Latest stories

  • Uppgjör liða – Liverpool FC kvenna

    Þá styttist í lok alls tímabilsins í enska boltanum, karlaliðið er ekki formlega búið að ljúka leikjum þó að það sé klárlega þannig að það hefur slaknað á fókusnum hjá köppunum, en fram að lokaleiknum ætla ég aðeins að skoða niðurstöður annarra liða undir merkjum LFC sem hafa nú lokið leik.

    Í dag ætla ég að skoða niðurstöðu kvennaliðs félagsins og í vikunni fer ég yfir niðurstöðuna hjá U18 og U21s árs liðunum.

    Nýtt upphaf

    Áður en við förum yfir leiktímabilið er ágætt að rifja upp að Liverpool ákvað að færa heimavöll varanlegan heimavöll kvennaliðsins, fara frá Prenton Park í Tranmere yfir á the Totally Wicked Stadium í St. Helens sem er bæjarfélag um miðja vegu milli Liverpool og Manchester en hluti Merseyside svæðisins. Með þessu vildi félagið bæta upplifun áhorfenda, völlurinn er aðalleikvangur eins þekktasta rugbyfélags Englands (St. Helens RFC) og var tekinn í notkun árið 2012. Hann tekur um 18000 manns í sæti og álagið á grasinu töluvert minna en var á Prenton Park.

    Miðað við lýsingar þeirra sem þekkja til beggja valla var þetta góð ákvörðun, völlurinn meiri heimavöllur og umgjörðin betri. Að venju léku þær svo stærstu leikina á Anfield, þetta árið voru það leikir við City og Everton sem töpuðust en einn af stóru viðburðum vetrarins var fyrsti sigur liðsins á Anfield í deildarkeppni þegar Manchester United voru lagðar að velli 3-1. Fyrirkomulagið verður áfram með þessum hætti næstu 10 árin og leiðir vonandi allt gott af sér.

    Leikmannaglugginn og erfitt upphaf

    Olivia Smith – dýrasti leikmaður í sögu kvennaliðs Liverpool.
    Liverpool FC women urðu meistarar tvö ár í röð, árin 2013 og 2014 þegar Katrín okkar Ómarsdóttir var meðal þeirra sem fengu medalíu afhenta. Stjórinn þá var Matt Beard og hann var endurráðinn til félagsins árið 2021 þegar þær voru í næstefstu deild. Hann leiddi liðið strax upp í efstu deild og lagði því af stað í þriðja tímabilið í efstu deild síðasta haust.

    Tímabilið 2023-2024 gaf fín fyrirheit, konurnar lentu í 4.sæti í deildinni (sem telur 12 lið) og lagt var upp með að næsta skref yrði að taka af alvöru þátt í baráttunni um þrjú efstu sætin sem gefa sæti í Evrópukeppni og að ná langt í bikarkeppnunum. Með það að markmiði voru auðvitað sóttir leikmenn sem að styrkja áttu hópinn. Stóra fréttin voru dýrustu kaup í sögu kvennaliðsins þegar kanadíski framherjinn Olivia Smith var keypt á 210 þúsund pund frá Sporting Lisbon, önnur sóknartýpa var sótt til Svíþjóðar þegar Cornelia Kapocs, varnarkonan Gemma Evans kom frá Man United og varnartengiliðurinn Samantha Kerr kom að láni frá Bayern Munchen.

    Upphaf tímabilsins voru vonbrigði, tvö jafntefli gegn minni spámönnum gáfu vísbendingu um framhaldið. Sigur gegn Spurs úti lyfti andanum en í kjölfarið komu 4 deildarstig í 8 leikjum og liðið í raun rétt ofan við neðstu liðin og fallbaráttuna. Bikarkeppnirnar gengu þó betur en eftir slæm töp fyrir Leicester í lok janúar og Man City um miðjan febrúar tók stjórnin ákvörðun um að leysa stjórann Beard frá störfum og í hans stað var ákveðið að ráða aðstoðarkonu hans, Amber Whiteley, til að stjórna liðinu út tímabilið.

