B’ham 2 – L’pool 2

zenden_melchiot.jpgÚff, enn eitt helvítis jafnteflið. Og það í ansi hreint fróðlegum leik, sem að mínu mati sagði okkur ansi mikið um stöðu liðsins í dag. Bæði á jákvæðan og neikvæðan hátt.

Svona yfir heildina litið, þá var þessi leikur bæði leiðinlegasti og skemmtilegasti leikur okkar í deildinni það sem af er. Fyrri hálfleikurinn var einfaldlega hrútleiðinlegur og maður var ekki beint bjartsýnn í hálfleik, staðan 0-0 og okkar menn ekkert að ná að sækja að ráði.

Seinni hálfleikurinn var síðan bara dramatík af hæstu gráðu og hin fínasta skemmtun, ótrúlegt en satt – svo virðist sem það geti verið gaman að horfa á leik í Úrvalsdeildinni? Hvern hefði grunað það?!?!?

Allavega, Rafa gerði fjórar breytingar frá því gegn Man U og hóf leikinn með þessu liði:

Reina

Josemi – Carragher – Hyypiä – Warnock

Pongolle – Alonso – Hamann – Zenden
Gerrard
Crouch

BEKKUR: Carson, Finnan, Riise, García, Cissé.

Eins og áður sagði þá var fyrri hálfleikurinn ömurlega leiðinlegur. Birmingham-menn virtust vera sáttir við að liggja í vörn með 11 menn fyrir aftan boltann, á heimavelli, og því var þetta nær allan tímann bara spurning hvort okkar menn næðu marki eða ekki. Við áttum allan fyrri hálfleikinn, en eins og svo oft áður vantaði allt bit í sóknina okkar.

Emile Heskey var nærri því búinn að koma þeim bláu yfir á 26. mínútu þegar hann vann boltann af Carra og skaut vel að marki úr dauðafæri, en Reina sá við honum og varði vel með fótunum. Þetta reyndist vera bókstaflega eina færi Birmingham-manna í leiknum, að mörkum síðari hálfleiksins undanskildum.

Stuttu síðar braust Stevie Gerrard fram miðjuna og átti gott skot með vinstri að markinu. Maik Taylor, markvörður Birmingham átti aldrei séns í skotið en sem betur fer fyrir hann hafnaði boltinn í stönginni og þaðan út af hættusvæðinu. Nokkrum mínútum síðar átti Bolo Zenden gott skot af svipað löngu færi en boltinn fór rétt framhjá samskeytunum.

Hálfleikur, þrjú færi og 45 mínútur af leiðindum. Maður hefði betur leyst krossgátu en að eyða tíma í fyrri hálfleikinn í dag.

Liðin gerðu svo engar breytingar í hálfleik, þannig að maður sá fram á það sama, en það varð svo aldeilis ekki. Síðari hálfleikurinn byrjaði með jafnræði liðanna en svo óx þeim bláu ásmegin og eftir svona 10-15 mínútur af síðari hálfleik voru þeir hreinlega farnir að pressa okkur, án þess þó að skapa nokkur færi af viti. Þar fór fremstur í flokki Jermain Pennant, hægri vængmaðurinn knái, sem var þeirra besti maður í dag. Hann lét Warnock og Carra hafa fyrir laununum sínum í dag og náði að taka þá hvorn um sig illa einu sinni.

Rafa gerði svo breytingu þegar u.þ.b. hálftími var eftir, tók Sinama-Pongolle útaf og setti García inn. García var ekki búinn að vera inná nema í örfáar mínútur þegar Gerrard fékk boltann á miðjum vallarhelmingi Birmingham, stakk honum innfyrir vörnina og þar var García mættur – eini miðjumaðurinn sem við eigum í dag sem þorir að keyra inn í teig – og setti hann öruggt framhjá Taylor í fyrstu snertingu. 1-0 fyrir okkur og miðað við varnarstyrk okkar í haust þá hélt ég að þetta væri komið.

