Crouch er stórkostlegur!

crouch_gala1.jpg

Hæ, ég heiti Kristján Atli og ég hef ekki skrifað á Liverpool Bloggið í heila átta daga. Á þeim tveimur og hálfu árum síðan ég og Einar Örn stofnuðum þessa síðu hefur það aldrei gerst! Svona er þetta þegar tölvan manns tekur upp á því að eyðileggjast í sömu viku og maður (a) skellir sér til Kaupmannahafnar í frí, (b) þarf að skila tveimur ritgerðum í Háskóla og (c) er á kafi í vinnu. Skiljanlegt. En allavega, þrátt fyrir mikið annríki náði ég rétt svo að horfa á leikinn í gærkvöldi eftir að hafa misst af sigrinum gegn Tottenham um helgina. Og ég bara verð að tjá mig aðeins um mann leiksins, sjálfan PETER CROUCH:

* Átta menn sig á því að Crouch er búinn að skora 18 mörk í 57 leikjum fyrir Liverpool? Það er eitt mark í rúmlega hverjum þremur leikjum, sem er nokkuð góð tölfræði verður að viðurkennast. En bætið við það þeirri staðreynd að hann skoraði ekki mark í einhverjum fyrstu 20 leikjum sínum fyrir liðið, og þá sjáið þið hversu heitur hann hefur verið síðan hann skoraði sitt fyrsta mark fyrir okkur gegn Wigan fyrir um tíu mánuðum síðan.

* Átta menn sig á því að Crouch er búinn að skora heil ellefu landsliðsmörk í fjórtán landsleikjum fyrir England? Og að hann skoraði ekkert í fyrstu fjórum landsleikjum sínum? Þannig að það sama er uppi á teningnum þar, að síðan hann byrjaði að skora hefur hann ekki hætt?

* Átta menn sig á því að Crouch er markahæsti enski leikmaður þessa tímabils í öllum keppnum? Aðeins Didier Drogba er búinn að skora fleiri mörk á tímabilinu en hann.

* Átta menn sig á því að Crouch er fyrsti landsliðsmaðurinn í sögu Englands sem skorar tíu mörk eða meira á sama árinu? Þetta afrekaði hann árið 2006 og getur enn bætt við þetta met sitt.

Þessi grein á sér svosum enga aðra ástæðu en þá að hylla stóra manninn sem við erum farnir að geta treyst á að skori mörkin fyrir okkur. Jú, menn eru spenntir yfir Bellamy og Kuyt þar sem þeir eru nýir og það er gaman að hafa Fowler þarna líka … en Crouch er einfaldlega aðalmaðurinn á Merseyside þessa dagana og verður það þangað til annað kemur í ljós!

He’s big
he’s red
his feet stick out the bed
he’s Peter Crouch … Peter Crouch … 🙂

6 Comments

  1. Svo sannarlega. Mér fannst líka stórundarlegt að hann hefur ekki verið í byrjunarliðinu í síðustu leikjum. Crouch og Kuyt, það verður mikið skorað í vetur.

  2. Well, álit mitt á Crouch hefur nú ekki mikið breyst við þessa framistöðu Crouch. Alveg sammála eikifr hér að ofan að þetta snýst allt um sjálfstraust. Hann átti góðan leik og vonandi tekst honum að halda áfram að sama level. Samt sem áður er hann enginn heimsklassa senter líkt og Kuit, Nistelrooy og fleiri. Góður senter og frábær liðsmaður myndi ég segja.

    Spurning hvernig Kuit og Crouch ná saman en ég var mjög hrifinn af þeim Kuit og Bellamy saman í framlínunni, eina sem vantaði var að fá mörk frá Bellamy. Kannski þarf hann 20 leiki til þess en ef hann fer af stað þá held ég að þeir tveir muni verða senterapar nr 1 hjá Liverpool.

    Hins vegar er ekki slæmt að hafa menn eins og Fowler og Crouch í bakhöndinni.

  3. mjög rétt ! mjög rétt Crouch er einfaldlega mjög góður og skemmtilegur leikmaður, Bellamy ætti að vera supersub.

  4. fallegur maður, hávaxinn, góður í fótbolta … hvað er hægt að biðja um meira? 🙂

    Mér finnst ágætt að stilla framherjum liðsins upp eftir því hvernig mótherjarnir eru, Kuyt og Bellamy saman sem mjög fljótt framherjapar, og kannski Crouch og Kuyt saman þegar það þarf á stórum leikmanni frammi sem getur tekið við og haldið boltanum t.d í útileikjum í C.L

Stór hindrun yfirstigin

Bolton á morgun