekki frá því að menn verði að vera í betra formi í þeirri ensku sökum meiri hraða og meiri yfirferðar hjá leikmönnum að mínu viti.

  21. Ég held að ástæðan fyrir þessari slæmu byrjun er að við erum með marga nýja leikmenn sem að eru ekki búnir að spila sig saman við restina af liðinu, þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég lýsti yfir áhyggjum á því að við værum að kaupa leikmenn svona seint í glugganum.
    En það er alveg klárt að um leið og liðið er búið að spila sig saman þá verðum við illvinnanlegir, en titillinn er farinn þetta tímabilið nema að kraftaverk gerist, við verðum bara að taka einhverjar aðrar dollur eins og Champions league :blush:
    Ég er alls ekki að missa trúna á Rafa, þvert á móti held ég að hann sé kominn með hóp til að taka deildina…..bara ekki þetta tímabilið !

  22. Já, það er einmitt málið! Er bara orðinn frekar þreyttur á þessu “næsta tímabili” syndromi ! …og ég er heldur ekki frá því að menn eins og t.d. Gerrard, Alonso og fl. séu kannski að verða það líka.

    Það er auðvitað frekar augljóst að það gengur ekki að byrja hvert einasta tímabil í nóvember. Ef að Rafa er kominn með hópinn sem hann vill vera með verður hann þá líka að sýna að hann sé að fara gera einhverja hluti með hann.

  23. Margir góðir punktar en ég er með kenningu:

    Rafa er þurr, fjarlægur, neikvæður(aldrei ánægður með neitt)karakter og þess vegna vantar alla leikgleði í þetta lið. Menn eru bara ekkert að hafa gaman að þessu. Rafa þarf að bæta við smá húmor í þetta. Hræddur um að leikmenn verði bara hálf þunglyndir að spila undir honum! Ég er ekki alveg búinn að missa trúna á kalli…en það fer að líða að því.

  24. Margir góðir punktar en ég er með kenningu:

    Rafa er þurr, fjarlægur, neikvæður(aldrei ánægður með neitt)karakter og þess vegna vantar alla leikgleði í þetta lið. Menn eru bara ekkert að hafa gaman að þessu. Rafa þarf að bæta við smá húmor í þetta. Hræddur um að leikmenn verði bara hálf þunglyndir að spila fyrir hann! Ég er ekki alveg búinn að missa trúna á kalli…en það fer að líða að því.

  25. Rafa er ekki hafinn yfir gagnrýni, svo mikið er víst. En þessi ummæli Mr Dalglish áttu einfaldlega ekkert skylt við gagnrýni og allt skylt við skítkast og upphrópanir. Þeim var því eytt út og Mr Dalglish, sem við höfðum varað ítrekað við áður, hefur verið bannaður. -Kristján Atli

  26. Ég bíð spenntur eftir viðbrögðum spjallsins hér við pósti Mr. Dalglish (ummæli 26) því þau eru náttúrlega út úr kú. Benitez hefur gert helling fyrir Liverpool – við höfum unnið bikar á hverju ári síðan hann tók við, og þó svo að ég sé ekki jafnharður í gagnrýni á Houllier eins og margir hérna, þá get ég ekki tekið undir það að “meistari Gerrard Houllier” hafi byggt eitthvað upp og Benitez rifið það niður.

    Benitez er ekki hafinn yfir gagnrýni, en ég er sammála því að sjálfstraustið er lykillinn að genginu. Ég sé ekki fram á titlabaráttu í deildinni hjá Liverpool núna, en ég verð manna glaðastur ef það reynist rangt hjá mér. Þetta er pirrandi og auðvitað er löngunin í enskan meistaratitil ótrúlega sterk. En í dag hef ég enga trú á því að “Benitez í burt” sé eitthvað svar.

    Og Siggi R … Rafa er oft ánægður með leikmenn sína og ýmislegt annað. Hann er duglegur að lýsa því yfir í fjölmiðlum. Hvað með Mourinho? Ekki er hann nú mikið skárri en lýsingarorðin sem þú valdir um Benitez, en samt nær hann árangri. Ég held að það búi húmor í liðinu, það er bara einhver fáránleg lægð í mannskapnum sem pirrar mig og fleiri óstjórnlega. Dæmi um húmor: muniði ekki eftir berum rassi S. Gerrard á marklínunni á æfingu hjá Liverpool og Crouch að taka víti? Okei, ársgamalt … en húmorinn er enn til staðar.

