Fer Morientes í sumar?

Fernando Morientes er ekki viss um [framtíð sína hjá félaginu](http://home.skysports.com/list.asp?hlid=387883&CPID=8&clid=14&lid=2&title=Nando’s+future+doubt) eftir dapurt tímabil. Hann hefur aldrei náð að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans enda hafði hann spilað fantavel með bæði Real Madrid og Monaco. Morientes hefur skorað 12 mörk í 61 leik í það heila fyrir Liverpool og þar af í deildinni 8 mörk í 41 leik. Það er einfaldlega ekki nógu gott.

7 Comments

  1. Sammála þér Aggi þetta er einfaldlega ekki nógu góður árangur hjá Morientes. Ég hef oft áður á þessu spjalli sett út á Morientes og ekki hefur það verið af ástæðulausu. Hann meira að segja viðurkennir að hafa verið slakur síðasta eitt og hálft ár hjá Liverpool.

    Annars var ég að skoða tölfræði sóknarmanna okkar í deildinni í vetur. Hér er hún (mörk skoruð og fjöldi leikja)

    Crouch 8 mörk í 32 leikjum, þar sem hann byrjaði inná í 27 leikjum en kom inn sem varamaður í 5 leikjum.

    Cisse 9 mörk í 33 leikjum, byrjaði inná í 19 leikjum og kom inn sem varamaður í 14 leikjum.

    Morientes 5 mörk í 28 leikjum, byrjaði inná í 20 leikjum og kom inn sem varamaður í 8 leikjum.

    Fowler 5 mörk í 14 leikjum, byrjaði inná í 9 leikjum og kom inn sem varamaður í 5 leikjum.

    það er ótrúlegt að horfa uppá þetta. Fowler í lélegu formi er líklegri til að skora heldur en allir hinir sóknarmenn okkar.

    Árangur sóknarmanna okkar er hræðilegur miðað við að Liverpool var að skapa sér 15-20 færi í mjög mörgum leikjum. Það er ekki nóg að skora í 4 til 5 hverjum leik.

    Tökum nokkur dæmi um sókarmenn hjá liðum sem sköpuðu sér ekki helming þeirra færa sem við sköpuðum. Þá sést það áþreyfanlega hversu slakir sóknamenn Liverpool eru (fyrir utan Fowler).

    Byrjum á tveimur gamlingjum Andy Cole 9 mörk í 22 leikjum, Sheringham 6 mörk í 26 leikjum.

    Skoðum svo nokkar kraft framherja: Kevin Davies 7 mörk í 37 leikjum, Shefki Kuqi 7 mörk í 33 leikjum, Beattie 10 mörk í 32 leikjum. Hugsið ykkur Beattie skoraði meira en allir okkar sóknar menn.

    Skoðum svo í lokinn tvo gamla Liverpool menn: Baros 8 mörk í 25 leikjum, Owen 7 mörk í 11 leikjum. Miða við tölfræði Owen er ekki skýtið að menn horfi á hann sem lausn við vandamálum okkar í sókninni.

    Meira að segja Heiðar Helguson skoraði 8 mörk í 28 leikjum fyrir Fulham þar af byrjaði hann inná í 16 leikjum. Allir nema Cisse náðu ekki að skora meira en Heiðar, þetta er ekki í lagi.

    Og ef við höldum að endurkoma Le Tallec og Pongolle úr láni munu leysa markaþurfð sóknarmanna okkar, þá hafið þið rangt fyrir ykkur. Tallec spilaði 27 leiki í vetur fyrir Sunderland og skoraði í þeim heil 3 mörk. Hann skorar því í 9 hverjum leik. Pongolle spilaði 10 leiki fyrir Blackburn og skoraði í þeim 1 stykki mark, vá þvílíkur markaskorari þar á ferð.

    Persónulega væri ég til í að skipta út Crouch, Cisse og Morientes fyrir tvo heimsklassa sóknarmenn.

    Þá er ég ekki að tala um Defoe, hann er ekki 20 marka maður. 9 mörk í 36 leikjum í vetur er ástæða þess að hann sat á bekknum á kostnað Keane (16 mörk) og Mido (11 mörk).

    Og ef við missum Garcia þá er þörf sem aldrei fyrr á markheppnum sóknarmanni/mönnum, því þrátt fyrir jójó tímabil setti hann samt 7 mörk í 31 leikjum.