Ekki aldeilis. Fimm mínútum síðar vorum við komnir 2-1 undir. Það er erfitt að útskýra hvað gerðist, en það var engu líkara en að okkar menn bara hættu að reyna. Eins og þetta væri öruggt eða eitthvað. Birmingham-menn fóru bara beint í stórsókn og eftir smá pressu fyrir utan teig okkar manna náði Julian Gray fyrirgjöf frá hægri, sem virtist ætla að sigla hættulas beint í fangið á Pepe Reina í markinu. En þá rak Stephen Warnock hausinn í boltann og hann breytti um stefnu, fór yfir öxl Reina og í netið. 1-1, frekar klaufalegt mark en erfitt að ætla að ásaka Warnock eitthvað harkalega fyrir. Hann gerði sitt besta, en stundum gerist svona lagað bara.

Birmingham-menn gengu á lagið og tveimur mínútum síðar áttu þeir skot utarlega úr teignum. Reina varði en hélt ekki boltanum, Emile Heskey mætti fyrstur á svæðið og skaut en Reina varði aftur með fótunum frá honum, þrátt fyrir að vera liggjandi eftir fyrri markvörsluna. Það kom þó ekki að sök því að Walter Pandiani náði öðru frákasti og setti boltann inn – 2-1 fyrir Birmingham og maður spurði sig einfaldlega: hvar var vörnin? Menn horfðu á mann skjóta utarlega úr teignum, Reina varði og menn horfðu á Heskey taka frákastið og aðhöfðust ekkert, Reina varði aftur og enn horfðu menn bara á þegar Walter Pandiani náði þriðja skotinu að marki, og í það skiptið kom Reina engum vörnum við.

Ótrúlegur sofandaháttur hjá þessari “næstbestu vörn Englands” …

Þegar hér var komið sögu henti Rafa John Arne Riise inná fyrir Didi Hamann – skipting sem hefði mátt koma miklu fyrr – og við fórum að pressa þá til baka. Síðustu 20 mínútur leiksins vorum við einfaldlega í stórsókn. Þegar 8 mínútur voru eftir náði Peter Crouch að skalla boltann að marki eftir stórsókn okkar manna, boltinn fór í slána og niður á línuna fyrir aftan Taylor og þaðan virtist hann fara út í teiginn. Okkar menn hrópuðu á eitthvað – mark sýndist manni – og það ríkti smá ringulreið í teignum um stund. Dómarinn var samt viss í sinni sök, dæmdi víti og rak Kilkenny útaf, en endursýningin sýndi að hann hafði blakað boltanum af línunni með hendinni.

Vel dæmt þar og Djibril Cissé – laaangöflugasta vítaskyttan okkar í dag – skoraði örugglega úr vítinu. 2-2 og okkar menn höfðu 10 mínútur til að ná sigurmarkinu. Það gekk þó ekki, Cissé skaut framhjá úr góðu færi utarlega í teignum, Riise skaut himinhátt yfir fyrir utan teig og Peter Crouch skallaði boltann yfir slána af markteig eftir góða fyrirgjöf Cissé, þegar auðveldara virtist fyrir hann að skora.

Sem sagt, á endanum urðu 2-2 lokatölur leiksins. Förum aðeins yfir það jákvæða og neikvæða:

JÁKVÆTT: 2-2 jafntefli þýðir eitt stig úr leik sem tapaðist í fyrra. Enn erum við að bæta okkur í deildinni, tölfræðilega, og enn erum við taplausir. Þetta er svona leikur sem við hefðum tapað í fyrra, þannig að maður sér hvað Rafa meinar þegar hann segir að liðið sé stöðugra og öruggara í vetur. Við erum með betra lið en fyrir ári síðan, ekki spurning.

Luis García. Hann átti engan stórleik svosum í þennan hálftíma sem hann var inná, en ef það lék einhver vafi á því hvers vegna hann er í liðinu þá hlýtur hann að hafa dáið í dag. Hefðum við komist yfir ef hann hefði ekki verið inná? Einfalt svar: nei, því fyrstu 60 mínútur leiksins var nánast ekkert sem benti til þess að við gætum yfir höfuð komist inn í vítateig Birmingham-manna.