    Stöðugleiki og sjálfsöryggi er það sem vantar – því mannskapurinn sem við höfum er frábær. Minnir mig óneitanlega á R.Madrid sem er með frábæran mannskap en spilar á köflum ömurlegan bolta.

    Ég held alltaf ótrúlega mikið með Liverpool en það er ekki gaman að tala um fótbolta í dag, nema um Barcelona. Tveir-þrír sigurleikir fengju mann til að kætast aðeins … það hlýtur að koma að því, en varðandi titlabaráttu – þá er ég hræddur um að það sé orðið of seint.

    (mér finnst gaman þegar einhver sýnir að ég hafi rangt fyrir mér … verður gaman hjá mér í vor??)

  27. Rafa er ekki hafinn yfir gagnrýni. Þetta rotation kerfi er ekki að virka það er alveg á hreinu.

    Það er reyndar eitt sem mig langaði til að benda á og það er hægri bakvörðurinn okkar sem hefur spilað alla leikina hingað til. Ég benti á það síðast að hann hefði átt manninn sem skoraði í undanförnum leikjum en svo virðist sem hann sé hafinn yfir alla gagnrýni.

    Er það bara ég eða er ekki markið á móti Blackburn f.o.f. honum að kenna? Mér finnst það.

    Þið getið séð markið hér. http://www.youtube.com/watch?v=8LxlnyvTva8

    Þá vil ég kommenta á brot Hunt á Petr Cech.
    http://www.youtube.com/watch?v=y7b9YrZ8244

    Mér finnst þetta ekkert annað en viljandi og að hann hefði hæglega getað hoppað yfir Cech. Enn eitt dæmið hvað dómarar á Englandi er lélegir. Mikill galli á annars frábærri deild.

  28. Málið er einfalt. Aftasta varnarlína Liverpool með markmanninum meðtöldum er einhver sú alslappasta hingað til í deildinni. Kannski lagast það, kannski ekki. Carragher, maðurinn sem allir eru svo skotnir í hefur ekki getað nokkurn skapaðan hlut í haust. Sami Hyypia er alveg búinn. John Arne Riise er og hefur verið meðalmaður. Aurelio virðist litlu skárri. Finnan er sömuleiðis meðalmaður. Agger er sá eini sem eitthvað getur þarna en hann er ekki alltaf með og nú er hann meiddur.

    Ég er ekki hissa á að Benitez vilji fá Lucas Neill, þvílíkur yfirburðamaður hann var í leiknum á laugardaginn. Auk þess er hann töffari 🙂

    En Liverpool þarf meira en eitt stykki Lucas Neill í vörnina, þeir þurfa miðvörð með Agger og svo sómasamlegan vinstri bakvörð og þá er einhver von hjá klúbbnum.

    Staðreyndin er hins vegar sú að eina ferðina enn er Liverpool búið að tapa mótinu strax í upphafi. Komnir 8 stigum á eftir Chelsea og Man.Utd er bara of mikið og Makkarinn segir stórvel frá í sínum skrifum hvers vegna ástandið er svona.

    Einnig verð ég að taka undir skrif Sigga R. Benitez er eflaust flottur þjálfari og allt það, en hann er svo leiðinlegur og þurr (í viðtölum nota bene, þekki ekki manninn persónulega), það hlýtur að smita út frá sér. Það eru ekki margir skemmtilegir karakterar í þessu liði sem brosa og hafa einhverja útgeislun, Kuyt dettur mér í hug, hann er flottur.

    Brosa menn einsog Carragher og Finnan einhvern tímann? 🙂

  29. Jesús kristur… Carragher er búinn að eiga nokkra leiki þar sem hann hefur kannski ekki verið alveg upp á sitt besta og þá vantar okkur allt í einu miðvörð til að setja inn með Agger!!! Er ekki allt í lagi? Við erum að tala um mann sem menn hafa kallað einn allra besta miðvörð úrvalsdeildarinnar undanfarin tvö tímabil og nú á að bara að skipta honum út einn tveir og þrír af því að hann er búinn að vera, 28 ára gamall. Eigum við ekki að reyna að berja í hann smá sjálfstraust áður en við afskrifum hreinræktaðan púllara, mann sem er einn mesti baráttuhundurinn í liðinu og mundi sennilega henda sér fyrir bíl til að bjarga klúbbnum sínum.