    Afhverju reyndu Liverpool til dæmis ekki að kaupa Berbatov sem var að semja við Tottenham áðan, kaupverð 10,9 millj punda. Hann er markaskorari af guðs náð 21 mark í 34 leikjum á þessu tímabili og 20 mörk í 32 leikum á því síðasta auk þess að skora 5 mörk í 10 leikjum í riðlakeppni meistaradeildarinnar. Það er akkúrat svona leikmaður sem Liverpool vantar.

    Kveðja
    Krizzi

  2. Var að lesa á mbl.is að Morientes vilji fara frá Liverpool ef Benitez ætli honum ekki stórt hlutverk í liðinu á næstu leiktíð. Eftir svona comment, þá má hann bara endilega fara. Hann veit að hann hefur ekkert getað með LFC, en kemur samt með svona skilyrði. Hann er sá sóknarmaður sem fékk langflesta sénsa í vetur, en nýtti einfaldlega ekki. Jújú, kallinn er væntanlega súr yfir að hafa ekki verið valinn í spænska hópinn í sumar, en hann er 30 ára og vill fara frá LFC. Er hann þá að hugsa til framtíðar, komast í annað lið, skora eitthvað og tryggja sig þá í spænska hópinn 34 ára? Ég á eftir að sjá það gerast.

  3. Þetta segir Morientes (kvót í Daily [Post](http://icliverpool.icnetwork.co.uk/0500liverpoolfc/0100news/tm_objectid=17089470%26method=full%26siteid=50061%26headline=benitez%2dopen%2dto%2doffers%2dfor%2dmorientes-name_page.html):

    >”People are saying that Liverpool are going to sign forwards and Benitez does not count on me any more,” said the striker.

    >”**But if I don’t play, I can’t stay**. I’ve been at Liverpool a year-and-a-half, and with injuries and other things I’ve never felt right.)

    Ósköp skiljanleg ummæli að mínu mati.

  4. Það er eðlilegt að Morientes vilji fara ef hann á að vera varaskeifa og líka jafn eðlilegt að Rafa ætli ekki að halda honum þegar hann hefur lítið sýnt sem og er á dúndur launum.

    Ég tel næsta víst að Cissé og Morientes fari og í staðinn komi einn topp framherji. Og það má bara ekki vera Defoe. Því afhverju ætti hann að vera nógu góður hjá okkur þegar hann kemst ekki í liðið hjá Tottenham?

    Hins vegar er það jafnljóst að Defoe er örugglega á förum frá Tottenham eftir að Berbatov er genginn til liðs við þá.

    Miðað við verðmiðann á Berbatov þá myndi ég halda að Dirk Kuyt átti að vera á svipuðu reki 10-14 millj. punda.

  5. Morientes er klárlega ekki nógu góður fyrir Liverpool. Að mínu mati hefur hann fengið alltof mörg tækifæri í vetur. Cisse hefur skorað 9 mörk í 19 byrjunarliðsleikjum. Hann hefur oft þurft að dúsa á bekknum á meðan Morientes hefur fengið marga sénsa. Mín skoðun er sú að Cisse hafi fengið alltof fá tækifæri í framlínunni í vetur. Hann var mikið notaður á kantinum þegar hann byrjaði inná eða kom inná. Stóð sig vel þar að mínu mati og er klárlega okkar hættulegasti framherji. Ég myndi ekki vilja selja hann nema að fá algjöran toppframherja í staðinn. Tel að hann og Crouch geti myndað gott sóknarpar saman. Morientes er hins vegar búinn að spila út sínum möguleikum að mínu mati.

  6. Aggi linesman, afhverju að selja 2 framherja og fá bara 1 í staðinn? Er ekki það eina rétta i stöðunni að reyna að auka samkeppni hjá sem flestum í liðinu?

    Ef Morientes og Cisse verða seldir, þá verð ég hundfúll ef við sjáum þá ekki 2 í staðinn. Einn heimsklassa og einn á 3-6 mills, squad player.

  7. Ég sé það strax að það er ekkert að gera í vinnuni hjá Krizza!!!

    Morientes má svo sannarlega fara aftur til spánar. Verum ekki að bíða eftir því hvort hann nái sér aftur á strik aftur. Enski boltinn virðist bara ekki alveg henta honum nægilega vel. Fá einn nýjan framherja inn og höldum Cisse kallinum. Cisse er búinn að vera verulega lifandi í síðustu leikjum. Væri synd að selja hann.

Arselóna í kvöld!

Evrópumeistarar!