HM: “Liverpool” 2 – T&T 0

crouch_worldcup_ttgoal.jpg

Peter Crouch, má ég kynna þig fyrir heiminum. Heimur, þetta er **Peter Crouch** … 🙂

Ég var kominn á fremsta hlunn með að skrifa aðra kvabbfærslu um England og slappan leik þeirra þegar Beckham þrykkti einum sveittum fyrir og Peter Crouch negldi hann inn með enninu, Jan Koller-style. Nokkrum mínútum síðar var Super Stevie G búinn að tryggja sigurinn með þrumuskoti með vinstri (þá sjaldan að hann fær að fara fram fyrir Lampard á vellinum – Sven, hvað ertu að hugsa?!?) og þá ákvað ég að njóta þess frekar að **LIVERPOOL REDDUÐU ENGLENDINGUM** í dag.

Komnir í 16-liða úrslit. Ræðst kannski á eftir hvort þeir vinna riðilinn, en það eru allavega Þýskaland eða Ekvador framundan hjá Tjöllum. Tilhugsunin um England – Þýskaland er slefvaldandi … 😉

19 Comments

  1. Já, þetta var ánægjulegt. Ég var að rembast við að senda Sven hugskeyti um að FÆRA GERRARD FRAMAR en það virtist lítið virka.

    FRÁBÆRT að Crouchy skyldi skora. Vá hvað þetta er gott fyrir hann og líka Gerrard að ná að skora svona mark með vinstri (hlýtur að vera eitt af mörkum keppninnar).

    Þrjú Liverpool mörk á tveim dögum. Þetta kann ég sko vel við. 🙂

  2. Þetta var ekki góður leikur hjá Englandi en endirinn var frábær og ekki verra að Crouch og Gerrard skyldu redda deginum… og markið hans Gerrard uuuussssss

  3. Eftir leikinn í dag eru tvær bestu fréttirnar fyrir Englendinga þær að:

    1) þeir fengu 3 stig og eru komnir í 16 liða úrslitin

    2) nú ætti Sven Göran Erikson að sjá það svart á hvítu hver á að spila sem framsækjandi miðjumaður. Ég tel óþarfi að taka það fram hvern ég á við því allir hljóta að vita hvern ég er að tala um. En svo að Chelsea-stuðningsmennirnir fatti það örugglega þá er ég að tala um að setja Steven Gerrard í stöðu Frank Lampard og færa þá Lampard í stöðu Gerrard eða jafnvel taka Lampard útúr liðinu og setja Carrick inn í staðinn sem afturliggjandi miðjumann. Það er alveg ótrúlegt að svona reyndur kanttspyrnustjóri eins og Erikson skuli ekki spila með besta mann liðsins í sinni réttu stöðu.

    Ein spurning að lokum: Hvað þarf Gerrard eiginlega að gera til að sýna Sven Göran Erikson og mörgum öðrum að hann er betri en Lampard? Fyrir mér er hann löngu búinn að sýna það og sanna að hann hefur flest ef ekki allt sem Lampard hefur 😡

  4. Já Lampard var ekkert ýkja heitur í dag og var óheppinn í marktilraunum.
    Annars virðist verðmiðinn á kuyt ekki hækka mikið í þessari keppni. Er ekki rétt skilið hjá mér að hann kom ekkert inná???
    Annars vona ég að england mæti ekki þjóðverjum. Vil ekki missa annað liðið strax úr keppni. Þýskaland er með nokkuð skemmtilegt lið aldrei þessu vant og með Englandi held ég.

    Ánægður með þjálfara Svía að taka zlatan útaf í hálfleik. Glaðaður í leiknum í dag…

  5. >Annars virðist verðmiðinn á kuyt ekki hækka mikið í þessari keppni. Er ekki rétt skilið hjá mér að hann kom ekkert inná?

    Hann lék síðasta hálfleikinn í eina leik Hollendinga til þessa.

  6. Alveg sammála ykkur að Gerrard á að vera framsækinn miðjumaður, í frjálsri rullu eða út á kanti. Þvílíkt rugl að gelda manninn svona á miðjunni. Ég öskraði á sjónvarpið þegar Gerrard lúrði aftarlega á miðjunni og fór ekki einu sinni inní í aukaspyrnum.

    Auðvitað er hann besti maðurinn til að leysa þetta hlutverk af hólmi en að mínu mati sóun á hæfileikum.

