Ítalía Heimsmeistari!

italy-worldchamps.jpg

Í upphitunum helgarinnar talaði ég um að þessi leikur væri að öðrum ólöstuðum leikur áratugarins. Þótt ég efist um að nokkur knattspyrnuleikur á þessum áratug muni nokkurn tíma takast að vera betri, skemmtilegri og dramatískari en leikur Liverpool og AC Milan í Meistaradeildinni fyrir rúmu ári, þá er þetta sennilega eini leikurinn sem er klárlega stærri en úrslit Meistaradeildarinnar. Og það kom á daginn að þessi leikur olli ekki vonbrigðum.

Leikurinn fór vel af stað og eftir sex mínútna leik fengu Frakkar vítaspyrnu eftir að Marco Materazzi hafði brotið á Florent Malouda innan teigs. Það var erfitt að sjá snertinguna í sjónvarpinu en að mínu mati var samt klárt að Materazzi braut á Malouda; hann stöðvaði hlaupaleið hans og vítið fannst mér augljóst strax áður en ég sá það endursýnt. Úr vítinu skoraði svo Zinedine Zidane með einhverri ótrúlegustu spyrnu sem ég hef séð um ævina. Hann sendi Gianluigi Buffon í vitlaust horn og vippaði helvítis knettinum upp í slána og þaðan niður á grasið … rétt fyrir innan marklínuna. Markið gott og gilt, og ég sagði við sessunauta mína að þetta væri eitthvert ótrúlegasta mark sem sést hefur á HM. Stend við þau orð og mig grunaði jafnvel að þetta víti yrði ekki toppað hvað varðar ótrúlegheitin. Ég átti eftir að hafa rangt fyrir mér.

Á nítjándu mínútu tók Andrea Pirlo frábæra hornspyrnu sem datt niður í miðjan teig Frakka. Þar reis Marco Materazzi manna hæst, át Patrick Vieira upp til agna í skallaeinvígi og jafnaði metin fyrir Ítali. Staðan því orðin 1-1 eftir tuttugu mínútur og strax ljóst að hér væri klassískur leikur á ferð. Næstu 70 mínúturnar kom ekkert mark en leikurinn bauð upp á hina bestu skemmtun; í fyrri hálfleik skiptust liðin á að sækja enda á milli og hefðu bæði getað komist yfir fyrir hlé, en í síðari hálfleik var eins og botninn dytti úr leik Ítala sem hurfu sífellt aftar á vellinum. Það var um þetta leyti sem það sem margir áttu von á að myndi gerast fór að gerast; Zinedine Zidane fór að sýna sig meira og meira í spili Frakka og undir lok leiksins var hann orðinn svo gjörsamlega allsráðandi á vellinum að maður beið eftir því hvenær Frakkar skoruðu sigurmarkið, ekki hvort. Ítalir héldu þó út og leikurinn fór í framlengingu.

Í fyrri hálfleik framlengingar var mikið um baráttu og miðjumoð en Frakkar sköpuðu sér þó hættulegri færi. Það besta kom undir lok hálfleiksins, þegar Willy Sagnol gaf frábæra fyrirgjöf frá hægri á óvaldaðan Zidane sem átti fastan og flottan skalla að markinu. Þeir eru ekki margir markverðirnir sem hefðu varið þennan bolta en til allrar ólukku fyrir Zidane var Buffon í marki Ítala starfinu vaxinn og blakaði boltanum yfir. Zidane öskraði af pirringi, maður sá það á honum að hann vissi að þarna hafði farið kjörið tækifæri fyrir hann að tryggja sinn sess meðal knattspyrnuguðanna. Það kom á daginn að þetta átti eftir að verða það síðasta jákvæða sem við sáum til Zidane á hans langa og gifturíka ferli.

