Owen sleit krossbönd

Michael Owen [sleit krossbönd í gær í leiknum gegn Svíþjóð](http://home.skysports.com/worldcup/article.aspx?hlid=396979&CPID=4&clid=114&lid=2&title=Owen+ruled+out+for+five+months) og verður frá í minnsta kosti 5 mánuði. Það á ekki af drengnum að ganga með meiðsli og núna eru það krossböndin frægu. Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir enska landsliðið og Newcastle og alveg ljóst að ef Rooney heldur ekki keppnina út þá mun Eirksson fá heldur betur kastið frá ensku pressunni.

Við óskum allir Owen skjóts bata og vonandi nær hann sér 100% af öllum meiðsla vandræðum eftir þessi meiðsli.

6 Comments

  1. Þetta eru skelfilegar fréttir. Ég hef sjálfur slitið krossband og grunaði hvað væri í gangi þegar ég sá atvikið hjá Owen 🙁

    Ég vona að hann nái sér að fullu og verði kominn á fullt sem allra, allra fyrst.

    Erikson er bjáni. Nú er hann aðeins með þrjá notahæfa menn til að hafa í framlínunni; Rooney, Crouch og Gerrard.

  2. Eiga landsliðin ekki rétt á því að kalla mann inn í staðinn fyrir þann sem sannarlega meiðist……?

  3. Ég verð að segja að þegar ég heyrði fyrst að SGE hefði valið Theo Walcott í landsliðið fannst mér það hugað val, en um leið meika sens að vissu leyti. “Lærdómsrík reynsla fyrir strák,” hugsaði ég með mér. “Englendingar græða á þessu til lengri tíma.”

    En svo hefur annað komið á daginn. SGE notar hann bara ekki undir neinum kringumstæðum, alls alls ekki. Ekkert. Sem þýðir það að hann er ekki að læra neitt af þessu móti, hann er bara í bestu sætunum á vellinum sem áhorfandi. Hann verður ekkert reynslunni ríkari eftir fjögur ár ef hann hefur enga reynslu úr þessari keppni til að byggja á.

    Að mínu mati skaut SGE sig alvarlega í fótinn með þessu landsliðsvali. Hann skildi eftir tvo sjóðheita, enska framherja í Darren Bent og Jermain Defoe og tók Walcott frekar. Og ætlar sér svo ekkert að nota Walcott. Það væri kannski ásættanlegt val að velja ungling í liðið sem menn ætla sér ekkert að nota, ef þeir Rooney, Owen og Crouch væru allir heilir í mótinu og engin ástæða til að ætla annað en að þeir yrðu allir með af krafti.

    En þeir voru það ekki. Crouch var og er heill. Rooney var í kapphlaupi við tímann og það var ekkert víst hvort hann yrði nógu góður í tæka tíð til að spila í þessari keppni, og jafnvel nú er ekki öruggt að meiðslin hans taki sig ekki upp aftur í næsta leik.

    Og Owen var ekki búinn að spila nema 27 mínútur á þessu ári. Tuttugu og sjö mínútur.

    Sem sagt; Crouch, sem er góður í því sem hann gerir vel en annars takmarkaður framherji, Owen sem hefur ekkert spilað í ár og Rooney sem var meiddur. FRÁBÆR FRAMLÍNA!

    Ef Rooney eða Crouch meiðast á næstunni liggur við að maður segi bara gott á Sven Göran Eriksson. Þessi landsliðshópur hans er brandari, hann er búinn að gera sjálfum sér miklu erfiðara fyrir, algjörlega að óþörfu. Ímyndið ykkur hvað hann væri miklu betur settur ef hann hefði Bent eða Defoe á bekknum í stað Walcott, sem hann treystir augljóslega ekki í þessa leiki.

    Hvað Owen sjálfan varðar er þetta sorglegt en alls ekki nýjar fréttir. Þetta er ástæðan fyrir því að það kom aldrei til greina að eyða 16m punda í hann fyrir ári síðan. 16 milljónir fyrir leikmann sem spilar í mesta lagi hálft tímabilið er algjör sóun á peningum.

    Ég er feginn að við erum að fá Bellamy.

  4. Ok langur pistill hér á undan. En…..
    Án þess að ætla að verja val SGE eitthvað sérstaklega þá er þetta víst mjög gott fyrir Walcott og enska landsliðið til lengri tíma þótt hann spili ekki neitt. Hann er að læra helling á hverjum degi þessa dagana.
    Að reyna að halda því fram að defoe og bent séu tveir sjóðheitir framherjar??? Þetta er bara vitlaust. Defoe var fastur maður í sínu liði í haust og svo datt hann út. Bent spilaði allt tímabilið og var sjóðheitur í byrjun en ekki um miðjan vetur eða í lokin. Bent fékk leiki í vetur með landsliðinu og þótti standa sig mjög illa.
    Persónulega hefði ég tekið annan þeirra með en sjóðheitir voru þeir ekki.

  5. Hvað er hann líka að gera með Jermaine Jenas í þessum hóp? Það er mjög augljóst að hans er ekki þörf og ætti nafni hans Defoe að vera í liðinu frekar.

HM: A og B riðlar klárir

Bellamy kom til Melwood í dag.