Crouch og Baros

crouchinho.jpgÞannig að í dag klárar Peter Crouch læknisskoðun og skrifar undir fjögurra ára samning við Liverpool FC. Það rifjast upp fyrir manni sú spenna sem ríkti þegar við keyptum framherja á borð við Heskey, Litmanen, Diouf, Anelka (lán), Cissé, Morientes … og svo ber maður það saman við þær móttökur sem Crouch virðist vera að fá, og það verður að segjast að viðbrögðin hafa verið nokkuð forvitnileg.

Liverpool-stuðningsmenn eru nú einu sinni þannig að þeim hættir til að halda að í hvert sinn sem framherji er keyptur þá sé um einhvern brjálaðan markaskorara að ræða, mann sem mun ná 40+ mörkum á hverju tímabili fyrir okkur. Emile Heskey stóð t.d. undir væntingum á fyrsta tímabili (22 mörk og hrúga af stoðsendingum fyrir Owen) en hrapaði af stjörnuhimninum eftir það. Michael Owen mátti aldrei lenda í 6-7 leikja markaþurrð, þá var hann afskrifaður af sumum sem ‘búinn að missaða’ leikmaður. Jafnvel maður eins og Robbie Fowler fékk allt of mikið af gagnrýni þegar hann lék fyrir okkur – það var ekki fyrr en hann var farinn frá Liverpool að menn gerðu sér í raun og veru grein fyrir því hvað við vorum heppin að hafa hann, að eiga mann sem skoraði 30 mörk á tímabili í hálfan áratug fyrir LFC.

Baros átti að sjálfsögðu að vera þessi næsti Fowler/Rush/Aldridge-gaur, en eftir slappan seinni hluta á síðasta tímabili virðist sem framtíð hans hjá Liverpool sé í hættu. Kaupin á Crouchy virðast allavega hafa nánast staðfest það, ef marka má fréttirnar í dag. Rafa vildi þó ekki taka af allan vafa, og ýjaði að því að Baros gæti kannski haldið áfram hjá Liverpool:

>”At the moment we are working with all our strikers and Baros does have a future here. I am not preparing for anyone to go, I am working with my players.

>But if we receive any offers maybe some of them can go. It depends on the offers and it depends on the player also.”

baros_kneeling.jpgMiðað við þessi orð Rafa og þá staðreynd að Baros er ekki notaður í Evrópu, þá held ég að Rafa sé meira að halda möguleikanum á Baros-sölu opnum. Þannig að ef við fáum gott tilboð í hann á næstu vikum má hann fara, en ef ekkert tilboð berst og/eða Baros vill ekki sjálfur fara þá verður hann áfram næsta vetur. Þetta þýðir sennilega að Baros fær ekki að spila í Evrópukeppni fyrir okkur fyrr en í fyrsta lagi í riðlakeppninni í september, ef hann verður ekki farinn þá.

En aðalmálið er það að þótt fréttir frá Bretlandi tali um að augljóst sé að framtíð Baros hjá Liverpool sé að engu orðin, þá er ég ekki jafn sannfærður. Þetta veltur á því hvort við fáum gott tilboð í hann og hvort hann vill fara til viðkomandi liðs, en að öðru leyti held ég að Rafa hafi ekkert á móti því að hafa hann áfram í a.m.k. eitt ár í viðbót.

Mér liði strax betur ef Baros yrði áfram. Morientes, Cissé, Crouch, Baros, Le Tallec, Pongolle og Mellor hljómar strax betur en sami hópur án Milan Baros. En það er bara ég 😉

Allavega, fyrir þá sem vilja kíkja örlítið nánar á nýja framherjann okkar, slánann Peter Crouch, get ég bent á myndband með honum (smellið á hlekkinn til að ná í .zip-skrána) sem sýnir ágætlega hvaða kosti hann hefur til brunns að bera. Svona maður, eins og Rafa segir oft, býður upp á möguleika.

Svo er bara að horfa á leikinn gegn Olympiakos á laugardaginn, ég býst við að Crouchy spili fyrsta leik sinn í rauðri treyju þá. Þetta verður, vægast sagt, forvitnilegt … 🙂

9 Comments

  1. Já, myndbandið virkar ekki. Yousendit myndbönd eru bara uppi í ákveðinn tíma.

    En það er spurning með samninginn hans Baros. Núna á hann að mig minnir 2 ár eftir, svo það er spurning hvort hann fái að vera áfram án þess að skrifa undir viðbót við samninginn.

  2. Mér líst fínt á þessi Crouch kaup ef mið er tekið af statistics um hann. Hann leggur álíka mikið upp og hann hefur verið að skora þannig að það verður gaman að sjá hann verða fyrir sendingunum frá Zenden í náinni framtíð. Í leiknum í gær sáum við allavega 4-5 sendingar frá Zenden af vinstri kantinum inní boxið og þar var enginn til að taka á móti þeim. Nú er sá maður kominn!

    Þetta með Baros er orðin klisja. Ef hann verður áfram hjá okkur á þessu tímabili þá verður hann að átta sig á því að þetta er hópíþrótt en ekki einstaklingssport og að “gafferinn” ræður. Annars tel ég (eins og þið) að hópurinn MEÐ Baros sé sterkari en ÁN hans. Ef svo (ó)líklega vildi til að Baros færi þá tel ég að Rafa reyni að fá 1-2 def-C og/eða 1 striker í viðbót. Það ræðst væntanlega fljótlega.
    En eins og staðan er í dag þurfum við Baros.

  3. við þurfum á Milan Baros að halda ! og svo finnst mér Liverpool liðið ekki vera Liverpool lið án Milan Baros!=/

  4. Hérna tvennt sem tengist umræðunni ekki alveg… en mig vantar svar.

    Á hvaða stöð verður leikurinn gegn Olympiakos sýndur?

    Á hvaða stöð verður leikurinn gegn Kaunas sýndur?

T.N.S. – Liverpool 0 – 3

Crouch búinn að skrifa undir (STAÐFEST)