Peter Crouch og Djibril Cissé. Staðan er einfaldlega sú að við höfum ekki nógu góða vængmenn til að spila með 4-5-1. Því miður. Við erum með frábæra miðju, sterka vörn og alveg fullkominn framherja í þetta kerfi – Crouch eða Morientes, eiga báðir við hér – en á meðan við erum með svona steingelt vængspil þýðir ekkert að spila með 4-5-1. Og eftir að Cissé kom inná sýndu hann og Crouch enn og aftur það sem ég er alltaf að reyna að segja, þeir ná mjög vel saman. Af hverju þeir fá ekki að spila saman frá byrjun skil ég ekki, ef Crouch hefur enga miðjumenn til að senda á af því að hann er svo einangraður þarna frammi, því ekki bara að spila 4-4-2 og leyfa honum að mata Cissé á skallasendingum? Þeir ná vel saman, Rafa, leyfðu þeim að njóta þess!

NEIKVÆTT: Mörkin tvö sem við fengum á okkur sýndu að þótt liðið sé stöðugra og vörnin betri en á sama tíma í fyrra, þá er klaufaskapurinn og getuleysið sem einkenndi okkur á útivelli í fyrra aldrei skammt undan. Við munum fá á okkur mörk á útivelli í vetur, færri en í fyrra vonandi en samt einhver.

Zenden/Riise og Pongolle/García. Aðeins einn þessara fjögurra manna er einhver sérfræðingur í vængstöðunni, og mér finnst ekkert hafa komið út úr Zenden það sem af er tímabili. Við eigum ekki nógu góða vængmenn. Við erum í raun að spila sömu taktík og Chelsea núna, munurinn er bara sá að á meðan við erum að nota Riise og Pongolle á vængjunum, eða Zenden og García, þá eru þeir með Arjen Robben, Damien Duff, Joe Cole og Shaun Wright-Phillips. Þess vegna fá Drogba og Crespo meiri framleiðslu og stuðning í teignum en Crouch er að fá, vegna þess að þeir eru með menn sem réttlæta kerfið. Mikið djöfull þörfnumst við þess að fá Harry Kewell sterkan inn á næstu vikum…

Djibril Cissé á bekknum. Sko, hann er núna markahæsti leikmaður liðsins og er sennilega búinn að spila færri mínútur en allir aðrir leikmenn í 16-manna hópnum okkar í dag (fyrir utan Carson, að sjálfsögðu) … af hverju fær hann ekki að spila meira? Af hverju ekki að mæta á Anfield á miðvikudag, í stórleik gegn Chelsea, með Crouch og Cissé saman frammi, og láta þá finna fyrir almennilegri pressu? Því ég skal LOFA ykkur því að Terry og Gallas munu eiga mjööög auðvelt með Crouch á miðvikudaginn miðað við hversu steingelt vængspilið hjá okkur er.

MAÐUR LEIKSINS: Þetta er í rauninni erfitt val, þar sem mér fannst ekki neinn leikmaður liðsins skara neitt sérstaklega fram úr í dag. Ef ég ætti að velja einhvern myndi ég sennilega velja Gerrard fyrirliða, en hann var samt sem áður ekkert spes neitt frekar en hinir. Við getum miklu betur.

Jæja … jafntefli er betra en tap, það er þó jákvætt, en ég tek samt undir með Rafa í því að þetta eru tvö töpuð stig, frekar en eitt grætt stig. Nú ríður á að spila vel í næstu tveimur leikjum, það er liðið sem enginn á að geta unnið sem kemur í heimsókn!

Stór vika framundan en í dag finnst mér eðlilegt að við séum pirraðir yfir leik liðsins.

31 Comments

  1. Það er ekkert jákvætt við þennan leik. Boring Boring Liverpool….punktur!

