Á morgun er komið að síðasta leik af deildar hlutar Meistaradeildarinnar í ár. Það er margt sem getur skeð í þessari risa umferð um alla álfuna, ef markmiðið með breytingunni var að tryggja spennu í lokin hefur það klárlega, þó ég persónulega þoli ekki breytinguna úr riðlakeppninni. Okkar menn geta með stigi tryggt sér efsta sætið en andstæðingurinn er einn af risunum í Hollandi, PSV Eindhoven.
Borgin
Árið 1232 veitti Henriki fyrsti, hertogi Barbant, þorpinu Eindhoven borgaréttindi. Á þessum tíma í Niðurlöndum keyptu byggðarkjarnar réttinn til að vera taldir borgir, sem þýddi að þeir fengu ýmis réttindi og aðallinn missti ákveðin völd frá sér. Slíkar sölur voru oft leið hertoga til að bæta fjárhaginn tímabundið. Bæjarbúar nutu líka ákveðins frelsis sem sveitungar höfðu ekki. Leiddi það til hollenska málsháttarins Stadslucht maakt vrij, það er að segja borgarloftið frelsar þig. Í aldanna rás olli þetta því að aðallinn missti mikið af valdi sínu til bæjanna, ekki var hægt að afturkalla rétt þeirra þegar búið var að selja þá einu sinni.
Þegar réttindin voru veitt samanstóð Eindhoven af um 170 húsum og litlum kastala í nágrenninu. Bærinn fékk rétt til að skipuleggja markaði og bændurnir í kring var skylda að selja vörur sínar á staðnum. Næstu aldir stækkaði samfélagið hægt og bítandi. Saga borgarinnar er í grófum dráttum svipuð flestra borga í Niðurlöndunum, það er að segja heill hellingur af styrjöldum, umsátrum og öðrum viðburðum sem er gaman að lesa um og hefði verið skelfing að upplifa. Eindhoven var lengst af aðeins ein af mýmörgum smáborgum Hollands (eða annarra aðila sem réðu yfir landsvæðinu svo sem Spánar og Frakklands), en það breyttist þegar iðnbyltingin hóf innreið sína.
Undir lok Nápóleonstríðsins tók Holland á sig sú mynd sem við þekkjum í dag, þegar norður og suður hluti landsins (þar sem Eindhoven er) voru sameinuð undir sama konung, en Belgía í vestri var varanlega klofin frá ríkinu. Landið hafði hrifsað til sín nýlendur víða um heim og voru mikilvægastar lönd sem í dag eru Suður-Afríka og Indónesía. Landið hóf að flytja til sín hráefni þaðan og fjárfesta í nútíma innviðum. Hið fræga skipaskurðakerfi landsins var að miklu grafið út á nítjándu öld, í suðri opnuðu nokkrar kolanámur og hafnarborgirnar Amsterdam og Rotterdam stækkuðu og stækkuðu.
Það voru ekki bara stórborgirnar sem stækkuðu á nítjándu öld. Árið 1815 bjuggu um 2700 manns í Eindhoven sjálfri, 105 árum hafði íbúafjöldinn næstum tuttugufaldast. Til að byrja með var iðnaður borgarinnar aðallega tengdur textíl og tóbaki, en árið 1891 þegar maður að nafni Gerard keypti tóma verksmiðju og hóf að framleiða ljósaperur. Eins og oft er skýrði hann nýja fyrirtækið í höfuðið á sjálfum sér, Philips. Fyrirtækið átti eftir að vaxa í eitt þekktasta vörumerki heims og í Hollandi er heimaborgin Eindhoven oft kölluð Lichtstad, Ljósaborgin. Það er þó einhver deila um hvort það sé beintengt Philips, eða hvort borgin hafi fengið viðurnefnið áður vegna stórra eldspýtu verksmiðju sem var í borginni.
Þegar tuttugasta öldin gekk í garð var Eindhoven orðin vaxandi iðnaðarborg, tengd við nágranna borgir jafnt með skipaskurðum og lestum. Í henni var fjöldinn allir af verksmiðjum og margir ungir menn sem þurftu eitthvað að gera þegar þeir voru ekki á vakt. Aðstæður voru fullkomnar fyrir stofnun fótboltaliðs.