Fyrir leikinn hafði ég íhugað hversu grimm örlög það væru fyrir Zidane að enda mögulega feril sinn á því að tapa í úrslitaleik HM. Ég hugsaði með mér sem svo að það væri varla til ömurlegri endir á ferlinum fyrir þennan mikla kappa. Ég hafði rangt fyrir mér. Eitthvað gerðist utan myndavélar í upphafi síðari hálfleiks framlengingar og maður vissi ekkert hvað var að gerast þegar dómarinn hljóp að Buffon í marki Ítala til að stilla til friðar. Buffon var mjög æstur og Arnar Björnsson talaði eitthvað um David Trezeguet. Loks kom endursýningin, það sem aðal-myndavélin hafði ekki náð og ég held ég tali fyrir hönd okkar allra, knattspyrnuunnenda um allan heim, þegar ég segi að þessi þriggja sekúndna endursýning var sennilega eitt ógeðfelldasta atvik í sögu knattspyrnunnar.

zz-headbutt.jpg

Þarna var það, skýrt eins og sólin: Zinedine Zidane er að hlaupa framhjá Marco Materazzi en snýr skyndilega við, hleypur að þeim ítalska og skallar hann fast í bringuna. Gengur svo í burtu. Kjálkinn á mér í gólfinu, engin orð til að lýsa því sem ég sá. Síðan ég sat á sófa í Bandaríkjunum og horfði á World Trade Center hrynja í beinni útsendingu fyrir fimm árum síðan, þann 11. september, hefur enginn sjónvarpsatburður hneykslað mig jafn mikið, sjokkerað mig jafn svakalega.

Seinni endursýningar sýndu að Materazzi, sem ég hef áður sagt að er einhver ógeðfelldasti og svindlóðasti leikmaður í heiminum í dag, greip um Zidane í vítateig Ítala í hornspyrnu rétt áður. Hann virtist gera meira en halda utan um Zidane, hann virtist klípa í geirvörtu þess franska og láta einhver fúkyrði falla. Svo skokkuðu þeir báðir út úr teig Ítala er sóknin fjaraði út og Materazzi hélt áfram að hrópa svívirðingar í átt að Zidane. Að endanum virðist hann hafa hitt á hina gullnu móðgun, því Zidane sneri sér við og skallaði hann.

Þegar dómarinn var búinn að stilla til friðar og ráðfæra sig við aðstoðardómarann hljóp hann til Zidane og gaf honum rauða spjaldið. Ferlinum lokið. Það var þá sem það virtist daga uppi fyrir Zidane hverjar afleiðingar gjörða sinna eru: hann hafði ekki aðeins hneykslað heiminn og valdið sjálfum sér ótrúlegri skömm á þessari stærstu og glæstustu stund ferils síns (hugsið ykkur bara hvað hann var góður í leiknum) heldur var hann líka búinn að tryggja það að, sama hvernig leikurinn færi, hann yrði samt skúrkur dagsins. Ef Frakkar ynnu leikinn myndi Fabien Barthez hampa titlinum sem fyrirliði, ekki Zidane, og hann yrði vart velkominn í fagnaðarlætin nema þá bara í París daginn eftir. Það sem átti að vera stærsti dagur lífs hans hafði, með nokkrum vel völdum orðum hjá Marco Materazzi og yfirgengilega heimskulegum og ofbeldisfullum viðbrögðum þessa leikreynda kappa breyst í svörtustu martröð. Það síðasta sem við sáum til goðsagnarinnar var er hann grét í örmum Gianluigi Buffon, og svo þegar hann gekk niðurlútur framhjá Heimsmeistarastyttunni og til búningsklefanna.

Nú, eftir þetta atvik var eins og sjokkið drægi allan kraft úr báðum liðum. Franskir áhorfendur á vellinum púuðu það sem eftir lifði leiks, og ég skil þá vel því þeir höfðu ekki endursýningarnar sem við heima í stofu höfðum, og ég vorkenni þeim sárlega að eiga eftir að fara heim til sín og, ofan í öll sárindin að hafa tapað þessum leik, sjá síðan hvernig hetjan þeirra sveik frönsku þjóðina með hegðun sinni.

