HM dagur 4: Socceroooooooooos!

cahill_socceroos_brace.jpg Jæja, þá er leikdagur fjögur á HM búinn og þremur frábærum leikjum lokið. Þetta hefur svo sannarlega verið stórskemmtilegur leikdagur.

Flugeldasýningin hófst snemma þegar Ástralir unnu Japana, 3-1, í sínum fyrsta leik í úrslitum HM. Þetta var stórskemmtilegur leikur á að horfa; Japanirnir voru vel skipulagðir í vörninni og sóttu mjög hratt fram þegar færi gafst, á meðan Ástralir tóku að sér að spila pressuboltann og reyna að komast yfir. Liverpool-maðurinn Harry Kewell var frammi hjá Áströlum ásamt Mark Viduka, en þeir félagar fóru á kostum í leiknum og voru að öðrum ólöstuðum bestu menn vallarins … þangað til svona tíu mínútur voru eftir.

Það var þó gegn gangi leiksins sem Japanir komust yfir eftir mistök Mark Schwarzer í marki Ástrala, undir lok fyrri hálfleiksins. Í síðari hálfleik sóttu Ástralir síðan djarft og Guus Hiddink þjálfari þeirra henti öllum tiltækum stjörnum inná völlinn en allt virðist ætla að vera fyrir bí þangað til sex mínútur voru eftir af leiknum. Þá tók Everton-maðurinn Tim Cahill upp á því að skora tvö mörk á þremur mínútum og Ástralir voru allt í einu komnir yfir. Varamaðurinn John Aloisi skoraði svo þriðja mark Ástrala í uppbótartíma sem fögnuðu aldeilis frábærum og merkum sigri í dag og eru því í góðri stöðu í sínum riðli, en Brasilíumenn mæta Króatíu í sama riðli á morgun.

Í öðrum leik dagsins tóku Tékkar svo Bandaríkjamenn í kennslustund í knattspyrnu og unnu frekar auðveldan 3-0 sigur. Ég varð fyrir talsverðum vonbrigðum með Bandaríkjamennina í dag, en þeir komust í 8-liða úrslitin fyrir fjórum árum og ég bjóst við þeim sterkari í dag. Það varð þó ekki úr og Tékkarnir unnu auðveldlega. Risinn Jan Koller skoraði fyrsta markið með skalla í upphafi leiks en fór svo meiddur af velli undir lok fyrri hálfleiks. Fregnir herma að hann sé úr leik á mótinu eftir að hafa meiðst í læri, en það eru verulega slæmar fréttir fyrir Tékkana. Vladimir Smicer er þegar farinn heim til Tékklands með meiðsli og ef Koller er frá líka, og Milan Baros tæpur (spilaði ekki í dag), þá gæti það haft alvarleg áhrif á frammistöðu Tékka síðar í keppninni. En þeir voru frábærir í dag og nýr leikmaður Arsenal, Tomas Rosicky, kórónaði frábæra frammistöðu sína í dag með tveimur frábærum mörkum í sitt hvorum hálfleiknum.

Í þriðja leik dagsins unnu Ítalir svo góðan sigur á Ghana, 2-0, í stórskemmtilegum leik. Ítalir voru mjög skipulagðir og agaðir í þessum leik og sigur þeirra var að mínu mati fyrst og fremst góðri taktík Marcello Lippi að þakka. Þeir voru í sjálfu sér vel að þessum sigri komnir, Pirlo og Iaquinta skoruðu mörkin í sitt hvorum hálfleiknum, en þessi leikur hefði samt hæglega getað fallið Ghana-mönnum í skaut. Þeir spiluðu mjög vel í þessum leik, sennilega best af þeim Afríkuþjóðum sem hafa spilað í keppninni til þessa. Þeir voru vel skipulagðir, mjög agaðir og vel spilandi en virtist skorta lokaáherslurnar upp við vítateig Ítala. Kannski skorturinn á góðum framherja sé of stórt vandamál fyrir þá í þessari keppni, en annars voru þeir góðir og gátu í raun bara kennt sjálfum sér um tapið. Mark Pirlo í fyrri hálfleik kom upp úr hornspyrnu, en boltinn var sendur út á Pirlo sem var algjörlega óvaldaður við vítateig Ghana-manna og setti hann snyrtilega í markhornið. Í síðari hálfleik gaf Samuel Kuffour, aftasti maður varnar Ghana, boltann svo á Iaquinta sem þakkaði fyrir sig, sólaði markvörðinn og skoraði. Sem sagt, tvö klaufamörk skildu að annars tvö mjög jöfn lið í þessum leik.