    Svo fer alltaf í taugarnar á mér þegar Crouch er að sækja boltann aftur á miðjuna til að senda hann á varnarmennina. Hann er bara fyrir að mínu mati. Það er miklu betra að hann lúri frammi og skilji eftir pláss á miðjunni fyrir hina til að spila sig í gegn. Hvað er þetta svo með hann að vera aldrei dæmdur rangstæður. Hann á þess vegna að lúra í rangstæðunni til að halda vörninni eins aftarlega á vellinum og hann getur.

    Já spilamennska Crouch fer í taugarnar á mér það verð ég að viðurkenna. Hann virðist samt vera topp maður.

    Djö er ég ánægður með Carrager. Honum hefur farið gríðarlega fram sóknarlega og ég vildi að við hefðum jafn framsækinn bakvörð og hann er búinn að vera í leikjunum með Englendingum.

    Áfram Liverpool og Liverpool leikmenn á HM!

  7. Sammála ykkur með Gerrard, hæfileikar hans nýtast liðinu best ef hann spilar sem framsækinn miðjumaður.

    Rosaleg Rooney dýrkun er þetta hjá ensku pressunni, þeir tala eins og innkoma hans hafi verið ástæða þess að sigur náðist.

    Ég er ekki sammála því, fyrir mér var það A. Lennon sem gerði gæfumuninn. Með honum kom meiri hraði og um leið losnaði um Beckham á kantinum til að dæla boltum inn í teig.

    Vonandi fær Carra fleiri leiki því hann á það svo sannarlega skilið eftir frábært tímabil með Liverpool.

    Krizzi

  8. Af hverju var Carra tekinn útaf ?
    Taktíst ?
    Ég hef nefnilega ekkert séð af leikjum á HM, nema nokkur mörk í fréttunum 🙁

  9. En mikið agalega var Peter Crouch lúmskur í markinu!! Hann klárlega braut á varnarmanninum með hártoginu og kom honum úr jafnvægi en komst upp með það! :laugh: Hann er þræl lúmskur bölvaður

  10. Það má segja að það sé það sama með Rooney hjá Englendingum og Ribery hjá Frökkum….. Þetta eru mennirnir sem eiga að bjarga þessum þjóðum í þessari keppni…… :confused:
    Allir vilja fá þá í liðið og sem betur fer fyrir Englendinganna þá skoruðu okkar menn í leiknum… hefði ekki viljað sjá ensku pressuna ef leikurinn hefði farið 0-0.

    Annars fannst mér Lampard afskaplega slakkur í þessum leik…. hann fékk ótrúleg færi sem hann hefði nú einhvern tímann klárað. Veit ekki hvað Steve hefði gert í þessari stöðu allan þennan tíma en hann spilaði aðra stöðu og skoraði sem segir manni það að sennilega hefði hann getað gert betur !

    Og að lokum……..
    Ouch er ótrúlega lélegur að nýta færin sín… Já LÉLEGUR, fyrirgjöfin sem hann tók á móti og skaut ….ja, ég veit ekki hvað… alla vega ekki á markið eða rammann, var eitt besta færi sem menn komast hreinlega í.
    Hvað er eiginlega með manninn …! (jájá, rétt er það) hann gerði gott ÞEGAR hann skoraði en rosalega er hann LÉLEGUR að nýta SÍN færi.
    Hef svo sem lítið að setja út á manninn hvað samspil varðar og kemur mér það alltaf á óvart hvað hann er í raun teknískur miðað við hæð og að hann lítur út fyrir að vera detta í sundur. ENN það virðist vera honum nær ómögulegt að klára góð og (sem sýnist) auðveld færi……!

    Og að ENDAlokum…. Þá væri gott að sjá Carra spila fleiri leiki… virtist á tímabili að hann væri kominn í staðinn fyrir Beckham á kantinum…… en fyrir ENSKA landsliðið þá finnst mér einhvern veginn Neville-systirin vera betri en Carra í HÆGRI bakverði þar sem hann er eilítið sókndjarfari….. Það verður þó aldrei tekið af honum Carra okkar að hann getur hreinlega spilað allar stöður á vellinum sem gerir hann svo miklu veigameiri en Neville-systurina…. :biggrin2:

  11. Þetta voru fín mörk hjá þeim félögum. Englendingar eru þó langt frá því að vera sannfærandi, miðjan er illa fúnkerandi, með alla þessa ágætu leikmenn verður það að skrifast algjörlega á þjálfarann! Með betri (eða réttari) þjálfara ættu Englendingar kannski séns á titlinum, en manni þykir það þó fremur ólíklegt eins og sakir standa.

  12. Hvernig í andskotanum nenniði að vera að bölsóttast útí okkar mann á HM? Crouch skoraði. Er það ekki nóg? Djöfull fer þetta eilífa bögg á Crouch í taugarnar á mér. Hann fékk 3 færi, klúðraði 2 og skoraði úr einu. Það er betri nýting en hjá ansi mörgum framherjum.