Eins stórkostlegur leikmaður og Zidane er, og eins viðbjóðslegur og Materazzi er og hefur alltaf verið sem leikmaður, þá þykir mér nánast ómögulegt að vorkenna þeim franska. Tíu mínútur eftir af framlengingu í úrslitaleik fokking Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu, síðustu tíu mínútur þíns glæsta ferils og það eina sem þú þarft að gera er að bregðast ekki við móðgunum Ítalans á ofbeldisfullan hátt. Það er það eina sem þú þarft að gera; þú getur mætt heim til Materazzi strax á morgun með nokkra vini og kylfur og jafnað málin, en láttu það bara bíða í TÍU FOKKING MÍNÚTUR! Þið eruð með yfirburði á vellinum og hafið þetta allt í hendi ykkur. Og þú gast það ekki. Ég veit vel að Zinedine Zidane les þessa síðu ekki en ég ætla samt að segja þetta: SKAMMASTU ÞÍN!

Og Marco Materazzi má skammast sín líka. Helvítis viðbjóður að horfa á þennan leikmann, leik eftir leik alltaf með sömu ruddataktana. Maður getur rétt ímyndað sér hvað í ósköpunum hann sagði sem fékk Zidane til að fórna öllu sem hann hafði unnið svo hörðum höndum að síðasta mánuðinn, en ég satt best að segja veit ekki hvað í ósköpunum hann hefur getað sagt. Það hlýtur að hafa verið eitthvað magnað, eitthvað ofboðslega móðgandi, og þótt það afsaki gjörðir Zidane engan veginn þá á Materazzi mikla skömm í þessu máli líka.

Nú, að endingu fór þessi leikur í vítaspyrnukeppni og þar voru framkvæmdar níu spyrnur. Ítalir skoruðu úr sínum fimm en Frakkinn David Trézeguet sendi Gianluigi Buffon í rangt horn og skaut knettinum svo upp í markslána og niður á marklínuna. Einn sentimetri til og hann hefði skorað líka. Það er alltaf harður veruleiki að þurfa að tapa í vítaspyrnukeppni, en í kvöld var vart hægt að tapa með minni mun, og það í sjálfum úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar.

Þannig að á endanum eru Ítalir heimsmeistarar, og ég óska þeim innilega til hamingju. Þeir voru þegar allt kemur til alls vel að þessu komnir, höfðu verið jafnbesta liðið allt frá byrjun móts og sýndu bæði frábæra knattspyrnu og hetjulega baráttu í þessum leik. Þeir héldu höfði og Marcello Lippi höndlaði þetta taktískt séð frábærlega. Þeir eru verðugir sigurvegarar í þessari keppni!

23 Comments

  1. Vá hvað ég vildi vita hvað spaghetti-gaurinn sagði við Zidane, eitthvað var það sem heldur betur sprengdi kallinn, !!

  2. Já, væri spennandi að vita það. Annars ótrúlegt dómgreindarleysi hjá Zidane. Hefði aldrei trúað uppá hann að klikka svona svakalega.

  3. Grátlegur endir á annars ágætri keppni. Mér fannst þetta hálfgert “anti climax” í lokin.

    Zidane fór á límingunum í sínum síðasta leik og eftir það var mér eiginlega skítsama um þennan leik. Mér er alveg sama hvað Materazzi sagði við hann. Zidane á auðvitað að skammast sín fyrir að enda feril sinn með þessum hætti og skemma arfleifð sína með slíkum hætti.

    Til hamingju Ítalía sem var með góða spilamennsku allt mótið. Títtnefndur Materazzi hlýtur að vera hetja á Ítalíu enda var hann er gera gott mót. Frakkar voru þó lengi vel líklegri aðilinn og hefðu rétt eins getað unnið þennan leik.

    HM er lokið og því lauk á slæmum nótum.

  4. Hann hefur áður látið reka sig útaf á HM fyrir álíka, en þó ekki jafn yfirgengilega heimskulega vitleysu. Hvaða voða helgislepja er þetta í kringum þennan gæja? Ég veit ekki betur en að allir sem hafa fylgst með þessum leikmanni í gegnum árin og ekki verið blindaðir af ást á honum viti vel að hann hefur alla tíð verið ruddi á leikvelli með olnbogana úti um allt og skapstyggur með afbrigðum. Hann fékk það sem hann áti skilið, alveg eins og Maradona á sínum tíma en Maradona var bara miklu miklu betri leikmaður á allan hátt og sannur snillingur. Zidane verður minnst sem mjög góðs leikmanns, ekki sem snillings.