  2. Mörkin tvö voru fyrst og fremst REINA að kenna. Í fyrra markinu hleypur hann út í teig og mistekst að kýla boltann og honum finnst að dæma hefði átt aukaspyrnu og horfir á dómarann í stað þess að hlaupa strax á marklínuna, og kallar svo ekki til Warnock að engin maður sé bak við hann þannig að Warnock verður að reyna við boltann. Í öðru markinu hefði hann svo auðvitað átt að grípa boltann, punktur og pasta. Annars eru Liverpool að spila leiðindarfótbolta sem gefið hefur einn sigur í 5 leikjum.

  3. Gerrard var laaaaaang besti leikmaður Liverpool í þessum leik. Hann var útum allt, alltaf að dæla boltum inní teiginn, með gott þríhyrningsspil. Átti gott skot SEM dreif á markið annað en skotin hjá Xabi Alonso, sem mér finnst vera orðinn svolitið slappur í þessum leikjum sem eru búnir í deildinni. Er ekki bara málið að skella Josemi á hægrikantinn þegar okkur dauðvantar einn kantara ? hann er með fína bolta inní, hraður, fínar hreyfinar. Frekar nota hann heldur en Finnan.

  4. Ef Benitez fer ekki að hætta með þetta 4-5-1 kerfi fljótlega, þá geri ég mér ferð til Englands til að slá hann duglega utanundir. Hann er kominn langleiðina með að hrekja mann frá því að horfa á Liverpool spila, leiðindin eru yfirþyrmandi!

    Ég persónulega er svolítið hrifinn af því hvernig Crouch á það til að reka hausinn, bringuna eða fótinn í boltann þannig að hann falli beint fyrir fæturna á Liverpool leikmanni, hvort sem það er fyrir slysni eða ekki. Hef á tilfinningunni að ef Cissé væri með honum frammi, þá myndu mörkin koma á færibandi. Jafnvel væri hægt að nýta Crouch eins og vegg í innanhúsbolta, bara dúndra í hann og láta boltann kastast af honum til Cissé sem gæti þá skotið á markið 🙂

  5. við þetta má bæta þeim skemmtilegu úrslitum að ManUtd tapaði heima gegn Blackburn 1:2 þar sem Pedersen setti bæði fyrir Blackburn, seinna markið á 81. mínútu 🙂

  6. Virkilega pirraður yfir því að hafa ekki unnið þennan fo#”% leik! fór svakalega í taugarnar á að sjá Cisse og Riise skjóta uppí stúku þegar manni finnst það lágmarkskrafa að hitta ramman eða allavega í áttina að honum!!

    Jájá manjú tapaði í dag en við fáum ekkert fleiri stig fyrir það.

  7. Það er rétt þetta eru tvö töpuð stig. Þegar ég sá byrunarliðið hjá Birmingham þá hélt ég að við myndum aldeilis yfirspila þá. En viti menn það gerðist ekki. Hverju er um að kenna það veit ég ekki.

    Saknaði Sissoko því miðjumenn okkar voru alltof daufir. Hann hefði látið finna meira fyrir sér en þeir Hamann eða Alonso. Það er svo margt sem var hægt að setja út á í leik okkar í dag, en ég nenni því bara ekki.

    Þessi leikur er búinn og nú er bara að klára næsta leik.

    Kveðja
    Krizzi

  8. Tvennt sem fer í taugarnar á mér hérna.

    1) Hvernig menn geta endalaust tönglast á að þetta sé 4-5-1 kerfi sem Rafa er að stilla upp þegar það er deginum ljósara að sóknarlega á þetta að vera 4-2-3-1. Þetta er svona afbrigði af 4-5-1 og 4-2-4, fer eftir því hvort liðið sækir eða verst. Þrír menn, Zenden, Gerrard og Flo í dag, eru fljótandi sóknarmenn sem styðja við Crouch.

