Leikur Áratugarins (Ítalía)

“Við höfum safnað upp mikilli reiði á síðustu tveimur stórmótum. Í þessari keppni höfum við beislað þessa reiði og það hefur sýnt sig bersýnilega – við höfum nýtt þessa reiði okkar og gert úr henni eitthvað jákvætt”
Fabio Cannavaro, fyrirliði Ítala

teamazzuri.jpg

Tólf ár. Það er sá tími sem það tekur ítalska landsliðið að hlaða upp í alvöru atlögu að heimsmeistaratigninni í knattspyrnu. Árið 1970 voru þeir gjörsigraðir í úrslitaleik HM af liði Brasilíumanna sem sumir vilja meina að sé það besta í sögu knattspyrnunnar. Árið 1982 unnu þeir HM á Spáni með sigri á Vestur-Þýskalandi, en það ár var öll ítalska knattspyrnan í uppnámi vegna hneykslismála í sambandi við mútuþægni og spillingu. Hljómar það kunnuglega? Árið 1994 töpuðu þeir í úrslitum, aftur fyrir Brasilíumönnum, í vítaspyrnukeppni. Og nú, tólf árum síðar, eru þeir aftur komnir í úrslit.

1970: tap fyrir Brasilíu.
1982: mútuhneyksli, og svo sigur gegn Evrópuþjóð.
1994: tap fyrir Brasilíu.
2006: mútuhneyksli, og svo _____ gegn Evrópuþjóð?

Fyrir keppnina hefði ég sagt fólki að Frakkland og Ítalía væru tvö af minna spennandi Evrópuþjóðunum í keppninni. Ítalir hafa undanfarin ár getið sér góðs orðs fyrir að vera allt of varnarsinnaðir, varkárir og hreinlega leiðinlegir sem landslið, auk þess að vera með mikinn leikaraskap inná vellinum. Í þessari keppni hafa Portúgalir fyllilega tekið við Óskarsverðlaununum sem Ítalir hömpuðu áður, og svo hefur komið á daginn að þeir bláklæddu hafa verið með skemmtilegri, öflugri og betri liðum keppninnar. Leikir þeirra hingað til í keppninni hafa farið svo:

Ghana: 2-0 sigur.
USA: 1-1 jafntefli.
Tékkland: 2-0 sigur.
Ástralía: 1-0 sigur.
Úkraína: 3-0 sigur.
Þýskaland: 2-0 sigur.

Sex leikir; fimm sigrar og eitt jafntefli, og það í leik þar sem þrjú rauð spjöld litu dagsins ljós. Aðeins eitt mark fengið á sig í allri keppninni, og það kom gegn Bandaríkjunum þegar varnarmaðurinn Zaccardo ætlaði að hreinsa frá eigin marki en hitti boltann ekki og setti hann framhjá Buffon í staðinn. Zaccardo hefur spilað lítið í mótinu síðan hann skoraði sjálfsmark, og vörnin hefur fyrir utan þetta eina atvik verið gallalaus í þessari keppni. Markatala Ítala er 11-1 fyrir úrslitaleikinn.

Maður spyr sig hvort það geti eitthvað lið stöðvað þá. Auk þess að vera með besta markvörð í heimi og frábæra vörn skarta þeir geggjaðri miðju; ef Totti á góðan dag er hann lykilmaður þeirra og þeir Pirlo og Gattuso munu láta Zidane hafa meira fyrir hlutunum en nokkur önnur miðja sem hann hefur mætt til þessa. Simone Perrotta og Mauro Camoranesi hafa komið sterkir inn á vængjunum í keppninni, auk þess sem bakverðirnir Fabio Grosso og Gianluca Zambrotta hafa tekið við krúnu Roberto Carlos og Cafú sem kóngar sóknarbakvarðanna. Frammi hefur þjálfarinn Marcelo Lippi svo úr þeim Luca Toni, Alberto Gilardino, Vicenzo Iaquinta og Alessandro Del Piero að velja. Ekkert smá öflugur mannskapur það.

