Menn eða mýs?

Nú reynir á. Eftir langa og flotta sigurgöngu þá kom heldur betur bakslag í hlutina um síðustu helgi. Þessi 15 mínútna svefn sem liðið ákvað að taka á móti Bournemouth sló menn all svakalega niður á jörðina frægu. Það hefur svo sannarlega myndast tími til að fara vel yfir hlutina. Skoða myndbandið aftur og aftur og aftur og aftur. Það þarf ekkert að segja við þessa drengi, bara sýna þeim það hvernig þeir stimpluðu sig út úr vinnunni áður en vinnudagurinn kláraðist. Vonandi eigum við ekki eftir að berja hausnum við vegginn í vor og harma þessi stig sem töpuðust gegn Bournemouth og skiptu algjörlega sköpum í uppgjöri tímabilsins. Vonandi ekki. Það er allavega eitt sem er algjörlega á tæru, það getur enginn gert nokkurn skapaðan hlut í þessum málum núna. Sá leikur er búinn og við náum engu að breyta varðandi hann. Menn hafa aftur á móti svaðalegt tækifæri á að læra mikið af þeim leik og nýta þann lærdóm í þann næsta.

Þannig að nú reynir á. Það eru allir sem eitthvað smá vit hafa á fótbolta, sammála um það að þetta Liverpool lið hefur verið eitt það allra besta á tímabilinu og í þokkabót það lið sem skemmtilegast er að horfa á. Menn rifu sig upp á rasshárunum eftir vond úrslit gegn Burnley (voru óheppnir að taka bara eitt stig gegn Spurs á þeirra heimavelli) og litu hreinlega aldrei um öxl. Stóra málið var að þeir lærðu af mistökunum. Núna kemur í ljós úr hverju menn eru gerðir, eru menn alvöru menn eða bara mýs sem skríða inn í holuna sína við mótlætið. Auðvitað eru meiðsli að herja á lykilmenn liðsins þessa dagana, en hópurinn er nokkuð stór og vel stór sé mið tekið af því að liðið er ekki í Evrópukeppni. Nú reynir á að Klopp komi þeim í gang á ný. Eitt stykki Barcelona æfingaferð ætti ekki að hafa gert mikið ógagn í því að berja menn saman.

Þetta West Ham lið er alveg með ólíkindum. Voru verulega sterkir í fyrra og náðu mörgum frábærum úrslitum gegn stærstu liðunum. Þeir kvöddu sinn gamla heimavöll á ári sem þeir náðu inn í Evrópukeppni. En hvað? Hvað gerðist? Hvernig getur þetta vel mannaða lið með Bilic í brúnni verið í sautjánda sæti í deildinni, stigi fyrir ofan fallsæti og þrem stigum frá botnsætinu. Þetta allt eftir heilar 14 umferðir í deildinni. Á nýjum heimavelli og búnir að styrkja liðið talsvert án þess að missa frá sér neina lykilmenn. Hvernig fóru þeir í þetta? Heimavöllurinn er vonlaus, hreinlega ónýtur sem fótboltavöllur. Eitthvað hefur verið um meiðsli. Þeir duttu þráðbeint út úr Evrópukeppninni. Hvað er að? Er það Bilic? Er það völlurinn? Eru það stuðningsmennirnir? Eru það meiðslin? Er það skipulagið? Eru það mótherjarnir? Eru það vond kaup? Ætli það sé hreinlega ekki sitt lítið af hverju. Völlurinn og stuðningsmennirnir eru ekki að hjálpa þeim, en það getur aldrei verið lykilástæðan. Það er sko gras á vellinum og boltinn rúllar þar svipað og á öðrum grasvöllum. Þeir hafa heldur ekkert verið að brillera á útivöllum, sömu útivöllum og þeir stóðu sig vel á, á síðsta tímabili. Svei mér þá, Bilic hlýtur bara að eiga svolítið stóran þátt í þessari niðursveiflu.