    2) Hvernig menn geta síðan kennt Reina um fyrra markið. Nú getur vel verið að hann hafi ekki kallað, en hvernig í andskotanum vita menn það. Getur ekki verið að Warnock hafi ekki áttað sig á kallinu fyrr en og seint, ekki heyrt kallið eða eitthvað? Ég vil flokka þetta mark sem óheppni þar til annað kemur í ljós.

    Ég er sammála þeim sem vijla frekar 4-4-2, en aftur á móti skil ég Rafa vel að vilja nota 4-2-3-1 þar sem það kerfi er mjög flexable og bíður upp á nokkra möguleika. En svo að það virki sem skyldi, þá verður leikmannahópurinn að bjóða upp á það. Ég er nefnilega sammála Kristjáni um að okkar hópur gerir það ekki í dag vegna skorts á kantmönnum. Maður myndi ætla að Zenden gæti leyst þetta hægra meigin(þó hann hafi svo sem ekki sýnt það ennþá) en við eingum engan sem getur það vinstra meigin. Ég hef mikla trú á Kewell í þessu kerfi þegar hann kemur aftur, hann vinstra meigin, Garcia fyrir aftan sóknarmanninn með nýjum hægri kantmanni. Xabi og Gerrard/Sissoko þá á miðjunni.

    En það er annað sem veldur mér áhyggjum. Er ég sá eini sem finnst Xabi ekki hafa náð sér á strik hingað til á tímabilinu? Sendingar hans eru ekki jafn góðar og í fyrra og hann dreyfir spilinu ekki nærri því jafn vel og í fyrra. Einnig finnst mér hann missa boltann allt of oft og oft á klaufalegan og óþarfann hátt.

  9. Þetta á auðvitað að vera öfugt með vandræða kantstöðurnar. Zenden ætti að geta leyst þetta vinstra megin en við eigum engan hægra megin.

  10. það skiptir engu hvað þetta kerfi er kallað held ég, það er ekki að virka eins og staðan er núna. Held að flestir hljóti að vera sammála um það

  11. Skil ekki þessa áráttu hjá Rafa að nota kerfi sem virkaði hjá einu liði en augljóslega ekki hjá Liverpool. Maður á að gera leikkerfi sem hentar hópnum, ekki reyna að venja menn í eitthvað kerfi….

  12. Strákar þetta er kerfið sem Benitez notaði hjá Valencia með mjög góðum árangri. Þeir leikmenn sem geta ekki spilað í þessu kerfi eiga því miður enga framtíð hjá LFC á meðan Benitez er við stjórnvölinn. Menn hljóta að vera búnir að átta sig á því að þetta er kerfið sem Benni mun og vill nota næstu árin.

    En eins og margir hafa komið inn á hér áður, meðal annars ég, þá fer þetta leikkerfi ekki að virka að fullum þunga fyrr er öflugir kantmenn eru komnir á þann hægri og vinstri. Auk þess sárvantar okkur meiri hraða í vörnina. Það er ljóst að úr þessu vill LFC bæta, en það gerist ekki fyrr en á næsta ári (vonandi).

    Kveðja
    Krizzi

  13. ,,það skiptir engu hvað þetta kerfi er kallað held ég, það er ekki að virka eins og staðan er núna. Held að flestir hljóti að vera sammála um það”

    Jamm, ég er svo sem sammála því að það skiptir ekki öllu hvað kerfið er kallað og að það er ekki að virka að undanförnu. En mér finnst menn alltaf tala um 4-5-1 og tala um hvað þetta sé varnarsinnað og leiðinlegt kerfi. Kerfið sem slíkt er ekki varnarsinnað og leiðinlegt þó það sé bara einn uppá topp, horfið á Barcelona og reynið að sannfæra mig um að þetta kerfi sé leiðinlegt. Málið er, af mínu mati, að hópurinn eins og hann er í dag bíður ekki nógu vel uppá þetta kerfi.