    Bikarkeppnir, leikskipulag og lok tímabilsins

    Eins og áður er farið yfir var árangurinn í deildinni töluvert undir væntingum og liðið komst ekki upp úr undanriðlinum í League cup. Jákvæðasta ljósið í tímabilinu var gengið í FA bikarnum. Það hófst með risasigri, 0-5, gegn Dagnýju Brynjars og félögum í West Ham og á leiðinni í undanúrslitin vannst 0-2 sigur á Rugby Borough og síðan án vafa sterkustu úrslit vetursins þegar stúlkurnar lögðu Arsenal 0-1 á útivelli í leik þar sem vel sást hvað gat í raun búið í liðinu. Í undanúrslitum voru mótherjarnir risalið Chelsea (sem vann þrennuna í Englandi þetta árið) og úr varð risaleikur.

    Leikurinn var á heimavelli Chelsea, Kingsmeadow og tóku okkar konur forystu í leiknum þegar Olivia Smith skoraði eftir flotta sendingu Mariu Höbinger. Chelsea jafnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiks en í seinni hálfleik fengu bæði lið færi en það fór svo að í uppbótartíma síðari hálfleiks skoruðu heimakonur aftur sigurmarkið eftir að LFC höfðu staðið af sér töluverða pressu.

    Lok tímabilsins urðu því ekki bikarúrslit á Wembley heldur fjórir deildarleikir, þ.á.m. Merseyside derby á Anfield þar sem enn einn ganginn gestirnir fóru með sigurinn af hólmi. Það er augljóslega þannig að Everton ætti eiginlega að spila heimaleiki kvennaliðsins þar frekar en á Goodison (sem er nú orðinn opinber heimavöllur þeirra kvennaliðs) þar sem þær hafa unnið þennan slag ansi mörg ár í röð, ósiður sem vert er að breyta. Fjögur stig úr þessum leikjum þýddu að niðurstaðan var fall um þrjú sæti milli ára, 7.sæti í deildinni, klárlega vonbrigði.

    Eftir stjóraskiptin náðist ákveðinn árangur varnarlega, liðið spilaði 3-5-2 leikkerfi allt tímabilið en eftir að Whiteley tók við var liðið fært aðeins aftar á völlinn og meiri áhersla lögð á öflugar skyndisóknir. Lykilleikmenn liðsins voru fyrrnefndar Smith í framlínunni og Höbinger á miðjunni auk vinstri vængkonunnar Taylor Hinds, varnardrottningarinnar Gemmu Bonner og norska framherjans Sophie Haug. Óstöðugleikinn var ekkert síður þeirra en annarra þó og í raun voru það tveir leikir, sigurinn á United sem tryggði fyrsta sigurinn á Anfield og baráttusigurinn í FA bikarnum við Arsenal það eina sem stóð uppúr.

    Næstu skref

    Kvennaboltinn í Englandi er enn á öðrum stað en karlarnir þegar kemur að samningslengd og leikmannaskiptum. Í lok þess var tilkynnt að félagsfyrirliðinn (club captain) Niamh Fahey myndi leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril og að þær Jasmine Matthews, Yana Daniels og Teagan Micah fengju ekki nýja samninga. Whiteley var tímabundið ráðin og enn hefur ekkert verið gefið út um það hvort hún verði áfram. Í síðustu leikskránni skrifar hún þakkir fyrir stuðning við liðið og sig persónulega um leið og hún notar orðið “við” um framhaldið, talar um áframhaldandi uppbyggingu félagsins, nú sé hvíld að hefjast og á næstu leiktíð komi liðið sterkar til leiks.

    Þeir lykilmenn sem ég hef minnst á hér að ofan er reiknað með að haldi velli og verði áfram með liðinu en þegar horft hefur verið til styrkinga þá hefur verið talað um að fjárfesta þurfi í markverði og öflugum varnartýpum í miðju og sókn auk þess sem að liðinu vanti alvöru níu (höfum nú heyrt það á fleiri stöðum) ef liðið eigi að blanda sér af alvöru í bardagann um titla við Manchesterliðin tvö, Chelsea og Arsenal.