  5. Þetta var rosalegur leikur – ekkert minna. Frábærir leikkaflar sáust og mér fannst yfir það heila Ítalir betri í fyrri hálfleik, en Frakkar í seinni hálfleik og framlengingu. Ég hugsaði til Istanbul þegar maður sá framlenginguna, þar sem ég man hvað okkar menn voru þreyttir og Steven Gerrard sagði bara eftir leikinn: We were running on empty … og að þeir væru hálfpartinn að bíða eftir vítaspyrnunum. Þannig virkaði ítalska liðið á mig.

    Frábær mörk (flottasta víti ever 🙂 ) – en menn munu deila hvort þetta hafi verið sanngjörn úrslit eða ekki. Yfir það heila finnst mér samt Ítalir vel að þessu komnir og eiga þetta skilið.

    Atvikið með Zidane setti hræðilega ljótan blett á leikinn en mér fannst leikmenn samt prúðir og klára leikinn vel, meira að segja hef ég tekið Henry af svarta listanum sem ég setti hann á fyrir skömmu síðan 🙂 vegna þess að mér fannst hann virkilega sýna hversu prúður og góður leikmaður hann er, bæði í leiknum og eftir leik. Ljótasti bletturinn fellur auðvitað á Zidane sem með ótrúlegri fávisku og stundarbrjálæði skallar Materazzi. Ég skil nú ekki þennan ógeðs-stimpil sem Materazzi fær hjá Kristjáni, en ég viðurkenni það að ég hef ekki fylgst með honum í ítölsku deildinni. Á þessu heimsmeistaramóti get ég ekki séð að hann hafi verið helvítis viðbjóður og svindlóður!! Auðvitað á hann sína sök í þessu atviki en hann var ekkert meira hrópandi heldur en Zidane. Í endursýningu virðast þeir báðir vera að hreyta óyrðum í hvorn annan, en eitthvað fær Zidane til að snappa (sem gæti blandast pirringi við að brenna af skallanum? – veit ekki). Zidane fær þó ekki bann, þar sem hann er hættur knattspyrnuiðkun, er það? En ef einhver rannsókn fer í gang og kemur í ljós hvað Materazzi sagði, þá á hann auðvitað að fá sína sekt líka.

    Viðbrögð Zidane setja svartan blett á glæsilega sögu hans sem fótboltamanns og fyrirmynd. En til lengri tíma litið mun hans auðvitað alltaf vera minnst sem knattspyrnuhetju. Maradona átti sína svörtu bletti líka, er það ekki? Ég vona svo innilega að Zidane skammist sín, og ég hika ekki við að segja það, að þótt hann hafi verið frábær í dag, þá virkaði hann ekki sem betri leikmaður á mig en t.d. Cannavaro. Ég fer ekki ofan af því en ég tel Cannavaro vera hiklaust mann mótsins.

    Það er ekkert sem segir að Zidane hafi eyðilagt leikinn fyrir Frakka. Það var ekkert öruggt að Frakkar hefðu skorað þó hann hefði verið inn á, eða öruggt að hann hefði skorað úr sinni spyrnu. En fyrst og fremst hefur hann eyðilagt mikið fyrir sjálfum sér, og hann mun án efa lækka stórlega í áliti margra fyrir þetta stundarbrjálæði.

    Mér finnst alltaf sorglegt að sjá mót sem þetta enda í vítaspyrnukeppni, en mér fannst samt mótið skemmtilegt! Frábær HM-mánuður er liðinn. Til hamingju Ítalir: þið áttuð þetta skilið!

  6. Jú jú auðvitað átti Maradona sínar slæmu hliðar eins og allir vita – en eins og Kristján var að tala um um daginn þá eru Maradona og Péle allstaðar nefndir sem þeir bestu allra tíma, eða nánast allstaðar amk, en ekki Beckenbauer eða Cruyff. Ástæðan fyrir því er einföld, þeir voru ekki jafn góðir og Maradona og Zidane ekki heldur. Ekki einu sinni nálægt því. Ég sagði í gær að tíminn myndi leiða það í ljós að Zidane kæmist aldrei á sama stall og Maradona. Eftir leikinn í kvöld trúi ég ekki að nokkur maður sé ósammála mér.