Liðið
Faðir hollenskra knattspyrnu hér Pim Mulier, sem kynntist fótbolta í Ramsgate á Englandi. Þegar hann sneri aftur til heimalandsins stofnaði hann knattspyrnufélagið Haarlemsche Football Club, sem að vísu spilaði til að byrja með fótbolta sem líktist fremur rugbýi en knattspyrnu, en nokkru seinna breytti félagið yfir í að spila knattspyrnu með „ensku reglunum“ sem var það sem við myndum kalla fótbolta. Pim átti eftir langan feril sem íþróttafrumkvöðull í landinu, stofnaði meðal annars fyrsta tennisklúbb landsins og skautaði milli 11 borga á einum degi sem varð að sögufrægri keppni. En hans fyrsta verk var áðurnefnt fótboltafélag sem en starfar. Æ, já, eitt smáatriði. Hann stofnaði liðið 14 ára!
Líkt og annars stað breiddist fótboltinn hratt út í Hollandi og árið 1910 stofnaði Philips verksmiðjan félagaði Philips Elftal. Völlur liðsins var á sama stað og heimavöllur PSV, en þetta félag var ekki langlíft. En strax 1913, þann 31. ágúst var Philips Sport Vereniging stofnað. Dagurinn varð fyrir valinu vegna fagnaðar tengdum aldarafmælis ósigurs Napóleons. Þremur árum seinna var nafni liðsins formlega breytt í það sem við þekkjum PSV Eindhoven.
Næstu ár óks hróður félagsins jafnt og þétt og árið 1929 unnu þeir deildina í fyrsta sinn. Þetta var þó ekki hollenska deildin, sem var ekki stofnuð fyrir en á sjötta áratugnum, heldur einskonar héraðsdeild og eftir það útsláttarkeppni á landsvísu. PSV átti eftir að ráða lögum og lofum í héraðsdeildinni framan af og var eitt af liðunum sem 1954 ákváðu að stofna atvinnumannadeildina Eredivisie. PSV er eitt að aðeins fjórum liðum sem hefur aldrei fallið úr deildinni.
Árið 1955 hófst keppnin sem við köllum í dag Meistaradeildin og PSV voru fulltrúar Hollands. Þetta fyrsta ár voru liðin valin af franska fótboltablaðinu L‘Equipe og var ekki von á öðru en að sumt væri umdeilandlegt. PSV voru ekki hollenskir meistarar en Holland Sport (sem voru heldur ekki meistarar) afþökkuðu boðið. Í Skotlandi fengu meistarar Aberdeen ekki boðið heldur Hibernian og Englandsmeistarar Chelsea sögðu í fyrstu já, en enska deildinn setti pressu á þá að taka ekki á sig þessa óþarfa truflun. Þess má geta að í mörgum tilfellum þar sem meistarar viðkomandi landa fengu ekki sætið var það vegna skorts á flóðljósum á völlum þeirra.
Þetta fyrsta ævintýri PSV í Evrópukeppni gekk ekki vel, skíttap fyrir liði Rapid Wien. Framundan var þó gullöld í hollenskum fótbolta. Deildin heima var orðin að atvinnumannadeild og Ajax var á barmi þess að þróa „total football“ kerfið sem tröllreið evrópskum fótbolta. Frá og með 1960 varð deildin það þriggja hesta kapphlaup sem við þekkjum í dag, þar sem Ajax, Feynoord og PSV skiptust á að vinna titilinn, með örfáum undantekningum á sirka tíu ára fresti. Síðast þegar annað lið en þessi þrjú unnu titilinn var árið 2010, þegar Twente með ungan, hálfbrjálaðan úrúgvæja, sem sinn mikilvægasta mann. Engin stig fyrir að giska hver sá bitvargur var.
Frá 1960 til sirka 1990 var Evrópukeppnin töluvert jafnari en í dag og náði Eindhoven tvisvar að næla sér í Evrópugull. Fyrst var það í Evrópubikarnum, eins og hann hét þá, árið 1978 og svo aftur 1988 þegar liðið lagði Benfica í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Á tíunda áratugnum hóf Hollenska deildin að dala í samhengi við stóru deildirnar og þróaðist út í að vera deild þar sem ungir leikmenn frá öðrum álfum tóku sín fyrstu skref og Hollendingar hættu að geta haldið í sínar stærstu stjörnur. Þróunin var sama hjá Eindhoven og öðrum liðum hollenskum liðum, áherslan þróaðist yfir í að grípa unga og efnilega menn, þróa þá í stjörnur sem gátu farið til stærri liða. Fyrsta og frægasta dæmið hjá Eindhoven er Ruud Van Nistelroy, sem var keyptur fyrir met fé innanlands í Hollindi, 6,3 milljónir evra árið 1998 og eftir aðeins þrjú ár seldur á þrefalt það yfir til Englands. Sú viðskipti, bæði kaupin og salan, var hluti af ástæðunni fyrir að PSV náði að vinna deildina heima á hverju einasta ári frá 2000 til 2008. En listinn yfir frábæra leikmenn sem hafa byrjað eða stoppað við hjá PSV er ótrúlegur: Arjen Robben, brasilíski Ronaldo, Nistelroy, Götze, Wijnaldum, Depay, Perisic, Eiður Smári, Albert Guðmundsson svo fáeinir séu nefndir.