    Að tala um að kerfið sem slíkt sé leiðinlegt er fásinna af mínu mati. Hins vegar finnst mér þeir sem vilja fá hefðbundna 4-4-2 hafa nokkuð til síns máls.

  14. Drasl!

    Ég nenni ekki einu sinni að kíkja á netið til að skoða Chelsea úrslitin. AUÐVITAÐ töpum við báðum leikjunum. Við spilum með einn framherja, Gallas og Terry jarða hann, við skorum ekki eitt mark og svo pota Chelsea inn einu marki í sitt hvorum leiknum.

    Ef við náum einhverju gegn Chelsea þá verður það í Meistaradeildinni. Í ensku deildinni munum við tapa.

    Ég lagði það einu sinni til við vin minn að Meistaradeildarlagið yrði spilað fyrir alla leiki með Liverpool, hvort sem það er í Meistaradeildinni eða ensku deildinni. Þetta lið virðist vera fullkomlega ófært um að spila almennilega nema í Meistaradeildinni.

    Ef að Rafa heldur áfram með þetta 4-5-1 með þessa prump kantmenn, þá verð ég á endanum settur inná hæli.

    Milan Baros og Owen eru núna búnir að skora jafnmörg mörk og ALLT Liverpool liðið. Yndislegt! Og ég verð að segja, KRistján, að parturinn um Cisse í leikskýrslunni er einsog talað úr mínu hjarta. Get ómögulega skilið hvers vegna hann fær ekki eitt einasta tækifæri.

  15. Gleymdi einu:

    Erum við núna, ári eftir að framherjarnir okkar voru Owen, Baros og Cisse (fyrrverandi knattspyrnumaður Evrópu, markakóngur EM og markakóngur frönsku deildarinnar), núna virkilega komnir á það stig að Peter Crouch er okkar aðalframherji? Er Rafa fokking geðveikur?

  16. Innvortis: það að menn séu að tala um hvað kerfið sé varnarsinnað hlýtur mestmegnis að eiga við um notkun Liverpool á því. Það getur vel verið að þetta sé alveg meiriháttar sóknarkerfi, en leikmannahópur Liverpool í augnablikinu býður ekki uppá mikið hvað það varðar, sbr skort á kantmönnum. Annars held ég að flestir (þ.á.m. við tveir) séu nú sammála um þetta mál, bara spurning hvað menn vilja kalla kerfið og ég held það skipti ekki höfuðmáli.

    Krizzi: Þó Benitez fíli þetta kerfi umfram önnur þá hljóta stuðningsmenn liðsins að gera þá kröfu að hann geti breytt til ef svo ber undir. T.d. þegar ljóst er að mannskapurinn sem er fyrir hendi býður ekki uppá að þetta kerfi sé notað. Ég ætla rétt að vona að hann þrjóskist ekki við fram að áramótum, bara af því þetta virkaði hjá Valencia. Mér persónulega finndist eðlilegt að hann notaði frekar kerfi sem hentar mannskapnum betur, eins og t.d. 4-4-2, heldur en að berja hausnum við steininn af gömlum vana.

  17. Ég er sammála Kristjáni Atla um hvað kanntspilið er lélegt og svo finnst mér Hamann eiginlega að verða of hægur til þess að vera að spila inn á miðri miðjunni. Ég veit vel að hann þrífur vel upp eftir Alonso og Gerrard en mín skoðun er sú að Rafa ætti að spila 4-4-2 að minnsta kosti þegar okkur vantar Sissoko, sem lítur út fyrir að vera orðinn fastamaður á miðjunni enda búinn að vera einn af okkar ef ekki besti leikmaður Liverpool á leiktíðinni.
    Mér sýnist að Rafa verði að taka upp veskið og kaupa hægri kantmann í Janúar, einhvern sem getur tekið menn á og hlaupið upp að endamörkum og gefa fyrir, þá fyrst fer Crouch að raða inn mörkum eða Morientes að sýna okkur af hverju hann var keyptur.