Og þar með er leikdagur 4 búinn og ég lýsi því hér með yfir að Harry Kewell og félagar í **Ástralíu** eru lið dagsins! Á morgun eru svo ekki amalegir leikir en þá hefja bæði stórlið Brasilíumanna og Frakka þátttöku í keppninni. Góðar stundir!

7 Comments

  1. Fínn dagur, sammála með vonbrigðin yfir Bandaríkjamönnum – bjóst við þeim sterkari. Þetta virkaði frekar traust hjá Ítölum í dag og ég missti af Japan – Ástralía sökum vinnu … en sá mörkin. Ég verð samt að segja að mér finnst sennilega Fílabeinsströndin skemmtilegasta Afríkuþjóðin sem ég hef séð á HM2006.

  2. Camoranesi kom inná fyrir Totti á 56. mínútu. Fyrir utan eina ágætis fyrirgjöf þá gat hann eiginlega ekki neitt, komst aldrei í takt við leikinn.

    Ég er ekkert spenntur fyrir honum í sumar, mann ennþá eftir því hvernig hann varð sér til skammar með Juve á Highbury í Meistaradeildinni í vor og finnst hann bara leiðinlegur, óheiðarlegur leikari … nei ég meina leikmaður. Svo er hann þrítugur. Nei takk.

  3. Stærsta vandamál ghana manna er skipulagsleysi í bland við kæruleysi held ég. Þeir gerðu sig seka um alltof marga feila og voru ekki vakandi í föstum leikatriðum. Svo kom auðvitað seinna markið eftir kostuleg mistök kuffour. Það rifjaði upp slæmar minningar fyrir bayern menn að sjá hann liggja í grasinu og grípa um hausinn á sér.

  4. Jújú, Bandaríkjamenn voru slakir og ollu vonbrigðum en mér finnst menn vera að gera lítið úr hlut Tékka í þessu máli. Ekki gleyma því að Tékkar eru í 2.sæti á Heimslista Fifa (…sem er jú að vísu frekar fáránlegur) og eru með frábært lið (Ætti kannski líka að minnast á að þeir eru mitt lið á þessu móti og innihalda tvo af mínum 5 uppáhalds leikmönnum). En eins og ég sagði þá eru Tékkar að mínu mati einir af þeim liðum sem eru með styrk til að komast í undanúrslitin og jafnvel lengra. 🙂

    Annars er maður bara ánægður með þessa Heimsmeistarakeppni, farið alveg frábærlega af stað! Mikið af flottum tilþrifum og mörkum þó að sum lið hafi að vísu ollið smá vonbrigðum (…hóst Portúgal og Svíþjóð)

    …og með Camoranesi, NEI TAKK!! Algjör óþarfi að vera að kaupa einhver skemmd epli sem eru auk þess komin á aldur !!

  5. Ég bý einmitt í Ástralíu og hef verið hér síðan í febrúar og þetta var frábær dagur. Ég fór og horfði á leikinn í spilavíti hérna í Hobart og það er rosaleg stemning hér í landi fyrir HM og það er EKKERT annað í TV-inu annað en fótbolta, algjör veisla:D

    En þetta með Camoranesi, eru menn ekki heilir?? Við höfum ekkert að gera með hann. Vona bara að Rafa kaupi framherja sem allra fyrst og láti það vera efst á forgangslistanum sínum…maður er alveg kominn með grænar bólur á punginn við að horfa á þessa liverpool framherja sem eru vart skárri en amma mín með 30 kg keðju bundna við lappirnar á sér! :tongue:

  6. Tékkar eru nr. 2 á heimslistanum en það eru kannski fleiri sem gleyma því að USA eru nr. 5 og eru því fyrir ofan þjóðir eins og t.d. England, Argentínu, Spán, Portúgal og Frakkland.

Hamann hugsanlega til Bolton

Tógó?