    Og til að svara spurningunni hvort Carragher brosi nokkurn tímann þá skilst mér að hann sé einn allra mesti húmoristinn í hópnum og sé í raun einn allra frábærasti karakterinn í hópnum.

    Allt í þessu fína, endilega losum okkur bara við hann, við þurfum ekki á svona mönnum að halda þegar okkur gengur svona vel!!!

  30. ég held að það sé ekki vörnini að kenna hvernig staðan er, erum búnir að fá á okkur 9 mörk en skora 9 meðan liðin fyrir ofan okkur eru með þettað 13 til 17 mörk ég segi frmherjavandamál

  31. hehe, afar skemmtilegt að sjá hve málefnaleg og skynsamleg umræðan verður þegar illa gengur. Agger (sem er nýkominn til liðsins og hefur átt 4 – 5 góða leiki fyrir Liverpool) er allt í einu orðinn sá eini sem eitthvað getur í vörninni. Hinir (sem skipuðu varnarlínuna sem fékk á sig næst fæst mörk í deildinni í fyrra ef ég man rétt) eru ekki nógu góðir.

    Rotation stefnan er orsök alls ills (gleymum því algerlega að þessir margfrægu 95 og eitthvað leikir sem Benitez hefur aldrei spilað sama liðinu innihalda sigurleik í Meistaradeildinni, sigurleik í FA-bikarnum og deildartímabil sem skilaði NÆST HÆSTA SIGURHLUTFALLI LIVERPOOL Í SÖGU FÉLAGSINS). Jamm, algerlega vonlaust sýstem.

    Og það besta er svo að menn eru að “missa trúna” á Benitez (sem hefur unnið titla með liðum sínum síðustu fjögur ár í röð – þar af tvo með Liverpool) af því að… hann brosir ekki nógu mikið?!? :rolleyes:

  32. Vel mælt Kiddi, vel mælt!

    Ég er ekki sáttur með tímabilið hingað til, en róum okkur nú aðeins niður. Finnan og Carra eru báðir í toppklassa og hafa margsannað það!

    Vonandi að við förum að koma okkur úr þessum öldudal, höfum alveg lið til að gera mun betur.

    Áfram Liverpool!

  33. Það má ekki taka titlana af Rafa en það virðist vera að hann kunni ekki á ensku deildina og þar liggur sá titill sem ég held að við viljum helst landa. Er þetta ekki þriðja árið í röð sem við byrjum hörmulega undir hans stjórn? Liðið málar sig út í horn en vaknar svo og er í stöðugum eltingarleik allt seasonið að rembast við að ná meistaradeildarsæti. Varðandi frammistöðu í meistaradeildinni þá er ég heldur ekki búinn að gleyma frábærri frammistöðu í fyrra þegar við lágum fyrir Benfica…Rafa er ekki bara búinn að vera að gera góða hluti, það er á hreinu og það má vel gagnrýna hann. En, ég vona innilega að hann snúi þessu við asap og það bendir margt til að hann sé fær um það. En eins og Guðjón hinn grimmi fyrrum þjálfari KR og Stoke sagði eitt sinn ,,nú kemur í ljós úr hverju menn eru gerðir” vonandi sýnir liðið sitt rétta andlit á Old Trafford um helgina.

  34. Að mínu mati er Rafa Benitez eitt það allra besta sem hefur komið fyrir Liverpool á síðustu árum. Við skulum ekki tapa okkur í svartsýni. Mig minnir að fólk hafi báðar síðustu leiktíðir verið brjálað yfir gengi liðsins á e-m tímapunkti (eða gengi einstakra leikmanna) en síðan rættist úr (…at the end of the storm…).

    Auðvitað er svekkjandi að liðið sé að heltast (að því er virðist) úr lestinni svona snemma, en allt getur ennþá gerst því þetta er langt frá því að vera búið.

    Það er erfitt að vera Liverpool aðdáandi þegar svona illa gengur. Þetta er samt ekki (ennþá a.m.k.) orðið jafn slæmt og 2002/2003 tímabilið þegar Liverpool var í 5. sæti, Stjarnan var í 1. deild og Ísland komst næstum því á EM (en tap á móti Þjóðverjum í síðasta leiknum og helvítis Darren Fletcher kom Skotum áfram (eða a.m.k. í umspil)).

    Bíðum framyfir man. utd. leikinn.

Liðið gegn Blackburn

Gerrard meiddur