  7. Gjössovel að rökstyðja þessa fáránlegu fullyrðingar þínar um eðli ítalska varnarmannsins annars er þessi pistill jafn ómarktækur og pólitískar skoðanir eoe

  8. Ætlarðu að nota svörtustu stund á ferli Zidane til að sanna mál þitt um að hann sé ekki á sama stalli og Maradona? Þarf að minna þig á svanasöng Maradona á HM þegar hann féll á lyfjaprófinu á HM í USA?

    Að mínu mati er Zidane í sama flokki og Maradona og Pelé og mér er skítsama hvað öðrum finnst. Eins og þú segir þá mun sagan dæma til um það og að kvöldi lokaleiks Zidane er sennilega fullsnemmt að kveða upp úr um það!

  9. Ekki skil ég þessi skrif um Materazzi. Hann gerði það sem þurfti – svona hlutir eru “part of the game” og verður hann virtur alla ævi fyrir sinn gríðarlega stóra þátt í að vinna HM 2006. Maður leiksins að mínu mati – klárlega – og sá allra mikilvægasti í liði Ítala.

  10. Ég er alveg sammála síðasta ræðumanni, Materazzi er jú mjög “dirty” leikmaður, hefur alltaf verið og mun alltaf vera. Það er bara hans merki. En hann var einn allrabesti maðurinn á vellinum í kvöld, jafnvel betri en Zidane greyjið sem á að vita nákvæmlega hvernig aðferðir Materazzi eru og ætti eftir allan þennan feril að hafa vit á að gera ekkert. Materazzi vann, svo einfalt er það nú. Spilaði vel sem leikmaður, skoraði mark og fiskaði besta mann frakka útaf, er hægt að gera betur?

  11. Mér dettur ekki annað í hug en að Materazzi hafi sagt eitthvað niðrandi um kynstofn Zidane.
    Ég efast um að Materazzi viti nógu mikið um fjölskyldu Zidane til að geta sagt eitthvað niðrandi um hana án þess að vera algjör lygi og því ætti Zidane að geta höndlað slíkar móðganir.
    Því dettur mér bara í hug að hann hafi sagt eitthvað í líkingu við: “Helvítis Arabamellan þín” eða eitthvað þvílíkt.
    Efa þó að hann hafi sagt það á íslensku.

  12. Rólegur nafni, ég sagði í gær að tíminn myndi leiða í ljós að Zidane kæmist aldrei á sama stall og Maradona og er því ekki að nota þessa heimsku hans í kvöld til að sanna eitt né neitt. Þér finnst hann jafnast á við Maradona og það er fínt hjá þér, dálítið barnalegt en samt fínt. Ég hélt bara að við værum að tala um hvernig sagan myndi dæma hann en ekki hvað einstaka mönnum fyndist um hann. Það var jú það sem Kristján var að tala um í upphafi, að honum fyndist tími til kominn að hleypa Zidane á sama stall og Maradona og Pelé sögulega séð, að hingað til hefði verið nánast gefið að 99% þeirra sem tala og skrifa um knattspyrnu teldu að Maradona og Pelé væru bestir en nú væri kominn tími til að breyta þeirri útbreiddu skoðun. Það var sú skoðun sem ég var ósammála í upphafi og er enn. Það er rétt hjá þér að það er fullsnemmt að segja til um það núna, að kvöldi síðasta leiks hans, hvernig sagan muni dæma hann – enda var ég ekki að segja að sagan væri búin að dæma hann – en eftir leikinn í kvöld finnst mér ólíklegt að þeir séu margir eftir sem deila þeirri skoðun þinni að Zidane eigi eftir að verða minnst á sama hátt og Maradona. Það getur svosem allt gerst en mér finnst það afskaplega ólíklegt. Af þeim sem eru að spila núna myndi ég tippa Ronaldinho ef ég ætti að spá um hver væri líklegastur að komast á sama stall og Maradona, en hann er samt ekki nálægt honum. Líklegast þykir mér að sá leikmaður muni ekki koma fram á næstu árum eða áratugum. Maradona hafði Náðargáfuna með stóru N-i. Skör ofar en allir aðrir að mínu mati, og því verður ekki neitað að flestir eru mér sammála.