Þeirra markahæsti leikmaður er kantur/væng bakvörður, það segir okkur talsvert um vandamálið þeirra. Talsverð gagnrýni hefur verið á varnarleik Liverpool á tímabilinu, en liðið hefur fengið á sig 18 mörk í 14 leikjum, sem er of mikið. West Ham hafa fengið á sig heil 29 mörk. Það væri kannski minna alvarlegt ef þeir hefðu ekki skorað heilum 20 mörkum færra en leikmenn Liverpool hafa gert í deildinni. Það er nefninlega ákveðið vandamál ef þú skorar lítið og færð mikið af mörkum á þig. Aðeins eitt lið í deildinni hefur fengið fleiri mörk á sig en West Ham en 5 lið hafa skorað færri mörk. Þetta skilar liðum einfaldlega í botnbaráttu, svo einfalt er það nú.

En það þýðir ekki það að ekki finnist hættulegir leikmenn í liði mótherja okkar, síður en svo. Það kemur líka að því að fótboltalið með þetta góða einstaklinga hrökkvi í gang. Vonandi gerist það ekki í þessum leik, en hversu dæmigert væri það nú samt? Maður eins og Payet er einfaldlega gæða knattspyrnumaður sem þarf að hafa góðar gætur á. Sama má segja um Antonio og Lanzini og nokkra fleiri. Menn eins og Collins, Kouyate, Sakho, Tore og Byram verða líklegast ekki með. Koyate telst líklegast sem lykilmaður hjá þeim, en aðrir síður.

En að okkar mönnum. Aðeins er byrjað að meitlast úr þessu frábæra liði okkar. Lykilmaður eins og Coutinho verður ekki með á næstunni og sama má segja um Daniel Sturridge. Ings er auðvitað frá út tímabilið og Sakho ennþá tognaður í toppstykki. Matip og Mané ættu að ná leiknum, en þeir eru búnir að vera að kljást við meiðsli. Adam Lallana fer vonandi að nálgast sitt “gamla” form, enda fékk hann aðeins að hlaupa í síðasta leik. Ég verð reyndar að fá að nýta mér tækifærið og halda áfram að hrósa honum Matip mínum, hann bara virðist ekki geta gert neitt rangt þessa dagana. Hann er sem sagt búinn að útiloka það að hann yfirgefi Liverpool í janúar til að taka þátt í Afríkukeppninni. Vel gert minn maður Matip (Sadio, ég er að horfa á þig núna…).

Sem sagt, allt klárt í að koma okkur aftur á beinu brautina. Firmino búinn að klára dapra leikinn sinn í bili og allt í standi til að taka annað álíka “rönn” og síðast. Karius heldur sæti sínu í markinu, ekki nokkur spurning um það og Klopp búinn að taka af allan vafa í viðtölum í dag. Clyne á auðvitað hægri bakk stöðuna og Milner mun girða sig í brók vinstra megin og sýna aftur af hverju hann er talinn sá besti í þeirri stöðu á tímabilinu. Matip og Lovren fá svo aftur tækifæri á að rækta sitt samband í vörninni. Hendo heldur áfram þar fyrir framan, en ég er í talsverðum vandræðum með að ákveða mig hvað ég eigi að giska á hverjir verði þar fyrir framan. Lallana klár á ný og svo erum við með Can og Wijnaldum. Einn mun verða útundan, það er ljóst. Ef ég fengi að ráða, þá myndi ég fara inn í leikinn með Lallana, allan tímann. Hann er bara það skapandi á miðjunni að ég vil helst ekki vera án hans. Þá er það bara beint val á milli Gini og Can. Can skoraði í síðasta leik, en mér fannst hinn heilt yfir betri í leiknum. Auðvitað er alltaf meira áberandi þegar menn skora, en mér fannst Hollendingurinn spila betur og því myndi ég byrja með hann. Ég held þó að Klopp fari ekki eftir mínum ráðum og að hann muni spila þeim Can og Wijnaldum saman. Firmino og Mané verða svo fyrir aftan Origi. Sterkt lið, engin spurning og vonandi að þeir bara skili þessum 3 stigum í hús sem við þurfum svo mikið á að halda.