    Einkunnagjöf fyrir tímabilið

    C+

    Deildin langt frá væntingum en frammistaðan í bikarnum kemur í veg fyrir falleinkunn. Sannarlega bætinga krafist, líklega með nýjum stjóra.

  • Brighton 3 – 2 Liverpool

    Mörkin

    0-1 Elliott (9. mín)
    1-1 Ayari (32. mín)
    1-2 Szoboszlai (45+1 mín)
    2-2 Mitoma (69. mín)
    3-2 Hinselwood (85. mín)

    Hvað réði úrslitum?

    Eigum við ekki að segja að það hafi verið sú staðreynd að annað liðið var að djamma í Dubai í síðustu viku, en hitt liðið hafði raunverulega að einhverju að keppa? Þá er óvíst að leikurinn hefði farið svona ef t.d. MacAllister eða Virgil hefðu byrjað. Gefum Elliott þó það að hann var síst lakari en MacAllister er allajafna.

    Hvað þýða úrslitin?

    Þessi úrslit þýða að Liverpool eru deildarmeistarar 2024-2025, rétt eins og í síðustu viku og þarsíðustu viku.

    Hverjir stóðu sig vel?

    Fyrstan skulum við hér nefna Harvey nokkurn Elliott. Slot var að spila honum aðeins aftar en oftast, þ.e. hann var meira í tvöföldu sexunni með Grav en þó með “licence to roam” eins og kom berlega í ljós í fyrsta markinu þegar frábær samleikur Szobo, Salah og Bradley endaði með marki frá Elliott. Elliott var svo aftur á ferðinni í næsta marki í uppbótartíma fyrri hálfleiksins, það mark á Szoboszlai svosem skuldlaust að mestu (og var að sama skapi mjög vinnusamur á miðjunni í kvöld), en hluti hróssins má fara til æfingasvæðisins þar sem þetta mark var örugglega búið til. Gaman að sjá menn koma með rútínur, við höfum séð allt of lítið af slíku síðan markið gegn City í haust.

    Þá var Quansah ágætur í sínu hlutverki, líklega fer honum betur að vera vinstra megin. Konate var ef eitthvað er meira shaky heldur en Quansah, og greinilegt að það er hellings vinna í gangi með að pumpa í sjálfstraustið hjá stráknum.

    Það voru fleiri leikmenn sem mætti alveg nefna. Bradley var góður, Grav var aftur líkur sjálfum sér. Gakpo átti spretti.

    Hvað mátti betur fara?

    Ekkert, okkar menn eru meistarar þetta tímabilið.

    En jújú, Salah hefði nú alveg mátt setja hann í dauðafærinu sínu. Tsimikas hefði líka mátt vera ögn stabílli varnarlega séð, og líkurnar á því að klúbburinn kaupi Kerkez minnkuðu ekkert eftir þennan leik. Þá var Chiesa ekkert að auka líkurnar á því að hans krafta verði óskað á næsta tímabili.

    Næsta verkefni

    Síðasti leikur tímabilsins, gegn Crystal Palace á heimavelli. Annar af aðalviðburðum tímabilsins, deilarmeistarabikarinn fer á loft, mikil hátíð verður í Liverpoolborg og svo skrúðganga daginn eftir. Þið sem eruð að fara, njótið í botn!

  • Liðið gegn Brighton – leikþráður

    Arne Slot stillir liðinu svona upp í næstsíðasta leik tímabilsins:

    Hannes var því með 6 rétta í upphituninni, enda frekar erfitt að spá fyrir um þessa uppstillingu.

    Brighton stillir þessu svona upp:

    Verbruggen

    Wieffer – Hecke – Webster – Estupinan

    Baleba – Ayari

    Minteh – Gruda – Adingra

    Wellbeck

    Blandað lið, erfiður útivöllur, öflugir mótherjar, titillinn í höfn, hvað getur klikkað?

    Mín spá er 2-2.

  • Frimpong á leið í læknisskoðun og Kerkez næstur?