  13. Zidane er einn af 3 bestu í sögunni ásamt Pele og Maradona….ekki spurning. En ég las það einhverstaðar að hann hafi eitthvað verið að segja að hann hafi verið á sterum hjá Juve og eitthvað um Juve hneykslið. En hvað sem hann sagði þá réttlætir ekkert skallann. Þetta er það rosalegasta sem ég hef séð í fótboltaleik. Þetta er margra ára bömmer fyrir þennan mesta snilling síðan Maradona var að spila á kókaíni.

  14. Ég ætla ekki að fara rífast við einn né neinn….. :blush: EN Zidane á heima á þeim lista sem menn vilja meina að séu topp 10 bestu knattspyrnumenn á þessari öld…. og ekkert helvítis kjaftæði (jafnvel á topp 5 bestu)….:blush:

    Það er samt ótrúlegt að gera svona hlut í úrslitaleik HM og lokaleik sínum á ferlinum….. (man eftir öðru slíkum hlut á ferli Zizou þar sem að hann skallaði mótherja sinn og fékk 3-5 leikja bann)..

    Ítalar eru vel að veg komnir hvað þennan titil varðar en ROSALEGA langar mig að vita hvað Materazzi sagði við Zizou til að hann skallaði í bringuna á honum (var greinilega ekki næginlega stór til að skalla hann í andlitið)

    EN svona enda nú ævintýrin.. ég var fyrir löngu búinn að afskrifa Frakkanna sem og Ítalina en einhvern veginn náðu þessi lið saman í úrslit (var búinn að giska á að Brasilía og Holland færu þangað og fyrra liðið myndi standa uppi sem sigurvegarar)….. Ce la vie (eða eitthvað á þess vegu….. njótið og teljið niður fram að þeim tíma að enska deildin byrji) 🙂 🙂 🙂

  15. Ég skil Zidane svo vel að hafa gert þetta, Materazzi er algjör hrotti og ég held að það þurfi ekkert að útskíra það neitt frekar. Þið sem eruð ósammála og teljið einhverjar útskíringar þarfar hafið greynilega ekki fylgst mikið með Ítalska fótboltanum, Materazzi verður ekki fagnað sem hetju á ítalíu, svo mikið er víst, þessi hrottafengni leikmaður er HATAÐUR á Ítalíu af öllum nema stuðningsmönnum Inter, þar sem hann jú spilar þar. Skil vel hvernig Zidane brást við en ætla ekki að afsaka það vegna þess að þetta var náttúrulega fáránlegt. Það hefur runnið yfir hann eitthvað stundarbrjálæði og ég er viss um að hann hafi séð eftir þessu og skammast sín 4 sek. eftir atvikið.

    Ég hata Materazzi og ég held að allir þeir sem fylgjast með ítölskum fótbolta eitthvað að ráði séu sammála mér, allavega eru Ítalir það. Ég ætla að vona að honum verði refsað fyrir sinn hlut í þessu hneiksli!

  16. Það sem gerði það að verkum að ég man eftir þessum leik er “when ZZ blew over the top”. Þessi leikur sem og keppnin í heild sinni verður mér ekki minnistæð nema fyrir þær sakir hversu mikið úr böndunum fótboltinn er kominn. Leikaraskapurinn, röflið yfir dómurunum (sem voru vægast sagt mjöööööög daprir margir hverjir en einn og einn ljós punktur leit dagsins ljós).