  13. Tek undir með Einari…. hvernig nenna menn að vera að bölsóttast út í Crouch?? Vargurinn talar um að það komi honum á óvart hversu teknískur Crouchinn er en talar um hversu lélegur hann er að klára færin sín – ég man eftir þremur færum: Hislop varði vel út við stöng í horn í fyrsta, klúðrið með númer 2 og svo markið. Að öðru leyti var hann ógnun finnst mér og getur spilað vel. Eins og einhverjir sögðu hér á vefnum fyrr í vetur, þá má ekki bara sakast við framherjana yfir markaleysinu, heldur vantaði okkur góða hægri kantmenn og sendingar á framherjana.

    Ég er á því að Lennon hafi gert mesta gæfumuninn. Jú, það var móralskt sterkt að fá Rooney inn örugglega en Lennon breytti ógnuninni úr mjög lítilli yfir í heilmikla með komu sinni á hægri kantinn og ég tel móttöku hans og sendingu á Beckham í fyrsta markinu hafa verið frábæra!

    Downing inn fyrir Cole?? Það fannst mér fáránlegt.

    Mér finnst það líka gaman að sjá að England vinnur þessa leiki án þess að hafa spilað sitt besta. Svía-leikurinn verður rosalegur!

    En aðalpunkturinn hjá mér er sá að Crouch liggur undir ótrúlegri gagnrýni stundum. Já, það mun koma fyrir að framherjar klúðra en þeir skora stundum líka! Getur einhver hér kannski minnst á framherja sem er reglulega með betri nýtingu á færum heldur en Crouch í gær (ef við gefum okkur 1/3 af færum hans hafi fengið – 33%)?

  14. Ég hef varið Crouch með kjafti og klóm síðan hann kom til okkar..
    Ég vonaði heitt og innilega að hann myndi skora eftir að hann kixaði svona illilega. Sem betur fer gekk það eftir. Ennnnn…..og ég spyr er ég einn um það??

    Það fer ógeðslega í pirrurnar á mér að horfa á það í endursýningu hvernig Crouch rífur í hárið á varnarmanni um leið og hann stekkur upp til að skalla boltann. Þetta er svo greinilegt og Crouch heppinn að dómarinn sá þetta ekki.

    Ég var farinn að hallast að því eftir leikinn á móti Paraquy að Crouch væri lagður í einelti af dómaranum. En ég er á annarri skoðun núna. Getur verið að þetta sé bara almennt framherja siður að klifra upp á, toga í peysur og hár varnarmanna?? Tilgangurinn helgar meðalið??

    Sumir fá ef til vill flog þegar þeir lesa þessar línur…en ég get bara ekki gert að því að þrátt fyrir mikilvægt mark þá hefur Peter Crouch sett heil mikið niður í mínum kokkabókum eftir að hafa fylgst með honum í síðustu tveim leikjum Englendinga.

  15. Þó svo að ég fagni ekki þessum punkti hjá JóniH, þá virði ég hans skoðanir. Ég sá aldrei þetta hártog en það er ekki óalgengt að einhver snerting sé í svona atriðum – Crouch er alla vega ekki sá fyrsti og ekki sá síðasti sem aðeins kemur við varnarmanninn í svona boltum.

    Það sem pirrar mig meira er heilagleiki markvarða og sú hættulega staða, þegar þeir hoppa upp í boltann með hnéð beint út – ágætis vörn fyrir sig en eflaust stórhættulegt fyrir sóknarmann að fá hnéð í bakið eða annars staðar.

    Hvernig getur eineltis-kenningin á Crouch í Paragvæ leiknum breyst, eftir að hafa séð Crouch “rífa” í hár andstæðingsins eða klifra upp á hann?? (by the way, ég sé þetta ekki svona rosalega greinilega!!) Þulir töluðu um það eftir Paragvæ leikinn … Crouch mátti bara ekki neitt, og ef það fer svona rosalega í pirrurnar á þér að sjá að Crouch (sem ekkert virðist mega gera) koma við andstæðinginn í stökkinu, af hverju fer það ekki jafnmikið í pirrurnar á þér að sjá allt eineltið sem dómarinn sá um í Paragvæ leiknum?