    Liverpool virðist ætla að byrja leikmannagluggann með látum í sumar og er félagið sterklega orðað við tvo eldfljóta bakverði. Frimpong hægri bakvörður Leverkusen er sagður á leið í læknisskoðun í dag ef hún er þá ekki nú þegar búin, tímabilið er búið í Þýskalandi og Liverpool er að virkja klásúlu í samningi hans. Það er því um að gera að klára þetta fyrir sumarfrí og fá hann strax frá fyrsta degi undirbúningstimabilsins. Þetta er einn fljótasti leikmaður þýska boltans og mikill karakter utan vallar.

    Fabrizio Romano fígúran heldur því svo fram í dag að Liverpool sé núna komið í beint samband við Bournemooth og Milos Kerkez um að fá hann líka. Það er vinstri bakvörður sem einnig er mjög fljótur og góður bæði varnarlega og sóknarlega. Richard Hughes keypti hann til Bournemouth í fyrra og hann er auðvitað liðsfélagi Szoboszlai í Ungverska landsliðinu.

    Verði þetta að veruleika er það verulega sannfærandi og spennandi byrjun á sumarglugganum. Næst væri þá bara að vona að Florian Wirtz verði líka á innkaupalistanum…

  • Brighton úti í næst síðasta leik tímabilsins

    Næst síðasti leikur tímabilsins er á morgun þegar okkar menn ferðast á suðurstöndina til Brighton og mæta þar heimamönnum. Það verður áhugavert að sjá ástandið á okkar mönnum á morgun þar sem þjálfarinn hefur verið á Ibiza og leikmennirnir verið að skemmta sér í Dubai. Þetta eru þó forréttindin sem menn vinna sér fyrir með því að klára deildina snemma.

    Það verður því áhugavert að sjá liðsvalið hjá Slot á morgun, leikmennirnir snéru tilbaka til æfinga á föstudag þannig spurningin er bara ætlar hann að spila á sínu sterkasta liði eða fá rulluspilarar hlutverk á morgun.

    Vissulega hafa Brigton menn ekki að miklu að keppa en þeir eiga enn mjög veika von á að komast í Sambandsdeildina en þá þurfa Chelsea að enda í sjöunda sæti og vinna Sambandsdeildina og Brighton að fara upp fyrir Brentford í áttunda sætið. Ef það gerist verða tíu ensk lið í evrópukeppnum á næsta ári. Það þýðir að hálf deildin spili evrópuleiki.

    Ég held að hann muni fara hálfa leið líkt og gegn Chelsea og geri nokkrar breytingar. Vissulega dró ég þær nánast upp úr hatti en ætla skjóta á þetta lið á morgun.

    Annars er það helst í fréttum að Frimpong virðist vera á leið í læknisskoðun á morgun þannig við sjáum líklega fljótlega staðfestingu á hans félagskiptum fyrir 30. milljónir punda.

    Spá

    Held að Brighton mæti hungraðari í þennan leik og komist snemma yfir en Salah jafnar í 1-1 jafntefli.

  • Gullkastið – Slúðrið komið á fullt en tímabilið þarf að klára

    Seint mætti Gullkastið þessa vikuna, sem er til marks um ákveðinn slaka í hugum okkar, enda Englandsmeistarar. Við fórum yfir töluvert af safaríku slúðri sem fjallað hefur um okkar menn undanfarið, veltum fyrir okkur fílupúkanum Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Skoðuðum stöðuna í Meistaradeildarbaráttunni, völdum framherja í Ögurverksliðið og skoðuðum síðasta útileik vetrarins í EPL, viljum klára tímabilið með reisn auðvitað.

    Stjórnandi: Maggi
    Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 521

  • Slúðrið: gæti Wirtz komið?

    Það hafa verið að ganga sögur um Florian Wirtz upp á síðkastið, lang líklegast að hann sé að fara til Bayern, en talað var um að City hefðu verið að bera víurnar í hann og að hann hefði heimsótt England tengt því. En nýjustu kjaftasögurnar eru að sú heimsókn hafi verið vegna áhuga Liverpool á kappanum. Sá áhugi á víst að vera þess eðlis að Liverpool sé til í að borga uppsett verð fyrir kappann, hann er ekki ódýr og væri eitthvað vel fyrir norðan 100 milljónirnar.