    Það næsta skref sem gera þarf varðandi þennan blessaða fótbolta er að fá FIFA, UEFA (og hvað þetta allt heitir) til að átta sig á hversu fótboltinn hefur vaxið hratt undanfarin 10 árin. Sem dæmi um ofvöxt og framfarir er hægt að taka sem dæmi spjaldagleði margra dómara sem oft er mótmælt eftirá (t.d. rússinn sem gaf 16 gul og 3 rauð í sama leiknum á HM). Ég vil minna menn á að það eru líka leikmenn sem eyðileggja leiki með fáránlegri hegðun (Zidane, Rooney sem dæmi)rétt eins og dómarar geta skemmt leiki með rugl dómgæslu. Það er hægt að koma í veg fyrir þetta með hjálp tækninnar sem og grænu ljósi frá knattspyrnuyfirvöldum að gefa beint rautt spjald fyrir leikaraskap inn á vellinum. Það gæti orðið dálítið blóðugt til að byrja með að reka leikmenn útaf fyrir leikaraskap en eftir örfáa leiki taka menn sönsum (Ronaldo? Portúgalskir leikmenn?) nema menn séu bara þeim mun heimskari (Ronaldo..aftur?) .
    En það verður gaman að heyra það frá ZZ hvað Materazzi virkilega sagði til að pirra hann svona. Hversu lágt sem að Materazzi lagðist að þá á leikmaður eins og ZZ ekki að hegða sér svona né nokkur annar maður. Það mætti segja að síðasta vígi heiðarleikans hafi hrunið um sjálft sig með gjörðum ZZ því heiðarlegri knattspyrnumann var vart hægt að finna á knattspyrnuvöllum heimsins.

  17. Eins og ég sagði fyrr hérna, þá hef ég ekki fylgst sérstaklega með Materazzi í ítalska boltanum og get ekki sagt hversu hataður hann er þar. En á þessu móti og þá sérstaklega í þessum leik gat ég ekki séð að hann væri einhver hrotti – hann var ekki að sýna einhvern hrottaskap í leiknum og stóð sig bara vel. Þess vegna finnst mér furðulegt að sjá komment eins og frá Andra, þar sem hann segist skilja Zidane!!!! og hatar Materazzi og vonast eftir refsingu! Auðvitað á hann að fá sína refsingu ef það kemur í ljós að hann hafi sagt eitthvað refsingarvert, en bentu mér á hrottaskap hans í leiknum. Zidane og Materazzi voru báðir að orðaskakast þarna, og auðvitað er Materazzi ekki saklaus. En að réttlæta árás Zidane á Materazzi með því hversu mikill hrotti hann sé í ítalska boltanum og hataður þar, er bara fáránlegt. Okei, þú ert ekki að réttlæta árásina, en það að skilja Zidane og gerðir hans er skrítið, því þarna er það dómgreindarleysi og brjálæði Zidane sem ræður ríkjum.

  18. Doddi, hrottaskapur hanns í leiknum var augljós öllum. Hann tók utanum Zidane og kleip hann fast í geirvörtuna, svona eiga leikmenn ekki að gera og þetta er hrottalegt að mínu mati. Og það var ekki þá sem Zidane brjálaðist heldur þegar hann fer svo að kalla eitthvað ljótt á eftir honum, við vitum ekki enn hvað það var en það gat vel verið eitthvað um hanns fjölskildu eða eitthvað álíka og þess vegna skil ég að það hafi snöggreiðst í þeim gamla. En strax eftir atvikið og eftir leikinn held ég að Zidane sé reiðastur og sárastur út í sjálfan sig, sem er skiljanlegt þar sem hann misti sig algerlega, hefði vissulega átt að láta heimsku Materazzis um eiru þjóta.

  19. Ég tók ekki eftir þessari geirvörtuklípu sérstaklega, ég verð að viðurkenna það. Maður sér peysutog af öllum gerðum í gegnum þessa leiki og kannski þess vegna var þetta ekki augljóst í mínum huga. En það breytir því ekki að þú segist skilja Zidane, og talar um hrottann Materazzi og að hann sé hataður á Ítalíu … það kemur þessu máli ekkert við. Þú sérð það alveg líka að Zidane var sjálfur að karpa eitthvað við hann, það var ekki bara Materazzi sem var að segja eitthvað! Hvað hefðirðu líka sagt ef Materazzi hefði stangað Zidane í brjóstið??