Svo er það bara spurning hvort örlögin eru ekki með Ítölum í þessari keppni? Sagan segir okkur allavega að þeir vinni Úrslitaleiki á HM, ef þeir eru að mæta Evrópuþjóðum og ef það eru hneykslismál heima fyrir. Þeir eru líka með vörn sem ég á erfitt með að sjá Frakkana brjóta á bak aftur, miðju sem gæti mögulega eyðilagt örlagadag Zinedine Zidane og sóknarmenn sem eru nógu grimmir til að nýta sér öll þau mistök sem Frakkar kunna að gera.

Það er allavega ljóst í mínum huga að ef Ítalir verða heimsmeistarar á sunnudaginn verða þeir vel að titlinum komnir; þeir hafa verið sterkasta liðið í þessari keppni frá fyrstu til síðustu leikja og virðast vera með besta landslið í heiminum akkúrrat núna, sem er það sem gildir í svona keppni.

Spurningin er bara: getur eitthvað lið stöðvað Ítali? Spáum í Frakkland á morgun.

8 Comments

  1. Tek undir orð Kristjáns Atla – mér finnst líka að Ítalir hafi verið jafnbestir alla keppnina. Ég vona bara Ítalanna vegna, að De Rossi komi ekki inn í liðið, því ég trúi því að eins og þeir voru að spila gegn Þjóðverjum (sem ég tel vera leik keppninnar) þá sé ekki hægt að sigra þá. Ég spái Ítalíu sigri og held með þeim í þessum leik, 3:1.

  2. Doddi, það er ekki glæta í helvíti að De Rossi komi aftur inn í byrjunarliðið á sunnudaginn. Engin glæta í helvíti! Ég meina, hverjum ætlarðu að fórna? Totti, sem er demanturinn í kórónunni? Pirlo, sem stjórnar spilinu og hefur verið besti leikstjórnandi keppninnar? Eða Gattuso, eins og hann spilaði gegn Þjóðverjum? Sástu eitthvað til Michael Ballack í þeim leik? Nei, og það var Gattuso að þakka.

    Það er ekki glæta, og að mínu viti verð ég hissa ef Lippi breytir byrjunarliðinu úr leiknum gegn Þjóðverjum. Mjög hissa. Vörnin er pottþétt og miðjan velur sig sjálf, eina spurningin væri þá hvort Gilardino kemur inn fyrir Toni eða ekki; það fer bara eftir því hvorn þeirra Lippi telur betur hæfan til að mæta Thuram og Gallas. Sjálfur myndi ég velja Toni.

    En De Rossi kemur ekki inn í liðið.

  3. Reyndar voru Ítalir ekki níu undir lok leiks gegn USA, heldur voru þeir 10 gegn 9 leikmönnum USA.

    Og svona til að vera með með leiðinlegar staðreyndir á hreinu þá kom Zaccardo inn á sem varamaður gegn Úkraínu. Svo hann hefur spilað eftir sjálfsmarkið góða 😉

    Það er ljóst að Ítalir eru með gríðarlega öflugt lið. Sigri þeir á sunnudaginn þá eru þeir vel að því komnir. Ég mun engu að síður halda með Frökkum.

    ALLEZ LES BLEUS!

  4. Jájá ókei, þið hafið komið ykkar pointi á framfæri. Ég verð að fara að venja mig af því að senda færslur hér inn án þess að lesa þær eins og tvisvar yfir fyrst. :blush:

  5. ég er sammála Dodda. Spái 3:1 fyrir Ítalíu. Luca Toni og Totti koma þeim í 2:0, Henry minnkar muninn en síðan skorar Del Piero 3:1 og tryggir Ítölum titilinn

Kewell frá í 6 vikur

Leikur Áratugarins (Frakkland)