Byrjunarliðið vs. Aston Villa á Anfield

Rauði herinn snýr aftur á Anfield eftir ógæfusama herferð í nágrannasveitarfélag. Miðlendingar Aston Villa eru komnir í heimsókn og eru í bullandi fallbaráttu. Okkar menn verða vonandi grjótharðir á að svara fyrir sig og safna stigum í sarpinn fyrir hugsanlegt stigamet í deildinni.

Byrjunarliðin

Eftir afhroðið gegn City þá gerir Klopp þrjár breytingar á byrjunarliðinu. Origi kemur inn fyrir Firmino í framlínuna og Keita og Oxlade-Chamberlain koma inn á miðjuna fyrir Henderson og Wijnaldum.

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Gomez, Van Dijk, Robertson, Fabinho, Keita, Oxlade-Chamberlain, Mane, Salah, Origi.

Bekkur: Adrian, Wijnaldum, Firmino, Henderson, Minamino, Shaqiri, Jones, Elliott, Williams.

Dean Smith stillir sínu liði upp á eftirfarandi hátt og það vekur skemmtilega athygli að Pepe Reina er í markinu.

Blaðamannafundur

Klopp mætti pressunni á föstudaginn og fór yfir málin:

Upphitunarlag dagsins

Þar sem Birmingham-búarnir í Aston Villa eru mættir í Bítlaborgina þá er við hæfi að óskabörn Birmingham sjái um viðeigandi upphitun. Duran Duran og James Bond eru lagvissir og skotvissir að vanda og skjóta í mark eins og stórskotalið Rauða hersins:

Leikurinn hefst klukkan 15:30 og minnum við að sjálfsögðu á heimavöll okkar, Sport & Grill í Smáralind. Boltatilboð yfir leikjum og um að gera að hafa samband uppá að panta borð.

Come on you REDS! Allez! Allez! Allez!

YNWA!

Við minnum á #kopis á Twitter og umræðuna í athugasemdum hér að neðan og á Facebook.

16 Comments

  1. Koma svo, vil sjá burst. Villa getut ekkert og fær ávallt á sig fullt af mörkum.
    Svo heldur markvörður Villa með hinu liðinu, það boðar bara gott.
    5-6 núll.

    3
  2. Guð minn almáttugur, eru menn hættir. Afhverju er maður að eyða tíma í þetta.

    3
  3. Leyfa ungu strákunum að spila þetta er ekki boðlegt ef þeir ætla spila svona í seinni.

    2
  4. Sæl og blessuð.

    Ekki er þetta merkilegur leikur – engin dauðafæri og við sjáum ekki þessa miðju sem er nýfarin út af fóðra framlíuna á neinu konfekti. Mjallhærður Origi var ekki að heilla. Hressist núna þegar Hendó, Gini og Firmino eru mættir. Held það sé hausthreingerning í kortunum.

    Og… þá skorar Mané þetta undurfagra mark!!!

    1
  5. Af hverju fengum við ekki víti þegar þegar héngu í Salah?

    1
  6. Ég get ekki séð að Origi og Ox séu framtíðarmenn í þessu liði.

    2

Upphitun: Liverpool – Aston Villa

Liverpool 2-0 Aston Villa