Kromkamp í hollenska hópnum

Jæja, Van Basten virðist vera hættur í fýlu útí Jan Kromkamp, þar sem hann hefur valið hann í 23 manna [landsliðshóp Hollands fyrir HM 2006](). Gott mál. Dirk Kuyt (sem ég lærði að er borið fram Dirk Kæt) er líka í hópnum, en hann hefur auðvitað verið orðaður ítrekað við okkur. Spurning hvort það verði því tveir Liverpool menn í þessum hóp þegar HM byrjar. Hópurinn lítur svona út:

**Markverðir**: Edwin van der Sar (Manchester United), Maarten Stekelenburg (Ajax), Henk Timmer (AZ Alkmaar).

**Varnarmenn**: Khalid Boulahrouz (Hamburg SV), Giovanni van Bronckhorst (Barcelona), Tim de Cler (AZ Alkmaar), Kew Jaliens (AZ Alkmaar), **Jan Kromkamp (Liverpool)**, Joris Mathijsen (AZ Alkmaar), Andre Ooijer (PSV Eindhoven), Johnny Heitinga (Ajax).

**Miðjumenn**: Mark van Bommel (Barcelona), Phillip Cocu (PSV Eindhoven), Denny Landzaat (AZ Alkmaar), Hedwiges Maduro (Ajax), Wesley Sneijder (Ajax), Rafael van der Vaart (Hamburg SV).

**Framherjar**: Ryan Babel (Ajax), Dirk Kuyt (Feyenoord), Ruud van Nistelrooy (Manchester United), Robin van Persie (Arsenal), Arjen Robben (Chelsea), Jan Vennegoor of Hesselink (PSV Eindhoven).

Þarna sjá menn að af þekktum hollenskum leikmönnum vantar til dæmis Clarence Seedorf (en þeir MVB talast ekki við – algjör synd), Jaap Stam (sem er hættur) og George Boateng.

Ein athugasemd

  1. Maðurinn með flottasta nafnið í boltanum….. Jan Vennegoor of Hesselink!! Vonandi á hann engin systkini blessaður! :laugh:

Jose vill Simao

Defoe eða Bent