    Ef af yrði, þá er spurning hvernig Slot sæi hann fyrir sér í leikkerfinu, því ekki væru menn að kaupa leikmann af þessu kaliberi til að fara á bekkinn. Væri hann að spila meira eins og fölsk nía, eða hann og Szobo í tvöfaldri 10?

    Þetta er allt á slúðurstiginu eins og reyndar öll önnur möguleg vistaskipti leikmanna, og hætt við að ekkert verði staðfest fyrr en glugginn opnar. En við leyfum okkur að dreyma þangað til, og fantasera um uppstillingar og fleira.

    Annars er auðvitað ennþá hellings slúður tengt Frimpong, félaga Wirtz hjá Bayer, eins er Geertruida hjá RB Leipzig eitthvað orðaður við okkur, sem og þeir Bournemouth félagar Huijsen og Kerkez. Allt slúður og ekkert staðfest, bara svo það sé nú marg sagt.

    Uppfært: Eitthvað virðist vera til í slúðrinu um Frimpong:

    Ef þið þekkið hárgreiðslumanninn sem klippir blaðberann í húsinu þar sem umboðsmaður Wirtz býr, og hafið heyrt einhverjar sögur frá honum, þá endilega droppið því í athugasemdir hér fyrir neðan. Nú eða hvaða aðrar slúðursögur sem þið hafið heyrt varðandi mögulega nýja leikmenn. Eitthvað verðum við jú að tala um!

  • Liverpool 2-2 Arsenal

    Mörkin

    1-0 Cody Gakpo(20.mín)

    2-0 Luis Diaz (21.mín)

    2-1 Martinelli (47.mín)

    2-2 Merino (70.min)

    Hvað réði úrslitum?

    Í rauninni allt og ekkert, þetta var fullkomlega sanngjarnt jafntefli þegar allt er talið. Allar tölur frekar jafnar nema að Arsenal var töluvert meira með boltann. Það má lengi deila um markið í lokin, gild rök í báðar áttir með brotið á Konate.

    Hvað þýða úrslitin?

    Breyta engu nema kannski að Arsenal er að taka stutt skref í átt að öðru sætinu. Mikilvægari leikur fyrir þá er samt gegn Newcastle á næstu helgi.

    Hverjir stóðu sig vel?

    Anfield Road. Það var sungið og trallað allan leikinn, nokkuð ljóst að það var gaman á vellinum í dag. Trent fékk þær ansi blendnu móttökur sem við var að búast. Leikmenn stóðu sig flestir ágætlega, enginn sem stóð sérstaklega upp úr eða niður úr.

    Hvað mátti betur fara?

    Það var óþarfi að hleypa Arsenal inn í leikinn í seinni hálfleik. Það er sama hvað hver segir en það er erfitt að gíra sig í gang þegar titillinn er kominn í hús. Ég átti samt von á því að Anfield næði að kveikja í leikmönnum, það vantaði svo sem ekki mikið upp á að sigurinn kæmi.

    Næsta verkefni

    Næstsíðasti leikur tímabilsins, gegn Brighton á útivelli. Fyrirpartýið heldur áfram, aðalviðburðirnir verða 25. og 26.maí.

  • Liðið gegn Arsenal – leikþráður

    Arne Slot velur 10 af þeim 11 sem Ingimar spáði fyrir um. Aðeins Curtis Jones fyrir MacAllister er öðruvísi en Ingimar taldi. Ekkert Chelsearugl takk

    Alisson

    Bradley – Konate – Van Dijk – Robertson

    Jones – Gravenberch – Szoboszlai

    Salah – Díaz – Gakpo

    Koma svo!! Sýnum þeim af hverju við erum meistarar!!!