    En það má reyndar ekki taka það af okkur að við erum að taka 1 stig í leikjum sem við töpuðum mjög sannfærandi í fyrra. Svo þurfum við líka að fara að nýta færin okkar sérstaklega í leikjunum við Middlesborough og svo áttum við allavega að skora eitt á móti Tottenham.

  18. C og C

    Ég held við séum allir sammála um cisse og crouch ná vel saman og vonum flestir að þeir fái að spila saman frammi í næstu leikjum. Strax og cisse kemur inn af bekknum kemur alltaf meiri ógn og varnamenn andstæinganna vera órólegri þegar hann fer af stað. Það er eiginlega hægt að segja að loksins þegar cisse kemur inn fara kostir crouch að koma í ljós.

    Þetta kerfi (4-5-1) er bara ekki málið fyrir okkar menn. Þetta er topp kerfi fyrir lið með alvöru kantara, sem að við erum alls ekki með.

    Rafa veit þetta og mun spila með C og C frammi í næsta leik.

  19. 4-5-1, 4-4-2, 3-5-2… það skiptir engu andskotans máli hvað leikkerfið heitir. Þetta eru 11 menn á móti 11 mönnum og duglegra liðið sigrar…

  20. Einmitt!! Við púllarar getum nú huggað okkur við það að það er léttir leikir framundan :confused:

    Ég hreinlega skil ekki af hverju Pongolle er á kantinum, drengurinn drífur ekki inn í boxið og kann ekki að krossa! hreinlega skil þetta ekki.

  21. GK.

    Þetta hlýtur að vera e-ð það fáranlegasta sem ég hef lesið.

    Duglegra liðið vinnur?

    Gæti ég þá verið með 11 maraþon hlaupara og látið þá hlaupa stanslaust í 90 mín og unnið alltaf?

    Þetta er ekki svo einfalt. Það er fáránlegt að spila með “target man” sem fær enga hjálp. Af hverju að hafa target mann þegar hann er einn og yfirgefinn??? Ég skil þetta ekki. Það hlýtur að segja sig sjálft að ef Crouch hefur snöggan mann með sér ætti hann mun auðveldara með að búa til færi.

    Og þá er ég að meina að hafa Cisse FRAMMI!!!!!!!!!!!!!

  22. Svavar, ég veit ekki hvort þetta er kaldhæðni hjá þér eða “just playing silly” en þú gerir þér grein fyrir því að við eigum 2 leiki gegn Englandsmeisturum Chelsea framundan, ekki mjög léttir að mínu mati :confused:

  23. Hvað í helv… þýðir þetta?

    “Stuttu síðar braust Stevie Gerrard fram miðjuna og átti gott skot með vinstri að markinu. Maik Taylor, markvörður Birmingham átti aldrei séns í skotið en sem betur fer fyrir hann hafnaði boltinn í stönginni og þaðan út af hættusvæðinu.”

    ítrekun: “sem betur fer fyrir hann hafnaði boltinn í stönginni”

    Sem betur fer??????????????????????

  24. Jákvætt: Við skoruðum mörk (fleirtala).

    Neikvætt: Töpuðum aftur 2 stigum. Fengum á okkur mörk. Erum ekki að virka vel í sókninni, því sóknarmaður okkar skorar eftir víti.

    Call me crazy og gagnrýnið mig, en ég hefði gert meira til að fá Owen. Með Baros í attitude-adjustment hefðum við líka getað haldið Cisse-Baros-Owen-Crouch markahátíð… en nei nei… kantmennirnir eru að klikka. Margauglýst í sumar, altalað, ekki gekk það eftir. Betra að kaupa engan heldur en einhvern yfirverðlagðan… við skulum endilega tala um okkar viðkvæma stolt, þ.e. að við kaupum bara réttu menniná á rétta verðinu… hvað gerist í janúar? Sama og í sumar eða borgum við of mikið fyrir einhvern? … Efast um það, Rafa veit sko best hvaða verð skal setja á hvern og einn.