    Mér finnst Crouch ekki besti framherji sem Liverpool hefur haft, en mér finnst stöðug ógn af honum. Mér finnst ótrúlegt að hafa orðið vitni að púi og bauli á hann eftir að hann kom inn á í landsleik, þegar sá landsleikur var haldinn í Manchester (ef ég man rétt)? Og mér finnst Crouch vera gagnrýndur mun meira en hann á skilið. Ég skil bara ekki hvernig álit á Crouch getur lækkað eftir markið hans á móti Trinidad og Tobago… ég bara skil það ekki – sorry.

    Ég er ekki í flogi, ég er bara örlítið gáttaður enn á þessu næfurþunna svelli sem Crouch stendur á. Hann má varla gera neinn einasta hlut rangt, þá brotnar allt undan honum!

    Ég er bara stoltur af því sem Púlari að það eru Liverpool menn sem sjá um markaskorun Englands núna …

  16. Takk fyrir málefnalegt og greinagott svar Doddi.. :smile:….

    Ég er stoltur af Crouch sem Liverpool leikmanni…believe you me…

    Ég kom þessu kannski ekki alveg nógu vel frá mér með Paraquy leikinn. Sko..þegar ég horfi á mína menn þá á ég oftast mjög erfitt með að vera óhlutdrægur, einfaldlega vegna þess að ég er eldheitur Púllari og elska sennilega ekkert meira en Liverpool nema ef vera skyldi konan mín og börnin mín…. :blush:

    Þess vegna blótaði ég þessum dómara í Paraquy leiknum í sand og ösku…setti upp vúdúdúkku á staðnum og reyndi að koma kvikindinu í skilning um að það væru fleiri menn á leikvellinum sem þyrftu á dómgæslu að halda en Peter Crouch…

    Svo líður og bíður og það kemur að næsta leik…ég sé þetta litla atriði þar sem Crouchy togar í taglið á áðurnefndum varnarmanni við áðurnefndan skalla..

    Dómarinn sá það ekki en það sést greinilega í endursýningu og Crouch heppinn að dómarinn sá þetta ekki(og England btw). Og ég fór að spyrja mig….er möguleiki að Crouch noti hendurnar meira en góðu hófu gegnir í átökum sínum við varnarmenn..???? og ég sá meira segja viðtal við Crouch eftir Paraquy leikinn þar sem hann talaði um að hann þyrfti að aðlaga sig að HM..það er ekki leyft eins mikið þar og á Englandi..!!!!

    Þrátt fyrir þessar pælingar mínar þá stendur eftir að ég er ennþá eldheitur stuðningsmaður Crouch..Hann er ekki bara Tágrannur risi sem er aðeins nothæfur í skallabolta. In fact þá er hann kannski ekki þessi heimsklassa skallamaður og maður hefði getað haldið. Nei..hann hefur bara svo margt annað.. Hann hefur tækni.. hann er stöðugt ógnandi nálægt vítateig andstæðingana og hann tekur mikið til sín. Hann spilar uppi samherja sína… Hann hefur bara svo mikið over all quality. En vegna þess að hann hefur ekki útlitið með sér og er renglulegur risi þá dæmir fólk hann út frá því.

    Lokaorð….ég er og verð Peter Crouch maður…en p.s. ég veit að Crouch veit hvað ég hef verið að tala um og hann er örugglega að vinna í því að passa hendurnar á sér meira…… 🙂

  17. Ég er að horfa á myndina sem fylgir þessu bloggi og þar sést að þessi blessaði varnarmaður sem Crouch togar aðeins í hárið á…er nú ekkert að spara handavinnuna á Crouch.

    Kannski sá dómarinn þetta svo eftir allt saman en Crouch fékk að njóta vafans….

    Aha ..we will never know. Ég skal hætta þessu núna… enda sennilega enginn að glugga í þessa bloggfærslu lengur….. :confused:

    Eftir stendur að markið var stórglæsilegt og það var enginn annar en Peter Crouch sem skoraði það…. :biggrin:

  18. Gott að lesa þetta JónH 🙂 – ég held að það hljóti að vera erfitt fyrir dómara stundum, að meta hvort um brot hafi verið að ræða eða ekki. Sú staðreynd að varnarmaðurinn (og að mér sýndist TT-menn yfir það heila) hafi ekki kvartað gífurlega undan Crouch í markinu, fær mig til að trúa því að snertingin hafi ekki talist “alvarleg”. Og jú … skv. myndinni eru hendur varnarmannsins á overtime …

    við erum stoltir púlarar og nú fær Crouch væntanlega að hvíla sig í næsta leik – sem er gott fyrir átökin í 16 liða úrslitum, hvort sem það verður gegn Þjóðverjum eða Ekvadorum. Bæði lið eru gífurlega erfið.

HM: Ekvador!

Cisse til Marseille?