     

  • Arsenal kemur í heimsókn (Upphitun)

    Þegar tímabilið hófst spáðu flestir því að gestir okkar í dag myndu vera titilbaráttu fram á síðasta leik og sumir voru svo frakkir að spá þeim fyrsta titlinum í tuttugu ár. Þegar ljóst varð, í sirka nóvember, að Liverpool yrðu eitt að liðunum sem myndi berjast um þann stóra, fóru margi að horfa á þennan leiuk sem einhversskonar úrslitaleik. Um janúar-febrúar fóru margir púllarar að láta sig dreyma um að klára dæmið fyrir leikinn og horfa á lið Arsenal standa heiðursvörð fyrir Liverpool fyrir leikinn. Sá draumur rættist og leikurinn seinna í dag er í raun ekkert nema tækifæri fyrir liðin tvö að senda skilaboð inn í næsta tímabil.

    Andstæðingurinn – Arsenal

    Fyrrum undrabarnið í þjálfun, Mikel Arteta, hefur nú stýrt Arsenal í sex ár. Strax á fyrsta ári vann liðið bikarinn og þeir hafa náð í tvo samfélagsskildi síðan, en stóru titlarnir hafa verið svo nálægir… en samt ekki. Það stefnir í að þeir endi þriðja tímabilið í röð í öðru sæti deildarinnar, í ár leit út eins og þeir ættu raunhæfan séns að sækja evrópubikarinn en þeirri von lauk gegn PSG í seinustu viku. Liðið hans Arteta virðist vera komið á einhversskonar endastöð, þrátt fyrir að hafa eytt fúlgum fjár þá hefur það síst verið betra en í fyrra og virðist vera komin töluverð óánægja í stuðningsmenn og leikmenn.

    Það er erfitt að spá fyrir hvernig þeir mæta til leiks í dag. Arsenal hafa veirð afar brothættir í vetur og líklegt að vonbrigðin frá París sitji í þeim. Síðustu 3-4 ár hefur gamall rígur Liverpool og Arsenal blossað upp jafnt á vellinum sem á samfélagsmiðlum. Þó Arsenal hafi ekki unnið Liverpool á Anfield síðan 2012, þá hefur liðið haft tak á Liverpool síðustu ár. Í síðustu fimm deildarleikjum hefur Arsenal unnið tvo og liðin þrisvar gert jafntefli.

    Okkar menn

    Englandsmeistararnir fengu högg í síðustu viku þegar prinsinn Trent lýsti því yfir að hann væri á leiðinni út í heimi. Slot tæklaði þetta vel og sagði að Bradley fengi restina af tímabilinu til undirbúa sig fyrir það næsta. Ég myndi ekki gera ráð fyrir að sjá Trent aftur spila í rauðri treyju.

    Vonandi mun þetta drama ekki hafa áhrif á stemninguna á Anfield. Þó Slot hafi lýst því yfir að hann ætla að gefa minni spámönnum nóg af mínútum út tímabilið, þá vonar maður að hann stilli upp sterkasta mögulega liði og sendi Arsenal skilaboð á morgun. Það er alveg eins líklegt að þessi tvö lið muni berjast um titilinn á næsta ári og það væri mjög vont fyrir móralinn ef þeir næðu að sigra á morgun, sem og mjög gott fyrir móralinn hjá þeim, sem við viljum ekki. Þess vegna spái ég klassísku byrjunarliði á morgun, fyrir utan Bradley dekkar hægri bakvörðinn. Semsagt svona:

    Þess má geta að fyrirliðinn mun spila sinn þrjúhundruðasta deildarleik.

     

    Spá.

    Leikurinn gegn Chelsea var ekki til útflutnings og ég vil sjá okkar menn minna alla á hvers vegna þeir eru meistarar. Ég spái að þetta endi 2-0 fyrir Liverpool, Salah skorar eitt og Gakpo hitt. Einnig spá i ég því að það hitni duglega í hamsi í þessum leik og það verði eitthvað kjánalegt rautt spjald í leiknum.

     

    Njótið dagsins meistarar!

Load More
Congratulations. You've reached the end of the internet.
Back to Top
Close