    Svo er spurning … ef einhver af þeim sem um var talað í sumar kemur í janúar … af hverju gat það ekki gerst í sumar? Hefur verðmiðinn lækkað? Viljum við mann sem ekki nýtist í meistaradeildinni?

    Liverpool er gott lið, en skv. stöðu liða í deildinni þá eru bara þó nokkur lið betri. Charlton í baráttu við Chelsea?

    Og by the way … mér finnst alveg hárrétt að vera fúll eftir þennan leik. Þoli ekki þennan samanburð við síðasta keppnistímabil, þ.e. að við höfum unnið eitt stig á Birmingham miðað við í fyrra. Aarrrgh!

    Eða hvað…? Á maður bara að vera jolly Pollýanna? Gott – við skoruðum mörk. Gott – töpuðum ekki. Gott – við erum taplausir. Frábært. Woo hoo!

  25. Mér finnst nú að sumir séu að fara á taugum, allavega samkvæmt þessum kommentum sem hérna eru. Við skulum bara strax sætta okkur við það að við munum ekki vinna ensku dolluna ef Chel$ki vinnur næstum alla leiki, við höfum heldur ekki olíulindir Rússlands til að bakka okkur upp.

    Ég ber mikils traust til hans Rafa og hef einhver veit hvað hann er að gera þá er það hann. Hann veit örugglega hvar liðið er veikt fyrir og gerir sitt besta til að laga þá.

    Annars muna það að við styðjum okkar menn sama hvað gerist, mér finnst ömurlegt að lesa þegar Liverpool menn geta ekki fundið neitt nema neikvæða hluti ef það gengur ekki alveg skv planinu. Við vorum óheppnir í síðasta leik, sérstaklega með þetta sjálfsmark. Ég er hins vegar sannfærður um að þetta fari að ganga betur, ef vörnin er í lagi þá koma mörkin og ég er viss um að við endum hærra á töflunni en Arsenal og MU.

  26. Mjög góður punktur hjá Dodda.

    Svo er spurning ? ef einhver af þeim sem um var talað í sumar kemur í janúar ? af hverju gat það ekki gerst í sumar? Hefur verðmiðinn lækkað? Viljum við mann sem ekki nýtist í meistaradeildinni?

    Nákvæmnlega!!

  27. Innvortis: Það þarf enga fótboltakennslu í því að fatta hvað 4-5-1 kerfi gerir. Við sjáum það sem þykjust vita hvað það kerfi býður uppá getur boðið uppá en gerir akkúat ekki neitt hjá okkur í deildinni! Zenden og Pongolle eru algjörlega ekki að styja rassgat við sóknarmanninn Crouch þarna frammi og í staðinn lítur Crouch út eins og skotskífa þar sem leikmenn LFC fá “Bullseye” fyrir að hitta á ennið á honum. Við erum orðið verulega óspennandi lið eftir að Crouch kom og þrátt fyrir að Crouch getur spilað boltanum að þá er þetta 4-5-1 kerfi orðið verulega boring eins og það er spilað hjá Rafa. Ég held með LFC og ég gagnrýni þá þegar þess þarf en þegar þeir standa sig vel þá pointar maður út þá punkta sem maður er ánægður með og sættir sig við það. Það er bara ekki að gerast í deildinni. Því miður.

  28. það minnist enginn á það að annað mark liverpool hefði aldrei átt að standa..aukaspyrnan sem gerrard nældi í og úr varð hornspyrna var aldrei aukaspyrna og upp úr horninu kom vítaspyrna og birmingham missti út mann sem hefði aldrei gerst hefði dómarinn ekki bjargað okkur..já svona var nú það..nei við poolarar meigum verða ánægðir að komast inn á topp 10 með þessa hörmunga leikmenn sem rafa er búinn að verzla hver B-C leikmaðurinn er keyptur á eftir hvor öðrum..LIVERPOOL Á BARA 2 A LEIKMENN..GERRARD OG CARRAGHER

Birmingham á morgun!

Chelsea-vikan hefst… (uppfært)