    Þetta voru óafsakanleg viðbrögð! Henry sagði að besta “hefndin” varðandi niðrandi ummæli þjálfara Spánverja fyrir tveimur árum, hefði verið sigur Frakka á Spánverjum í 16 liða úrslitum. Það eru orð að sönnu. Sætast hefði verið fyrir Zidane að láta ekki Materazzi æsa sig svona upp og mögulega lyfta bikarnum sem sigurvegari. Það gerðist ekki, og eftir stendur að þetta atvik setti ljótan blett á keppnina, á leikinn en fyrst og fremst hann Zidane sjálfan.

  20. Já, nokkuð sammála þér Doddi, en ég held mig við það að ég skilji viðbrögð Zidane, kannski bara vegna þess að ég er svo blóðheitur sjálfur eða mitt mikla hatur á Materazzi sem leimanni. Veit ekki! :confused:

  21. Það sem mér finnst eiginlega fyndnast núna í dag, er að lesa ummæli stuðningsmanna um allan heim um ZZ og “atvikið”. Allir eru sammála um að hegðun hans var mjög slæm en margir sjá sér ástæðu til þess að afsaka manninn. Það skil ég ekki. Hvað svo sem MM sagði þá breytir það því ekki að þessi reynslumikli fótboltamaður sem á 10 mínútur eftir að ferlinum setur arfleið sína sem fótbolta manns í algjört uppnám og ekki síst skilur hann eftir stórt skarð í heimsmeistaradraumum Frakka. Þetta er **** á heimsmælikvarða og ekkert annað.

    Nú skulum við svo ekki á láta sem svo að MM hafi sagt eitthvað svo gríðarlega særandi við ZZ að viðbrögð hans geti talist pínulítið skiljanleg. Eftir því sem ég sá þá hafði ZZ eitthvað að segja við MM á móti. Hefði ZZ haldið áfram að munnhöggvast og MM misst stjórn á sér, skallað ZZ í bringuna og fengið rautt. Væri honum þá sýndur einhver skilningur ? Sæi maður á einhverjum spjallborðum einhverja vera að segja “ZZ hefur sagt eitthvað ófyrirgefanlegt, menn tapa sér ekki bara svona útí loftið”
    Nei ég held eiginlega ekki.

    Við skulum heldur ekki gleyma að þetta er ekki í fyrsta sinn sem ZZ ákveður að nota hausinn á sér á leikmann í stað bolta.

    Þetta atvik var skelfilegt og ZZ á enga samúð skilið, ja ekki þá fyrir neitt annað en sína eigin **** og það er alltaf leiðinlegt að þurfa að vorkenna einhverjum útaf því hvað hann er ****r…

  22. Jæja Gummi. Afsakaðu æsinginn í mér og barnaskapinn í skoðunum

    Þú segist halda að við hefðum verið að tala á almennum nótum um þessa leikmenn en samt sem áður eru þínir pistlar uppfullir af persónulegum skoðunum um þá. Þú skrifaðir t.d.: ?Maradona var bara miklu miklu betri leikmaður á allan hátt og sannur snillingur.? Þetta er auðvitað persónulega skoðun þín þar sem ég held að flestir geti alls ekki tekið undir það að Maradona hafi á allan hátt verið betri leikmaður.

    Annars staðar skrifar þú: ?Hvaða voða helgislepja er þetta í kringum þennan gæja?? sem sýnir að þér virðist bara alls ekki geðjast að ZZ sem leikmanni. Það er auðvitað bara þitt mál. Ég tek reyndar heilshugar undir það að ZZ fengi seint fair play verðlaun því hann hefur fjölda rauðra spjalda á sinni ferilskrá og skrítið hvað margir eru að taka upp hanskann fyrir hann í dag og segja hann almennt séð prúðan á velli. Það er auðvitað ekki rétt.

    En tíminn einn getur leitt í ljós hvaða augum almenningur mun líta á feril ZZ og hvort honum verður skipaður sess við hlið Pelé og Maradona eða við fótskör þeirra ásamt mörgum öðrum góðum leikmönnum. Ég veit bara hvar hann stendur í mínum huga.
    :tongue:

Dagurinn í dag

10 atriði sem HM sýndi fram á