Andstæðingurinn í dag.
PSV eru ríkjandi Hollandsmeistarar og sitja eins og er í efsta sæti deildarinnar. Í Meistaradeildinni hefur árangurinn ekki verið alveg jafn glæstur, þeir eru með 11 stig í nítjánda sæti. Tæknilega geta 7 lið náð þeim, en 4 þeirra eiga leiki innbyrðis, þannig að til að þeir detti út annar af þeim leikjum að fara jafntefli, City þarf að vinna Club Brugge með litlum mun og svo þurfa Liverpool að vinna þá með einhverjum 5-6 mörkum þannig að markatalan þeirra fari í rúst. Fremur ólíklegt.
Það eru þó ekki nema þrjú stig frá nítjánda upp sjöunda sæti, líklega er engin útfærsla þar sem þeir ná upp í sjöunda til áttunda, en þeir geta klárlega lyft sér upp þónokkuð með sigri. Þeir hafa því að nógu að keppa á morgun.
Það munar um fyrir liðið að Ryan Flamingo er í banni í leiknum, eftir rautt spjald í síðasta leik og tveir af bandaríkjamönnum þeirra, Dest og Tillman eru meiddir. Kantmaðurinn Noa Lang var veikur um helgina svo hann er ekki öruggur og Ivan Peresic er ekki skráður í Evrópu hóp þeirra. Líklegasta byrjunarliðið þeirra er því eftirfarandi:
(4-2-3-1): Benítez; Ledezma, Boscagli, Obispo, Mauro Júnior, Veerman, Schouten, Bakayoko, Til, Lang, de Jong.
Ætla að vera opin með að ég er að styðja mig 100% við þessa grein. Fjöldi greina um Liverpool og greina sem fóru yfir andstæðinginn var ekki beint jafn í þetta sinn.
Þjálfari liðsins er Peter Bosz, fyrrum þjálfari Dortmund, Ajax og Beyrn Leverkusen. Leikurinn fer fram á Philips vellinum sem tekur 35 þúsund manns í sæti.

Okkar menn
Það er afar erfitt að lesa í hvernig er best að nálgast þennan leik. Eftir að Barcelona komu til baka gegn Benfica í síðustu viku varð ljóst Liverpool þarf stig hér til að vera öruggt um að vinna Meistaradeildar-deildina. Það munar einhverjum milljónum í verðlaunafé að vera efstir, það er kúl að hafa verið fyrstur til að vinna þessa útgáfu af keppninni og hugmyndin er að þú fáir aðeins veikari andstæðinga ef þú ert efstur. Eins og deildin hefur spilast gæti þó sá andstæðingur verið PSG eða Manchester City.
Það er líka stór útileikur á laugardaginn við Bournemouth, sem þarf að hafa í huga. Ég held þó að Slot haldi breytingum í lágmarki og treysti frekar á að hvíla menn eftir viku gegn Spurs. Eins og stendur eru ekki nema tveir leikmenn frá vegna meiðsla, Jota og Jones. Verður þó að teljast ólíklegt að Gomez spili miðað við að vera með eina æfingu á bakinu síðustu viku. Spurningin í hafsentinum verður því Quansah eða Konate? Þó Konate sé klárlega betri hafsent, þá finnst mér stórhættulegt að láta hann spila þrjá leiki á átta dögum og spái frekar unga manninum. Ég held líka að Slot treysti Robbo og Trent í bakvörðunum, þó ég hefði ekkert á móti því að sjá Tsimikas eða Bradley byrja.
Gravenberch er væntanlega fyrsti maður á blað og ég held að Szoboszlai og MacAllister verði með honum. Salah verður svo á sínum stað, en ég held að Nunez fái að byrja upp á topp. Svo væri bara ljótt að hafa Gakpo ekki í liðinu gegn sínum gamla klúbb.
Þetta hörkusterka lið ætti að geta unnið þennan leik og tryggt okkar mönnum fyrsta sætið. Ég gæti þó verið vel út á þekju með þetta því hvorki meira né minna en 12 leikmenn úr yngri liðunum tóku þátt í æfingunni í dag.

Spá.
Leikurinn fer hægt af stað en okkar menn taka öll völd um miðbik fyrri hálfleiks og enda á að vinna 3-0, þar sem öll framlínan skorar eitt.