Karius

Clyne – Matip – Lovren – Milner

Wijnaldum – Henderson – Can

Mané – Origi – Firmino

Og hvað? Hvað er til ráða? Ég man eftir teiknimyndasögum frá því þegar ég var ungur. Fótboltafélagið Falur hétu þessar bækur. Þegar allt gekk á afturfótunum hjá liðinu, þá var breskur þjálfari ráðinn sem var ekkert að stressa sig mikið yfir því að þjálfa þessa snillinga sem hann fékk upp í hendurnar. Hann sagði þeim bara að spila fótbolta, og það á ensku. Þegar búið var að þýða það fyrir drengina, þá gerðu þeir það einmitt, spiluðu fótbolta og fóru að vinna leiki. Þetta lið okkar er ekkert Falslið, en þeir kunna svo sannarlega fótbolta. Klopp mun einfaldlega segja þeim að vaða út á þennan völl og spila sinn leik. Geri þeir það, án þess að taka sér 15 mínútur í væran blund, þá munu þeir keyra yfir þetta West Ham lið sem við gátum ekki sigrað í fjórum tilraunum á síðasta tímabili. Það er bara ein F*****g regla, bara negla…þetta West Ham lið. Meira var það ekki.

11 Comments

  1. Origi komin með 3 mörk úr seinustu 3 leikjum, vonandi heldur hann áfram að setjann og kannski spila aðeins betur heilt yfir. Gæti orðið virkilega góður og fær mann lítið til að sakna Studge.
    Það er gríðarlega mikilvægt að sigla heim 3 stigum þar sem júnætid og spurs spila saman og tilvalið að ná betra forskoti á þessi lið.

    Nokkuð sammála liðinu hjá þér nema ég myndi vilja fá Lallana inn fyrir Wijnaldum sem á þó ekki skilið að missa sætið sitt en það er gott og erfitt vandamál fyrir Klopp að velja. Reyndar bara eina “vandamálið” þar sem allt hitt er sjálfvalið.

    Spái þessu 3-0

  2. Origi út Lallana inn. Þurfum að liðið spili sem heild til að leikaðferð okkar virki. Origi er með hnefil af hæfileikum/potential en ekki hausinn og þar af getuna/nennuna til að spila okkar bolta. Leiðinda mál

  3. Sælir félagar

    Menn eða mýs já það er spurning. Það er auðvitað mál til komið að við förum að hefna fyrir meðferðina sem við fengum hjá Hömrunum á síðustu leiktíð. Þá hýddu þeir okkur í bak og fyrir svo að okkar menn veltust um emjandi. Það var slæmt. Því er mál að linni.

    Sigur og ekkert nema sigur á minn disk. Mér er sama hvort það verður naumur og ljótur sigur eða yfirburða og fallegur. Eins og West Ham hefur verið að spila er ekki annað boðlegt en að vinna þá og yrði nánast kveðjuleikur í baráttu um meistaratitilinn að tapa. Ég er samt ekki að búast við að við verðum meistarar en ég vil að okkar menn verði í meistarabaráttu allt til vors.

    Það er nú þannig

    YNWA

  4. Ég spái mjög sókndjörfu liði eins og við vorum með áður en Lallana meiðist.

    Við munum taka annað hvort Can eða Winjaldum úr liðinu og setja Lallana á miðjuna þar sem hann er sterkastur með vinnslu og sköpunarkrafti.

    3 stig eru það sem við viljum en það væri ekki leiðinlegt ef við myndum líka ná að spila vel og koma okkur aðeins í gang.

  5. Þegar við erum þarna uppi á toppnum þá mega svona slys eins og síðustu helgi ekki koma upp á næstunni.
    City tapa núna og Chelsea eiga sýndan leik en ekki gefinn.
    WH eru særðir og duttu í fallsæti í dag og það gæti mótiverað þá fyrir morgundaginn.
    Okkar menn eru líka særðir og verða að mæta á fullu gasi.
    Dásemdin við þessa deild er að maður er ekki í rónni þó liðið í þriðja efsta sæti sé að fara að mæta liðinu í þriðja neðsta sæti og það á heimavelli.
    Við tökum þetta samt í afgerandi leik. Matip skorar eftir horn, Firmino eftir klobba innfyrir og Lallana klárar þetta eftir þríhyrning og gabbhreyfingu í teignum.

    YNWA

  6. Langar rosalega að fá Moreno í bakvörðinn og Milner framar í þessum heimaleikjum þar sem við verðum lílkega með 70% possession. Milner lagði þau ófá upp í fyrra og með hann og Lallana á miðjunni með Hendo gætum við hlaupið yfir þessi lið.

Kop.is Podcast #130

Liverpool – West Ham 2-2