Könnun

Þar sem það er ekkert að gerast í Liverpool heimum og ALLT, ALLT of langt í næsta leik, þá verðum við hér á þessari síðu að finna okkur eitthvað til dundurs.

Því ætlum við að kynna nýjan dagskrárlið á þessari síðu: Kannanir. Við hvetjum alla til að taka þátt í fyrstu könnuninni.

Liverpool Blogg
Hvað er besta knattspyrnulið í heimi?
Liverpool
Ég veit ekkert um fótbolta!

Það verður spennandi að sjá niðurstöðurnar!

10 Comments

  1. Jamm, svona könnun er betri en ekkert í þessari lööööööngu bið. Það er svo langt á milli leikja núna að ég var alvarlega að spá í að skrifa upphitun fyrir ímyndaðan helgarleik í dag, bara til að hafa eitthvað fyrir stafni…

  2. Mér finnst nú allt í lagi að vera með svona kannanir, en af hverju að hafa þær svona flóknar????? :laugh: :laugh:

  3. Nei ég meinti meira eins og að skrifa upphitun fyrir leik Liverpool og Úrvalsliðs Michael Jordans. :tongue:

    Flóknar? Mér finnst hún einmitt vera svo ofboðslega vel fram sett, hehe … og það er svo mikill sannleikur í þessari könnun. 🙂

  4. Vel hægt að skrifa aðeins um að skv. frétt á mbl.is þá sé Dortmund á barmi gjaldþrots… við ættum að geta notað það og keypt meðal annars Tomas Rosicky og Dédé frá þeim?

  5. Rosicky, Dedé, Metzelder. Leikmenn sem væri frábært að fá til Liverpool.

  6. Sammy Kufor er samningslaus í sumar, hægt að skrifa um hvort hann sé góður fyrir okkur eða ekki.

  7. sömuleiðis van Bommel, hvernig væri að skrifa um áhugaverðustu leikmennina sem fara á bosman í sumar og sömuleiðis um hvort þeir séu nógu góðir eða ekki fyrir okkur

Benitez búinn að fá nóg af aulaskapnum

Allt í blóma hjá Stevie G