Landsliðsmenn úr Liverpool á Euro 2008

Nú er liðinn frestur landsliðsþjálfara til að gefa upp nöfn leikmanna í 23 manna hópum þeirra fyrir Evrópumótið í knattspyrnu í sumar. Liverpool á þar (í dag) sjö fulltrúa:
Philipp Degen verður í landsliðshópi Sviss, þrátt fyrir nýleg meiðsli, og verður að vísu ekki formlega leikmaður Liverpool fyrr en í sumar.
Dirk Kuyt og Ryan Babel verða ferskir í hollenska landsliðinu.
Fernando Torres, Xabi Alonso, Alvaro Arbeloa og Pepe Reina verða í landsliðshópi Spánverja – en það er þá spurning hvort Alonso verði enn Liverpool maður þegar mótið hefst, hmm?

LIVERPOOL BESTIR Í EVRÓPU!!
Frétt frá Liverpool Echo greinir frá því í dag, að Liverpool mun hefja næsta tímabil sem besta lið Evrópu! Auðvitað … hvað annað??? Þetta er byggt á lista frá UEFA og er árangri síðustu 5 ára að þakka. Chelsea er í þriðja sæti, Arsenal í sjötta sæti og núverandi Evrópumeistarar í sjöunda sæti. Já, gullöld enskra liða sannarlega: fjögur af sjö bestu liðum Evrópu!

4 Comments

  1. Takk fyrir þettta, Brynjar. En bara vinsamleg ábending. Þetta Caught Offside blogg fer mikið í taugarnar á mér þar sem að allar fyrirsagnirnar virðast til þess gerðar að fá sem flestar heimsóknir af News Now.

    Ef þið sjáið eitthvað athyglisvert á Caught Offside, takið ykkur 5 mínútur í að reyna að finna upphaflegu greinina, þar sem þetta er bara blogg sem vísar í aðrar greinar. Það er jú einsog þessi síða, en við erum ekki í því að hórast í einhverjum fyrirsagnaleik einsog Caught Offside og því vil ég ekki verðlauna þá með heimsóknum héðan. Einnig fer það í taugarnar á mér að þeir vitna í fréttir, en tengja nánast aldrei á upphaflegu fréttina.

    Hérna er semsagt upphaflega fréttin: af Setanta en hún er að mestu leyti byggð á nokkurra daga gömlu viðtali í Marca og svo einhverjum spekúlasjónum um að Liverpool væri líklegur staður fyrir Villa.

  2. Mér fannst skrítið að sjá svona fáa í Liverpool á EM en hugsaði svo til Englands sem gerði svo vel að komast ekki á EM haha. (lokakeppnina þ.e.a.s.)

    Þó ég væri mikið til í Villa, þá vil ég sjá liverpool spila með 1 frammi og 3 á miðju. Efast um að Villa væri til í að vera backup fyrir torres þó það væri alltaf fínt.. fá bent í það hlutverk.
    Ég vil líka halda miðjunni þannig að Mascerano og Alonso séu aftari og Gerrard fyrir framan, með Babel og Annan alvöru kanntmann, sem verður vonandi keyptur fjótlega 🙂

    Og svo er það vörnin, væri fallegt ef Agger og Skrtel fengu að blómstra saman í hafsent, með Carragher hægra meginn og keyptann vinstri bakvörð sem eitthvað er varið í, og þá spyr ég, er Dossena ( man ekki alveg nafnið) að koma til liverpool fyrir víst?

Ný færsla

Fer Alonso og kemur Barry? (uppfært)